Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
35
Gísli Sigurbjörnsson
Súðavík - Minning
Fæddur 26. apríl 1919
Dáinn 20. júní 1990
A þessari stundu er erfitt fyrir
mig að vera í burtu. Ég vildi helst
vera kominn heim til að geta verið
með ættingjum mínum. Mamma
sagði að afi vildi ekki að ég kæmi
heim því hann væri ánægður með
það sem ég er að gera hérna úti í
Portúgal. Þrátt fyrir allt sem hann
sagði við mig áður en ég fór út,
að þetta væri náttúrulega bara vit-
leysa að vera hlaupa til útlanda frá
fastri vinnu og svo framvegis. En
þetta er ég nú búinn að vera að
gera síðan ég var krakki og þetta
er orðin ævintýraþrá sem ungur
maður eins og ég fæ ekki svalað
heima á íslandi og það er mér mik-
ils virði að hann skuli hafa skilið
það þrátt fyrir allt, þótt hann hafi
aldrei sagt mér það, hann var ekki
þannig. Hans kynslóð er kynslóð
af hörku körlum og konum sem á
50 árum, með ódrepandi hörku og
vinnugleði, hafa dregið Island upp
úr vesæld og upp í það að vera
þjóð öðrum til fyrirmyndar. Þetta
fólk á okkar virðingu og þakklæti
skilið.
Það er erfitt fyrir mig að kveðja
manninn sem ég er búinn að virða,
elska og dá síðan ég man eftir
mér. Manninn sem ávallt hefur ver-
ið ímynd hörku og dugnaðar í
mínum augum.
Þetta var maðurinn sem gekk
mér í föðurstað meðan pabbi var í
útlöndum. Þetta var maðurinn sem
ól mig upp, skammaði mig og elsk-
aði og hann var eini maðurinn sem
ég tók mark á og var tilbúinn að
gera allt fyrir. Ég á honum allt að
þakka og ég vona að ég sé nafni
hans sem hann getur verið stoltur
af vegna þess að það er honum að
þakka að ég er það sem ég er í dag.
Það er mér mikils virði að ég
skuli hafa getað verið með honum
síðasta árið okkar á Grund. Það var
góður tími sem við áttum saman
félagarnir litli og stóri Gísli á
Grund. En nú er kominn tími til
að kveðja þennan hörku kall og ég
veit að við eigum öll eftir að sakna
hans mikið. En nú er hann sæll og
kominn til ömmu Gauju, loksins
eftir öll þessi ár.
Ég þakka afa mínum með öllu
mínu hjarta fyrir öll árin og allt það
sem við tveir áttum saman. Guð
gefi öllum ættingjum afa styrk á
þessari stundu. Ég mun sakna hans
meira en orð fá sagt. Hvíli hann í
friði, hann afi minn og vaki hann
yfir mér og gefi mér styrk.
Með virðingu og ást, _
Gísli Kristinn ísleifsson,
Portúgal.
Fyrstu kynni mín af frænda
mínum, Gísla Sigurbjörnssyni, voru
á Siglufirði þegar ég var enn á
barnsaldri. Eg minnist þess að það
var álltaf hátíð hjá okkur drengjun-
um á Hvanneyrarbrautinni þegar
Gísli kom í land. Gísli frændi var
þá á síldarbátum á sumrin og land-
aði stundum á Siglufirði. Ég hef
vart verið meira en fjögurra, fimm
ára þegar ég sá Gísla fyrst. Gos-
drykkurinn vallas var þá mun
merkilegri en aðrir drykkir. Gísli
átti það oft til að lauma pening í
litlu hendurnar. Það kunnum við
vel að meta.
Ég rifja upp þessi litlu atvik úr
bernsku minni hér því mér finnst
þau lýsa frænda mínum, Gísia Sig-
urbjörnssyni, vel. Örlæti hans og
vinsemd við okkur börnin á Siglu-
firði báru vott um eðliskosti sem
ég átti síðar eftir að kynnast mun
betur. Ef til vill var það fjarlægðin
frá hans eigin börnum á síldarbát-
um á sumrin sem kallaði fram
hlýrri tilfinningar hjá frænda
mínum en ella.
Gísli lést á sjúkrahúsinu á ísafirði
20. júní sl. Andlát hans kom þeim
ekki á óvart sem til þekktu því um
nokkurt skeið hafði hann gengið
með erfiðan sjúkdóm sem að lokum
bar hann ofurliði. Veikindum sínum
tók Gísli af svipuðu æðruleysi og
einkennt hafði líf hans allt. Hann
var ekki maður sem lét á miklu
bera þó eitthvað amaði að.
