Morgunblaðið - 18.09.1990, Page 36

Morgunblaðið - 18.09.1990, Page 36
I 36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990 Minninff: Karl J. Eiríks frá Torfastöðum Fæddur 15. júlí 1920 Dáinn 9. september 1990 Hér og hvar í Árnessýslu má greina foma fjörukamba, þar sem finnast skeljaleifar. Svo mun vera að Kiðjabergi við Hvítá. Þar uppfrá rís ijall einstakt, sem Hestijall heit- ir. Suður og vestur með íjailinu ' ''íennur straumþung Hvítá, uns hún hefur ármót við Sog. Austan Kiðjabergs er jörð, sem Hestur heitir. Þar um slóðir hefur nokkur hópur ættingja fengið spild- ur skipulagðar og úthlutað til ætt- menna. Við Karl bróðir minn feng- um lönd okkar sunnan undir Hest- fjalli, þar sem ísaldarbrúnahjallarn- ir blasa við augum. Vonglaðir, komnir nokkuð á efri ár, hófumst við handa að gróðursetja tijáplöntur og blóm og koma upp vistarverum. Þau Helga og Karl gáfu sumarhúsi sínu nafnið Gjósta. Þau hjón Helga Guðmundsdóttir og Karl voru góðir grannar okkar Sigríðar. Þau voru .§a.mhent um að gróðursetja og lag- færa hjá sér og gott var að koma til þeirra í Gjóstu-bséinn. Við Sigríð- ur dáðumst að trúmennsku þeirra við landið og dugnað við ræktun. „Grænir fingur“ þeirra hjóna unnu saman að breyta ísaldarleirnum í gróðurmold. Blöð tijánna þeirra ungu teygðu sig mót birtu og sól daganna. Er Karl kom að þessu ósnortna landi, urðum við ásáttir að leggja vegspotta heim að sumarhúsum (ikkar. Vildi Karl skipta kostnaði *afnt, þótt lengri spölur væri til mín. Hann valdi þeirri götu nafnið Vonarstræti. Þetta tvennt segir sína sögu. Atvikin höguðu því svo að báðTr sáum við fyrst ljós dagsins í Bisk- upstungum. í þeim hreppi á sitt hvorum bæ slitum við fyrstu skóm okkar. Síðar fórum við hvor sína leið um allmörg ár, eins og gengur. Fundum okkar bar þó saman af og til á lífsleiðinni. Við Karl höfðum von um nokkur góð ár er aldur færðist yfir til að rækta reitina okkar í Grímsnesinu. En nú er Karl farinn til þeirra föð- urtúna, þar sem að sagt er að sorg- in sé ekki lengur til. Hann bjóst við <ið geta farið eina ferð enn og litið sunnlenskar sveitir og ána með hið sérkennilega hvíta traf. En ferðin varð með öðrum hætti. Fylgi honum blessun og fararheill un vonarstræti á Guðs vegum. Við systkini Karls kveðjum hann með söknuði. Við Sigríður söknum hans hlýlega viðmóts og glaðværð- ar, sem aliir þekktu, sem á vegi hans voru. Helgu, sonum og öðrum vanda- mönnum eru sendar innilegar sam- úðarkveðjur. Halldór Ó. Jónsson „Alltaf er einhver á förum.“ Þessi orð Bjarna Ásgeirssonar, fyrrver- andi alþingismanns og ráðherra, hafa æ ofan í æ komið mér í hug síðan ég frétti lát míns gamla og góða skólafélaga, Karls Jónssonar Eiríks. Vel vissi ég að hann hafði verið veikur að undanförnu og að til beggja vona gat brugðist, en þó sló andlátsfregnin mig ærið fast. Vill svo gjarnan verða þegar góðir vinir hverfa úr hópnum, enda þótt við vitum, að hér er aðeins um að ræða iögmál, sem ekki verður um- flúið. Já, hún er farin að þynnast, fylk- ing okkar, sem hófum nám við Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi, fyrsta starfsárið hans. Hún var raunar ekki fjölmenn, fylkingin sú. Við munum hafa verið 22. Þessi hópur var víða að kominn en reynd- ist ákaflega samhentur. Enda þótt óráðið væri í upphafi hversu mörg okkar kæmu til með að vinna að garðyrkjustörfum að námi loknu vorum við öll staðráðin í því, að hafa sem mest út úr skóladvölinni. Og ekki lágu skóiastjóri og kennar- ar á liði sínu til þess að svo mætti verða, enda þótt aðstaða til verk- legrar kennslu væri ærið ófullkom- in. En þótt við værum vítt að kom- in og ekki fleiri en þetta þá vildi svo til, að sum okkar þekktumst áður. Þrír okkar höfðum verið samtímis við nám í Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal, Og fimm okk- ar, hartnær fjórðungur, voru skóla- systkini frá Laugarvatni. Mátti þetta kaliast einkennileg tilviljun og sannaðist hér enn að „víða liggja vegamót.