Morgunblaðið - 29.06.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JLINÍ 1990
Vonumst til að ríkissjóður hjálpi
til að varðveita Strandarkirkju
- segir Kristófer Bjarnason staðarhaldari
VINNU í varnargaröi við Strand-
arkirkju hefur verið hætt vegna
fjárskorts. Hlaðið var i 120 metra
skarð í garðinum sem myndaðist
í vetur og gert við 300 metra lang-
an kafla til bráðabirgða. Kristófer
Bjarnason staðarhaldari segir að
3 milljónir króna vanti til þess að
ganga tryggilega frá varnargarð-
inum. Hann kveðst vonast eftir
því framlagi á fjárlögum næsta
árs, kirkjan megi ekki leggjast í
auðn. Ríkissjóður hjálpi vonandi
til að varðveita hana.
„Hingað liggur stöðugur straum-
ur ferðamanna," segir Kristófer,
„síðasta sunnudag komu til að
mynda 50 manns í kirkjuna. Áheit
gera það að verkum að drýgstur
hluti í kirkjusjóði sem Biskupsstofa
varðveitir er frá Strandarkirkju
kominn. Kirkjur landsins verða að
leggja fé sitt í sjóðinn og þær tvær
milljónir sem farið hafa í vinnuna
við varnargarðinn fengust frá Bisk-
upsstofu. Hins vegar hafa ekki feng-
ist peningar frá ríkissjóði. Raunar
hefur ríkið tekið 600 þúsund af þess-
um tveimur milljónum til sín í virðis-
aukaskatt og fleira.“
Kristófer segir að pyngjan sé nú
orðin tóm og verktaki hafi neyðst
til að hætta vinnu í varnargarðinum.
Eftir er vinna á um 400 metra kafla
í garðinum. „Maður vonast eftir að
fá peninga frá ríkinu á næsta ári
svo hægt verði að styrkja garðinn
nægjanlega og forða því sem ella
blasir við, að Strandarkirkja hrein-
lega leggist í auðn.“
Óánægja með kynbótadóma:
Engar aðgerðir fyrir
landsmót hestamanna
FULLTRÚAR frá hrossaræktar-
samböndum, Félagi hrossabænda
og hestamannafélögum víða um
land hafa haldið fundi að ósk fé-
laga sinna á undanfömum vikum
vegna mikillar óánægju með kyn-
bótadóma í vor. Á þessum fundum
voru kosnir fulltrúar til að mæta
á sameiginlegan fiind á Hvann-
eyri til að ræða þessi mál, en
hann var haldinn á miðvikudags-
kvöldið.
Að sögn Einars Gíslasonar for-
manns Félags hrossabænda var
VEÐUR
fundurinn lokaður og hefur verið
ákveðið að láta málið liggja niðri þar
til landsmót hestamanna á Vind-
heimamelum er afstaðið. Ekki vildi
hann tjá sig um til hvaða aðgerða
verður gripið þá.
Ákveðið var að teygja á einkunna-
skala kynbótahrossa, en að sögn
Einars eru menn óánægðir vegna
þess að þeir telja að einkunnir hafí
verið óeðlilega lágar. Færri hross
hafi komist í ættbók en eðlilegt má
teljast og of fá hross hafi náð 1.
verðlaunum.
ÍDACkl. 12.00
Heirnild.N ......
{ByQ9t á vööurspá kl. 16.15 í gm)
VEÐURHORFUR í DAG, 29. JÚNÍ
YRRLIT I GÆR: Um 700 km SSA af Ingólfshöfða er smálægð sem
þokast SA en é sunnanverðu Grænlandshafi er 1020 mb hæð. Um
500 km SV af Hvarfi er 1000 mb lægð sem þokast N.
SPÁ: Norðvestlæg eöa breytileg átt á landinu, víðast fremur hæg.
Vfða 12-16 stiga hiti um sunnan- og vestanvert landið og yfirleitt
léttskýjað. Þokuloft og svalt við N- og A-ströndina en hlýrra og
sums staðar-bjart veður í innsveitum norðaustanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Fremur hæg NV-átt.
Þokusúld við norðurströndina, en þurrt og víða léttskýjað annars
staðar. Svalt verður norðan- og norðvestanlands, en sæmilega
hiýtt að deginum um sunnan- og suðaustanvert landið.
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Úk. Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
/ r r r Rigning
r r r
* r *
r * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
' * * *________________
■J0 Hftastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V EI
— Þoka
= Þokumóða
», > Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
|~^ Þrumuveður
VEÐUR I/ÍÐA UM HEIM
kl, 12:00 í gær að ísl, tíma
httf veður
Akureyri 5 hálfskýjað
Reykjavík 11 léttskýjað
Bergen 13 . rigning
Helslnki 20 skýjað
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Narssarssuaq Ö léttskýjað
Nuuk 6 hélfskýjað
Ostó 13 rigning
Stokkhólmur ie rigníng
Þórahöfn 9 atskýjað
Algarve 22 heiðskfrt
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 28 téttskýjað
Bertfn 24 skúr
Chicago 17 alskýjað
Feneyjar 30 téttskýjað
Frankfurt 28 (éttskýjað
Qlasgow 15 skúr
Hamborg 20 mistur
LasPalmae 24 skýjað
London 18 skýjað
Los Angetes vantar
Lúxemborg 18 skýjað
Madrid 31 mistur
Malaga 22 þoka
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 12 skýjað
NewYork 24 mistur
Ortando 23 hálfskýjað
París 18 skýjað
Itóm 28 heiðskirt
Vfn 28 téttskýjað
Washington 25 mistur
Winnipeg 19 alskýjað
Morgunblaðið/KGA
Tómas Grétar Ólafsson verktaki og Kristófer Bjarnason staðarhald-
ari við varnargarðinn nærri Strandarkirkju.
