Morgunblaðið - 17.07.1990, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 1990
Sjónarhorn
Tölvuvæðing fyrírtækja
TOLVUKAUP — Frá undirritun samnings Landsvirkjunar og
Örtölvutækni — Tölvukaup hf. um kaup og uppsetningu á tölvubúnaði.
eftir Arnlaug Guðmundsson
Ekki eru mörg ár síðan íslensk
fyrirtæki hófu að tölvuvæðast. Fyrst
í stað voru það einkum stór fyrir-
tæki sem keyptu, á þeirra tíma
mælikvarða, stórar tölvur og fengu
á þessar vélar hin ýmsu hugbúnaðar-
kerfi svo sem fjárhags- og viðskipta-
mannabókhald, lager og laun. Kerfi
þessi voru sérsniðin þörfum einstakra
fyrirtækja og var viðhaidskostnaður,
sem í mörgum tilfellum var hreinn
Jiróunarkostnaðður, sömuleiðis mik-
ifl.
Ekki var íslenska stafrófinu gert
hátt undir höfði á þessum bernsku-
árum tölvunnar á íslandi og var það
reyndar svo að landinn sætti sig
furðu vel og lengi við að sjá hvorki
breiða sérhljóða né bókstafina ð, þ,
æ og ö.
Þetta var á tímum einokunar ör-
fárra tölvuframleiðenda sem í krafti
aðstöðu sinnar seldu vörur sínar og
þjónustu háu verði. Hafði hver fram-
leiðandi sinn háttinn á, hver á sínum
búnaði, sem gerði það illmögulegt
fyrir aðra að komast að.
IBM PC
Svo gerist það vestur í Banda-
ríkjunum upp úr 1970 að í litlu fyrir-
tæki, sem framleiddi rafeindarásir,
var hönnuð stýrirás fyrir herinn.
Þessi rás var sérstök að því leyti að
í stað þess að verkun hennar væri
að fullu ákveðin fyrirfram mátti láta
kóða sem geymdir eru annars staðar
(forrit) ráða ferðinni. Rásin reyndist
of hægvirk fyrir verkefnið og fyrir-
tækið sat uppi með mikinn þróunar-
kostnað og dýra rás. I stað þess að
láta deigan síga, gefast upp og fara
á hausinn, var reynt að finna not
'Jfyrir rásina annars staðar. Og eins
og í góðu ævintýri frá landi tækifæ-
ranna gekk allt að óskum í því efni.
Þetta reyndist vera fyrsti örgjörvinn
(tölvurásin, „computer on a chip“)
sem framleidd var í heiminum.
í kring um þessa fyrstu rás og
þær sem á eftir komu varð einka-
tölvan til. Hún virtist hins vegar
vera að þróast í ýmsar áttir og var
tímaritið BYTE ‘eins konar sam-
nefnari fyrir hina mörgu smáu tölvu-
framleiðendur, allt þar til tölvurisinn
IBM setti sína fyrstu einkatölvu á
markaðinn, IBM Personal Computer,
árið 1981.
Til Islands kom IBM PC fyrst árið
1983 og hefur verið hér síðan.
Ég fullyrði að enn hafi ekkert
komið fram sem hafi haft meiri áhrif
á þróun tölvunnar en „pésinn", því
með honum tókst IBM að skapa iðn-
aðarstaðal sem aðrir framleiðendur
færðu sér í nyt og kom það neytand-
anum til góða.
En þróun stærri tölva hélt áfram
eins og ekkert hefði í skorist. Um
1980 fóru að fást á íslandi jaðar-
tæki, sem nýttu sér allt stafrófið, og
litlu seinna varð útilokað að selja
tölvubúnað hérlendis sem ekki hafði
þessa sjálfsögðu eiginleika. Stóru
fyrirtækin héldu áfram að fjárfesta
í stóru tölvunum og þau smærri fóru
að færa sér í nyt eiginleika einmenn-
ingstölvunnar til að halda utan um
reksturinn. Nýjar brautir á tölvusviði
litu dagsins Ijós í Háskóla íslands
og ný fyrirtæki skutu upp kollinum.
Samkeppnin jókst, verðið lækkaði og
markaðurinn fyrir tölvur stækkaði
ört. Staðlaðar hugbúnaðarlausnir
fyrir einmenningstölvur voru ódýrar
og má segja að verð á vél- og hug-
búnaði hafi haldist nokkuð í hendur.
Net
Tölvunet, þ.e. samtenging nokk-
urra tölva, eiga nú stöðugt meira
fylgi að fagna. Með nettengingu
margra smærri tölva má nálgast
kosti stórtölvanna sem eru m.a. þeir,
að sömu gögn og sömu forrit eru
aðgengileg fyrir marga notendur.
