Morgunblaðið - 29.06.1990, Side 48
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Fékk gaseitrun
á Nesjavöllum;
Heyrðum að
^ eitthvað skall
á álgólfið
„VIÐ vorum að skipta um lok
á röri í síðasta sinn og heyrð-
um að eitthvað skall á álgólf-
ið. Eg hljóp upp og sá Engil-
bert liggja þar, hann kipptist
til í krömpum og við þorðum
lítið að hreyfa við honum.
Tveir okkar eru félagar í
hjálparsveitum og við fórum
að reyna neyðarhjálp. Þetta
gerðist mjög hratt, ég sá
skyndilega allt í móðu og
man ekki eftir mér fyrr en í
"V* sjúkrabílnum á leið í bæinn.“
Ingólfur Níels Árnason er
einn þeirra sem urðu fyrir
eitruðu gasi í Nesjavalla-
virkjun í fyrrakvöld. Hann
lýsti atvikum á þessa leið í
samtali við Morgunblaðið.
„Þeir sögðu mér hinir að ég
hefði sýnt sams konar krampa-
viðbrögð og Engilbert eftir að
ég missti meðvitund. Það hálf-
leið yfir þá þegar þeir reyndu
að koma okkur út, en þeim
tókst að rífa sig upp og náðu
sér fljótlega. Þegar ég rankaði
við mér þótti mér eins og farg
iægi á mér svo ég náði varla
andanum. Fyrst sá ég ekkert
en það lagaðist fljótt. Mér
fannst eins og ég væri í ein-
hverskonar vímu, ég talaði eitt-
hvað út í bláinn, og er hálf
timbraður núna. Annars kenni
ég mér einskis meins,“ sagði
Ingólfur í gærkvöldi eftir að
heim var komið af Borg-
arspítalanum.
Ingólfur segir að einhver
mistök hafi orðið þegar skipt
var um lok á gasleiðslunni.
„Við höfum oft gert þetta áður
,^'og yfirleitt fundið aðeins gas-
lykt. En þetta hefur aldrei ver-
ið neitt mál, gasið hefur bara
lekið með gólfinu og út. Nú
hins vegar streymdi það upp
af rörinu og skall á þeim sem
voru að vinna fyrir ofan okkur
í salnum. Hugsanlega hefur
mjög mikið gas verið á leiðsl-
unni eða svona heitt. Ég vinn
þarna sem verkamaður og get
ekki dæmt um hvað veldur."
Sjá bls. 2.
Ingólfur Níels Árnason
Þriggja bíla
várekstur
ÞRJÁR bifreiðar lentu í árekstri
á mótum Austurbergs og Hraun-
bergs í Breiðholti um kvöldmat-
arleytið í gær.
Ökumaður einnar bifreiðarinnar
var fluttur á Slysadeild, en meiðsl
PP^ans eru ekki talin alvarleg. Árekst-
urinn var harður og þurfti kranabíl
til að fjarlægja tvær bifreiðanna.
MorgunDiaöið/KAA
Nýtt met 22 þúsund gesta í Laugardalnum
Áætlað er að 22 þúsund manns hafi safnast saman á Laugardalsvelli í gærkvöldi á setningarathöfn
íþróttahátíðar íþróttasambands íslands.
A
Alfar gera
usla í Olafs-
fjarðarmúla
SÉRKENNILEG óhöpþ undan-
farið hjá verktökum í Olafsfjarð-
armúla eru af sumum talin stafa
af því að álfar, sem búi í Múlan-
um, séu ekki hrifnir af fram-
kvæmdunum.
Tryggvi Jónsson staðarstjóri
kannaðist við að álfar væru orðaðir
við ýmis skakkaföll við fram-
kvæmdir í Múlanum, og einhvetjir
teldu sig jafnvel hafa séð álfa, en
hann hefði sjálfur ekki orðið var
við slíkt.
Sem dæmi um óhöpp, sem tengd
eru álfum, má nefna að steypumót
hafa sprungið án sýnilegra orsaka.
