Morgunblaðið - 29.06.1990, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
KNATTSPYRNA / HEIMSMEÍSTARAKEPPNIN A ITALIU
Robson bjartsýnn
Bobby Robson, þjálfari Englands, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn
Kamerún á sunnudag og vonast til að ijarvera fjögurra fasta-
manna í liði mótheijanna komi Englandi til góða. „Ef við komumst í
undanúrslit verður það í fyrsta sinn, sem við náum því í HM utan
Englands, og það kæmi til með að gleðja marga. Við lékum í átta
liða úrslitum í Mexíkó, en vorum óheppnir, mættum röngu liði á röng-
um tíma. Nú vona ég að við mætum réttu liði á réttum tíma.“
Robson sagðist bera mikla virðingu fyrir Kamerún. „Ef við leikum
ekki vel, slá þeir okkur út.“
Gascoigne til vandræða
Paul Gascoigne
P aul Gaseoigne á við stórvægilegt
vandamál að stríða að sögn Robsons,
lar.dsliðsþjálfara Englands. Leikstjórn-
andinn getur ekki slappað af og eyðir
orku, sem hann á að nota í leikjum, í tóma
vitleysu utan vallar. „Ég hef talað um
þetta við hann, en hann ræður ekki við
sig,“ sagði Robson. „Þegar við komum til
Bologna fór ég út og rakst á kappann,
þar sem hann var að leika tennis við
ókunnugan Bandaríkjamann í 32 stiga
hita. Ég varð að draga hann inn, en þetta
er vandamál — drengurinn er ofvirkur.
Ég get ekki passað hann 24 tíma á sólar-
hring — þyrfti að fá sérstaka menn til
þess.“
SIGURMARK STOJKOVICS GEGN SPANVERJUM
IVIörkin: Júgóslavía á 77. og 92. mín. Spánn á 82. mín.
Úrslit: Júgóslavía - Spánn 2:1
Ógnar krónprins-
inn kónginum?
DIEGO Maradona er óumdeildur kóngur knattspyrnunnar og
Dragan Stojkovic er af mörgum tilnefndur sem krónprins, en á
morgun fæst úr því skorið, hvort Stojkovic er verðugur arftaki.
Þá mætast Argentína og Júgóslavía í átta liða úrslitum HM.
Maradona hefur viðurkennt að Argentína sé ekki með eins sterkt
lið nú og 1986, en jafnframt sagt að þetta sé sfðasta keppni
sín, hann láti bikarinn ekki af hendi átakalaust og hafi ekki sagt
sitt síðasta orð. „Ég verð fyrst ánægður á morgun, þegar við
loks getum sýnt hvað við geturn," sagði Stojkovic hins vegar í
gær.
„Kvörtum
ekki ef við
sleppum
í gegn“
„ÓSIGRANDI Ijónin" frá
Kamerún hafa ruglað flesta í
rfminu með þvi að sigra heims-
meistara Argentínu, Rúmeníu
og Kólumbiu. Kamerún leikur
gegn Englandi í átta liða úrslit-
og er fyrst Afríkuþjóða til
að ná svo langt í HM.
Liðið var nánast óþekkt utan
Afríku fyrir keppnina, en er
nú á hvers manns vörum. Nepomn-
iatsjí þjálfari var lítt kunnur, en
hefur skapað sér nafn. Sovétmann-
inum er þökkuð velgengnin, en
hann er ekki á sama máli. „Leik-
mennirnir sigra í leikjum — þjálfar-
inn sér aðeins um undirbúninginn.
Ef leikmennirnir eru spurðir um
Kvndardóminn á bak við sigrana
segja þeir að þetta sé guði að
þakka.“
Nepomniatsjí tók við liðinu fyrir
tveimur árum og komst strax að
því að hvítt er ekki sama og svart.
„í Sovétríkjunum læra stráka
knattspyrnu frá barnæsku. Þeir
bæta stöðugt við kunnáttuna og það
þarf ekkert að kenna þeim, þegar
þeir eru valdir í landslið, aðeins
þarf að fara yfir leikkerfi og und-
irbúa þá sálfræðilega. í Kamerún
læra menn fótbolta á götunni og
landsliðsmönnum þarf að kenna
byijunaratriði."
Sovéski þjálfarinn byijaði á því
að innleiða.ákveðinn aga, leikmenn-
fóru í einu og öllu eftir settum
reglum og skipulagður leikur hefur
fleytt liðinu áfram yfir hveija hindr-
unina á eftir annarri. Nepomniatsjí
er samt raunsær fyrir, leikinn gegn
Englendingum og segir möguleik-
ana á sigri vera 40 á móti 60.
