Morgunblaðið - 17.07.1990, Page 19
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 1990
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, simi 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 90 kr. eintakið.
Leiðarljós í orlofinu
Dýrmætasta eign hvers
einstaklings er eigin heil-
brigði. Heilsufar fólks ræðst
m.a. af erfðum, umhverfí og
aðstæðum. Hver og einn hefur
engu að síður ríkuleg áhrif á
eigin heilbrigði með lífsmáta
sínum: mataræði, líkamsrækt
og hugarfari. Áhrif og ábyrgð
einstaklingsins á eigin heil-
brigði eru nútímamanninum
augljós. Heilsuvernd — eða
fyrirbyggjandi starf á þeim
vettvangi — þarf að eiga ræt-
ur í lífsmáta einstaklinganna.
Samfélagið gegnir og
grundvallarhlutverki að þessu
leyti. í fyrsta lagi um fræðslu-
kerfið, sem byggir upp þekk-
ingu einstaklinganna. I annan
stað um heilbrigðiskerfið:
heilsugæzlu og sjúkrahús. í
þriðja lagi með löggjöf um
flest það sem mótar þjóðfé-
lagslegt umhverfi og aðstæð-
ur fólks.
Hér á landi sem víðast ann-
ars staðar gegna borgaraleg
samtök jafnframt lykilhlut-
verkum í hvers konar fyrir-
byggjandi starfi til að tryggja
heilbrigði og öryggi fólks. Þar
ber meðal annarra að nefna
Slysavamafélag íslands, sem
hefur lyft mörgu Grettistak-
inu á þessum vettvangi.
Slysavarnafélagið, sem er
landssamband slysavarna-
deilda og björgunarsveita, á
að baki sextíu ára farsælt
starf. Á starfsferli þess hafa
björgunarsveitir bjargað rúm-
lega tvö þúsund manns úr
sjávarháska, auk þess sem
félagið hefur rekið Slysa-
varnaskóla sjómanna síðan
1985, sem brýn þörf var fyr-
ir. Starfsemi félagsins er eng-
an veginn einskorðuð við
slysavarnir og björgunarstarf
á sjó, þó að sá starfsþáttur
þess rísi hæst og eigi sér
lengsta sögu. Félagið annast
fjölhliða slysavarna- og björg-
unarstarf, sem þjóðin fær
seint fullþakkað.
Slysavarnafélagið hefur
staðið fyrir fræðsluherferð í
íjölmiðlum síðustu vikur — á
mesta orlofs- og ferðatíma
ársins — til að vara fólk við
hættum sem því mæta á ferð-
um bæði um vegi og vegleysur
jandsins. Ástæður eru aug-
ljósar. Það er sorgleg stað-
reynd að tveir einstaklingar
deyja að meðaltali i mánuði
hveijum í umferðarslysum hér
á landi, auk þess sem sex til
sjö hljóta meiri og minni
meiðsl, stundum ævilöng ör-
kuml, að ekki sé talað um
eignatjón í skemmdum eða
ónýtum ökutækjum.
Ábyrgð ökumanna er mikil.
Akið aldrei hraðar en aðstæð-
ur og reglur segja til um.
Akið ekki fram úr nema
kringumstæður leyfi. Notið
bæði belti og ljós. Hleypið
aldrei stút að stýri. Sýnið öðr-
um sömu háttvísi og tillitssemi
og þið væntið af þeim. Séu
þessir vegvísar virtir hafa
menn oftast fararheill.
Land okkar hefur upp á
flest það að bjóða sem gleður
augu ferðamanna og náttúru-
unnenda. Fleiri og fleiri hér-
lendir og erlendir ferðamenn
leggja leið sína um uppsveitir
og hálendi landsins. Það er í
senn ægifagurt og viðsjárvert,
ef við umgöngumst það ekki
með tilhlýðilegri varúð og
virðingu. Orðtakið enginn
kann sig í góðu veðri heiman
að búa talar skýru máli um
óstöðugleika íslenzkrar veðr-
áttu, jafnvel um hásumarið,
Sviptivindar á hálendinu fyrir
fáum dögum undirstrikuðu
sannleiksgildi þessa — sem
og mikilvægi þjóðarátaks
gegn uppblæstri landsins.
