Morgunblaðið - 29.06.1990, Side 1
64 SÍÐUR B/C
145. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tillögur um breytingar á skipulagi sovéska kommúnistaflokksins:
Hitabylgja í Bandaríkjunum:
Suðvesturríkjunum
líkt við púðurtunnu
HITABYLGJAN í suðvesturríkj-
uni Bandaríkjanna hefiir valdið
mikilli röskun á högum fólks.
Skógareldar hafa geisað og
brennt a.m.k. 500 hús og nokkrir
hafa látist í viðureign við eldinn
og af völdum hitans. Að sögn
Gíslg Guðmundssonar sem er í
doktorsnámi í Phoenix er hitinn
ólýsanlegur og iðka menn það
sér til gamans að steikja egg á
malbiki á götum úti.
Mesta tjónið hefur orðið í Suður-
Kaliforníu. Einna mestur varð hitinn
í Phoenix í Arizona, 50 gráður á
celsius, sem er met í ríkinu. Einn
slökkviliðsmanna sagði í samtali við
Keuíers-fréttastofuna að suðvest-
urríkjunum mætti líkja við púður:
tunnu sem biði þess að springa. í
Santa Barbara norður af Los Ange-
les þar sem býr margt auðmanna
eyðilögðust 340 hús í skógareldi í
gær. Sex slökkviliðsmenn hafa látist
í viðureigninni við eldinn. Sjö manns
hafa látist sökum hitans, meðal ann-
ars íjögurra ára gamall drengur sem
lokaðist inni í bíl.
Veðurfræðingar búast ekki við því
að neitt lát verði á hitunum fyrr en
eftir helgina í fyrsta lagi.
Sjá viðtöl við Islendinga í Ariz-
ona á bls. 22.
Sagðar í samræmi við hug-
myndafræði harðlínumanna
Námsmeyjar þjálfaðar í hermennsku
Stjórnvöld í Kína hafa nú skyldað alla þá sem ganga menntaveginn
þar' í landi til að sækja námskeið þar sem kennd eru undirstöðuat-
riði hermennsku. Námsmenn stóðu, likt og menn muna, fyrir miklum
mótmælum í Kína á síðasta ári ög er talið að stjórnvöld vilji með
þessu tryggja sósíalískan aga og stöðugleika. Myndin sýnir náms-
meyjar við Alþýðuháskólann í Peking við skotæfingar.
Reuter
Sjálfboðaliðar í Glendale í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum freista þess að bjarga húsi nágranna síns
nieð því að dæla á það vatni úr garðslöngum en allt um kring loga eldarnir og hitinn er óskaplegur.
ráðherra Litháens, hvatti fulltrúa á
þingi landsins í gær til að fresta
sjálfstæðisyfirlýsingunni frá 11.
mars til að unnt yrði að hefja samn-
ingaviðræður við stjórnvöld í
Moskvu. Gorbatsjov hefur sett
þessa kröfu fram í viðræðum við
fulltrúa Litháa. Þingmenn greinir á
um hvort ganga beri að tillögu
Prunskiene og litháísku ríkisstjórn-
arinnar og forseti landsins, Vytaut-
as Landsbergis, er sagður
tvístígandi. Verður þingumræðu um
málið haldið áfram í dag, föstudag.
hefur komið um að þingi flokksins,
sem hefjast átti á mánudag, verði
frestað. Umbótasinnar vilja að
þinginu verði slegið á frest enda
þykja harðlínumenn hafa treyst
stöðu sína á undanförnum vikum.
Almennt er búist við að þinginu ljúki
með uppgjöri þessara tveggja fylk-
inga og að fast verði sótt að Gorb-
atsjov en harðlínumenn óttast að
slökunarstefna hans og sjálfstæðis-
barátta einstakra lýðvelda muni
leiða til hruns Sovétríkjanna.
Kazimiera Prunskiene, forsætis-
Moskvu, Vilnius. Reuter.
KYNNTAR hafa verið í.Sovétríkjunum tillögur um róttækar breyting-
ar á skipulagi sovéska kommúnistaflokksins. Málgagn flokksins,
Pravda, birti tillögurnar í gær en þær gera m.a. ráð fýrir að stjórn-
málaráðið, sem verið hefur æðsta stofnun sovéska valdakerlísins,
verði lagt af sem og embætti aðalritara. Tillögurnar verða lagðar
fram á þingi ílokksins, sem áformað er að hefjist í næstu viku en
þær þykja bera keim af hugmyndafræði sovéskra harðlínukommún-
ista. Á þingi Litháens er deilt um hvort fresta beri sjálfstæðisyfirlýs-
ingu landsmanna til að unnt verði að hefja samningaviðræður við
Sovétstjórnina.
