Morgunblaðið - 17.07.1990, Blaðsíða 36
Flak flugvélarinnar á slysstað í gærkvöldi. Vélin brotnaði talsvert mikið er hún skall niður.
Lítil flugvél hrapaði í Ásbyrgi:
Eínn lézt og annar
slasaðist alvarlega
Morgunblaðið/Rúnar Þór
MAÐUR uni fertugt lézt og annar slasaðist mikið er lítil einshreyf-
ilsflugvél, TF-BIO, fórst í Ásbyrgi síðdegis í gær. Maðurinn sem
slasaðist var fluttur til Reykjavíkur, en hann hlaut meðal annars
alvarlega höíuðáverka. Ekki voru fleiri í vélinni.
Siysið átti sér stað um klukkan
17 í gær. Flugvélin korr> fljúgandi
úr norðurátt inn í mynni Ásbyrgis,
en það er mikil hamrakví með um
90-100 metra háum klettaveggj-
um. Eftir því, sem næst verður
komizt, flaug vélin á rafstreng, sem
liggur frá eystri vegg byrgisins og
niður í þjónustumiðstöðina við
tjaldsvæðið á botni þess. Vélin
steyptist til jarðar skammt frá veg-
inum, sem liggur inn í byrgið.
Fjöldi ferðamanna varð vitni að
slysinu, en vélin skali niður nokkra
tugi metra frá tjaldsvæðinu. Meðal
annarra komu bandarískar hjúkr-
unarkonur, sem þar voru staddar
í leyfi, til aðstoðar. Þyrla Landhelg-
isgæzlunnar var kölluð út og lagði
hún upp frá Reykjavík um fimmtán
mínútum eftir að slysið átti sér
stað. Þyrlan var komin í Ásbyrgi
um kl. 18.40, og flaug með slasaða
manninn til Ákureyrar, þaðan sem
sjúkraflugvéi flutti hann til
Reykjavíkur.
Menn frá loftferðaeftirlitinu
unnu að rannsókn á slysstað í
gærkvöldi ásamt lögreglumönnum.
Ekki er hægt að geta nafns hins
látna að svo stöddu.
Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir til að lækka framfærsluvísitölu:
Aðilar vinnumarkaðar telja
aðgerðirnar ófullnægjandi
Breskra jarð-
jræðinema leitað:
Fundust á
Skógafjalli
eftir víð-
tæka leit
TVEIR breskir jarðfræðinem-
ar, sem ekkert hafði spurst til
síðan á laugardag, lúndust heil-
ir á húfi um kl. 22.30 í gær-
kvöldi. Til þeirra fréttist síðast
á Fimmvörðuhálsi og hófst leit
að þeim um kvöldmatarieytið í
ær. Tæplega 80 manns úr
mm björgunarsveitum úr
Rangárvallasýslu og einni úr
Vestur-Skaftafellssýslu leituðu
að nemunum og fundu þá á
Skógafjalli. Ekki var vitað
hvers vegna jarðfræðinemarnir
týndust þegar Morgunblaðið
fór í prentun.
Að sögn Vals Haraldssonar úr
flugbjörgunarsveitinni á Hellu, eru
nemarnir frá Sheffield á Bret-
landi, maður og kona. Þau voru í
j 'jfl^ámsferð ásamt sjö nemum öðrum
og höfðu mælt sér mót við þá á
sunnudag. Þegar þau skiluðu sér
ekki hófu félagarnir. leit en urðu
einskis vísari. Þeir tilkynntu um
hvarfið í gærmorgun og var farið
að skipuleggja leitina um hádegi.
Þá var slæmt veður til leitar,
svartaþoka. Undir kvöldið var far-
ið að birta til og hófst þá leit á
svæðinu frá Sólheimajökli og vest-
ur undir Eyjafjöll.
Nýjar íslensk-
jir kartöflur
á markað um
mánaðamótin
HORFUR eru á að nýjar íslenskar
kartöílur verði komnar á borð
neytenda undir næstu mánaða-
mót. Að sögn Jens Gíslasonar,
kartöflubónda á Jaðri í Þykkvabæ,
hefur spretta verið góð að undan-
förnu og ef vel viðrar gætu fyrstu
kartöflurnar verið komnar í hús
fyrir júlílok.
Yrði það með fyrra móti, þar sem
fyrsta uppskera hefur að jafnaði
komið í verslanir fyrstu vikuna í
i i^égúst.
„Eg setti hluta katlaflanna undir
plast og það er rífandi spretta í því
sem þar er. Þau grös sem ekki fóru
undir plastið eru tregari vegna mik-
illa þurrka," sagði Jens.