Umgengnin við öræfi lands-
ins, ár og vötn krefst fyrir-
hyggju og varkárni. Fræðslu-
herferð Slysavarnafélagsins,
sem fyrr er vikið að, minnir á
þessar staðreyndir og hvem
veg skuli bregðast við aðstæð-
um. Varnaðarorð félagsins í
fjölmiðlum undanfarið eru orð
í tíma töluð.
Langflest slys eiga sér stað
vegna óvarkárni og athugun-
arleysis. Þetta á meðal annars
við um slys á vegum og öðrum
ferðaleiðum. Afstaða okkar,
þegar við leggjum land undir
hjól, er á stundum ótrúlega
kæruleysisleg. Þessvegna
veitir ekki af viðvarandi varn-
aðarorðum í þeim fjölmiðlum,
sem bezt ná augum og eyrum
landsmanna. Slysavamafélag
íslands á þakkir skildar fyrir
framtak sitt og viðvörunarorð.
Kjarni þeirra er að minna
okkur öll á ábyrgð okkar,
bæði á eigin velferð og ann-
arra. Yfirskrift herferðarinnar
er: komum heil heim. Gerum
þau orð að leiðarljósi í orlofinu
— og endranær.
Viðræður Stöðvar 2 og Eignarhaldsfélagsins:
Haraldur Haraldsson mun
kalla ínn varamann sinn
HARALDUR Haraldsson formað-
ur Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans segist munu kalla inn
varamann sinn, Rafn Johnson,
fari af stað viðræður milli meiri-
hluta eigenda Stöðvar 2 og fé-
lagsins.
Jóhann J. Ólafsson stjórnarfor-
maður Stöðvar 2 hefur lýst því yfir
að meirihluti eigenda muni krefja
Eignarhaldsfélagið skýringa á því
hvers vegna fjárhagsstaða stöðvar-
innar hafi reynst mun verri en talið
var um áramót.
Haraldur Haraldsson er í stjórn
Stöðvar 2 og í hópi meirihluta eig-
enda. Hann sagði við Morgunblaðið
að þar sem hann ætti hagsmuna
að gæta beggja megin við borðið í
þessu máli myndi hann kalla inn
varamann sinn í stjórn Eignarhalds-
Heimsmeistaramót barna í skák:
íslendingar keppa í flest-
um flokkum mótsins
, Frá Andra Grétarssyni, Heimsmcistaramóti barna, Fond du Lac, Wisconsin, Bandrikjunum.
ISLENDINGAR byrjuðu þokkalega á Heimsmeistaramóti barna í skák,
sem haldið er í borginni Fond du Lac í Wisconsin-fylki í Bandaríkjun-
um. Keppt er í þremur aldursflokkum, 13-14 ára, 11-12 ára og 10 ára
og yngri. Hverjum aldursflokki er síðan skipt í opinn flokk, þar sem
bæði stúlkur og drengir geta keppt og stúlknaflokk, sem aðeins stúlkur
geta keppt í. íslendingar eiga fúlltrúa í öllum opnu flokkunum og elsta
stúlknaflokknum.
Helgi Áss Grétarsson sem keppir
í flokki 13-14 ára vann með hvítu í
fyrstu umferð Filippseyinginn
Bolico. Helgi fórnaði peði í byijun
fyrir sterkan biskup sem Filippsey-
ingurinn átti í erfiðleikum með og
að lokum féll Filippseyingurinn á
tíma með tapaða stöðu. I annarri
umferð tapaði Helgi með svörtu fyr-
ir FIDE-meistaranum Schwarsman.
í flokki 11-12 ára tapaði Arnar
Gunnarsson með svörtu fyrir Bras-
ilíumanninum Leitao í baráttuskák.
í annarri umferð tapaði Arnar fyrir
Moncato frá Ekvador eftir að hafa
misstigið sig í byrjuninni.
umferð tefldi Hrund við austurrísku
stúikuna Schrocker með hvítu. í
tímahraki lék Hrund sig í mát í jafn-
teflislegri stöðu.
Þátttakendur eru samtals 170 í
öllum flokkum, sem er met. Mótið
er einnig hið sterkasta til þessa í
öllum aldursflokkum og þó sérstak-
lega í opna flokkum, 13-14 ára, þar
sem sterkasti keppandinn er Judit
Polgar, sem er þrátt fyrir ungan
aldur stigahæst kvenna í heimi með
2.540 stig. Polgar vann fyrstu skák
sína og er með sigurstranglega bið-
skák.