Enginn notandi er þá háður því hvað
aðrir eru að gera, hann hefur af-
kastagetu' sinnar tölvu óskerta fyrir
sig. Þróunin í tölvunetum er rétt að
bytja. I dag eru þættir eins og ör-
yggi gagna, samskiptahraði og magn
forrita sem sérst'aklega eru skrifuð
fyrir net orðin vel viðunandi og batna
stöðugt. En spámenn lýsa tölvunet-
um á annan hátt en við þekkjum þau
í dag. Þeir sjá það fyrir sér, að úr-
vinnsla gagnanna fari fram á þeirri
tölvu í netinu sem til þess hefur
mestan tíma hvetju sinni. Til þess
eins að gera slíkt kleift og hagkvæmt
þurfum við hins vegar fyrst að marg-
falda samskiptahraðann. Koma
tímar og koma ráð.
Þróunin
En lítum nú á dæmi um tölvuvæð-
ingu úr íslensku athafnalífi.
Hér á eftir verður rakin saga
tölvuvæðingar í einu af stærri fyrir-
tækjum landsins og ástæður þróun-
arinnar skýrðar lauslega. Fyrirtækið
er í eigu okkar allra, það er vel rek-
ið og færist jafnan mikið í fang. Það
er 25 ára gamalt og heitir Lands-
virkjun. Stuðst er við grein sem birt-
Ist í fréttabréfi Landsvirkjunar í
mars sl. og vitnað í hana orðrétt á
nokkrum stöðum.
Skipta má tölvuvæðingu Lands-
virkjunar í tvennt; annars vegar stý-
ritölvubúnað sem annast samhæf-
ingu raforkuframleiðslunnar og eftir-
lit með henni og hins vegar tölvubún-
að fyrir almennan rekstur fyrirtækis-
ins, svo sem bókhald, reiknilíkön
o.þ.h. Einungis verður fjallað um
þann þátt tölvuvæðingarinnar í þess-
ari grein.
Fyrsta tölvan sem Landsvirkjun
eignaðist var Digital PDP/11 og var
það um 1979. Jákvæð reynsla fyrir-
tækisins af gripnum leiddi tveimur
árum síðar til þess að keypt var önn-
ur stærri tölva frá sama fyrirtæki,
VAX 11/780. Þegar VAX-tölvan var
keypt var hún með 1 Mb-vinnslu-
minni og ein afkastamesta tölva
landsins. Þegar verkefnum, sem töl-
van var notuð við að leysa, fjölgaði
var hún stækkuð og hefur nú 6
Mb-vinnsluminni og 1,2 Gb-disk-
rými. En aukin notkun hefur leitt til
þess að svartíminn verður á stundum
of langur. Frá því VAX-tölvan var
keypt hafa orðið miklar framfarir í
tölvumálum og má geta þess til sam-
anburðar að nú er algengt að ein-
menningstölvur hafi 4 Mb vinnslu-
minni og svipaða reiknigetu og
gamla tölvan.
í ársbyrjun 1989 hófst umfangs-
mikil athugun á tölvukerfi Lands-
virkjunar og stóð hún yfir nær allt
árið. Niðurstaða hennar var sú að
eðlilegasta framhaldið á tölvuvæð-
ingu fyrirtækisins væri að leggja
skyldi áherslu á notkun einmenn-
ingstölva (ET) og endurmeta þörf
fyrir miðlungsstóra ijölnotendatölvu.
Um ástæður fyrir þessari niðurstöðu
segir að þær hafi verið margar, þar
á meðal þessar:
• Mjög fjölbreytt úrval hugbúnað-
ar hefur fylgt mikilli útbreiðslu ET-
tölva og enn eru miklar framfarir
fyrirsjánlegar. Um þessar mundir er
mest þróun í hugbúnaðargerð ein-
mitt á ET-markaði.
• ET-tölvur eru nú orðnar mjög
afkastamiklar miðað við verð.
• ET-tölvur tengdar saman í net
bjóða upp á ódýrari endurnýjun
tölvukerfis heldur en fjölnotenda-
kerfi.
• Minni hætta er á löngum
svartíma í ET-kerfum heldur en í
ijölnotendakerfum.
• Þekking almennings á ET-tölvu
er orðin umtalsverð, til hagsbóta fyr-
ir atvinnurekendur.