„Við sigrum ef mótheijarnir gefa
okkur tækifæri til að sigra og við
kvörtum ekki ef við sleppum í-
gegn.“
Ivan Osim, þjálfari Júgóslavíu,
óttast að hitinn komi frekar nið-
ur á sínum mönnum, en hann hræð-
ist fyrst og fremst Maradona.
„Jafnvel þó við höfum góðar gætur
á honum í 90 mínútur, er hann
samt fær um að gera ótrúlegustu
hluti. Féiagar hans eru tilbúnir að
deyja fyrir hann, því þeir vita að
kóngurinn er eina von þeirra um
árangur. Við megum ekki líta af
Maradona, en ég hef ekki efni á
að láta þijá menn fylgja honum
eftir sem skugginn."
Júgóslavía hefur leikið þijá leiki
að degi til, þegar hitinn er sem
mestur, og sama verður uppi á ten-
ingnum á morgun. Osim sagði sína
menn ekki vana svona miklum hita,
hann drægi úr þeim kraft og fram-
lengingin gegn Spáni sæti enn í
mönnum.
Aðspurður um hvort hann væri
með sérstakar vítaspyrnuæfingar
sagði Osim að þess væri ekki þörf.
„Það er það eina sem við þurfum
ekki að æfa, því ljúki leikjum í deild-
inni heima með jafntefli, ræður víta-
keppni úrslitum."
Carlos Bilardo, þjálfari heims-
meistara Argentínu, hreifst að leik
Júgóslavíu gegn Spáni. „Júgóslavía
lék vel og í liðinu eru frábærir
knattspyrnumenn. Þeir koma til
með að draga sig til baka gegn
qkkur og beita síðan skyndisóknum.
Ég verð að finna leið til að stöðva
Stojkovic, en liðið, sem verður fyrr
til að skora, sigrar.“
Stojkovip er sannfærður um að
Júgóslavía, England, Vestur-
Þýskaland og Ítalía komist áfram.
„I svona hita sigra þau lið, sem
leika með höfðinu frekar en fótun-
um.“
/7>V l_lyV«/0
■ VAFASAMT er hvort Gary
Lineker verði með Englendingum
gegn Kamerún á sunnudag. Hann
er meiddur á tá, hefur verið spraut-
aður fyrir síðustu tvo leiki og ekk-
ert æft í tæplega hálfan mánuð.
■ PAT Bonner, markvörður íra,
er nánast kominn í tölu dýrlinga
eftir að hann varði víti gegn Rúm-
eníu á dögunum og átti þannig
stærstan þátt í að lið hans komst
í 8-liða úrslitin. Eigendur íþrótta-
miðstöðvar á írlandi hafa ákveðið
að nefna stöðina eftir honum og
listasmaður í þeim fræga bæ Tip-
perary hefur lýst yfir áhuga á að
að steypa styttu af honum úr járni.
■ ÍRAR eru ekki þeir einu sem
dást að frammistöðu Bonners.
„Hann er líklega besti markvörður
keppninnar til þessa, en eftir næstu
umferð vona ég að hann verði ekki
lengur þátttakandi í hennii'þ sagði
Walter Zenga, markvörður Italíu,
en lið þeirra mætast einmitt á morg-
un í 8-liða úrslitunum.
Zenga. Bonner.
■ JOHN Aldridge verður líklega
ekki með Irum gegn ítölum á
morgun. Hann fékk spark í leiknum
gegn Hollendingum og varð að
fara útaf eftir aðeins 20 mínútna
leik gegn Rúmenum.
■ Steve Staunton á einnig við
meiðsli að stríða og óvíst hann að
geti leikið með. Staunton fór útaf
í framlengingunni gegn Rúmenum.
David O’Leary kom inná fyrir
Staunton og færði liði sínu sigurinn
er hann skoraði úr fímmtu víta-
spyrnunni. Það er talið léklegt að
hann muni verða í byijunarliðinu
gegn ítölum.
■ HVORUGUR ofannefndra leik-
rnanna æfði í gær. „Ætli ég spyiji
þá ekki á laugardaginn hvernig
þeim líðj,“ sagði Jack Charlton,
þjálfari Ira, við blaðamenn í gær!
É GIANLUCA Vmlli ogRoberto
Donadoni eru búnir að ná sér eftir
meiðsli og eru tilbúnir til að leika
gegn Irum. Það er þó ekki sjálfgef-
ið að þeir komist í byrjunarliðið því
Schillaci og Roberto Baggio hafa
leikið mjög vel. Vicini, þjálfari ít-
ala, segir það éinn mesta styrk
ítalska liðsins að hafa mjög Ij'öl-
hæfa sóknarmenn „Við erum með
fimm til sex sóknarmenn, sem allir
hafa mjög ólíkan leikstíl. Ef önnur
lið eru skoðuð, sérstaklega frá norð-
lægu löndunum, eru þau með leik-
menn sem hafa mjög svipaðan
leikstíl," sagði þjálfarinn.