í þriðju umferð mun Helgi hafa
hvítt gegn Hausrath frá Vestur-
Þýskalandi, Arnar situr hjá, Jón
Viktor teflir með svörtu gegn Spán-
veijanum Vallejo og Hrund teflir
með svörtu gegn pólsku stúlkunni
Jablonska.
félagsins.
Orri Vigfússon er bæði í stjórn
Stöðvar 2 og Eignarhaldsfélagsins.
Haraldur sagði að öðru máli gegndi
með Orra þar sem hann væri full-
trúi Eignarhaldsfélagsins í stjórn
Stöðvar 2.
Höskuldur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins
hefur sagt. að fjárhagsstaða Stöðvar
2 hafi legið fyrir í mars. í ljósi þess
hafi Eignarhaldsfélagið og Stöð 2
gert samkomulag, og sá skilningur
hafi ríkt að þar með væri málið úr
sögunni. Haraldur sagði um þetta,
að menn gætu haft misjafnar skoð-
anir, og skoðun Höskuldar væri
jafnréttlætanleg og aðrar. „Hins
vegar erum við að reyna að finna
leiðir til að róa bátnum út úr öldu-
rótinu en ekki að finna sökudólga,"
sagði Haraldur.
Jóhann J. Ólafsson hefur sagt
að samkomulag milli Stöðvar 2,
Eignarhaldsfélagsins og íslands-
banka væri sérlega stirt um þessar
mundir. Þegar þetta var borið und-
ir Harald, sagði hann að engar við-
ræður, eða samskipti, hefðu verið
milli Stöðvar 2 og Eignarhaldsfé-
lagsins undanfarna mánuði, enda
ekki eftir því leitað. Og Eignar-
haldsfélagið hefði engin áhrif á það
hvernig bankastjórar íslandsbanka
framfylgdu reglum bankans.
Niðurstöðu í máli McGoverns
er að vænta í þessari viku
- segir menntamálaráðherra
ÞÓR Magnússon þjóðminjavörður gekk á fúnd Svavars Gestssonar
menntamálaráðherra í gærmorgun en fúndur fornleifaneihdar á föstu-
dag samþykkti að vísa deilu sinni um leyfi til Thomasar McGovern
fornleifafræðings til ráðuneytisins. Fornleifaneftid hefúr samþykkt í
tvígang að veita McGovern leyfi til rannsókna á dýrabeinum á Strönd-
um en Þjóðminjaráð hafnaði umsókn hans. „Þegar svona heiftarlegur
ágreiningur kemur upp leita menn til ráðuneytis og það er nú verið
að skoða þetta mál í ráðuneytinu," sagði Svavar Gestsson en niður-
stöðu er að vænta í þessari viku.
í flokki 10 ára og yngri stýrði Jón
Viktor Gunnarsson svörtu mönnun-
um í fyrstu umferð gegn stigahæsta
keppandanum í flokknum, Rúmen-
anum Barescu. Jón Viktor var í vörn
mest allan tímann en í tímahrakinu
sneri hann laglega á Rúmenann og
vann. í annarri umferð vann Jón
Viktor Pólveijann Burdzinski örugg-
lega með hvítu mönnunum.
í flokki stúlkna, 14 ára og yngri,
gerði Hrund Þórhallsdóttir jafntefii
við frönsku stúlkuna Bujisho með
svörtu mönnunum í fyrstu umferð í
agætlega tefldri skák. í annarri
Aðspurður um hvort um brotalöm
í nýlegum Þjóðminjalögum væri að
ræða, svaraði ráðherra því til að
hann teldi svo ekki vera. „Þarna
eru uppi efnisleg ágreiningsmál,
burtséð frá því hvort lögin eru ný
eða gömul. Þetta er einungis spurn-
ing um það hvernig farið er með
þau menningarverðmæti sem forn-
leifar eru. Því verður í fyrsta lagi
fjallað um formlega hlið þessa ein-
staka máls. í öðru lagi mun ég taka
á málinu almennt, við höfum verið
að fara yfir og undirbúa útgáfu
nýrrar reglugerðar um Þjóðminja-
safnið og sú vinna er langt komin.
