Morgunblaðið - 17.07.1990, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 17.07.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990 15 Jóhann vantaði herslumun á skákmótinu í Manila Evrópumót yngri spilara í brids: ísland endaðj í níunda sæti íslendingar urðu í 9. sæti af 22 þjóðum á Evrópumóti yngri spil- ara í brids, sem lauk í Neumiinst- er í Þýskalandi á sunnudag. Norð- menn unnu mótið og er þetta í annað skipti sem þeir verða Evr- ópumeistarar í brids í þessum flokki. Norðmenn leiddu mótið lengstaf og enduðu með 408,5 stig. ísraels- menn voru í öðru sæti með 385,5 stig og Danir urðu í 3. sæti með 372,5 stig. ____ Þetta er einn besti árangur íslensks liðs á Evrópumóti yngri spil- ara í brids. Liðið skipuðu Hrannar Erlingsson, Matthías Þorvaldsson, Ólafur Jónsson, Steinar Jónsson, Steingrímur G. Pétursson og Sveinn Rúnar Eiríksson. Fyrirliði var Björn Eysteinsson. JÓHANN Hjartarson varð í 12. sæti ásamt fleiri skákmönnum á millisvæðamótinu í Manila á Filippseyjum. 11 efstu skákmennirnir komust áfram í áskorendaeinvígi. Jóhann Hjartarson gerði jafn- tefli í síðustu umferðinni við Búlg- arann Kiril Georgiev, eftir langa og stranga skák, og endaði með 7 'A vinning. Margeir Pétursson vann Juarez frá Guatamala í síðustu umferð og endaði með 6 vinninga. Sovétmaðurinn Bóris Gelfand varð efstur á mótinu með 9 vinn- inga en hann vann landa sinn Jaan Ehlvest í síðustu umferð. í öðru sæti varð Vassilíj Ivantsjúk, einnig með 9 vinninga. í 3-4. sæti urðu Viswanathan Amand og Nigel Short með 8 'A. Short vann Míkhaíl Gúrevítjs í síðustu umferðinni og Gúrevítsj, sem leiddi mótið iengi, datt við það niður í 12. sætið. í 5-11. sæti urðu Leóníd Júd- asín, Alexi Dreev, Sergei Dol- matov, Viktor Kortsjnoj, Robert Húbner, Predrag Nicolic og Guyla Sax, með 8 vinninga. Ekki er ljóst hvort 8 vinningar hefðu dugað Jóhanni í 11. sætið. Hefði hann endað í 5.-12 sæti hefði sætaröðin ráðist af samanburði á vinninga- fjölda andstæðinga skákmann- anna. Nokkra athygli vakti að engir jafnteflasamningar virtust vera milli sovésku skákmannanna í toppbaráttunni, og var sigur Gel- fands á Ehlvest í 13. umferð og sigur Ivantsjúks á Kalifman í 12. umferð talin merki um það. Haft var eftir Florencio Campomanes, forseta Alþjóðaskáksambandsins, í Reutersfrétt að sovéska ríkis- skákkerfið væri að hrynja niður í kjölfal breytinga á stjórnkerfinu. „Þau eru að missa þetta algera vald,“ sagði Campomanes og átti þá við sovésk skákyfirvöld. Þeir 11 sem komust áfram í Manila, fara í áskorendaeinvígi ásamt Jan Timman og Jonathan Speelman. Síðar bætist sá sem tapar næsta heimsmeistaraeinvígi í skák, annað hvort Anatolíj Karpov eða Garríj Kasparov, í hópinn og fulltrúi þess lands sem heldur fyrsta hluta áskorendaein- víganna. Bjarni P. Magnússon í stjórn ÍSAL JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur skipað Bjarna P. Magnús- son, hagfræðing og varaborgar- fulltrua, í sljórn íslenzka álfélags- ins. Skipt var um stjórn í félaginu á aðalfundi 12. júní. lðnaðarráðherra_ skipar tvo menn af níu í stjórn ÍSAL samkvæmt samningi ríkisstjórnar íslands og Alusuisse. Hrafnkell Ásgeirsson hæstaréttarlögmaður situr í stjórn ásamt Bjarna, en hann var skipaður í stjórnina á síðasta ári. Bjarni kem- ur í stað Þorsteins Ólafssonar við- skiptafræðings. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Slökkviliðsmaður virðir fyrir sér skemmda raftnagnstöflu í Hraun- bæ 74. Eldur borinn að raf- magnstöflu ijölbýlishúss Leitað upplýsinga um ferðir grunaðs manns ELDUR var borinn að rafmagn- stöflu og gardínum í stigahúsi fjöl- býlishússins Hraunbær 74 um klukkan hálfsex að morgni sunnu- dagsins. Talsverðar skemmdir urðu í sameign hússins af reyk og sóti auk þess sem endurnýja þarf raflagnir, Grunur lögreglunnar beinist að manni sem vísað var út úr íbúð úr húsinu skömmu áður en eldsins varð vart og óskar rann- sóknarlögreglan eftir upplýsing- um um ferðir hans. Eldur var borinn að gardínum í anddyri blokkarinnar, sturtuhengi í baðherbergi á jarðhæð auk þess sem kveikt var í rafmagnstöflu í sameign- inni. Reyk og sót lagði um allt stiga- húsið en slökkviliði gekk greiðlega að ráða niurlögum eldsins. Um hálfri klukkustund áður en eldsins varð vart hafði lögregla verið kvödd til að vísa tveimur ölvuðum mönnum út úr íbúð í húsinu. Öðrum þeirra var ekið á brott en hinn faldi sig fyrir lögreglunni. Sá er grunaður um íkveikjuna. Rannsóknarlögreglan biður alla þá sem gefið geta upplýsingar um ferðir mannsins milli Árbæjarhverfis og Garðabæjar miili klukkan 5 og 7 um morguninn að gefa sig fram. Talið er að hann hafi verið tekinn upp í fólks- eða leigubifreið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.