Morgunblaðið - 29.06.1990, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
28
Byggingarnefíid:
Lóðum úthlut-
að í miðbænum
BYGGINGARNEFND hefur úthiutað tveimur nýjum lóðum í miðbæ
Akureyrar, en fyrir nokkru voru auglýstar Qórar lausar lóðir í miðbæn-
um. Ekki var tekin afstaða til umsóknar um eina lóðina og ákveðnum
aðila gefinn kostur á einni þeirra.
Heimir Ingimarsson formaður
byggingamefndar sagði að þijár
umsóknir hefðu borist um lóðina
Skipagötu 16, sem er 400-500 fer-
metrar að stærð. Lóðin er sú næsta
sunnan Alþýðuhússins. Byggingar-
nefnd úthlutaði Pedromyndum þeirri
lóð.
Nokkru stærri lóð á horni Kaup-
vangsstrætis og Drottningabrautar,
neðan við veitingahúsið Smiðjuna,
kom í hlut fyrirtækisins Ljósmynda-
vörur hf. í Reykjavík, en einnig bár-
-ust þtjár umsóknir um lóðina.
Þá voru auglýstar tvær lóðir
nokkru sunnar, Hafnarstræti 84 og
84b. Fyrir nokkru var gamalt hús
við Hafnarstræti 84 rifið, en þar
stað sem það stóð verður innkeyrsla
að umræddum húsum, sem munu
standa nokkru ofan Drottninga-
brautar.
Milliuppgjör geftir til kynna
nokkur batamerki í rekstrinum
KEA íyrstu fjóra mánuði ársins:
Heimir sagði að ekki hefði verið
tekin afstaða til umsóknar sem barst
um lóðina Hafnarstræti 84 þar sem
starfsemi umdeilt var að sú starf-
serni sem þar átti að fara fram sam-
ræmdist miðbæjarskipulagi. Hjalta
Gestssyni var gefinn kostur á lóð-
inni Hafnarstræti 84b, en sam-
kv'æmt umsókn hefur hann í hyggju
að koma þar upp verslun með heimil-
isvörur.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Rekstri tveggja verslana KEA verður hætt fyrir lok september, önnur er á Hauganesi þar sem þessi
mynd er tekin af þeim Öldu Þorvaldsdóttur og Þóru Angantýsdóttur deildarsljóra, en hin er í Hafnar-
stræti 20 á Akureyri. Verslanirnar verða auglýstar til leigu eða sölu í næstu viku.
Alver a Dysnesi:
Eftil vill ekki
þörf á vot-
hreinsibúnaði
ÁHRIF brennisteinsmengunar af
völdum álvers á Dysnesi í Eyja-
firði eru minni en menn bjuggust
við, samkvæmt niðurstöðum
skýrslu Nilu, og kæmi til þess að
þar yrði reist álver þarf ef til vill
ekki að setja upp vothreinsibúnað.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar sagði fullsterkt til orða
tekið að ekki þyrfti að koma upp
vothreinsibúnaði á 200-400 þúsund
.Jfcinna álveri sem yrði á Dysnesi við
Eyjafjörð, eins og skilja mátti af
orðum hans í frétt í blaðinu í gær.
í niðurstöðum skýrslu Nilu sé
ekki svo sterkt til orða tekið, heldur
segir þar að ef til vill sé ekki þörf
á vothreinsibúnaði við álver við Dys-
nes.
-1*
'aaMíi•
Laugardagur:
Hin vinsæla iiliómsveit
Finns Eydnl
lelkur fyrlr dansi
Glæsilegur
sérréttomatsedill
Borðapantanir í
síma 22200.
Hótel KEA
MILLIUPPGJOR fyrir fyrstu
fjóra mánuði þessa árs hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga sýnir nokkur
batamerki í rekstrinum, en Magn-
ús Gauti Gautason kaupfélags-
stjóri segist þó ekki vilja draga
of miklar ályktanir, hann vilji
fyrst sjá hvemig félaginu reiði af
í sumar áður en nokkuð sé hægt
að segja um framhaldið. Um mán-
aðamótin koma til framkvæmda
ýmsar þær ráðstafanir sem gripið
hefur verið til innan kaupfélags-
ins, eins og uppsagnir starfsfólks
og fleira. Þá hefur verið ákveðið
að loka tveimur verslunum KEA,
útibúinu á Ilauganesi og í Iiafnar-
stræti 20 á Akureyri. Þær verða
auglýstar til sölu eða leigu eftir
helgina.
