Morgunblaðið - 17.07.1990, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JULl 1990
Systir mín, +
ELÍN TÓMASDÓTTIR,
andaðist á Droplaugarstöðum 15. júlí 1990.
Vigfús Tómasson.
t
Eiginmaður minn,
JÓHANNES KRISTINSSON
skipstjóri,
Bröttugötu 9,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili okkar aðfaranótt 14. júlí
Geirrún Tómasdóttir.
t
Eiginmaður minn,
HALLDÓR VIGFÚSSON
rafvirkjameistari,
Smiðjuvegi 19,
Kópavogi,
andaðist í Borgarspítalanum 15. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Sigurðardóttir.
t
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
Austurgerði 10, Reykjavik,
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, 13. júlí.
GeirJónsson, Ellen Jónsson,
Arnbjörg Jónsdóttir,
Guðmundur Jónsson, Ingunn E. Stefánsdóttir,
Bjarni Jónsson, Sólveig Ölvusdóttir,
Jónas Jónsson.
t
Vigdís Ölafsdóttir,
Seyðisfírði — Minning
Fædd 19. janúar 1906
Dáin 10. júlí 1990
í dag verður kvödd frá Seyðis-
fjarðarkirkju Vigdís Ólafsdóttir.
Foreldrar hennar voru Guðrún
María Jakobsdóttir og Ólafur Diðrik
Ólafsson, sem bjuggu á Bjargi í
Vestmannaeyjum. Þau eignuðust 5
börn, tvö dóu ung. Ólafur drukkn-
aði 9. apríl 1913 og stóð þá móðir
hennar uppi með þrjár dætur.
Hún giftist afabróður mínum,
Ólafi Guðjónssyni. Mínar fyrstu
minnmgar tengjast Viggu, eins og
hún var ávallt kölluð, þegar ég
borgarbarnið naut þeirra forrétt-
inda að fá að dvelja nokkur sumur
hjá ömmu minni og afa á Seyðis-
firði, svo og Svönu móðursystur
minni og hennar góða manni, Svav-
ari Karlssyni, símstöðvarstjóra.
Þessi sumur fyrir austan eru mér
dýrmæt minning. Þetta var á síldar-
árunum, fjörðurinn fagri iðaði af
lífi og fjöri.
í litiu byggðarlagi eins og Seyðis-
firði er fljótgert að afla sér upplýs-
inga um heimafólk, komst ég að
því að ég, á einn eða annan hátt,
var tengd mörgum íbúum Ijarðar-
ins, og að auki naut ég þar góðvild-
ar margra óskyldra.
Ég vandi komur mínar til Viggu,
þangað var gott að koma, rjúkandi
nýbakað kaffibrauð eins og tíðkað-
ist í þá daga á borðum fólks.
Þau hjónin áttu fjögur börn, Ólaf
útgerðarmann, dæturnar Stellu og
Laufeyju, sem mér þóttu undur-
fagrar ungar stúlkur, og yngstan
soninn Magnús.
Þau fóru ekki varhluta af sorg-
inni, þau misstu yngri soninn rúm-
lega tvítugan. Magnús lét eftir sig
soninn Magnús Ver kraftlyftinga-
mann, sem var ömmu sinni gleði-
gjafi. Eldri dóttirin, Stella, veiktist
ung af sykursýki, þá reyndi á Viggu
vinkonu mína, því að dóttirin þurfti
að fara margar ferðir til Reykjavík-
ur og dvelja þar langdvölum. Þá
kom það í hlut Viggu að hlúa að
dóttursonunum, þar sem faðir
þeirra var sjómaður. Síðar þegar
sjúkdómurinn ágerðist fór hún oft-
ast með dóttur sinni suður, og voru
þær oft langar og strangar ferðir
mæðgnanna að vetrarlagi. Siðustu
fimm ár ævinnar var Stella blind
og var þá ómetanlegt að eiga góða
og hjartahlýja móður í næsta húsi.
Stella lést 1973, 38 ára gömul.
Vigga tók mótlætinu með jafnað-
argeði og lífið hélt áfram. Þegar
kraftar dvínuðu sqldu þau hjónin
húsið sitt á Seyðisfirði og fluttu á
+
Eiginmaður minn,
ÁSBERG SIGURÐSSON
fyrrverandi borgarfógeti,
Aragötu 7,
Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum 14. júlí, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni föstudaginn 20. júlí kl. 13.30.
Sólveig Jónsdóttir.
Eiginmaður minn,
ÁSGEIR E. JÓHANNESSON
pípulagningameistari,
Seljalandsvegi 18,
ísafirði,
andaðist laugardaginn 14. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
1* Þuríður Jónsdóttir Edwald.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SIGURJÓNSSON
frá Bláfeldi,
Kaplaskjólsvegi 27,
andaðist laugardaginn 14. júlí.
