Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990 Yfirlýsing landbúnaðarráð- herra um deilumar á Mógilsá Morgunblaðinu iiefur borist eftir- farandi yfirlýsing um Rannsókna- stöð Skógræktar ríkisins á Móg- ilsá: Því miður sé ég mig knúinn til að senda frá mér eftirfarandi grein- argerð um lausnarbeiðni og starfs- lok forstöðumanns Rannsóknar- stöðvar Skógræktar ríkisins' á Móg- ilsá. Eftir að ég hef síðastliðnar vik- ur forðast eftir föngum að rekja í fjölmiðlum þau Jeiðu deilumál sem voru aðdragandi starfsloka Jóns Gunnars Ottóssonar sem forstöðu- manns á Mógilsá, sé ég mér ekki léngur fært annað en að skýra málið frá minni hlið og landfaúnaðar- ráðuneytisins. Þar koma m.a. til síendurteknar rangfærslur og órök- studdar fullyrðingar um afstöðu mína, stefnu landbúnaðarráðuneyt- isins, Skógræktar ríkisins og fieiri aðila til fjölmargra mála. Ég tel það ekki lengur réttlætanlegt að al- menningur fái eingöngu að heyra þann málflutning sem fráfarandi forstöðumaður, Jón Gunnar Ottós- son, hefur haldið uppi í blaðavið- tölum og fréttum. í raun má segja að mál þetta sé ekki flóknara en svo, að starfsmað- ur hafi sagt upp og jafnframt til- greint að hann treysti sér ekki til að vinná við þær aðstæður sem starfið byði upp á. Þá hafi verið fallist á uppsagnarbeiðni hans og jafnframt ákveðið að leggja það ekki á hann, starfsmanninn, né hafi vinnuveitandi talið sér það hag- stætt, að hann ynni út uppsagnar- frestinn. Þess í stað yrðu honum greidd full laun, en frekara vinnu- framlag afþakkað, eins og gerst hefur æ algengara við sambærilegar aðstæður á vinnumarkaðinum. Þar með hefði þetta mál átt að geta heyrt sögunni til. Sú hefur því mið- ur ekki orðið raunin á. Nú er svo komið, eins og áður sagði, að ég sé mér því miður ekki annað fært en að upplýsa einnig nokkuð um bakgrunn þessa máls. Ég hlýt að harma að margir mætir menn, nafngreindir, hafa með ýmsum hætti dregist inn í þessa deilu. Ber þar hæst bæði fyrrver- andi og núverandi skógræktar- stjóra, ráðuneytisstjóra landbúnað- arráðuneytisins og fleira starfsfólk þar, stjómarmenn Rannsóknastöðv- ar Skógræktar ríkisins á Mógilsá og fleiri ónafngreinda menn sem sinna rannsókna- eða umhverfis- málum. Það er hins vegar ekki æti- unin hér að taka til vama eða svara fyrir þessa aðila, enda era þeir vænt- anlega fullfærir um hvora tveggja; að meta það sjálfir hvort þeir sjá ástæður til svara og þá að veita þau svör. Ég mun hins vegar hér á eftir stikla á stóra hvað varðar aðdrag- anda þeirra atburða sem orðið hafa á Rannsóknastöð Skógræktar ríkis- ins á Mógilsá á þessu vori og tek það fram á nýjan leik að það geri ég tilneyddur og hefði miklu fremur kosið að það'sem ég tíni til sögunn- ar hér eftir hefði mátt kyrrt liggja með öðra sem ekki fer á blað. Deilur fráfarandi forstöðu- manns á Mógilsá við fyrrverandi og núverandi skógræktarstjóra, landbúnaðarráðuneytið og fleiri aðila. 