Magnús Gauti Gautason kaupfé-
lagsstjóri sagði að milliuppgjör það
sem fyrir lægi um reksturinn fyrstu
fjóra mánuði ársins gæfi til kynna
að staða félagins væri að lagast.
Hann kvaðst þó varast að draga of
miklar ályktanir af uppgjörinu. „Ég
vil fyrst sjá hvernig félaginu reiðir
af í sumar, þetta er stuttur tími og
það hefur verið mikið umrót á þeim
tíma hjá okkur,“ sagði Magnús
Gauti. Uppsagnir starfsfólks um
mánaðamótin mars/apríl koma til
framkvæmda nú um mánaðamótin
og þá er verið að gera ýmislegt til
að bæta reksturinn og sagði Magnús
Gauti að í Ijós kæmi síðar hvaða
áhrif það hefði á reksturinn, en þess
gætti ekki í umræddu milliuppgjöri.
Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík:
Gætum selt á bilinu 50-100 tonn
af fiski á gólftnarkaði á dag
— segir Hilmar Daníelsson framkvæmdastj óri
HILMAR Daníelsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmiðlunar
Norðurlands á Dalvík segir að
leikur einn væri að selja á bilinu
50-100 tonn af fiski á gólfmarkaði
Fiskmiðlunar á dag. Gólfmarkað-
urinn heíúr verið starfræktur frá
því í lok aprílmánaðar og að jafn-
aði eru seld um 10-15 tonn á
markaðnum á dag. Meðalverð á
þorski á markaðnum hefur verið
tæplega 80 krónur fyrir kílóið og
segist Hilmar vel skilja að sjó-
menn sem landi afla sínum til
vinnslu heima séu óánægðir þar
sem verð á almennum markaði
sé mun hærra. Fyrsti togarinn
seldi afla á gólfmarkaðnum í
fyrradag, Frosti ÞH frá Grenivík,
og var meðalverðið um 79 krónur
á kílóið.
„Út af fyrir sig skil ég vel sjónar-
mið sjómanna, þeirra sem fá mun
lægra verð fyrir fiskinn en unnt er
að fá á almennum markaði. En á
það er að líta að framboð á þessum
markaði er ekki mikið, við erum að
selja þetta 10-15 tonn að jafnaði
flesta daga. Það er auðvitað spum-
ing hvemig þau mál þróuðust ef
umtalsvert meira magni yrði landað
TIL LEIGU A AKUREYRI
ný 190 fm íbúð ásamt bílgeymslu. íbúðin leigist með
húsgögnum og búsáhöldum.
Leigutími frá 1. ágúst '90-1. júlí '91. Reykingafólk kem-
ur ekki til greina.
Upplýsingar í síma 96-23525 eftir kl. 17.
inn á markaði,“ sagði Hilmar.
Frosti ÞH frá Grenivík seldi um
15 tonn af afla sínum á gólfmarkaði
Fiskmiðlunar Norðurlands í fyrra-
dag, en það er í fyrsta sinr. sem þar
er seldur fiskur úr togara. Meðal-
verðið sem fékkst fyrir þorsk úr
Frosta var 79 krónur á kílóið. Á
markaðnum hefur hingað til ein-
göngu verið seldur bátafiskur, úr
bátum sem eru á miðunum fyrir
austan Langanes, en þar er bæði
um að ræða heimabáta frá Vopna-
firði, Bakkafirði og Raufarhöfn auk
aðkomubáta á þessum stöðum. Þá
eru einnig í föstum viðskiptum við
markaðinn tveir bátar frá Grímsey.
Hilmar sagði að áhugi væri fyrir því
á meðal Frostamanna að leggja upp
meiri afla hjá markaðnum í fram-
tíðinni, en það ætti eftir að koma í
ljós síðar hvort af frekari viðskiptum
yrði.