“ Ja, „alltaf er einhver á förum“. Nú eru sjö af þessum tuttugu og tveimur horfnir úr hópnum. Og nú síðast Karl Jónsson Eiríks, eða Kalli Eiríks, eins og við vorum vön að nefna hann. Hann var fæddur að Skálholti í Biskupstungum þann 15. júlí 1920. Foreldrar hans voru Jón Ólafur Gunnlaugsson, kennari og bóndi í Skálholti og síðar stjórnarráðsfull- trúi í Reykjavík og Ragnhildur Magnúsdóttir bóndi á Þurá í Öif- usi. Karl var ungur tekinn í fóstur af þeim séra Eiríki Þ. Stefánssyni á Torfastöðum og konu hans, frú Sigurlaugu Erlendsdóttur og ólst hann upp hjá þ^im merkishjónum. Leit hann jafnan á þau sem sína aðra foreidra. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni veturna 1936 til 1938. Síðan við Garðyrkjuskólann á Reykjum 1939 til 1941. Þótt ekki skorti jarðhitann í Biskupstungunum snéri Karl sér ekki að garðyrkjustörfum er hann hafði lokið náminu á Reykjum. Hann vildi afla sér meiri menntunar og hélt nú á önnur mið. Því innritað- ist hann í Kennaraskólann og lauk kennaraprófi 1944. Gerðist skrif- stofumaður hjá Kaupfélagi Árnes- inga á Selfossi sama ár og gegndi því starfi til ársloka 1981. Skrif- stofumaður í brunadeild Samvinnu- trygginga í Reykjavík frá því í árs- byijun 1982 og til starfsloka. Karl kvæntist 25. júní 1944 Helgu Guðmundsdóttur, bónda í Súluholti í Flóa og konu hans, Vil- borgar Jónsdóttur'. Börn þeirra eru tvö: Eiríkur, stýrimaður í Hafnar- firði og Guðmundur Viðar, kennari og leiðsögumaður. Þannig er hún þá, í sem allra stystu máli, hin ytri saga Karls Jónssonar Eiríks. Hún einkenndist ekki af neinum umbrotum. Hann sinnti störfum sínum af mikilli kost- gæfni, samviskusemi og réttsýni, í senn bæði mikilvirkur og vélvirkur, enda naut hann óskoraðs trausts yfirboðara sinna. Þeir vissu vel, að hvert það starf, sem hann tók að sér, var í góðum höndum. Hann dvaldist lengst af ævi sinnar á æskuslóðum að kalla og hefði áreið- anlega ekki unað sér betur annars staðar, enda taldi hann það mikla hamingju, svo mjög sem honum var átthagatryggðin í blóð borin. Og „í átthagana andinn leitar“. Þótt hann, vegna starfs síns síðustu ár- in, þyrfti að dveijast í Reykjavík þá hygg ég að hann hafi talið sum- arbústaðinn í Grímsnesinu sem sitt raunverulega heimili. Karl var búinn ijöiþættum hæfi- leikum. Því kynntist ég strax þegar við vorum samtímis á Laugarvatni og ennþá betur í hinu litla en góða samfélagi á Reykjum. Mun þó minna á þeim borið en efni stóðu til, vegna meðfæddrar hlédrægni. Hann kaus fremur að styðja aðra en hafa sig sjálfur svo mjög í frammi. Hann var t.d. ágætur söng- maður og hafði mikia leikhæfileika, Þakrennur úr stáli og plasfi Er komið að því að sef/a þakrennur á húsið eða endurnÝja þær gömlu? M>) Lindab Þakrennur eru sænsk gæðavara og annálaðar fyrir: • endingu (sjá mynd) • hversu auðveldar þær eru í uppsetningu • fallegt útlit og fjðlbreytt litaval • ótrúlega hagstætt verö • sameina kosti stál- og plastrenna en sneiða hjá göllum beggja. BLIKKSMIÐJAN SMIÐSHÖFÐA 9 • 1 12 REYKJAVÍK • PÓSTHÓLF 4066 • SÍMI 685699 þótt það kunni einkum að hafa ver- ið á vitorði þeirra, sem þekktu hann best. Karl Jónsson Eiríks var maður fríður sýnum og sviphreinn, vel lim- aður, hlýtt hýru- og glettnisblik í augum, gleðimaður í góðra vina hópi, tryggur og vinfastur, á allan hátt vel á sig kominn tii sálar og líkama. Hann hefur nú kvatt og lagt í þá ferð, sem öllu lífi er búið. Ég kveð hann með orðum Friðriks Hansens: „Ég kalla til þín kæri: Góða ferð í könnun annars heims og nýrra landa.