Morgunblaðið - 17.07.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990
23
Auðæfi
Tveir ríkustii menn
heims eru japanskir
Frá Atla Steinarssyui, fréttaritai'a Morgunblaðsins.
TVEIR Japanir eru auðugstu menn
heimsins samkvæmt skrá í við-
skiptatímaritinu Forbes dagsettu
23. júlí.
Yoshiaki Tsutsumi heitir sá rík-
asti og er talinn eiga skuldlausar
eignir upp á 16 milljarða dollara.
Auður hans, sem stafar frá járn-
brautum og landeignum, hefur auk-
ist um milljarð dollara á árinu, og
nemur 960 milljörðum ísl. kr. ef
miðað er við gengið 1$ = 60 kr.
Taikichiro Mori, verktaki og skipu-
lagsfræðingur, er talinn næstríkast-
ur. Hann á eignir upp á 14,6 millj-
arða dollara.
Það eru annars Bandaríkjamenn
sem hafa undirtökin í klúbbi millj-
arðamæringa, sem nú eru taldir 271
í heiminum er voru 226 í fyrra. Á
þessum lista eru 99 Bandaríkja-
menn, 40 Japanir, og 28 Vestur-
Þjóðverjar.
I Bandaríkjunum vekur það
mesta athygli hve ört milljarðamær-
ingar „springa út“ í Vestur-Þýska-
landi, sem óx úr ösku síðari heims-
. styijaldarinnar. Þar er milljarða-
mæringur á hverja 1,6 milljónir
íbúa, en i Bandaraíkjunum er einn
milljarðamæringur á hverja 2,5
milljónir íbúa.
í þriðja sæti listans er Samuel
Walton og fjölskylda, sem á 13,3
milljarða dollara í skuldlausum
eignum. Du Pont-fjölskyldan skiþár
4. sætið með 10 milljarða dollara í
eignir. Auður Waltons og fjölskyldu
stafar af smásöluverlsun en auður
du Pont-fjölskyldunnar er arfur. í
5. sæti listans er Svíinn Hans Gad
Rausing, sem er sagður eiga 9,6
milljarða dollara eignir sem er ágóði
af umbúðum fyrir fljótandi varning.
Það vekur líka athygli að Donald
Trump er horfinn af listanum, en
Fólk
MÁróra Jó-
hannsdóttir hef-
ur verið ráðin
markaðsstjóri
Reykvískrar end-
urtryggingar.
Áróra er um þess-
ar mundir að ljúka
námi í viðskipta-
fræðum við Há- Áróra
skóla íslands.
Hún hefur starfað við tryggingar í
hartnær áratug. Hún starfaði hjá
Sjóva 1981 — 1985, hjá Almenn-
um tryggingum 1985 — 1989 og
eftir sameiningu félaganna vann
hún um hríð hjá Sjóvá—Almenn-
um. Áróra er 31 árs.
■ Ingólfur
Björnsson hefúr
verið ráðinn
markaðsfulltrúi
hjá Reykvískri
endurtryggingu.
Hann er að ljúka
námi í viðskipta-
fræðum við Há- _
skóla íslands. fagólfur
Með námi starfaði
hann hjá Landsbankanum og síðar
Byggðastofiiun. Hann mun vinna
að hvers kyns tryggingum sem
tengjast atvinnulífinu. Ingólfur er
27 ára.
I Sigurður Ein-
arsson hefur ver-1
ið ráðinn deildar-
sljóri í alþjóða- [
deild íslands-1
banka og stað- [
gengill forstöðu-[
manns. Sigurður
stundaði nám í [
hagfræði við Há- Sigurður
skólann í Kaup-
mannahöfn og útskrifaðist þaðan
sem Cand. polit. Hann starfaði um
nokkurra ára skeið hjá Den Danske
Bank en réðist til Iðnaðarbanka
íslands í júní 1988 og síðan til ís-
landsbanka um síðustu áramót.
H Ingibjörg JÚI-
íusdóttir hefúr
verið ráðin deild-
arstjóri fyrir
ábyrgðadeild Is-
landsbanka. Ingi-
björg starfaði í 19
ár í Landsbanka
Islands, lengst af
í ábyrgðadeild þar Ingibjörg
sem hún gegndi
stöðu fulltrúa forstöðumanns.
Síðustu tvö ár hefur Ingibjörg starf-
að sem útflutningsstjóri hjá
Tryggva Péturssyni og Co. hf.
SIGURDUR Jó-
hannesson hag-
fræðingur hefur
verið ráðinn rit-
stjóri Vísbend-
ingar, vikurits um
viðskipti og efna-
hagsmál sem Ráð-
gjöf Kaupþings I
hf. gefur út. Hann Sigurður
tekur við af Finni
Geirssyni. Sigurður er fæddur árið
1961. Hann lauk hagfræðiprófi frá
Kaupmannahafiiarhskóla í apríl
1987. Að námi loknu starfaði hann
hjá Kjararannsóknarnefiid í tvö
ár en síðastliðið ár hefur hann unn-
ið hjá Talnakönnun hf. og BSRB.
Vísbending hefur komið út vikulega
allt frá árinu 1982. í blaðið hafa
skrifað auk ritstjórans margir af
þekktustu hagfræðingum landsins.
Meðal efnis í blaðinu hafa verið
greinar um skattamál, gjaldeyri-
sviðskipti og gengismál, vaxtamál,
lífeyrissjóðsmál o.m.fl. Fréttir af
erlendum vettvangi eru einnig fast-
ur liður í blaðinu. Vísbending birtir
einnig eigin verðbólguspá í upphafi
hvers ársfjórðungs.
Myndatökur frá kr. 7.500.-
Ljósmyndastofumar.
Barna og Fjölskylduljósmyndir
Reykjavík
sími: 12644
Mynd Hafnarfirði,
sími: 54207
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími: 43020
Öllum okkar tökum fyigja tvær
prufustækkanir 20x25 cm.
var þar í fyrra og þó talinn eiga
1,7 milljarða dollara í eignum um-
fram skuldir.
Listi Forbes tekur ekki til kon-
ungsborins fólks eða þjóðhöfðingja
þar sem auður þeirra stáfar af póli-
tískri arfleið en ekki efnahagslegri.
Ef V.-Þjódverjar hefðu
gleymt HM-styttunni
í Róm...
...þá hefðu þeir að öllum
líkindum gripið til símans
og beðið um að styttan yrði
send þeim í snarhasti með
EMS- Forgangspósti.
EMS- Forgangs-
póstur er sérstök
hraðþjónusta sem
tryggir viðskipta-
vinum hraðan og
öruggan flutning á mikil-
vægum skjölum og vörum
innanlands og heimshorna á
milli, rakleitt til
viðtakanda.
Tekið er við EMS-Forgangs-
pósti á öllum pósthúsum
landsins og þar er hægt að fá
nánari upplýsingar og nýjan
kynningarbækling.
GJALDSKRÁ 01.01.1990. EMS-FORGANGSPÓSTUR TIL ÚTLANDA
250 gr 1 kg Hvert viðbótar kg
Evrópa 1.500,- kr 2.500,- kr 200,- kr
N-Amerika 1.800,- kr 3.000,- kr 400,- kr
Afríka og Asía 2.100,- kr 3.500,- kr 450,- kr
S-Ameríka 2.400,- kr 4.000,- kr 500,- kr
Eyjaálfa 2.700,- kr 4.500,- kr 550,- kr
FORGANGSPOSTUR
EMS - upplýsingasími 91 - 63 71 90
GOTTFÓLK/SlA 5500-155 1.1