Meirihluti þess afla sem seldur
er á markaðnum fer til fiskverkenda
á Dalvík, en einnig hafa verkendur
á Siglufírði, Ólafsfirði og á Hofsósi
keypt fisk á markaðnum. Þá sagði
Hilmar einnig dæmi þess að fyrir-
tæki úr Hafnarfirði hefði keypt físk
á markaðnum og ekið suður. Menn
hefðu talið að verðið þar væri hag-
stæðara en syðra þó sækja þyrfti
hráefnið um langan veg.
Fyrsta uppboð á gólfmarkaði
Fiskmiðlunar Norðurlands var í lok
apríl, en í maimánuði voru seld alls
314 tonn af físki á markaðnum fyr-
ir 20,8 milljónir króna. Fyrrihluti
júnímánaðar var rólegur, verið var
að skipta um veiðarfæri í bátunum
tig einnig kom þar inn í sjómanna-
dagsstopp, en nú seinni hluta mán-
aðarins er markaðurinn kominn í
eðlilegt horf og uppboð í gangi flesta
daga. „Mér sýnist á öllu að það
væri ekkert mál að selja hér 50-100
tonn af físki á hveijum degi, eftir-
spurnin er næg en framboðið ekki,"
sagði Hilmar.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur verið
rekið með umtalsverðu tapi síðustu
tvö ár, hallinn á rekstrinum var um
177 milljónir króna á síðasta ári og
rúmlega 200 milljónir árið þar á
undan. Leitað hefur verið leiða til
að snúa af braut hallarekstursins,
starfsfólki hefur verið fækkað, deild-
ir að einhveiju leyti sameinaðar og
verið er að kanna leiðir til að lækka
flutningskostnað. Þá lokaði KEA
þremur af minnstu verslunum sínum
á síðasta ári, tveimur á Akureyri og
einni á Hauganesi, en þessar versl-
anir höfðu verið reknar með tapi um
ali langt skeið.
Ákveðið hefur verið að hætta
rekstri tveggja verslana til viðbótar
á vegum KEA, útibúinu á Hauga-
nesi og í Hafnarstræti 20 á Akur-
eyri. Magnús Gauti sagði að stefnt
væri að því að hætta rekstri þessara
verslana í síðasta lagi í lok septem-
ber. Verslanimar verða auglýstar til
sölu eða leigu í næstu viku. Fjórir
starfsmenn unnu í útibúinu við
Hafnarstræti en þrír á Hauganesi.
Magnús Gauti sagði að allt hefði
verið reynt til að halda verslunum
opnum, vöruverð lækkað og launa-
kostnaður, en það hefði ekki dugað,
verslanirnar voru eftir sem áður
reknar með halla.
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar:
Mánudagsmyndir
sýndar næsta vetur
KVIKMYNDAKLÚBBUR Akureyrar, sem stofnaður var í síðasta
mánuði hefúr gert samning við Borgarbíó um sýningartíma kvik-
mynda á vegum klúbbsins og er áætlað að þær verði sýndar kl. 19
á mánudögum. Starfsemi klúbbsins hefst af krafti í september
næstkomandi.
Markmið félagsins er að afla og
miðla upplýsingum um flesta þætti
kvikmyndalistarinnar og auka
þannig áhuga og þekkingu al-
mennings á listforminu. Á stofn-
fundi Kvikmyndaklúbbs Akureyrar
kom fram að úrval kvikmynda sem
sýndar eru í bænum er ekki sem
best verður á kosið og brýnt að
bjóða áhugafólki um kvikmyndir
upp á það sem best þykir í kvik-
myndaheiminum. Þá kom einnig
fram að klúbburinn mun ekki ein-
göngu sýna klassisk verk kvik-
myndasögunnar, heldur einnig nýj-
ar og nýlegar vinsælar myndir, auk
mynda frá fjarlægum heimshorn-
um. Drög hafa verið lögð að því
að fá til sýninga ýmsar forvitnileg-
ar myndir á fyrsta starfsárinu.
Félagar í Kvikmyndaklúbbi Ak-
ureyrar halda fund 30. júní næst-
komandi á Hótel Norðurlandi og
eru allir áhugamenn um kvik-
myndir á Akureyri og nágrenni
velkomnir á fundinn og geta þeir
gerst þar félagar.