Ég geri ráð fyrir að við gefum
reglugerðina út um leið og við kveð-
um upp úr með okkar afstöðu,“
sagði ráðherra.
ÚR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
13. - 15. júlí 1990
Um helgina var tilkynnt um 15
þjófnaði, 5 innbrot, 4 bifreiðastuldi
og 1 búðarhnupl. Reiðhjólum var
stolið frá húsum við Ægisíðu,
Frostaskjól, Hlégerði, Víðiteig í
Mosfb. og Austurströnd, Seltjn.,
veski frá manni í Álafossskemm-
unni í Mosfellsbæ, ferðatékkum í
Kringlunni, peningum af ferða-
manni úr húsi í Laugardal, fatnaði
úr nokkrum tjöldum á tjaldstæði í
Mosfellsb., og gullúri og peningum
í húsi við Grenimel. Maður var
handtekinn við að reyna að bijótast
inn í íbúð við Irabakka, annar við
innbrotstilraun í hús við Lindargötu
og þriðji við innbrot í hús við Vallar-
ás. Þá var brotist inn í tvær bifreið-
ar í Mosfellsbæ. Þar var einnig stol-
ið 4 bifreiðum um helgina og náðist
í þjófana í þremur tilvikum, en í
einu þeirra fannstbifreiðin skömmu
síðar, yfirgefin við bæinn. Öku-
mennirnir voru í öllum tilvikum
ungir menn undir áhrifum áfengis.
Á föstudag var kona staðin að því
að reyna að hnupla áfengispela í
ÁTVR í Kringlunni.
Lögreglan veitti 22 aðstoð við
að komast inn í læstar bifreiðar
sínar. Svo virðist sem fólk sé meira
vakandi fyrir nauðsyn þess að læsa
bifreiðunum, en síður nauðsyn þess
að taka kveikjuláslykilinn með sér
áður. 9 sinnum aðstoðaði lögreglan
fólk við að komast inn í læstar íbúð-
ir og 4 sinnum var fólki veitt önnur
aðstoð.
Tilkynnt var um 13 skemmdar-
verk, 13 rúðubrot, 8 líkamsmeiðing-
ar og eina nauðgun. Skemmdarverk
voru unnin á bifreiðum í Hafnar-
stræti. Sá sem það gerði var hand-
tekinn. Þá voru tveir menn hand-
teknir þegar þeir óku um á gróður-
lendi í Mosfellsbæ. Skemmdir voru
unnar á vinnuskúr í Hólmaseli, úðað
var úr slökkvitæki í fjölbýlishúsi við
Orrahóla, skemmd hurð í húsi við
Hátún, strætisvagn, bensínsjálfsali
á Shell við Vesturlandsveg og bif-
reið skemmd við Njálsgötu.
13 sinnum var tilkynnt um háv-
aða innan dyra og 9 sinnum utan
dyra. Tvisvar þurfti að fara á heim-
ili fólks vegna ófriðar og þrisvar
vegna ágreiningsmála, sem komið
höfðu upp.
47 gistu fangageymslur um helg-
ina, 15 aðfaranótt laugardags, 21
aðfararnótt sunnudags og 11 aðfar-
arnótt mánudags. 14 þeirra óskuðu
gistingar sjálfir þar sem þeir áttu
hvergi höfði sínu að halla. „Hótel
Hverfisteinn" er enn við líði þó svo
rekstur þess ætti undir öllum eðli-
legum kringumstæðum að vera
annarra, og er þá horft til nauðsyn-
legra þarfa og sjúkleika þess fólks,
.sem þar gistir. Lögreglan hafði af-
skipti af 97 ölvunartilvikum, auk
fjölmargra annarra tilvika þar sem
ölvaðir einstaklingar komu við
sögu.
Tilkynnt var um 25 árekstra, 2
umferðarslys og 2 umferðaróhöpp
að auki, þar sem grunur er um að
ökumenn hafi verið undir áhrifum
áfengis. Á föstudag var ökumaður
fluttur á slysadeild eftir árekstur
tveggja bifreiða á Stekkjarbakka
við Kaupstað og á laugardagskvöld
meiddist ökumaður eftir að hafa
ekið í skurð við Skólabraut. Sá
síðarnefndi er grunaður um að hafa
verið undir áhrifum áfengis við
aksturinn.