■ KARLHEINZ Riedle kemur
væntanlega inní lið Vestur-Þjóð-
verja fyrir Rudi Völler, sem rekinn
var útaf í leiknum gegn Hollerid-
ingum. „Ef ég fæ ekki tækifæri
undir þessum kringumstæðum, get
ég alveg eins farið að pakka niður
núna,“ sagði Riedle. Vestur-Þjóð-
verjar leika við Tékka í 8-liða úr-
slitum á sunnudag.
Bilardo gagntekinn
CARLOS Bilardo, landsliðsþjálfari heimsmeistara Argentínu,
er gagntekinn af knattspyrnu og segist hætta í þjálfarastarf-
inu eftir HM á Ítalíu. „Ég get þetta ekki lengur,“ sagði hann
í vikunni, greinilega yfir sig þreyttur á því hvernig starfið
hefur gegntekið hug hans.
Enginn náinn þjálfaranum hef-
ur trú á að honum takist að
að hætta, en hann segir að
ákvörðun sinni verði ekki breytt.
Bilardo, sem er 52 ára, sagði
fréttamanni Reuters, frá því í vik-
. unni að hann gæti aldrei frestað
r því að ræða það sem betur mætti
fara hjá liðin sínu — hugsað um
næsta leik: „Við vorum nýorðnir
heimsmeistarar og ég sagði við
strákana að við yrðum að finna
lausn á vandamálum varðandi
hornspyrnur. „Caplos, þetta er
búið, nú er nóg komið. Við leysum
►það vandámál síðar“,“ sögðu þá
leikmennimir. Staðurinn var bún-
ingsherbergi Aztec leikvangsins í
Mexíkó, og liðið hafði nýlokið úr-
slitaleiknum í HM 1986 — er það
sigraði Vestur-Þjóðveija.
„Ég get ekkert að þessu gert.
Ég er bara svona,“ sagði Bilardo,
nánast í afsökunartón nú í vik-
unni.
Bilardo virðist ætíð með hug-
ann við knattspyrnuna, og þeir
sem til þekkja eru vanir undarleg-
um uppátækjum hans.
•Eins og 1 brúðkaupí Diegos
Maradona í Buenos Aires í fyrra...
„Fáðu Jose Luis [Brown] út á
dansgólfíð og eins nálægt Careca
og þú getir," sagði þjálfarinn við
eiginkonu Brown, Silviu. Careca
er aðal framheiji brasilíska lands-
liðsins og félagi Maradona hjá
Napóií. Brown var hins vegar
miðvörður í liði heimsmeistar-
anna; reyndar ekki með nú á It-
alíu. „Ég þarf að átta mig á stærð-
armuninum,“ sagði Biiardo, en
hann hafði áhyggjur af því að
varnarmenn hans væru hugsan-
lega ekki nógu hávaxnir eftir að
hafa fengið á sig mörk eftir háar
fyrírgjafir á ieiðinni að titlinum í
Mexíkó 1986, tvö gegn V-Þýska-
landi og eitt gegn Englandi.
• Eða kvöld eitt í leikhúsinu...
í einu atriði rokkóperunnar
Evitu raða fimm hermenn sér upp
í röð á sviðinu og snúa að áhorf-
endum. Þá hallaði Bilardo sér að
Claudiu, eiginkonu Maradona og
sagði: „Það vantar einn mann í
vegginn. Hvorum megin myndir
þú skjóta knettinum?
• Eða sunnudagsmorgun einn...
Gloria, eiginkona Bilardos,
sagði frá því að hann hefði eitt
sinn farið út í brauðbúð á sunnu-
dagsmorgni, en síðan hringt
þremur tímum síðar frá borginni
Rosario, sem var 250 km frá
heimiii þeirra. Vinur Bilardos, sem
hann hitti hjá bakaranum, minnti
þjálfarann á að útherji nokkur
sem hann hefði ætlað að sjá í leik
ætti að spila í Rosario þann dag,
í síðasta leik keppnistimabilsins.
Bilardo' stökk þegar upp í bíl
sínn...
Það er ef til vill ekki furða að
þrátt fyrir yfirlýsingar þjálfarans
segist eiginkona hans ekki trúa
því að hann hætti með landsliðið
fyrr en hún sjá það í raun!