Morgunblaðið - 29.06.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
37
félk í fréttum
SJ
Jin er óstöðvandi við matarborðið. Þriggja ára börn vilja gjarnan láta pabba eða
mömmu halda á sér við og við. Þegar Jin er
annars vegar þarf bæði til.
FURÐUR
Jin „litli“ er þriggja ára
og 41 kílógramm
LIST
Karl prins með
sína fyrstu
myndlistarsýningu
Athyglisverð málverkasýning
stóð nýlega yfir í ítalska
smábænum Úrbino, heimabæ
endurreisnarmálarans fræga
Rafaels. í húsi Rafaels hafa ýms-
ar sýningar verið. Síðasti lista-
maðurinn sem þar sýndi verk sín
var enginn annar en Karl Breta-
prins. Alls voru 57 vatnslitamynd-
ir Karls til sýnis og var gerður
góður rómur að þeim. Þetta var
fyrsta einkasýning Karls, áður
hafði hann sýnt eitt málverk á
samsýningu.
„Ég vona að Rafael hafi ekki
snúið sér við í gröfinni meðan ég
sýndi þessar myndir mínar. Ég
vil taka það skýrt fram að ég lít
ekki á þær sem listaverk og þær
eru einungis til sýnis hér vegna
þess að ég er heillaður af landi
og þjóð,“ sagði Karl er sýning
hans var opnuð. Fjölmargir sem
komu að skoða vildu festa kaup
á myndum og buðu gull og græna
skóga, en Karl vildi alls ekki selja
nokkra mynd, þótti honum ekki
við hæfi að stórgræða végna kon-
unglegrar tignar sinnar. „Sem ég
segi, þetta eru engin listaverk og
COSPER
Karl innan um vcrk sín.
því fráleitt að selja þetta. Þetta
er frekar nokkurs konar persónu-
legt myndaalbúm.“
Fáum sögum fer af Karli sem,
Iistamanni, hann er kunnari fyrir
áhuga sinn á veiðiskap, hins veg-
ar hefur hann nokkrum sinnum
skroppið í frí til Ítalíu pg þá gjarn-
an sést með skissublokk á lofti
þegar færi hafa gefist.
VEIKINDI
Mandy Wyman
vinnur á dularfiill-
um sjúkdómi
Fregnir herma að hin kornunga
Mandy Smith, eða öllu fremur
Mandy Wyman, eiginkona hins tæp-
lega hálfsextuga rokkara í Rolling
Stones, hafi braggast en dularfullur
sjúkdómur hefur hrjáð hana svo
mánuðum skiptir.
í veikindunum hríðgrenntist hin
19 ára Mandy og var þó tágrönn
fyrir. Féllu af henni um ein 20 kíló.
Vegna þessa fór Mandy ekki með
bónda sínum í hljómleikaferðalög
og lét raunar sárasjaldan sjá sig
utan dyra. Væri hún á almanna-
færi setti hún gjarnan upp hárkollu
og gleraugu. Slúðurblöð voru ekki
lengi að finna út að þetta væri allt
samán vegna bresta í hjónabandi
og átti Wyman-karlinn að sögn að
vera með kærustu í „hverri höfn“.
Þetta báru þau Wyman-hjónin til
baka og báru fyrir sig hin dular-
fullu veikindi. Móðir Mandyar hefur
sagt að dóttir sín ætti við sjaldgæfa
tegund ofnæmis að stríða og svo
hafi nýrun verið í lamasessi.
Nú er fylgst grannt með Mandy,
sem er farin að synda eins og selur
og leika tennis af kappi. Kílóin hlað-
ast utan á hana jafnt og þétt þótt
Mandy sést nú opinberlega á enn van(,j nokkuð upp á að hún
ný og þykir vera að braggast. hafi náð fyrri styrk
Jin Rui heitir 3 ára kínverskur
snáði sem býr í smábænum
Hubai. Jin er enginn venjulegur
drengur, heldur risavaxið kjötfjall.
Hann vó 5,5 kílógrömm er læknar
tóku hann úr móðurkviði með keis-
araskurði, því vonlaust var talið að
konan gæti alið svo stórt barn með
venjulegum hætti. Nú, þremur árum
síðar, vekur Jin furðu. Hann vegur
41 kíló og þyngist svo ört að flestum
blöskrar. Sem dæmi má nefna, að
eins árs vó hann 29 kílógrömm. Það
eina sem hann hugsar um er matur
og aftur matur og er hann orðinn
svo þurftafrekur að foreldrar hans
hafa þegar áhyggjur af því að geta
ekki séð fyrir honum.
Jin hefur gaman af að sýna krafta
sína og slær þá iðulega við sér
mun eldri börnum.
Fjórum sinnum á dag snýst allt
um mat og þá snæðir Jin hveiju
sinni 750 grömm af hrísgijónum,
„nokkrar“ kjötsneiðar og sjö til átta
egg. Dag hvern drekkur hann alls
15 lítra af vatni og mjólk. Reyndar
hafa læknar ekki dregið dul á það
við ■ foreldra Jins, að hann kunni
ekki að verða langlífur. Hafa þeir
spáð því að hann lifi ekki iengur en
í mesta lagi tíu ár. Hins vegar sé
sjálfsagt að barnið njóti lífsins til
hinsta dags, því drengurinn sé
fílhraustur og lífsglaður. Jin varð
nýlega 96 sentimetra hár og hann
skemmtir sér best við að lyfta stál-
öxli með tveimur kerruhjólum.
Stykkið vegur 22,5 kíló, en Jin læt-
ur sig ekki muna um að snara því
50 sinnum í rykk.
Fjölskyldan er hamingjusöm sem
stendur og Jin nýtur mikillar ástúð-
ar foreldra sinna og tveggja systk-
ina 7 og 10 ára sem samanlagt ná
ekki þyngd hans. Fjölskyldan óskar
einskis heitar en að Jin geti lifað
sæll og glaður æviskeið sitt í faðmi
fjölskyldunnar og þurfi aldrei að
þjást vegna ástands síns.
hambörgari 199-.
djúpst. FISKUR
K
Dags. 29.6. 1990
*
NB. 145
VAKORT
Númer eftirlýstra korta
4507 4300 0003 4784
4507 4500 0008 4274
4507 4500 0015 7880
4548 9000 0023 8743
4548 9000 0028 6346
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ISLAND
mínutusteik
ristuð SAMIDKA 175 -
%sk.ftanskar
Grænmeti ---
PEPSI dós . :7S^
K