Yfirlýsing fi’á lögreglu-
stjóranum í Reykjavík
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá lög-
reglustjóranum í Reylyavík:
Vegna greinar í nýjasta tölublaði
Pressunnar um friðhelgi heimilanna
þar sem haft er eftir aðalvarðstjóra
að lögreglan telji heimilisofbeldi
einkamál vill lögreglustjórinn í
Reykjavík koma eftirfarandi at-
hugasemd á framfæri:
Greinin felur í sér villandi upplýs-
ingar um aðgerðir og þátt lögreglu
vegna ofbeldismála, sem eiga sér
stað á heimilum fólks. Fram kemur
að lögreglan aðhafist ekkert nema
sá, sem fyrir ofbeldi verður, óski
sérstaklega eftir afskiptum lög-
reglu eða leggi fram formlega
kæru. Hið rétta er að heimilisof-
beldi er ekki frekar en annað of-
beldi einkamál viðkomandi fólks.
Ofbeldi ér og mál samfélagsins í
hvaða mynd sem það birtist. Berist
lögreglu upplýsingar eða fái hún
vitneskju um mál sem flokkast und-
ir minniháttar meiðsl, að ekki sé
minnst á alvarlegri meiðsl, er þegar
í stað gripið til viðeigandi ráðstaf-
ana og hafin rannsókn á málavöxt-
um, án tillits til þess hvort vitað
sé að þolandi ætli sér að kæra atvik-
ið eða ekki. Það er ekki skilyrði að
lögð sé fram refsikrafa í líkams-
árásarmáli, hvort sem það hefur
átt sér stað inn á friðhelgu heimili
eða utan þess. Gögn um ofbeldimál
á heimilum eru send viðkomandi
yfirvöldum, sem taka ákvörðun um
framhaldsmeðferð þeirra.
í upplýsingaritum fyrir yfirmenn
í lögreglunni í Reykjavík, og aðra
lögreglumenn, kemur skýrt fram
hvernig meðhöndla skuli þessi mál.
Greinin í Pressunni gefur þó tilefni
til þess að skoða upphaf og með-
ferð mála hjá lögreglu vegna heimil-
isofbeldismála og hafa þegar verið
gerðar ráðstafanir til þess að svo
megi verða.
Fólk er hvatt til þess að tilkynna
til lögreglu einstök ofbeldisatvik,
sem það fær vitneskju um eða er
aðili að á einn eða annan hátt, hvort
sem þau eiga sér stáð á heimilum
eða annars staðar.
Böðvar Bragason
Fulltróar minnihluta
gegn aðstoð við Stöð 2
FULLTRÚAR minnihlutans í borgarstjórn leggjast flestir gegn
aðstoð við íslenska sjónvarpsfélagið, Stöð tvö. Fulltrúar Nýs vett-
vangs, Kvennalista og Alþýðubandalags lýstu andstöðu sinni við
slíka fyrirgreiðslu, en Sigrún Magnúsdóttir fúlltrúi Framsóknar-
flokksins í borgarsljórn kveðst ekki gefa upp afstöðu sína. Forráða-
menn Stöðvar tvö hafa óskað eftir því að Reykjavíkurborg ábyrg-
ist 200 milljóna króna lán til fyrirtækisins.
fulltrúa Alþýðubandalagsins, segir
að málið hafi ekki verið rætt á
vettvangi flokksins. Það sé sín
afstaða að hafna beri erindi Stöðv-
ar tvö. „Af hveiju skyldi borgin
ábyrgjast lán fyrir Stöð tvö, frekar
en fyrir Morgunblaðið, Þjóðviljann
eða eitthvert annað fyrirtæki?"
segir Guðrún.
„Ég hef tekið þátt í því sem
borgarfulltrúi að veita lánsábyrgð
til félagsamtaka. Þar voru lögð
fram veð í eignum, auk þess sem
ég tel að slík fyrirgreiðsla sé allt
annars eðlis en sú sem hér er um
að ræða.“
Samtök um kvennalista hafa
ekki tekið formlega afstöðu til
erindis Stöðvar tvö, en Elín G.
Ólafsdóttir borgarfulltrúi samtak-
anna kveðst leggjast gegn aðstoð
við fyrirtækið. „Ég lýt svo á að
slík aðstoð við einkafyrirtæki gæti
verið fordæmi sem erfitt gæti
reynst að taka aftur,“ segir Elín.
ur Siguijóns Pétúrssönar börgar-
Kristín Á. Ólafsdóttir segir að
borgarmálaráð Nýs vettvangs hafi
fjallað um erindi Stöðvar tvö á
miðvikudag. Niðurstaða ráðsins
hafi verið sú að Nýr vettvangur
leggist gegn aðstoð við sjónvarps-
stöðina. Kristín segir að slík að-
stoð gæti skapað slæmt fordæmi.
„Það er mjög sjaldgæft að borgin
veiti slíka ábyrgð. Ef það væri
gert þyrftu miklir atvinnuhags-
munir að vera í húfi, en svo er
ekki í þessu tilfelli,“ segir Kristín.
„Ef orðið væri við þessu erindi
væri borgin komin út á mjög vafa-
sama braut. Það er ljóst að hún
tæki gríðarlega áhættu með slíkri
fyrirgreiðslu, því hér er um mikla
fjármuni að ræða, fjármuni Reyk-
víkinga. Ég tel að borgarfulltrúar
eigi að gæta hagsmuna borgarbúa
fyrst og fremst og leggst því ein-
dregið gegn þessu,“ segir Krístín
Ólafsdóttir._
Guðrún Ágústsdóttir, varamað-