1. Það var fyrir um einu ári að fyrst fór að bera verulega á deilum og ágreiningi af ýmsum toga milli Jóns Gunnars Ottóssonar, forstöðu- manns á Mógilsá, sem ætíð kom fram fyrir hönd stöðvarinnar og þá fyrst og fremst við fyrrv. skógrækt- arstjóra, Sigurð Blöndal. Kvörtuðu báðir aðilar við mig munnlega í nokkur skipti sumarið 1989 og varð mér smátt og smátt ljóst að um alvarlegan ágreining og verulegan trúnaðarbrest milli manna væri að ræða. 2. Eitt af því sem fljótlega kom upp á yfirborðið í þéssari deilu voru átök um yfirvinnumál forstöðu- manns og starfsmanna á Mógilsá. Í' samræmi við þá áherslu ríkis- stjórnarinnar við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1989 að mjög skyldi tak- markað og haldið aftur af ákveðnum rekstrarútgjöldum hins opinbera, svo sem yfirvinnu, risnu og fleiri þáttum, var farið yfir það með stofn- unum landbúnaðarráðuneytisins, m.a. á sérstökum fundum með öllum yfírmönnum, hvað gera þyrfti til að mæta þeim takmörkunum. Ljóst var að Skógræktin var ein af þeim stofn- unum sem þyrfti að beita miklu aðhaldi í þesum efnum og gengu í því sambandi bréf milli landbúnað- arráðuneytisins og Skógræktarinn- ar. Skógræktarstjóri setti síðan í samráði við ráðuneytið yfírvinnu- reglur sem skyldu gilda fyrir starfs- menn Skógræktarinnar. í ljós kom að forstöðumaðurinn á Mógilsá fór ekki eftjr þessum reglum og virtist hann telja sér það óskylt þar sem Mógilsá væri með sérmerkta fjár- veitingu í fjárlögum og væri staða deildarinnar ekki slík að nauðsyn bæri af þeim sökum til að takmarka þar yfirvinnu. Forstöðumanni var gert ljóst bæði af fyrrv. skógræktar- stjóra og ráðuneyti að ekki kæmi annað til greina en að sambærilegar reglur giltu fyrir allar deildir Skóg- ræktar ríkisins og þar með Rann- sóknastöðina á Mógilsá. Þarf naum- ast að rökstyðja af hvaða orsökum það var ekki talið heppilegt að aðr- ar og rýmri reglur giltu um skrán- ingu yfirvinnu hjá einni einstakri deild. 3. í lok ágústmánaðar 1989 sendi Jón Gunnar Ottósson inn upp- sagnarbréf og var það bréf svohljóð- andi: „Hér með segi ég upp starfi mínu sem forstöðumaður Rannsókna- stöðvar Skógræktar ríkisins frá og með 1. janúar 1990. Vegna rógburðar og skemmdar- verka sem unnin era á verkefnum stöðvarinnar með vitund landbúnað- arráðuneytisins er mér gert ókleift að gegna stöðunni eins og mér ber að gera samkvæmt reglugerð og skipunarbréfi. Síðar mun ég skila skriflegri skýrslu til stjórnar og ráðuneytis um ástæður fyrir uppsögninni." Mér varð strax ljóst af orðalagi þessa bréfs og þá ekki síðúr af ýmsum þungum og alvarlegum ásökunum sem forstöðumaðurinn hafði komið á framfæri við mig, að um meiriháttar trúnaðarbrest væri orðið að ræða milli hans annars vegar og ýmissa aðila í yfírstjóm Skógræktar ríkisins og landbúnað- arráðuneytinu hins vegar. 4. Ég beitti mér fyrir því við Jón Gunnar Ottósson að hann drægi uppsögn sína til baka þrátt fyrir það sem á undan var gengið. Vildi ég fá að reyna að leysa þau deilumál og jafna þann ágreining sem upp var kominn og leita leiða til að koma á nýjan Ieik samskiptum Rann- sóknastöðvarinnar á Mógilsá við þessa aðila, í eðlilegan farveg. Svo fór að Jón Gunnar dró þessa fyrri lausnarbeiðni sína til baka fyrir mín tilmæli. 5. Þrátt fyrir tilraunir til að miðla málum hélt ástand mála áfram að versna og má segja að síðustu mán- uði sl. árs hafi með naumindum tek- ist að halda niðri sífelldum árekstr- um og vandamálum sem gekk á með samskiptum forstöðumanns á Mógilsá við aðalskrifstofu Skóg- ræktar ríkisins og fleiri aðila. Eg batt samt sem áður vonir við að með tilkomu nýs skógræktarstjóra og nýrra manna sköpuðust að nýju tækifæri til að setja niður deiluna og hvatti alla aðila til að halda að sér höndum af þeim sökum. 