18 ökumenn, auk þeirra fyrr-
greindu, eru grunaðir um ölvunar-
akstur um helgina. 40 voru kærðir
fyrir of hraðan akstur, 14 fyrir að
virða ekki rauða ljósið á umferðar-
ljósavitanum og 14 aðrir fyrir önnur
umfenjarlagabrot. Auk þess voru
fjölmargir stöðvaðir og veitt áminn-
ing fyrir ýmsar yfirsjónir í umferð-
inni, s.s. að sinna ekki þeirri skyldu
sinni að gefa stefnumerki, fyrir að
gleyma að kveikja ökuljósin, virða
ekki beygjubann o.s.frv.
Grunur er um að kveikt hafi ver-
ið í gardínum við útihurð í stiga-
gangi fjölbýlishúss við Ilraunbæ
snemma á sunnudagsmorgun.
Ákveðinn aðili er grunaður um að
hafa verið þar að verki.
15 ára ölvaður drengur var stöðv-
aður á stolinni bifreið á Höfðabakka
við Vesturlandsveg á laugardags-
morgun. Bifreiðina hafði hann tekið
ófijálsri hendi í Mosellfsbæ skömmu
áður. Hann hafði hunsað stöðvunar-
merki lögreglu og reyndist nauð-
synlegt að stöðva bifreiðina með
því að aka á hana áður en henni
var ekið inn í þéttbýlið.
Hvasst var á laugardag og má
sjá þess merki í dagbókinni. Maður
fauk af vélhjóli í akstri, vinnupallar
fóru af stað við Borgarspítalann,
plankar og þakplötur byijuðu að
fjúka í Grafai'vogi, tunnur í neðra-
Breiðholti, heybaggar og kerra í
Selási, þak af nýbggingu við Skeið-
arvog, umferðarmerki í Árbæ, girð-
ing við Lækjargötu, vinnupallar við
Brekkutanga, timbur í Hlíðunum,
raflýst umferðarmerki í Áitúns-
brekku, vegmerkingar við Vestur-
landsveg, númerslaus bifreið við
Fellsmúla og járnplötur við Lang-
holtskirkju.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990
19
Áhorfendum gekk illa að fylgjast með keppni á Landsmótinu í inestu hriðunum, svo mikið var sandrokið.
Heitur stormur um helgina:
Landsmótíð fauk, tré skemmdust
en ekki stórtjón á hálendinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrst blés og svo rigndi. Um 2.000 keppendur á Landsmóti ungmennafélaganna lögðu tjöld sín og
gistu í skólum Mosfellsbæjar.
EKKI er talið að mikil spjöll
hafi orðið af moldroki á hálend-
inu um helgina. Mengunarský
af meginlandi Evrópu lagðist
yfir suðvesturhorn landsins á
laugardag. Enn dimmdi yfir
vegna sandfoks, af suður-
ströndinni aðallega. Stormur-
inn náði hámarki um sexleytið
á laugardag með níu vindstig-
um af austan og suðaustan.
Vísast hafa ýmsir orðið hissa á
hve hlýjar vindhviðurnar voru
og segja veðurfræðingar harla
óvenjulegt að svo fast blási hér
að sumri til. Talsverðar
skemmdir urðu á gróðri í
Reykjavík og Landsmót ung-
mennafélaganna bókstaflega
fauk um Mosfellssveit síðdegis
á laugardag.
Mjög hlýtt loft frá Bretalands-
eyjum og meginlandinu sótti fram
í háloftunum yfir landinu á laug-
ardag. Við það lagði gulgrátt
mengunarmistur yfir höfuðborg-
ina og Reykjanesskaga. Á veður-
stofunni fengust þær upplýsingar
að stór lægð suðvestur undan
landinu og hæðarhryggur milli
íslands og Noregs hefðu ollið
hvassviðrinu við suðvesturströnd-
ina seinni part laugardags. Svona
staða kemur upp einu sinni til
tvisvar á ári, að sögn Eyjólfs Þor-
björnssonar veðurfræðings.