“ Magnús H. Gíslason Fáein kveðjuorð Mínir vinir fara ijöld, feigðin þessa heimtar köld, ég kem eftir, kannske í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. (Bolu-Hjálmar) Góðvinur minn og samstarfsmað- ur um nokkra tugi ára, Karl J. Eiríks, er látinn. Hann var fæddur í Skálholti, en ólst upp á Torfastöð- um í Biskupstungum hjá prests- hjónunum þar, séra Eiríki Þ. Stef- ánssyni og konu hans frú Sigur- laugu Erlendsdóttur. Hann var í Héraðsskólanum á Laugarvatni 1936-38, Garðyrkjuskólanum á Reykjum 1939-41 og síðan í Kenn- araskóla íslands og lauk þaðan kennaraprófi 1944. Þó að við Karl hefðum alist upp á tveimur ná- grannabæjum og mikill og góður samgangur milli þeirra, kynntumst við lítið. Því olli vitanlega mikill aldursmunur. En 1944 ræðst Karl sem skrifstofumaður til Kaupfélags Árnesinga og þá strax mynduðust mikil og góð samskipti milli okkar. Fljótlega eftir komu Karls til KÁ varð hann nánasti samstarfsmaður minn og hjálparhella í fjölda ára, uns hann tók að sér afgpeiðslu Sam- vinnutrygginga hjá KÁ. Hann var þó aldrei langt undan og þótti mér ætíð gott að leita til hans er vanda bar að höndum. Við Karl J. Eiríks áttum mjög gott samstarf. Við sátum við sama borðið svo að segja hlið við hiið og oft og mörgum sinnum gekk hann í mín störf og leysti þau af hendi frábærlega vel. Állt stóð eins og stafur á bók í öllum hans störfum. Mér finnst svona í endurminning- unni að þá hafi ætíð verið yndisleg- ir dagar, þrátt fyrir erilsamt starf og þreytandi, maðurinn var svo frá- bærlega skemmtilegur, glaðsinna og glettinn, óáleitinn við aðra menn, og í glettni sinni og glaðværð aldr- ei meinyrtur eða særandi. Eftir að Karl J. Eiríks iét af störf- um hjá Kaupfélagi Árnesinga 1981, fluttust þau hjón til Reykjavíkur og ,þar vann hann hjá Samvinnu- tryggingum í nokkur ár. Ég sakna svo sannarlega vinar í stað. Mér finnst ég fátækari en áður þegar ég veit að ég hitti hann aldrei framar þessa heims, en kannske hittumst við á „feiginsdegi fira“ og þá verður áreiðanlega gam- an eins og svo oft áður. Kolskeggur sagði forðum: „Hvorki mun ég á þessu níðast eða neinu því, sem mér er til trúað.“ Ég hygg að Karl J. Eiríks hafi einmitt haft þessa lífsskoðun. Þann- ig reyndist mér hann í öllum hlut- um. Valdimar Pálsson Minning Birna Þórðardóttir Og gefðu vini þínum það sem þú átt best. Ef hann verður að þekkja fátækt þína, lát hann þá einnig kynnast auðlegð þinni. Hví skyldir þú leita vinar þíns aðeins til að drepa tímann? Leitaðu hans með áhugamál þín. Því það er hans að uppfylla þörf þína, en ekki tómleika þinn. Og vertu með vini þínum og njóttu með honum lífsins. Því að í dögg lítilla hluta finnur sálin morgun sinn og endurnærist. (Kahlil Gibran) Elskuleg vinkona mín Birna Þórðardóttir er gengin til hinstu hvílu langt fyrir aldur fram. Minningarnar koma í hugann, liðnir dagar. Geymdar en ekki gleymdar stundir rifjast upp og lifna. Birna, hlý, glöð, hress og úrræða- góð, geislandi af lífskrafti og styrk. Það var ekki að lífið léki alltaf við hana mýkri höndum en aðra, en jákvæð lífsviðhorf, bjartsýni og ein- læg umhyggja fyrir náunganum léðu henni persónutöfra sem gerðu hana að eftirsóknarverðum vini og fallegri sterkri manneskju. Hún var sannur vinur, jafnt í gleði og sorg, nokkuð sem ekki öll- um er gefið. Ég er þakklát fyrir að hafa átt hana að. Elsku Helgi, börn, barnabörn og aðrir aðstandendur og vinir, ég bið góðan Guð um að styrkja ykkur í sorg ykkar. Minningin um yndislega mann- eskju lifir. Kristín S. Magnúsdóttir Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.