6. Því miður fór það svo eftir áramót að sá tími mældist frekar í vikum en mánuðum þangað til ástandið í samskiptum forstöðu- manns og Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá við Skógrækt ríkisins og ráðuneyti var orðið verra en það hafði áður verið þrátt fyrir tilkomu nýs skógræktarstjóra. Eg mun ekki rekja hér þau margvíslegu atvik og smámál sem urðu að stórum í þess- um samskiptum. í þetta fór ómæld- ur tími, bæði hjá skógræktarstjóra og nýju starfsfólki aðalskrifstofunn- ar, sem samtímis stóð í þeim stór- ræðum að heija starfsemina á nýj- um stað á fyrstu mánuðum ársins, sem og hjá starfsfólki landbúnaðar- ráðuneytisins. Eitt af því sem gert var á þessum mánuðum var, að bæði skógræktar- stjóri og forstöðumaðurinn einnig, óskuðu eftir úttekt á stöðu Mógilsár innan Skógræktarinnar. Gengu í því sambandi bréf milli landbúnaðar- ráðuneytis og ríkisendurskoðunar og var þar staðfest sú niðurstaða að Rannsóknastöðin á Mógilsá væri eins og segir í 1. gr. reglna um starf-' semina „deild í Skógrækt ríkisins“ og þar með væri skógræktarstjóri yfirmaður stofnunarinnar og fjár- málalega ábyrgur. Einnig fékk ég sl. vetur tvo óháða og sérhæfða aðila á sviði stjórnsýslu til að gera sérstaka skipulagsúttekt á Rann- sóknastöðinni á Mógilsá og fara ofan í þær deilur sem þar höfðu ris- ið og geisað og reyna að miðla málum. Skiluðu þeir ágætri skýrslu, en skemmst er frá því að segja að allar tilraunir þeirra til að miðla málum og finna sáttalausn urðu árangurslausar. Meginniðurstaða þeirra var sú að um algeran trúnað- arbrest milli manna væri orðið að ræða, sem gert hafi allar tilraunir þeirra til að fínna lausn á hinum efnislegu og formlegu deiluatriðum árangurslausar. Vegna þess að Jón Gunnar Ottósson hefur ítrekað vitn- að í áðurnefnda skýrslu og úttekt, og þá einungis í eina tiltekna setn- ingu, þar sem Mógilsá fær jákvæða umsögn vegna ýmissa góðra verka, hlýt ég að taka fram að tilvitnanir Jóns Gunnars í þessa úttekt eru afar einhliða, slitnar úr samhengi og villandi. 7. I vetur og á vormánuðum gekk Jón Gunnar, sem forstöðumaður á Mógilsá, æ lengra í því og í raun mjög langt að afneita hreinlega með öllu tilvist skógræktarstjóra, sem yfirmanns síns. Um þetta vitna bréfaskriftir þeirra í millum á tíma- bilinu febrúar til apríl, auk þess sem þar er á köflum orðalag að finna sem telja verður með fádæmum í samskiptum undirmanns við yfir- mann sinn. Nú geta Jón Gunnar eða aðrir vissulega haldið því fram að ýmis- legt hafi verið óljóst um stjórnskipu- lega stöðu Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá, bæði fyrr og þegar hér var komið, en um það hafa þó aldr- ei verið tilefni til deilna að með ein- um eða öðram hætti tengdist hún starfsemi Skógræktar ríkisins, sbr. áður tilvitnaða 1. gr. reglna um stöðina og þannig hafi skógræktar- stjóri þar í öllu falli ákveðnu yfir- mannshlutverki að gegna. Það bar Jóni Gunnari að virða og um það hafði hann skýr fyrirmæli, munnlég og bréfleg. 8. Þann 5. apríl sl. er svo komið að skógræktarstjóri sér sig til þess knúinn að skrifa Jóni Gunnari Ottós- syni formlegt áminningarbréf og er þar tilgreind m.a. sú ástæða að for- stöðumaður hafi virt að vettugi til- mæli skógræktarstjóra um að hann og starfsfólk Rannsóknastöðvarinn- ar á Mógilsá tæki þátt í árlegum starfsmannafundi Skógræktarinnar sem stendur í 3 daga og er mikil- vægur vinnufundur til samræming- ar rannsókna- og leiðbeiningarstarfi og framkvæmdum í skógrækt. 