Hitinn í Reykjavík fór upp í tæp
19 stig en 26 stig mældust á
Vopnafirði og í Skagafirði. Eyjólf-
ur segir enn hlýrri vinda hafa
blásið á Reykvíkinga í júlímánuði
1976 þegar afstaða í háloftunum
hafi verið svipuð, hiti í borginni
hafi þá farið nærri 23 stigum.
Vindhraði framan af laugar-
degi var yfirleitt um 20 hnútar
eða 5-6 vindstig. Þegar líða tók
á daginn hvessti mjög í Reykjavík
og á Reykjanesi, hörðustu hvið-
urnar (nokkrar sekúndur í senn)
mældust 61 hnútur. Mesti meðal-
vindur (í 10 mínútur) varð 47
hnútar sem jafngildir 9 vindstig-
um. Stormurinn feykti með sér
sandi, af suðurströndinni mest-
megnis, svo dimmdi í lofti.
Ekki stórkostlegar skemmdir
á hálendinu
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri segist ekki gera ráð
fyrir að stórkostlegar skemmdir
hafi orðið af foki á hálendinu og
það hafi ekki valdið skaða á land-
græðslusvæðum. Sveinn segir
heilmikið moldrok hafa geysað,
enda landið verið óvenju þurrt í
sumar. Þessa foks hafi þó tæpast
gætt í Reykjavík.
„Það hefur blásið áfram úr
rofabörðum sem víða eru og opn-
um jarðvegssvæðum. Þótt stór-
skemmdir hafi ekki orðið á ein-
stökum stöðum minnir þetta fok
á að gróðurfar á hálendinu er
langt frá því sem ákjósanlegt er,“
segir Sveinn.
Jóhann Pálsson garðyrkjustjóri
í Reykjavík segir að rokið um
helgina hafi haft töluverð áhrif á
gróður í borginni. Sérstaklega
hafi tré farið illa í austustu hverf-
um og blóm fokið úr beðum.
„Tijágróður fór víða illa í Árbæ
og lauf hröktust af tijám í Grafar-
vogi. Þar bætti saltrok ekki úr
skák.“
Jóhann segir mikið hafa farið
um koll af nýplöntuðum trjám,
en þau hafi mátt reisa við. „En
það urðu líka talsverðar skemmd-
ir á tijám, illviðrið dró úr vexti
þeirra og fegurð. Það er erfitt að
meta þetta til fjár, tjónið er frek-
ar tiifinningalegt fyrir fólk sem
lagt hefur mikla rækt við sinn
garð. Þarna gerði eiginlega vetr-
aráhlaup um hásumar.“
Yfir 2.000 manns flúðu tjald-
svæði á Landsmóti ungmennafé-
laganna sem haldið var í Mosfells-
sveit. Safnað var liði lögreglu,
björgunarsveitarmanna úr Kyndli
og bæjarstarfsmanna til þess að
festa tjöld sem losnuðu í óveðrinu
síðdegis á laugardag.
Tjaldgestir hröktust inn
Jarðvegur er gljúpur þar sem
tjaldað var, hælar losnuðu í rokinu
og tjöld fuku af stað. Lögregla
sagði tjöld jafnvel hafa rifnað og
ekki hefði verið viðlit annað en
hýsa tjaldgestina í skólum bæjar-
ins, enda rigndi eins og hellt væri
úr fötu um kvöldið. Akveðið var
að leggja tjöld keppenda og flest-
ir yfirgáfu tjaldsvæði gesta.
I Varmárskóla og gagnfræða-
skólanum voru fyrir um þúsund
keppendur á mótinu og bættust
nærri 2.000 við. Nokkrir móts-
gestir gistu í skýli Slysavarnarfé-
lagsins aðfaranótt sunnudags,
sumir þeirra rislágir eftir dans-
leik.
Grilluðu samt úti
Keppni á landsmótinu var fram
haldið á sunnudeginum og engu
frestað vegna veðurs nema fótbol-
taleik til sunnudagsins. Hjá móts-
stjórn fengust þær upplýsingar
að búist hefði verið við mun fleiri
áhorfendum, þeir hefðu verið milli
2.000 og 3.000, og þar hefði veð-
rið eflaust spilað inní. Það hefði
þó ekki verið verra en svo að
hreystimenni af Snæfellsnesi
hefðu grillað kvöldmatinn úti á
laugardagskvöldið. Þá mun vind
raunar hafa lægt að mestu.