Verði hugmyndir þessar að veru-
leika verður formaður kommúnista-
flokksins æðsti embættismaður
hans en embætti aðalritara verður
lagt niður. Míkhaíl S. Gorbatsjov
gegnir nú því embætti en hann er
einnig forseti Sovétríkjanna. For-
maður flokksins verður í forsvari
fyrir nýju forsætisráði sem koma á
í stað stjórnmálaráðsins. Forsætis-
ráðinu er ætlað að hafa með hönd-
um skipulagsmál og almenna
stefnumótun á milli þess sem mið-
stjórn flokksins kemur saman. Sér-
stök stjórnardeild mun sjá um að
hrinda í framkvæmd ákvörðunum
miðstjórnarinnar og hafa umsjón
með embættismannakerfinu.
Þá kveða tillögurnar einnig á um
að embættismenn verði skipaðir til
fimm ára í senn og að sami maður
geti aðeins gegnt tilteknu embætti
í tíu ár. Engin slík ákvæði hafa
verið í lögum flokksins og hafa
ráðamenn margir hveijir haldið
stöðum sínum allt þar til þeir hafa
safnast til feðra sinna.
í tillögunum er ennfremur kveðið
á um að hvergi verði hvikað frá
„lýðræðislegri miðstýringu“ en það
hugtak felur í sér að öll ákvarðana-
taka kemur að ofan. Sögðu Sovét-
sérfræðingar sem tíðindamaður
Reuters-fréttastofunnar ræddi við
í Moskvu í gær að tillögurnar væru
mjög í anda harðlínukommúnista
og að líklegt væri að umbótasinnar
gætu ekki samþykkt þær. Miðstjórn
flokksins kemur saman í dag, föstu-
dag, til að ræða kröfu sem fram
• •
ROSE-ráðstefiia í Kaupmannahöfii:
Tímamótayfirlýsing um
íjölræði og lýðréttindi
Kaupmannaliöfn. Reuter.
FULLTRÚAR 35 ríkja er setið
hafa mannréttindaráðstefnu í
Kaupmannahöfii samþykktu í
gær tímamótayfirlýsingu sem
ætlað er að tryggja fjölræði og
lýðréttindi og treysta réttarrík-
ið í sessi í lönduin Austur-Evr-
ópu.
Max Kampelmann, formaður
sendinefndar Bandaríkjanna,
sagði samþykktina jafngilda yfir-
lýsingu um að Evrópa væri frjáls,
ein og óskipt. Öll ríki Evrópu
hefðu nú skuldbundið sig til að
fylgja leikreglum lýðræðisins og
koma á nýju skipulagi er grund-
vallað væri á samvinnu, öryggi,
friði og réttlæti. Sovéskur starfs-
bróðir hans( Júrí Reshetov, sagð-
ist telja að Iíta mætti á samþykkt-
ina sem „nýja evrópska stjórnar-
skrá“.
Fulltrúar á ráðstefnunni, sem
fram fer á vegum Ráðstefnu um
öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÖSE), sögðu fyrstu grein sam-
þykktarinnar þá mikilvægustu.
Hún skuldbindur ríkin 35 til að
viðurkenna grúndvallarreglur
réttarríkisins, fjölflokkakerfi og
frjálsar kosningar. í lokaskjalinu
er einnig kveðið á um rétt minni-
hlutahópa en deilt hafði verið um
orðalag þeirrar greinar og þykir
það nokkuð óljóst.
Fulltrúar allra ríkja Evrópu, að
. Albaníu undanskilinni, sitja ráð-
stefnuna auk sendinefnda frá
Bandaríkjunum og Kanada.
Ung-verjaland
griðastaður
„Carlosar“?
Búdapest. Reuter.
DAGBLÖÐ í Ungveijalandi
birtu í gær bréf sem sagt er
að hryðjuverkamaðurinn ill-
ræmdi „Carlos“ hafi skrifað
Janos Kadar, fyrrum leið-
toga ungverskra kommún-
ista.
í bréfinu sem dagsett er 2.
apríl 1980 þakkar „Carlos"
Kadar veittan stuðning en bréf-
ið skrifar hann í nafni „Alþjóða-
samtaka byltingarmanna".
Getur hann þess að það komi
félögum í samtökunum vel að
njóta þess öryggis sem Ung-
verjaland veiti þeim og nefnir
að þeir geti farið óáreittir ferða
sinna í sósíalískum ríkjum. Enn
hefur ekki fengist staðfest með
óyggjandi hætti að bréfið sé
ófalsað.
„Carlos“ er talinn í hópi
hættulegustu hryðjuverka-
manna heims. Hann er fæddur
í Venesúela og heitir réttu nafni
Ilych Ramirez Sanchez. Ungur
gekk hann til liðs við Þjóðfrels-
isfylkingu Palestínu (PFLP) og
þykir fullsannað að hann hafi
staðið fyrir morðum, mannrán-
um og öðrum ódæðisverkum í
Vestur-Evrópu, Mið-Austur-
löndum og Japan.