9. Ráðuneytið sá sig í aprílmán- uði knúið til að senda forstöðumann- inum bréf með alvarlegum aðfinnsl- um vegna þess að hann hafði ekki sinnt óskum um að skila til ráðu- neytisins tilteknum upplýsingum á réttum tíma, sem ítrekað hafði ver- ið beðið um og án þess að biðja um lengri frest eða láta frá sér heyra. 10. Af því sem fram hefur komið hér að framan má.ljósL vera að að ýmsu leyti gekk forstöðumaðurinn fram í störfum sínum og tók sér vald eins og hann væri algerlega sjálfstæður og æðsti yfirmaður stofnunar. Hann mun engár fjár- skuldbindingar af neinu tagi, þótt meiriháttar væru, sem hann gerði fyrir hönd stöðvarinnar, hafa borið undir skógræktarstjóra, stjóm stöðvarinnar né landbúnaðarráðu- neyt/ð. Sömuleiðis var ekki leitað álits skógræktarstjóra hvað manna- ráðningar snerti eða þvíumlíkt. 11. I kjölfar úttektar á stöðu stöðvarinnar og ítrekuðum og end- urteknum árangurslausuni tilraun- um til að setja niður þessar deilur, var með ákvörðun minni, sem ég tilkynnti skógræktarstjóra og for- stöðumanni í bréfi 15. maí sl., í meginatriðum sú niðurstaða ákveðin að staðfesta það skipulag, að Rann- sóknastöðin á Mógilsá yrði áfram, eins og frá upphafi 1968, deild í Skógrækt ríkisins. Á hinn bóginn yrði henni tryggt faglegt sjálfstæði og heyrðu þau mál undir og væra ákvörðuð af svonefndu „fagráði" sern starfa skyldi við stöðina. Bað ég um athugasemdir, ef einhverjar væra, við þau reglugerðardrög sem kynnt voru með bréfunum til skóg- ræktarstjóra og forstöðumannsins. Ég lýsti mig tilbúinn að taka at- hugasemdir til skoðunar, að því undánteknu að sjálfu grandvallar- skipulaginu, þ.e.n.s. að Mógilsá yrði hluti af starfsemi Skógræktar ríkis- ins, eins og verið hafði, yrði ekki breytt að svo stöddu. Færði ég bæði þá og hafði reyndar gert fyrr, fyrir því þau rök að það gæti ég hvorki né teldi skynsamlegt að gera. Ég þekkti þess engin dæmi að deild væri gerð að sjálfstæðri stofnun inn á miðju fjárlagaári án þess að staf- krókur væri fyrir slíku í lögum. Til þess teldi ég mig einfaldlega engar heimildir hafa og kerfisbreytingar af því tagi hlytu því að bíða laga- setningar, ættu þær að koma til. Ég hvatti Jón Gunnar eindregið til að skoða þessar breytingar og reyndi að sýna honum fram á að í þeim fælist í raun aukið faglegt sjálfstæði stöðvarinnar og mörgu leyti sterkari staða en hún hafði áður haft, auk þess sem verkaskipt- ing gæti orðið skýrari milli annars vegar skógræktarstjóra og yfir- stjómar Skógræktarinnar og hins vegar fagráðs sem ákvörðunaraðila faglegra málefna rannsóknaáætl- ana o.s.frv. 12. Forstöðumaður hafði að engu tilmæli mín um að íhuga þessar til- lögur og breytingar og einungis liðu fáeinar klukkustundir frá því ég kynnti honum ákvarðanir. mínar á fundi, um leið og honum var afhent bréf þar um, þangað til að mér barst í hendur uppsagnarbréf frá honum. 13. í bréfi sínu frá 15. maí sl., þar sem Jón Gunnar Ottósson biðst lausnar í annað sinn, segir svo: „Hér með segi ég starfi mínu upp sem forstöðumaður Rannsóknar- stöðvar ríkisins að Mógilsá frá og með 1. október 1990. Ég treysti mér ekki til að vinna eftir því skipu- lagi sem þér hafíð ákveðið og lýst er í bréfi yðar, dagsettu 15. maí 1990.