Gísli Sigurbjörnsson fæddist á
Ökrum í Fljótum í Skagafirði 26.
apríl 1919. Hann var sonur hjón-
anna Sigurbjörns Jósepssonar og
Friðrikku Símonardóttur en þeim
varð sjö barna auðið saman og var
Gísli yngstur barna þeirra. Tvö börn
þeirra létust í æsku. Þeir sem eftir
lifa eru Jósep og Guðbrandur Sigur-
björnssynir, en látnir eru þeir Björn
og Jón Sigurbjörnssynir. Gísli átti
einnig þijár hálfsystur, móður
mína, Hermínu, Ríkey og Lovísu
Sigurbjörnsdætur.
Ég veit með vissu að þetta fólk
mun sakna Gísla mikið. Hann var
ávallt einstakur frændi og skemmti-
legur í góðra vina hópi. Ættrækinn
var hann og gaf sér alltaf tíma til
að heilsa upp á frændur sína og
vini þegar heilsa og tími leyfðu
síðustu árin. Sérstaklega naut hann
þess að heimsækja æskuslóðirnar
og var tíðrætt um sveitina heima í
Fljótum. Hálfsystrum sínum sýndi
Gísli ætíð mikla ræktarsemi og vin-
semd og þakka þær honum að leið-
arlokum fyrir hversu elskulegur og
góður bróðir hann ætíð var.
Gísli fór ungur úr foreldrahúsum.
Hann sótti sjóinn fyrstu árin og var
á sumrin á síldarbátum fyrir norðan
og austan eins og þá var títt. Lengst
af var hann á bátunum Kristjönu
og Helgu.
Þegar foreldrar mínir fluttu í
Skútu handan Siglufjarðar árið
1942 hafði Gísli frændi minn kynnst
stúlku að vestan, Guðríði Halldórs-
dóttur, frá Neðri-Grund í Súðavík.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við fráfall sonar okkar og dóttursonar,
ARIMARS ARNARSONAR,
er lést þann 12. maí sl.
Sérstakar þakkir færum við björgunarsveitinni Tryggva á Selfossi
og lögreglunni í Árnessýslu.
Stefanfa Gústafsdóttir og fjölsk.
Örn Arnarson og fjölsk.
Gústaf Sigjónsson,
Guðbjörg H. Einarsdóttir.
t
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför föður míns, tengdaföður og afa,
GUÐLAUGS MAGNÚSSONAR
frá Kolsstöðum,
Dalasýslu.
Jóhann Guðlaugsson,
tengdabörn og barnabörn.
Þetta sumar bjó Guðríður hjá for-
eldrum mínum í Skútu meðan Gísli
var á síld og þar fæddist fyrsta
barn þeirra hjóna, Sigrún, þá um
haustið. Foreldrar mínir hafa oft
talað um þetta sumar sem þau áttu
með Gísla og Gauju, en svo var
Guðríður jafnan kölluð. Minnast
þau samverustundanna í Skútu
jafnan með hlýhug.
Kynni mín af Gísla frænda
mínum hófust fyrir alvöru þegar
ég fluttist vestur á ísafjörð 1973
til að taka þar við kennslustöðu við
Menntaskólann á Isafirði.
Það var sannarlega gott á þeirn
tíma þegar við hjónin vorum að
setjast að á ísafirði að eiga þau
Gísla og Gauju og börn þeirra að.
Þau hjónin tóku okkur þannig að
seint mun gleymast og ísafjörður
verður í huga okkar ætíð tengdur
Súðavík og frændfólki okkar þar.
Sérstaklega minnist ég margra
ánægjustunda sem við áttum með
Gísla, Gauju og fjölskyldunni. Ekki
síst koma þorrablótin upp í hugann
þegar stiginn var dans í félagsheim-
ilinu í Súðavík eftir stórkostlega
skemmtun og góðan mat. Ég minn-
ist einnig með hvílíkri natni Guðríð-
ur undirbjó þessar skemmtanir.
Skötustappa, hangikjöt, harðfiskur
og ljúfur andi á heimili þeirra hjóna
gerði þessar stundir ógleymanlegar.
Þarna vorum við hjónin og börn
okkar jafnan velkomin. Þar kynnt-
ist ég á ný örlæti þeirra hjóna og
gestrisni. Og þó að væri yfir snjó-
flóð að fara á heimleiðinni sá mað-
ur aldrei eftir ferð inn í Súðavík!
En nú er komið að leiðarlokum.
Guðríður lést fyrir nokkrum árum
og var það þungbært að missa hana
svo snemma. Gísli á Grund verður
ekki oftar hrókur alls fagnaðar
meðal ættingja og vina. Þegar ég
heimsótti hann fyrir nokkrum mán-
uðum á sjúkrahús hér syðra, fannst
mér ég skynja nálægð hinnar
síðustu stundar með honum. Það
var sárt en verður ekki umflúið.
