Morgunblaðið - 18.09.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
37
*
Þórunn Olafsdóttir,
Hellu — Kveðjuorð
Hún fölnaði, - bliknaði fagra rósin mín
því frostið var napurt.
Hún hneigði til foldar hin blíðu blöðin sín
við banastn'ð dapurt.
En Guð hana í dauðanum hneigði sér að
hjarta
og himindýrð tindraði um krónuna bjarta.
Sof rós mín í ró, í djúpri ró.
(G.G.)
„Það var fagur sólarbjarminn
yfir austurfjöllunum og Þórsmörk-
inni í nótt.“ Svo mælti hin látna
vinkona mín í vor, er ég heimsótti
hana í sumarhúsið að Hellatúni. Já,
það er fagur fjallahringurinn séður
frá Hellatúni, öll fegurstu fjöll
Rangárþings.
Þórunn Ólafsdóttir var fædd að
Hellatúni þann 19. september 1939.
Foreldrar hennar voru hjónin Þórdís
Kristjánsdóttir, ættuð úr Vopna-
firði, og Ólafur Guðmundsson,
bóndi að Hellatúni. Þar lifði hún
góð og glöð bernsku- og æskuár
ásamt systur sinni, en fór síðan í
Héraðsskólann á Skógum. Að námi
loknu hóf hún verslunarstörf hjá
Kf. Þór á Hellu. Þar var hún um
árabil og var framkoma hennar öll
og viðmót eins og best verður á
kosið.
Á Hellu kynntist hún eftirlifandi
manni sínum, Einari Kristinssyni
kaupmanni i Mosfelli, miklum
dugnaðar- og mannkostamanni og
mörg síðustu árin starfaði hún þar.
Þau eignuðust eina dóttur, Sólveigu
Þórdísi, sem nú er tæpra 16 ára
og má nú með sárum trega kveðja
móður sína, en það er huggun harmi
gegn að styrkari föðurhönd er vand-
fundin.
Þórunn var mjög sterkur per-
sónuleiki, fylgdi vel eftir sínum
skoðunum og var óhagganleg í því
er hún taldi rétt. Máltækið segir,
sá er vinur er í raun reynist. Það
átti svo sannarlega við um hana.
Hún var boðin og búin til að hjálpa
fjölskyldu og vinum er erfiðleika
eða veikindi bar að höndum. Sár-
asta atvik í lífi hennar mun þó hafa
verið er ung systurdóttir hennar dó,
svo djúpt var það sár að aldrei greri.
Þórunn gekk ekki heil til skógar
nokkra síðustu mánuðina, en það
var þó ekki fyrr en síðustu 3 vikurn-
ar að vissa var fyrir því hve dauð-
veik hún var.
Ég vil þakka henni allar góðu
samvorustundirnar, ferðalögin og
hjálpsemina á liðnum árum.
Aðsta.'dendum öllum sendi ég
innilegar . amúðarkveðjur.
Guð bles, i ykkur öll.
Jakobína Erlendsdótiir
Þeir sem komast nokkuð til ald-
urs verða að sætta sig við að sjá á
eftir samstarfsfólki sínu og sam-
ferðamönnum yfir landamæri lífs
og dauða. Oft er þetta eðlilegt því
þessa leið eiga allir víst að fara.
Eigi að síður eiga þeir sem eftir
lifa erfitt með að sætta sig við þetta
og spyija: Af hveiju einmitt núna?
Þegar kona á besta aldri, í blóma
lífsins, er kölluð burt eftir þungbær
veikindi, er ekki undarlegt þótt
spurt sé. Hvers vegna? En það er
lítið um viðhlítandi svör.
Þórunn Ólafsdóttir fæddist 19.
september 1939, dóttir hjónanna
Þórdísar Kristjánsdóttur og Ólafs
H. Guðmundssonar, bónda í Hellna-
túni í Ásahreppi. Eftir nám í héraðs-
skólanum á Skógum hóf hún störf
í Kaupfélaginu Þór á Hellu og vann
þar við skrifstofu og afgreiðslustörf
um árabil. Eftir það var hún við
afgreiðslu í versluninni Mosfelli og
vann þar meðan kraftar entust.
Vinnuveitanda sínum var Þórunn
samviskusamur og dugandi starfs-
maður og samstarfsfólki glaðvær
og góður félagi.
Ung að árum hóf Þórunn sambúð
með Einari Kristinssyni sem þá var
verslunarmaður hjá Kf. Þór og síðar
annar eigandi og framkvæmdastjóri
Mosfells sf. á Hellu. Áttu þau fyrst
heimili á Þrúðvangi 25 en brátt
fluttu þau í íbúð sína að Þrúðvangi
20 og síðan í glæsilegt hús sitt á
Arnarsandi 6.
Þau Þórunn og Einar eignuðust
eina dóttur, Sólveigu Þórdísi, fædd
1974. Sólveig Þórdís nýtur þeirrar
giftu að fá í arf bestu eðliskosti
foreldra sinna sem mun veita henni
þann styrk sem þarf til að mæta
hinni þungu raun.