“ Með hliðsjón af því sem á undan var gengið og með hliðsjón af tilvitn- uðu orðalagi uppsagnarbréfsins, virtist mér að fyrir því væru næsta litlar líkur að þau samskipti sem þarna verða að vera, gætu gengið eðlilega fyrir sig á þeim mánuðum sem uppsagnarfrestur Jóns Gunnars Ottóssonar tók til. 14. Til að gera langt mál stutt var ósköp einfaldlega það ástand sem orðið var í samskiptum Rann- sóknastöðvarinnar á Mógilsá við ýmsa aðra aðila sem sú stofnun verður að eiga gott samstarf við orðið óbærilegt. A því var hætta að þetta ástand gæti orðið skógræktar- sviðinu almennt til tjóns. Skógrækt- in hér á íslandi er lítill heimur pg gera verður þá kröfu til þeirra sém Steingrímur J. Sigfússon nota það takmarkaða opinbera fjár- magn sem við höfum náð að setja til skógræktar, að þeir vinni vel saman. 15. Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá var, er og verður a.m.k. enn um sinn deild í Skóg- rækt ríkisins. Hvað sem um það skipulag má segja og hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, varð það niðurstaða eftir ítarlega athugun til þess bærs yfirvalds að svo skyldi áfram verða um sinn og þeirri niðurstöðu bar mönnum að hlíta. Rannsóknastöðin á einnig að sinna fyrst og fremst hagnýtum rannsóknum fyrir skógrækt á Is- landi og slíkar hagnýtar rannsóknir er hvorki hægt að stunda og enn síður hægt að hagnýta nema með góðri samvinnu og miklu samstarfi milli þeirra sem standa í fram- kvæmdum, sinna stjórnsýslu eða félagsmálum skógræktarinnar og þeirra sem við rannsóknimar vinna. Með hliðsjón af öllu þvi sem að framan hefur verið rakið og með því að Jón Gunnar Ottósson hafði sjálfur tvívegis á 9 mánuðum óskað eftir að láta af störfum og með til- liti til allra annarra aðstæðna sem hér hefur verið lýst, ákvað ég að fallast á lausnarbeiðni hans og taldi þá úr því sem komið var skást að starfslok hans yrðu strax. Það varð mín niðurstaða, mitt mat, að við þessar aðstæður og með hliðsjón af þvi hversu algjör trúnaðarbrestur var orðinn milli hans og þeirra aðila annarra í stjómkerfinu sem hann þurfti og átti samkvæmt skipulagi að leita til og vinna með, væri það vægast séð vandséð að starfsemin gæti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti undir hans forystu út upp- sagnartíma hans. Ég taldi því rétt- ast að nýta þann sjálfsagða rétt vinnuveitanda að afyakka vinnu- framlag hans sem stjórnanda út uppsagnarfrestinn. Ég hef ítrekað bréflega við Jón Gunnar að honum verði greidd út uppsagnarfrestinn full laun, þ.e.a.s. hann haldi fullum tekjum eins og ætla mætti að hann hefði haft, hefði vinnuframlag hans verið þegið og skaðast hann því í engu fjárhagslega á þessri tilhögun. Ég sem vinnuveitandi og stjórnandi þessara mála valdi þann kostinn sem ég taldi skástan að starfslok hans yrðu, úr því sem komið var, fyrr en seinna. Þá ákvörðun og niðurstöðu hefði Jón Gunnar að mínu mati gert réttast í að virða og viðurkenna. Jón Gunnar Ottósson hefur í blaðaviðtölum og fréttum að undan- fömu með ýmsum hætti tekið sér það fyrir hendur að túlka fyrir mína hönd afstöðu mína, sjónarmið og skoðanir gagnvart rannsóknum og umhverfismálum. Hér verður ekki farið ítarlega út í þá sálma. En ég krefst þess sjálfsagða réttar mér til handa að fá sjálfur að lýsa mínum eigin skoðunum í þessum efnum. Hér skal gefin sú yfirlýsing að það verður einskis látið ófreistað til að tryggja það af minni hálfu og landbúnaðarráðuneytisins, skóg- ræktarstjóra og Skógræktar ríkisins og annarra þeirra aðila sem þar koma að málum, að rannsóknastarf í skógrækt verði eflt á komandi áram. Nýttir þeir möguleikar sem felast i rannsóknum, kynbótum og hverskyns upplýsingaöflun og upp- lýsingamiðlun. Þannig verði lagður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.