Fyrrgreind athugun endaði með
því að október 1989 voru boðin út í
lokuðu útboði tvö ET-net, annað
skyldi staðsett í stjórnstöð við Bú-
staðaveg, hitt á aðalskrifstofu við
Háaleitisbraut. Tilboðin sem bárust
voru mjög áþekk, en að lokum var
ákveðið að semja við Örtölvutækni -
Tövukaup hf. um kaup og uppsetn-
ingu á fyrsta áfanga nýs tölvukerfis
Landsvirkjunar. Samið var um kaup
á 39 ET-tölvum frá Hewlwtt Pack-
ard, sem byggjast á Intel 80386 ör-
gjörvum, ásamt 7 litlum geislaprent-
urum frá sama fyrirtæki. Þá var
samið um kapalkerfi í aðalskrifstofu
byggt á búnaði frá Synoptics, en
þetta kerfi er hið fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi og gefur kost á
fjölbreyttum tengimöguleikum fyrir
tölvur af ýmsum gerðum. Einnig var
samið um kaup á ritvinnslukerfinu
Word, töflureikninum Excel, línurita-
forritinu Graph Plus, gluggakerfinu
Windows og netstýrikerfinu Net-
ware.
Samningar
Þann 3. janúar sl. skrifuðu Halldór
Jónatansson, forstjóri Landsvirkjun-
ar, og Sigurður S. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Örtölvutækni — Tölvu-
kaupa hf., undir samning um kaup
á ofangreindum búnaði. Að lokinni
undirskrift var hafíst handa um við
undirbúning og í febrúar var unnið
við að setja upp búnaðinn í husnæði
Landsvirkjunar. Um mánaðamótin
febrúar/mars var uppsetningu að
mestu lokið og tölvukerfið gangsett.
Gangsetningin gekk framar vonum
og nú (í mars) eru notendur í óða
önn að kynna sér kerfið. Fram til
þessa hefur allt gengið að óskum og
búnaðurinn vinnur eins og til var
ætlast.
Ekki nægir þó að kaupa tölvubún-
að eingöngu, starfsmenn verða að
kunna að nýta sér hann. Leitað var
tilboða í námskeiðahald og var sa-
mið við Tölvuháskóla Gísla J. Jo-
hnsens og Stjórnunarfélagsins um
þann þátt. Alls hafa rúmlega 40
starfsmenn sótt námskeið sem flest-
öll voru haldin í stjórnstöð Lands-
virkjunar við Bústaðaveg. Gera má
ráð fyrir frekara námskeiðahaldi í
framtíðinni, en kunnátta starfs-
manna á tölvukerfið er grunnurinn
að auknum afköstum og nýtingu
búnaðarins.
Það er til marks um hvernig til
hefur tekist, að gengið hefur verið
frá kaupum á öðrum áfanga nýja
tölukerfisins með pöntun Landsvirkj-
unar á 12 Hewlett Packard-tölvum
og 4 geislaprenturum frá Örtölvu-
tækni - Tölvukaupum til viðbótar.
Það er ljóst að Landsvirkjun hefur
komið sér upp mjög öflugu tölvu-
kerfi með dreifðri vinnslu. Fyrir þá
sem hafa gaman af tölum þá lítur
heildardæmið þannig út:
Vinnsluminni:...............138 Mb
Diskarými:..................2.3 Gb
Afkastageta:..............-100 MIPS
Fjöldi skjáa:.....................43
þar af
Fjöldi grafískra skjáa:...........41
Fjöldi geislaprentara:............14
Afköst prentara:..........1 síða/sek
EKKI PRÍLA!
NOTAÐU BELDRAY
Álstigarnir og tröppurnar frá
Beldray eru viðurkennd bresk
gæðavara - öryggisprófuð og
samþykkt af þarlendum yfir-
völdum.
Beldray er rétta svarið við vinnuna,
í sumarbústaðnum og á heimilinu.
Verðið er ótrúlega hagstætt -
gerðu hiklaust samanburð.
íá 4
7! H:
rrf1
f i f
1 I . \ 1
ð " 1
i | 1/1 1/1 / t-i--\ . \
; V- f£ j I I
7
í II H \ 11
: I ' / H
i 1 l * |i i*
i.
JL-Jj
Beldray fæst í byggingavöruverslunum og kaupfélögum um land allt. jC3
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. SlMI 24020 1=1,
64,5cm 87.0cm 109.5cm 132,Ocm 154,5cm 177.0cm
Storno 440 larsímarnir eru mest
seldu farsímarnir á marhaðnum
þessu
r •
Verðið er hreint ótrúlegt.
83-788 kr. staðgreitt í bíl og
99.748 kr. staðgreitt bíla og burðartæki.
POSTUR OG SIMI
Söludeildir í Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og á póst- og símstöðvum um land allt