RÍKISSTJÓRNIN mun væntan-
lega taka ákvörðun í dag um til
hvaða ráðstafana verði gripið til
að lækka framfærsluvísitöluna
sem þegar hefur náð rauðu striki
kjarasamninga almenna vinnu-
markaðarins. Ráðherrar kynntu
forsvarsmönnum launþega og
vinnuveitenda í gær fyrirhugaðar
aðgerðir, og telja bæði fram-
kvæmdastjóri VSÍ og forseti ASÍ
þær ekki vera nægilegar
Ríkisstjórnin ætlar að fella niður
virðisaukaskatt af viðhaldsvinnu við
húsnæði, og virðisaukaskatt af bók-
um á íslensku frá og með 1. septem-
ber í stað miðs nóvember eins og
áður var fyrirhugað. Þá verði frestað
6% hækkun á bensíngjaldi, sem átti
að verða 1. ágúst, fram til 1. októ-
ber. Gjaldskrá Pósts og síma mun
ekki hækka á árinu og ekki verður
um frekari hækkun á gjaldskrá
Ríkisútvarpsins að ræða á árinu.
Þessar aðgerðir munu hafa í för
með sér, að mati fjármálaráðuneytis-
ins, lækkun verðlags um 0,56% og
að framfærsluvísitalan verði 0,78%
lægri í september en hún hefði verið
ella. Þá telur ráðuneytið að aðgerð-
irnar þýði 350 milljóna króna út-
gjaldaauka fyrir ríkissjóð.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru hugmyndir uni það í
íjármálaráðuneytinu að lækka verð
á áfengi og tóbaki, til að ná fram
verðlagslækkun, en frá því var horf-
ið. Þá hefur einnig verið rætt um
að framlengja greiðslufrest á vit'ðis-
aukaskatti í tolli.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
sagði við Morgunblaðið, að það hefði
valdið sér vonbrigðum að ríkisstjórn-
in skyldi alfarið neita að ræða um
gengishækkun, um til dæntis 0,5-1%,
sem væri mjög rökrétt aðgerð við
núverandi aðstæður. Þá væru það
einnig vonbrigði að ríkisstjórnin
skyldi ekki ætla að taka til baka 3%
hækkun á afnotagjaldi ríkisútvarps-
ins.
Ásmundur sagði það síðan rangt,
að ríkisstjórnin væri með þessum
hugmyndum að axla aukin útgjöld
um 350 milljónir. Ekki væri gert ráð
fyrir því að afnema jöfnunargjald á
innfluttat' iðnaðarvörur á þessu ári,
sem þýddi 500 milljóna króna tekju-
auka umfram áætlanir íjárlaga, en
þar var gert ráð fyrir að.gjaldið félli
niður á miðju ári. Þá myndi brott-
fall virðisaukaskatts á vinnu við eig-
ið húsnæði væntanléga þýða betri
skattskil tekjuskatts iðnaðarmanna,
því ljóst væri að þarna væri um mik-
ið skattsvikafen að ræða. Miðað við
tölur ráðuneytisins væri því verið að
auka skattheimtu um að minnsta
kosti 150 milljónir.
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ sagði að það sem
fyrst og fremst yili vonbrigðum væri,
að enn lægi ekki fyrir ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að lækka jöfnunar-
gjald á innfluttri iðnaðarvöru. Og það
sem ríkisstjórnin sýndist ætla að
gera á móti, væru einfaldlega leið-
réttingar á röngum tímasetningum,
sbr. virðisaukaskattinn á íslenskar
bækut’, sem hefði verið fáránlegt að
ætla að fella niður fyrst 15. nóvem-
ber.
Útgerðarfélag Akureyringa:
50 milljóna lilutaíj árútboð
STJÓRN Útgerðarfélags Akureyringa ákvað í gær að efna til 50
milljóna króna hlutaíjárútboðs. Stjórnin hafði leyfi síðasta aðal-
fundar til að auka hlutafé um rúmar 100 milljónir, og er sú heim-
ild því aðeins nýtt að hálfu.
Að sögn Péturs Bjarnasonar,
stjórnarformanns ÚA, hefur
hlutafé í fyrirtækjum á Akureyri
ekki verið boðið út áður á almenn-
um markaði. Pétur segir að Út-
gérðarfélagið vilji gefa bæjarbú-
um og öðrum, sem áhuga haft á
fjárfestingu í fyrirtækinu, kost á
að nýta sér þær skattaívilnanir,
sem hlutafjárkaupendum standí
til boða.
Pétur segir að traust staða ÚA
hljóti að valda því að bréfin verði
eftirsótt á markaði, en til þessa
hafi framboð á hlutafé í félaginu
verið svo lítið, að ekki hafi
myndazt rétt markaðsverð á bréf-
unum.
Sjá Akureyrarsíðu, bls. 21.