Morgunblaðið - 17.07.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.07.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 1990 Alþýðubandalagið samþykkir 100 milljónir til Landsvirkjunar: Frekari ákvörð- un háð staðarvali fyrir nýtt álver ÞINGFLOKKUR Alþýðubandalagsins samþykkti í gærkvðldi að Landsvirkjun verji 100 milljónum króna á næstu tveimur mánuðum til undirbúnings virkjana. En flokkurinn setti jafhframt það skilyrði fyrir frekari samþykki á útvegun fjármagns til undirbúnings virkjana- firamkvæmda, að ákvörðun um stað fyrir nýtt álver liggi fyrir á næstu 3-4 vikum. Roskinn maður fyrir bíl Morgunblaðið/Ingvar Roskinn maður varð fyrir bíl á Hverfisgötu við Bar- ónsstíg síðdegis í gær. Maðurinn gekk norður yfir Hverfisgötu og varð fyrir bíl sem ók austur eftir vinstri akgrein. Haíin slasaðist nokkuð og var flutt- ur á sjúkrahús til rannsóknar. Meiðsli hans voru ekki talin lífshættuleg að sögn lögreglu. Ríkisskattstjóri: Aflakvóta skipa skal telja fram til skatts Alþýðubandalagið ítrekaði jafn- framt fyrri samþykkt sína frá 9. apríl um að nýju álveri verði valinn staður utan höfuðborgarsvæðisins. „Þá erum við ekki heldur að tala um næsta nágrenni Reykjavíkur heldur fyrst og fremst Austurland og Norðurland," sagði Margrét' Frímannsdóttir formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins við Ferðamenn fórnarlömb þrig-gja þjófa ÞRÍR erlendir ferðamenn sneru sér til lögreglu í Reykjavík um helgina og kærðu þjófiiað á eig- um sínum. Á laugardag var stol- ið frá frönskum ferðamanni í Kringlunni vegabréfi og ferða- tékkum að upphæð 9.000 frank- ar, eða um 100 þúsund krónur. Um 21 þúsund krónum var stolið úr úlpu bresks ferðamanns sem gisti í farfuglaheimilinu við Laufásveg. Pentax-myndavél var stolið úr jakkavasa erlendrar konu í sund- laugunum í Laugardal. Ástæða afsláttarins er tíu ára afmæli Apple-umboðsins hér á landi. Að sögn starfsmanna hjá Apple kom þessi mikla sala þeim á óvart, en þeir reyna nú að fá fleiri Morgunblaðið. í samþykkt þingflokksins segir, að íslensk stjórnvöld eigi á næstu 3-4 vikum að ákveða hvar reisa eigi álverið og sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda verði síðan til- kynnt hinum erlendu samningsaðil- um áður en samningar um aðra þætti þróist nánar. Þingflokkurinn sé ekki reiðubúinn að styðja frekari útvegun fjármagns til undirbúnings virkjanaframkvæmda fyrr en ákvörðun um staðarval liggur fyrir. Atlantsálshópurinn og iðnaðar- ráðuneytið hafa áður lýst því yfir að sameiginleg ákvörðun um stað- arval verði tekin í september. Allir þingflokkar ríkisstjómar- innar hafa þá samþykkt að Lands- virkjun verji 100 milljónum króna á næstu tveimur mánuðum til undir- búnings virkjana og taki til þess erlent lán. Borgaraflokkurinn sam- þykkti þetta fyrir sitt leyti sl. föstu- dag en Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur sl. fimmtudag. Sam- kvæmt lögum, sem sett voru á Al- þingi í vor, er Landsvirkjun heimilt að veija 300 milljónum króna á þessu ári til undirbúnings virkjana vegna raforkuframleiðslu fyrir nýtt álver, en þær framkvæmdir og láns- heimildir vegna þeirra, eru samt háðar ákvörðunum ríkisstjómarinn- tölvur, sem þeir hyggjast einnig bjóða með afmælisafslætti. Tölva, sem snemma í síðustu viku kostaði 129.000 krónur, kostar 49.000 krónur með afslætti. RÍKISSKATTSTJÓRI hefúr svarað fyrirspurnum sem honum bárust um það hvernig beri að eignfæra og afskrifa aflakvóta. í stórum dráttum ganga svör ríkis- skattsljóra út á það að telja skuli þessi verðmæti sérstaklega fram til skatts tengd því skipi sem afl- ar þeirra. Ævar ísberg, vararíkisskatt- stjóri, sagði að skipta þyrfti verð- mæti skips sem keypt er í tvennt, annars vegar verðmæti sjálfs skips- ins og hins vegar verðmæti afla- kvótans. „Einnig er til í dæminu að menn kaupi skip, leggi því og afskrifi það sem ónýtt en færi kvót- ann yfir á annað skip. Þá þarf að tengja kvótann því skipi,“ sagði Ævar. Ævar sagði að málið snerist í hnotskum um það að aðskilja verð- mæti aflakvóta eftir einhveijum skynsamlegum reglum. Aðalreglan sé sú að reynt verði að meta verð- mæti aflakvótans út frá heildar- verði skips sem keypt er eða lagt, aflakvótinn er síðan eignfærður og afskrifaður á sama hátt og skip. Ævar