Að leiðarlokum er þakklætið öðr-
um tilfinningum sterkara. Það er
gott að hafa átt slíkan frænda að.
Gísli Sigurbjörnsson var .að mörgú
leyti gæfumaður. Gæfa hans fólst
í því að eignast trygga eiginkonu,
góða fjölskyldu og börn sem í dag
eru mannkostafólk.
Fjölskylda mín sendir börnum
hans, tengdafólki og-ættingjum öll-
um samúðarkveðjur.
Þráinn Hallgrímsson
Guðmundur Þórar
insson — Minning
Fæddur 29. ágúst 1911
Dáinn 20. júní 1990
Guðmundur Þórarinsson verk-
stjóri fæddist í Ánanaustum, og er
því borinn og barnfæddur vest-
urbæingur. Allan sinn aldur hefur
hann dvalist fyrir vestan læk og
þaðan heijað á austurbæinga í
æsku. Vesturbærinn var hans kjör-
land. Foreldrar hans voru Ragn-
heiður Jónsdóttir og Þórarinn Guð-
mundsson skipstjóri. Foreldrar
Guðmundar áttu heima í litlu húsi
við Tryggvagötu, þar sem Hamars-
húsið er núna. Sem barn ólst hann
því upp við smiðjudyrnar hjá hf.
Hámri. Leikvöllur hans var smiðju-
lóðin og fjaran þar fyrir neðan.
1924 réðst liann sem sendisveinn
hjá Hamri og gegndi því starfi í 2
ár. 1926 hóf hann nám í vélsmíði
og lauk sveinsprófi 6. febrúar 1931.
Næstu 10 árin vann hann sem
sveinn hjá hf. Hamri. Meistarabréf
fékk Guðmundur 1941 er hann
gerðist verkstjóri hjá Hamri, og
gegndi hann því starfi til ársloka
1984 eða í 43 ár, sem verkstjóri.
Alls urðu því starfsárin hjá hf.
Hamri 60 ár. Guðmundur var
drengur góður og gott að vinna
undir hans stjórn. Guðmundur var
prúður og hæglátur maður og fátt
eitt raskaði ró hans. Guðmundur
var mikill morgunmaður og alltaf
mættur fyrir kl. 7 á morgnana þó
vinna byijaði ekki fyrr en kl. 8.30.
Ég man ekki eftir öðru en að menn
hugsuðu hlýtt til Guðmundar þótt
á ýmsu gengi.
Guðmundur var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Unnur Sigurð-
ardóttir, með henni átti hann eina
dóttur, Onnu Ragnheiði hjúkrunar-
fræðing. Seinni kona Guðmundar
er Lovísa Jóhannsdóttir ættuð frá
Skálum á Langanesi. Foreldrar
hennar voru Jóhann bóndi þar og
kona hans, María Friðriksdóttir.
Guðmundur og Lovísa eignuðust
tvo drengi er báðir eru uppkomnir,
Þórarin lækni og Jóhann landbún-
aðarhagfræðing.
Jón Erlendsson
Mig langar með fátæklegum orð-
um að minnast vinar míns, Guð-
mundar Þórarinssonar. Þegar ég á
einum af þessum fallegu júnídögum
frétti að hann væri látinn, þá rifjuð-
ust upp fyrir mér allar góðu stund-
irnar og dagarnir á Stýrimannastíg
13, heimili Guðmundar og Lovísu,
frænku minnar, en heimili þeirra
stóð mér ávallt opið eins og fleirum
úr minni fjölskyldu. Guðmundur var
mér einstaklega góður. Hann var
sterkur og mótandi persónuleiki
sem alltaf tók mér opnum örmum.
Það var ekki lítils virði fyrir mig
mín fyrstu ár í höfuðborginni. Það
var oft líf og fjör á Stýrimanna-
stígnum og mikið gantast og hleg-
ið, enda gestagangur þar mikill.
Þar hitti ég margt af mínum skyld-
mennum í fyrsta sinn.
Ég vil þakka Guðmundi alla þá
vinsemd og hlýju _sem hann auð-
sýndi mér alla tíð. Ég vil votta fjöl-
skyldu Guðmundar samúð mína~og
veit að minningin um hann mun
aldrei gleymast.
Stína Maja
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMBA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL.B1986
Hinn 10. júlí 1990 er níundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 9 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
__________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 4.259,55_
Ofangreindfjárhæðervextiraf höfuðstól spariskírteinannafyrirtímabilið
10. janúar 1990 til 10. júl í 1990 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986
til 2905 hinn 1. júlí nk.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga,* )
Innlausn vaxtamiða nr. 9 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1990.
Reykjavík, 29. júní 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS