Morgunblaðið - 17.07.1990, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990
5
FRABÆRAR
FRA
PHILCO
•PHILCO W 135, Þvottavél
•Tekur 5 kg
•Vinduhraöi: 1300 snúningar
•Heitt og/eða kalt vatn
•Verð: 72.604,- Stgr. 68.974.-
•PHILCO WDC 133, þvottavél og þurrkari
•Tekur 5 kg
•Vinduhraði: 1300 snúningar
•Heitt og/eða kalt vatn
•Verð: 83.950,- Stgr. 79.750.-
• PHILCO W 1156, þvottavél
•Tekur 6 kg
•Vinduhraði: 1100 snúningar
•Heitt og/eða kalt vatn
•Sérlega styrkt fyrir mikið álag
•Verð: 74.800,- Stgr. 71.060.-
•PHILCO W 85, þvottavél
•Tekur 5 kg
•Vinduhraöi: 800 snúningar
•Heitt og/eða kalt vatn
•Verðið kemur þér á óvart
•Verð: 52.500,- Stgr. 49.875.-
•PHILCO DR 500, þurrkari
•Tekur 5 kg
•3 hitastillingar
•Hægri og vinstri snúningur á tromlu
•Verð: 39.983.- Stgr. 37.984.-
i PHILCO
Þægindi sem hægt er að treysta
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISIMI6915 20
, i SQMHUtífJUM,
Minninff:
Ofeigur Ofeigs-
son íNæfiirholti
Fæddur 20. janúar 1914
Dáinn 10. júlí 1990
Ein fegursta sveit á Islandi ligg-
ur við rætur Heklufjalls. Hún er
stundum nefnd „Krókurinn" eða
Heklubæírnir, er í ofanverðum
Rangárvallahreppi þar sem allt
umhverfi er ægifagurt. Vart getur
sveitin státað af því að, vera blóm-
leg, enda hefur nábýlið við Heklu
valdið miklum usla á umliðnum öld-
um. En þarna er náttúran fjölbreyti-
legri og óvenjulegri en víðast ger-
ist. Fjallasýn er mögnuð til Búrfells
og Heklu, Bjólfells, Sellundsfjalla
og Þríhyrnings. Þarna skiptast á
úfin hraun og sandar, gróskumiklar
skógartorfur, eins og Hraunteigur
og Myrkviður, sem minna á þá stað-
reynd að landið var skógivaxið á
milli fjalls og fjöru við landnám.
Og þarna rennur Ytri-Rangá, eitt
fegursta vatnsfall á Islandi.
í þessari sveit hefur um aldir
verið háð hörð barátta við náttúru-
öflin, eldgos og uppblástur, og þessi
átök hafa mótað fólkið, sem þarna
hefur búið kynslóð fram af kynslóð.
Það hefur tamið sér æðruleysi, virð-
ingu fyrir náttúruöflunum og öllu
sem lifir. Um þetta vitnar allt þess
líf og starf.
Það er við þessar aðstæður og í
þessu umhverfi sem Ófeigur Ófeigs-
son fæddist í Næfurholti 20. janúar
1914. Hann var sonur hjónanna
Ófeigs Ófeigssonar, bónda í Næfur-
holti, og Elínar Guðbrandsdóttur
konu hans. Þau hjón eignuðust
fimm böm, Guðrúnu, Ragnheiði,
Jónínu, Geir og Ófeig. Ragnheiður
lést árið 1970, en hún var gift séra
Kára Valssyni, presti í Hrísey. Guð-
rún giftist Haraldi Runólfssyni og
reistu þau nýbýli að Hólum, skammt
frá Næfurholti. Haraldur lést í
marsmánuði sl. Jónína, Geir og
Ófeigur hafa alla tíð búið í Næfur-
holti, en þau tóku þar við búi, ásamt
Ragnheiði, eftir lát foreldra sinna.
Þessi ætt hefur búið í Næfur-
holti í rúmlega 160 ár. Sá búskapur
hefur ekki gengið þrautalaust. í
Heklugosinu 1845 varð að flytja
Næfurholtsbæinn þaðan sem nú
heitir Gamla-Næfurholt eða Torfan,
og að rótum Bjólfells. Þá hafði
hraun runnið yfir tún og að heim-
reiðinni. í miklum jarðskjálftum
1912 hrundi Næfurholtsbærinn og
varð enn að flytja hann, ekki þó
langt. Þá var reist myndarlegt bæj-
arhús, þar sem Ófeigur Ófeigsson
fæddist tveimur árum síðar.
Ég kynntist Næfurholtsfólkinu
fyrst sumarið 1947, eftir Heklugos-
ið mikla. Vegna starfa sinna þurfti
faðir minn oft að leggja leið sína
austur í Næfurholt í gosinu. Þá
kynntist hann Næfurholtsfólkinu
og tókst_ með þeim mikil og góð
vinátta. Ég hygg að ást föður míns
á þessu fólki hefði ekki verið meiri
þótt náskylt hefði verið. Hann vissi
að strákur sinn hefði gott af því
að vera þarna í sveit og bað fyrir
hann.
Ég hef ávallt talið það eitt mesta
lán lífs míns að fá að dveljast í
Næfurholti sumarlangt í mörg ár,
eignast vináttu fólksins þar, fá að
njóta samvista við það og læra og
þroskast undir handaijaðri þess.
Þær kennslustundir verða ekki
fluttar inn í skóla né kennsluefnið
ritað í bækur.
Ófeigur Ófeigsson stóð fyrir bú-
inu þegar ég kom í Næfurholt og
gerði það á meðan heilsa entist.
En ö!l störfuðu systkinin að bú-
skapnum. Ófeigur var prúður mað-
ur en glaðsinna og mjög vandaður
til orðs og æðis. Hann var mikið
náttúrubarn í jákvæðustu merkingu
þess orðs, bar mikla virðingu fyrir
öllu umhverfi sínu, lífi og náttúru.
Hann naut þess vel að vera á
Þriðjudagstónleikar
í Listasafni Sigurjóns Olafssonar í kvöld kl. 20.30
Gunhild Imhof-Hölscher og Hlíf Sigur-
jónsdóttir leika dúetta fyrir tvær fiðlur
eftir Jean-Marie Leclair, Grazyna
Bacewicz, Johannes W. Kalliwoda og Luciano Berio.
Aveling Barford
VERKTAKAR - SVEUARFELOG
- BÆJARFÍLÖG:
ASG-13 veghefill með drifi á öllum hjólum til sölu.
Árgerð 1982, í góðu ástandi. Upplýsingar hjá sölumönjium.
Stria - Ráðgjöf - þjónusta.
Skútuvogur 12A - Reykjavík - S 82530
mannamótum, eiga samræður við
fólk og svo gestrisinn var hann,
eins og raunar allt Næfurholtsfólk-
ið, _að heimilislífið gekk úr skorðum.
í Heklugosinu 1947 og nokkur
ár þar á eftir. komu hundruð og
þúsundir ferðalanga í Næfurholt og
þáðu þar mikinn greiða. Er mér
ekki grunlaust um að efnahagur
heimilisins hafi orðið fyrir nokkru
áfalli af þessum sökum. Það er
ekki í eðli þessa fólks að taka
greiðslu fyrir greiðasemi. Oft var
gengið úr rúmi fyrir hrakta ferða-
langa og iðulega voru gestir svo
margir að ekki varð þverfótað í
bænum eftir að allir höfðu gengið
til hvílu.
A þessum árum voru bundin vin-
áttubönd við mikinn fjölda inn-
lendra sen erlendra manna og það
var Ófeigi og Næfurholtsfókinu
meira virði en að hafa tekjur af
ferðamönnum. Margar þéttskrifað-
ar gestabækur bera þessum þætti
í iífi þeirra glöggt vitni.
Ófeigur Öfeigsson gerði ekki
miklar kröfur til lífsins. Hamingja
har.s var fólgin í góðum samskipt-
um við alla menn og ástinni á
landinu og búsmala. Hann var
vammlaus maður og naut virðing-
ar. Hann neitaði þátttöku í lífs-
gæðakapphlaupinu en naut lífsins
betur en ýmsir sem þar eru kepp-
endur.
Ég hygg að margir telji sig
standa á mikilli þakkarskuld við
Ófeig í Næfurholtr. Hann reýndist
mér sem besti vinur og mikil fé-
lagi. Umhyggja hans fyrir mér og
öðrum börnum, sem komu til sum-
ardvalar í Næfurholti, var eins og
gerist hjá góðu foreldri.
Það er stundum sagt, að þeir,
sem minningargreinar skrifa, séu
oftar en ekki að skrifa um sjálfa
sig. Hjá því getur ekki farið, þegat'
dregin er upp mynd af góðum vini,
sem áhrif hefur haft á lífshlaupið.
Ófeigur hafði mikil áhrif til góðs á
líf mitt og hið sama er upp á ten-
ingnum hjá fjölda fólks, sem hefut-
átt því láni að fagna að fá að dvelja
í Næfurholti.
Sá hópur er orðinn stór, sem
hraðaði sér í Næfurholt á vorin og
vildi helst ekki fara heim á haustin.
Allt þetta fólk kveður nú Ófeig með
söknuði og um leið hluta af minn-
ingu um einn sólríkasta kaflann í
eigin lífi.
Ófeigur Ófeigsson verður jat'ð-
sunginn í dag frá Skarðskirkju í
Landsveit. Þar mun hann hvíla hjá
ástvinum sinum, foreldrum og syst-
ur, og þaðan getur hann horft yfir
sveitina sína fögru, sáttur við Guð
og menn. Á sinn hljóðláta hátt hef-
ur hann skilað góðu dagsverki, sem
hann uppsker mikið þakklæti fyrir.
Minningin um þennan góða mann
er umvafin yl og birtu og á hana
fellur enginn skuggi.
Árni Gunnarsson
Það var um páska fyrir rúmum
35 árum að við stóðum í hríðat'-
nepju í réttinni við Leirubakka, ég
og Guðný frænka mín, og biðum
þess að verða sótt og reidd yfir
Ytri-Rangá. Við vorum á leið heim
að Næfurholti. Eftir litla bið sáum
við til ferða ríðandi manns. Þar var
kominn Ófeigur úr Næfurholti. Það
er svo sem ekki margt sem ég man
úr þessu ferðalagi annað en það
að mér var kalt og fannst gott að
komast í hlýjuna í fangi Offa sem
reiddi mig fyrir framan sig. Þetta
var mín fyrsta ferð austur. Rúmu
ári síðar, í júní 1957, stóð ég svo
aftur á hlaðinu heima í Næfurholti
og þá kominn til sumardvalar. Þau
Næfurholtssystkini voru mér all-
sendis óskyld en gerðu það fyrir
orð Guðnýjar frænku minnar að
taka mig í sveit, sjö ára gamlan
ódælan drengstaula sunnan úr
Reykjavík. Þar með hófst ævintýri
bernsku minnar í þeirri sveit sem
engan á sinn líka í náttúrufegurð
og hjá því fólki sem í hjarta mínu
stendur næst foreldrum mínum.
Þegar sveitadvöl mín í Næfur-
holti hófst voru búskaparhættir þar
enn með gamla Iaginu. Að frátöld-
um Willis-jeppanum „Rauð“ hafði
vélvæðing nánast ekkert náð að
fikra sig upp Rangárvellina og það
sem ekki var unnið með hestum var
unnið með höndum. Snúið var með
hrífum en rakað með múgavél. Offi
Keppendur
í Ungfrú Hollywood
á Hard Rock Cafe
ÓDÝR HÁDEGISVERDUR
SÚPA FYLGIR
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 68988