Þórunn eða Tóta, eins og flestir
kölluðu hana, var mörgum kostum
búin og eftirminnileg þeim sem
höfðu af henni veruleg kynni. At-
hygli vakti hvað hún fór vel með
alla hluti, smáa jafnt sem stóra og
bar fágað og fallegt heimili þeirra
Einars þess gleggst vitni. Þar var
öllum jafnvel tekið af glaðværð og
með hlýju viðmóti og auðfundið að
allir voru velkomnir enda oft gest-
kvæmt.
Æskuheimili sínu í Hellnatúni
unni Tóta mjög. Reistu þau Einar
þar sumarbústað og dvaldi hún þar
eftir því sem við var komið. Frænd-
fólki sínu og fjölskyldu var Tóta
tengd sterkum böndum og var henni
styrk stoð og þá mest er eitthvað
bjátaði á en í lífi flestra skiptast á
skin og skúrir. Það er ekki alltaf
sólskin.
Börn hændust mjög að Tótu og
lýsir það kannske best mannkostum
hennar. Dvöldu börn oft á heimii
hennar lengri eða skemmri tíma.
Hún var alltaf boðin og búin að
rétta öðrum hjálparhönd ef með
þurfti. Það þekkir höfundur þessara
orða og svo er um fleiri.
Þórunn hafði áhuga á málefnum
samfélagsins og voru skoðanir
hennar fast mótaðar og ákveðnar.
Beindust þær mest að því að auka
réttlæti og jöfnuð milli fólks. Um
þetta eru raunar flestir sammála
en greinir á um leiðir til að ná þess-
um markmiðum. Fékk ég oft að
heyra að ég væri á villigötum að
þessu marki. Þessar umræður voru
þó einnig fram settar af hennar
hálfu að maður fór oftast ríkari af
þeim fundi.
Það fer ekki hjá því þegar minnst
er samstarfs og samveru sem stað-
ið hefur í fulla þijá áratugi þótt
stundum hafi verið með hléum eins
og verða vill í amstri daganna að
minningar hrannast upp. Auk þess
sem höfundur hefur haft nánara
samband við Einar en flesta aðra
menn.
Minningar um heilsteypta konu
með ákveðnar skoðanir, óþreytandi
að gera öðrum gott og hafa bæt-
andi áhrif á umhverfi sitt, konu sem
bjó við farsæld og velgengni í lífi
sínu en var þó ávallt hin sama og
tók því sem á móti blés með þeirri
reisn sem henni sómdi. Konu sem
var hreinskiptin við alla og reyndi
aldrei að sýnast önnur en hún var.
Konu sem tók öllum með glaðværð
og gestrisni og var mikill vinur vina
sinna.
Þórunn andaðist 4. sept. sl. og
fór útför hennar fram frá Selfoss-
kirkju 8. sept. Hún var jarðsett í
Áskirkjugarði.
Nú þegar leiðir skiljast þökkum
við Gerður samveruna hvort heldur
var heima eða heiman.
Einari, Sólveigu Þórdísi, foreldr-
um, systur og öðrum vandamönnum
eru sendar samúðarkveðjur.
Guð blessi þeim góðar minningar.
Jón Þorgilsson
r SX/tr-.
Á KRAFTVERKF/ÍRI ^ - ÞESSI STERKll
HJÓLSAGIR
HJÓLSÖG
Gerö 1854U
- 1100 vatta mótor
- 165/170 mm sagarblaö
- hraði4200sn./mín.
- öryggisrofi
- karbitsagarblað fylgir
HJÓLSÖG
Gerð 1865U
- 1200 vattamótor
- 184/190 mmsagarbiaö
- hraði 4200 sn./mín.
- örygcjisrofi
- karbitsagarblað fylgir
EIGUM AVALLT FJÖLBREYTT ÚRVAL SKIL RAFMAGNS-
HANDVERKFÆRAOG FYLGIHLUTA JAFNT TIL
IÐNAÐAR- SEM HEIMILISNOTA
ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ N0TA ÞAÐ BESTA
Þeiœing Reynsla Þjónusta
FALKINN r
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
EKKI PRILA!
NOTAÐU BELDRAY
Álstigarnir og tröppumar frá
Beidray eru viðurkennd bresk
gæðavara - öryggisprófuð og
samþykkt af þarlendum yfir-
völdum.
Beldray er rétta svarið við vinnuna,
i sumarbústaðnum og á heimilinu.
Verðið er ótrúlega hagstætt -
gerðu hiklaust samanburð.
n
knj. an
í 1 í
^ f'
*fl-» i* i* i* .
Tto
Beldray fæst í byggingavöruverslunum og kaupfélögum um land allt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON &CO HF. SÍMI 24020
64.5cm 87.0cm K)9i5cm \32.0cm 154,5cm 1770cm