+
Ástkær eiginkona mín og móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ODDSDÓTTIR,
Hjalialandi 1, ^
Reykjavík,
lést 9. júlí.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 18. júlí
kl. 13.30.
Guðmundur H. Helgason,
Örn Guðmundsson, Hulda Guðmundsdóttir,
Valur Guðmundsson,
Sólveig Guðmundsdóttir,
Sævar Guðmundsson, Elin Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ester Jónsdóttir,
Þórdis Jónsdóttir,
Sólveig Jónsdóttir,
Elísa Jónsdóttir,
Gylfi Jónsson,
Sigurjón Jónsson,
Kári Jónsson,
Pétur Friðrik Sigurðsson,
Gunnar G. Schram,
Véný Viðarsdóttir,
Ragnhildur Johnsdóttir,
Genevieve Jónsson,
barnabörn, og barnabarnabörn.
+
GUÐRÚN Þ. GUÐJÓNSDÓTTIR
andaðist á dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, 4. júli sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bræður hinnar látnu.
Útför
+
PÁLS H. JÓNSSONAR
frá Laugum
verður gerð frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 20. júlí klukkan 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningargjafasjóð
dvalarheimilis aldraðra á Húsavík eða Hjartavernd.
Fanney Sigtryggsdóttir,
Sigríður Pálsdóttir, Þórhallur Hermannsson,
Aðalbjörg Pálsdóttir, Þorsteinn Glúmsson,
Dísa Pálsdóttir,
Heimir Pálsson, Guðbjörg Sigmundsdóttir,
Páll Þ. Pálsson, Jóhanna Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
+
Móðir mín og tengdamóðir,
GUÐNÝ ÞORVALDSDÓTTIR,
Hrafnagilsstræti 33,
Akureyri,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 11. júlí, verður
jarðsungin frá Hóteigskirkju fimmtudaginn 19. júlí kl. 13.30.
Margrét Þórðardóttir,
Móðir mín, +
HANSÍNA ANNA JÓNSDÓTTIR
frá Keisbakka,
verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju á Skógarströnd
fimmtudaginn 19. júlí kl. 14.00.
Ásta S. Indriðadóttir Reynis.
Hrafnistu í Hafnarfirði. Þá voru
ekki fyrir hendi íbúðir fyrir aldraða
á Seyðisfirði, en verið er að taka
þær fyrstu í notkun um þessar
mundir og er það af því góða, því
fátt er eins ömurlegt fyrir fullorðið
fólk og að flytjast úr sínu umhverfi
þar sem það hefur dvalið allan sinn
aldur og skilað sínu dagsverki.
Enda fór svo að þau hjón þrifust
ekki hér fyrir sunnan, ég sá Óla'
frænda minn koðna niður og lést
hann hálfu ári síðar, 10. júlí 1978,
og urðu því nákvæmlega 12 ár á
milli andláts þeirra. Vigga bjó á
Hrafnistu enn um hríð.
Þar sem ég bý í næsta bæjarfé-
lagi við Hafnarfjörð, þá kom okkur
Viggu saman um að ég tæki hana
með af og til Reykjavíkur í heim-
sókn til systur hennar og flytti hana
heim að kvöldi.
Það var gaman að heimsækja
Viggu að Hrafnistu, stutt í glettnina
og hláturinn og mikið gátum við
skemmt okkur yfir Mackintosh-
dollunni góðu, sem ég setti undir
öskubakkann hennar, þar sem ask-
an dustaðist í allar áttir. Þetta þótti
okkur báðum gott ráð. Það leið að
jólum og gátum við ijölskyldan ekki
hugsað okkur Viggu á aðfanga-
dagskvöld á Hrafnistu og varð það
úr að hún varð okkar gleðigjafi
þessi jól, kom færandi hendi, hafði
þar á meðal pijónað stóran jóla-
svein handa yngsta ijölskyldumeð-
limnum og á hann sinn sess á heim-
ilinu hver jól síðan.
Mér var ljóst að einmanaleikinn
var að buga þessa vinkonu mína.
Hún fékk í þrígang hjartaköst og
var flutt í skyndi á spítala, og var
Mackintosh-dollan okkar þar með
lögð til hliðar. Hún þráði að kom-
ast heim á Seyðisíjörð. Það varð
úr að hún flutti austur og settist
að á sjúkrahúsinu á staðnum, tók
gleði sína á ný í sínu umhverfi í
nálægð við ijölskyldu sína og vini.
Það var gott að koma austur og
hitta þessa góðu konu glaða og
gefa hlátrinum útrás, því hláturinn
hennar Viggu var alveg sérstakur.
Á kveðjustund er mér efst í huga
þakklæti fyrir stundirnar, sem við
áttum saman. Við hjónin og synir
okkar sendum aðstandendum sam-
úðarkveðjur.
Guð geymi hana.
Lóa
Mömastofa
fnöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tiiefni.
Gjafavörur.
Friðbjörn Jónsson.