sagði að engar algildar reglur væm til um hvernig verð- mæti aflakvótans væri reiknað sem hluti af verðmæti skips. Ef engin önnur viðmiðun er fyrir hendi er unnt er að reikna þetta út frá vá- tryggingaverði skips. Aðspurður um hvort kvóti hefði fram til þessa ekki verið skattlagð- Að sögn Jóns Sigurðssonar, land- búnaðarráðunauts, hefur verið með eindæmum góð tíð til heyverkunar en grasspretta hefði þó verið með minna móti vegna þurrka. í fyrradag rigndi mikið á norðaustanverðu landinu og sagði Jón að það hefði verið mikið til bóta fyrir gróðurinn. Sláttur er almennt að byija fyrir norðan en þó eru dæmi um að bænd- ur sérstaklega sagði Ævar að allur gangur hefði verið á því. Hann sagði að engar reglur væru til um skatt- lagningu aflakvóta í lögum og það hefði viðgengist að kaupendur skipa hefðu fært kaupverð skips fram til skatts án þess að verðmæti kvótans fylgdi þar með. ur hafi lokið fyrri slætti. Sagði Jón að svo væri jörðin þurr að bændur sem hafa verið að slá á framræstum mýrartúnum hefðu ekki orðið varir við vætu í hjólförum dráttarvéla sinna. Sveinn Sigmundsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, sagði að sláttur hefði lítið gengið eftir að byijaði að væta sunnanlands. Hins vegar hefði vætu- tíðin verið kærkomin eftir óvenju mikla þurrka í vor og sumarbyijun. Sagði hann að sums staðar þar sem jörð er sendin væru tún farin að brenna og hefði hlotist nokkur skaði af því. Stöku bændur eru búnir með fyrri slátt á Suðurlandi, að sögn Sveins. Kærði föð- ur sinn fyr- ir nauðgun NÍTJÁN ára stúlka kærði fóður sinn fyrir að hafa nauðgað sér sofandi aðfaranótt mánudagsins. Hinn meinti atburður á að hafa gerst á heimili þeirra á höfuðborg- arsvæðinu. Maðurinn var til yfir- heyrslu hjá RLR í S'ær- Krafa hafði ekki verið lögð fram um gæsluvarð- hald yfir honum. Sólarlandaferðir nánast upp- seldar í kjölfar góða veðursins „GÓÐA veðrið í júní og byijun júlímánaðar virðist hafa kveikt í fólki. Þegar veður versnaði virtust menn vilja fá meiri sól, en þó má ekki gleyma því að íslendingar eru seinir að taka við sér,“ segir Anna Guðný Aradóttir, sölustjóri leiguflugs hjá Úrvali-Útsýn en sólarlaridaferðir eru nú nánast uppseldar fram á haust hjá stærstu ferðaskrifstofúnum. Hjá Ferðamiðstöðinni- Veröld hafði komið kippur í sölu á sólarlandaferðum eftir að ský dró fyrir sólu sunnanlands en hjá Samvinnuferðum-Land- sýn fengust þær upplýsingar að salan hefði verið jöfh allt sumar- ið og ekki merkjanlegar breytingar á henni vegna veðurs. Anna Guðný kvaðst telja við verið að selja nokkur hundruð sæti á viku. Sala á sólarlanda- ferðum datt mjög niður eftir kosningar og var lengi að ná sér upp,“ sagði Anna Guðný en um menn ofmeta áhrif veðursins á ákvarðanatöku fólks, íslending- ar væru seinir að taka við sér. „Síðasta háifan mánuðinn höfum 8.000 manns verða á sólarströnd á vegum Úrvals-Útsýnar í sum- ar. „Þetta hefur verið skemmti- legt söluferli eftir veðri,“ sagði Andri Már Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Ferðamiðstöðvar- innar-Veraldar. Þar höfðu selst á þriðja hundrað sæti í síðustu viku og sagði hann ekki lát á ásókn fólks í sólina. „Það hægist á sölunni þegar veðrið er gott, menn halda að sér höndum í slíku veðri. En salan eykst þegar veð- ur versnar og við höfum nú selt upp í nánast allar ferðir í sumar og mikinn hluta september," sagði Andri. Um 5.000 fara til sólarlanda með Ferðamiðstöð- inni-Veröld í sumar. „Við merkjum í raun litla breytingu á sölunni eftir veðri, salan hefur verið það jöfn og góð í sumar og meira og minna upp- selt í sumar,“ sagði Helgi Dan- íelsson, sölustjóri hópferða hjá Samvinnuferðum-Landsýn, en um 8.000 manns fara í sólar- landaferðir á vegum ferðaskrif- stofunnar í sumar. Apple-umboðið: Seldu 380 tölvur á þremur dögum APPLE-umboðið seldi 382 Macintosh plus-tölvur á þremur dögum í síðustu viku. Tölvurnar voru seldar með um það bil 60% afslætti og runnu út eins og heitar lummur. Þurrkar hafa hamlað sprettu og tún bnmnið ÞURRKAR hafa hamlað grassprettu víða um land en einmuna tíð hef- ur verið til heyverkunar. Nokkur skaði heíúr orðið á túnum bæði norð- an- og sunnanlands vegna þurrka, einkum þar sem jarðvegur er sendinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.