Einnig eru fregnir af einkennilegum
bilunum í vinnuvélum sem helstu
töframenn meðal viðgerðarmanna
hafa ekki getað útskýrt. Þá er jafn-
vel talið að miklar rigningar undan-
farið stafi af því að álfunum sé illa
við vegagerðina.
Skömmu eftir að framkvæmdir
hófust við Ólafsíjarðarmúla síðsum-
ars 1988 féllu miklar aurskriður á
Ólafsijarðarkaupstað og athafna-
svæði jarðgangamanna í Múlanum,
og vildu ýmsir kenna það huldu-
fólki.
Þjóðsögur segja frá því að tröll
hafi búið í Ólafsfjarðarmúla og þau
hafi meðal annars numið á brott
húsfreyjuna í Málmey í Skagafirði.
Örnefnið Hálfdánarhurð í Múlanum
tengist þeirri sögu.
Fiskmiðlun
Norðurlands:
Gætu selt 50 til
100 tonn á dag
FISKMIÐLUN Norðurlands á
Dalvík gæti selt 50-100 tonn af
físki á degi hverjum að sögn
Hilmars Daníelssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Fiskmiðlunin hefur verið starfs-
rækt í tvo mánuði og í maí voru
seld þar 314 tonn, aðallega af trill-
um og smærri netabátum. Meðal-
verð fyrir þorsk hefúr verið tæpar
80 -krónur fyrir kílóið.
Sjá Akureyrarsíðu bls. 28.
Óformlegar viðræður ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins:
Rætt um að ASI gefí eftir
hluta kauphækkana í haust
BSRB haftiar því að gefa eftir launahækkanir
í óformlegum viðræðum ríkis-
stjórnarinriar og aðila vinnumark-
aðarins um leiðir til að halda vísi-
töluhækkunum innan rauðu strik-
anna, sem samið var um í kjara-
samningum, hefur samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins komið
upp sú hugmynd að ASI gefi eftir
einhverjar launahækkanir 1. sept-
ember næstkomandi, en um leið
sjái ríkissljórnin til þess að hækk-
anir á opinberri þjónustu komi
ekki til framkvæmda. Jafnframt
hefur verið rætt um gengishækk-
un, en ýmsir ráðherrar stjómar-
innar eru henni andvígir.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins komu þessar hugmyndir
fram á óformlegum fundum embætt-
ismanna, sérfræðinga og forsvars-
manna aðila vinnumarkaðarins með
ráðherrum. Morgunblaðið hefur
heimildir fyrir því að Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja, sem
samdi um sömu launahækkanir og
ASI í febrúarsamningunum, hafi
ekki viljað fallast á að gefa launa-
hækkanir eftir.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, ságði í samtali. við Morgun-
blaðið að BSRB myndi ekki sam-
þykkja að falla frá launahækkunum,
heldur hygðist bandalagið sækja þær
hækkanir, sem yrðu fram yfir rauðu
strikin í haust. Hann sagði að BSRB
væri til í allar viðræður um leiðir til
að halda verðbólgu undir rauðu strik-
unum, en lagði áherzlu á að það
væri vinnuveitenda, bæði VSÍ og
ríkisins, að sjá til þess að verðhækk-
anir færu ekki fram úr því, sem sam-
ið hefði verið um.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra vildi ekki staðfesta að
fram hefðu komið fastmótaðar tillög-
ur frá aðilum vinnumarkaðarins, en
ýmsum hugmyndum hefði .verið
varpað fram. „Það var talað um
hugsanlega ger.gishækkun og mikil
andstaða var gegn henni. Meðal ann-
ars er ég ekki hrifinn af henni og
ekki sjávarútvegsráðherra eða við-
skiptaráðherra og fleiri. Það var tal-
að um áróður gegn hækkunum og
áherzla á það hjá VSÍ að þeirra félag-
ar hækki ekki, og svo framvegis."
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður VSI, sagði að öllum möguleik-
um hefði verið velt upp í óformlegum •
viðræðum. Hins vegar væri ekki við
því að búast að farið yrði út i alvöru-
viðræður um lausn málsins fyrr en
fyrir lægi hver niðurstaðan yrði varð-
andi launahækkanir tiLBHMR.