Morgunblaðið - 18.09.1990, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 18.09.1990, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990 39 * Sr. Oskar Þorláks- son - Kveðjuorð Fæddur 5. nóvember 1906 Dáinn 7. ágúst 1990 Sr. Óskar Þorláksson hefur kvatt þennan heim, eftir mikið og gott starf. Hann var hógvær í framgöngu og skapi, en manna fyrirmannlegastur á velli. Hár vexti og beinn í baki. Honum var gefin góð skapgerð, en hélt vel á málum, en hann kom víða við er hann keppti um brau.ð, var hann jafnan sigursæll þó margir væru í boði. Óskar Jón Þorláksson var fædd- ur 5. nóv. 1906 í Skálmarbæ í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu. Foreldrar hans voru Þorlákur Sverrisson, bóndi í Klauf í Meðall- andi Magnússonar og kona hans Sigríður Jónsdóttir bónda í Skálm- arbæ Sigurðssonar. Þorlákur Sverrisson flutti síðan til Víkur í Mýrdal og stundaði þar búskap og kaupmennsku. Að lok- um flutti hann með ijölskylduna út til Vestmannaeyja og gerðist þar kaupmaður. Óskar var þegar í æsku bók- hneigður og hneigður til lærdóms. Hann sat í lærdómsdeild Mennta- skólans í Reykjavík og varð stúd- ent 1926. Hann kaus sér guðfræði sér til lærdóms og prestskapinn sem ævistarf. Hann tók guðfræði- próf 1930, og fór þá í framhalds- nám í Oxford og London og las þar Nýja-testamentisfræði, trú- fræði og predikunarfræði er hon- um kom til góða er hann sté í stól- inn. Sr. Óskar hafði hneigð til átt- haganna og kaus að vera prestur í Kirkjubæjarklaustursprestakalli, er var með bestu prestaköllum í Skaftárþingi. Þó hann yndi sér vel í átthögunum þá mun hann hafa kosið sér stærri verkahring í prest- starfinu, þó hann væri orðinn pró- fastur í Vestur-Skaftafellssýslu. Er Siglufjörður losnaði er var eitt af bestu brauðum landsins, sóttu 5 um brauðið. Sr. Óskar var einn af þeim enda eigi ókunnur Siglufirði frá skólaárum sínum. 1925 var hann þar í síld ásamt nokkrum skólabræðrum sínum. Honum líkaði dvölin þar vel. Þekkti hann allmarga borgara í sjón og hafði í minni þetta góða fólk. Hann var kominn langa vegu úr öðrum landsfjórðungi til að sýna sig og sjá aðra. Hann var kosinn prestur á Siglufirði sem eftirmaður sr. Bjarna Þorsteinssonar er nær í hálfa öld var mikilhæfur prestur þar og gáfumaður, samhliða því að vera prestur á stéttunum fýrir land og lýð. Árið 1934 gekk sr. Óskar Þor- láksson að eiga Vigdísi Elísabetu Árnadóttur, bónda í Gerðakoti á Miðnesi, Eiríkssonar. Hún var al- systir Ólafíu Sigríðar sem var seinni kona sr. Þórðar Oddgeirs- sonar á Sauðanesi. Þau hjón sr. Óskar og Elísabet eiguðust tvö börn, dreng er dó óskírður og Árna sviðsstjóra hjá sjónvarpinu. Kona hans er Heiðdís dóttir sr. Gunnars Benediktssonar prests í Saurbæ í Eyjafirði. Þá kom til þeira hjóna Helga Pálmadóttir systurdóttir Elísabetar í fóstur á barnsaldri. Hún er gift Helga Samúelssyni verkfræðingi. Hjónaband þeirra hjóna Elísabetar og sr. Óskars var farsælt. Hún var mikilhæf kona starfaði í verslun Haraldar Árna- sonar og var við hússtjórnarnám í norskum skóla áður en hún giftist. Heimili þeirra hjóna bar með sér snyrtimennsku og menningarbiæ. Viðbrugðið var hvað hún studdi mann sinn á Siglufirði. Svo var einnig hér. Húsbóndinn var bó- kelskur um guðfræði og lærdóms- rit. Hann batt inn marga bókina sér til ánægju. Mikið starf beið sr. Óskars á Siglufirði. Ný kirkja hafði verið byggð fyrir fáum árum, mikið hús og merkilegt. Kom sér nú vel að hann hafði numið framburð á Guðsorði, er var skýr og vel fram borinn í stólnum. Enda var sr. Óskar vel látinn af sóknarbörnum sínum, ungum sem öldnum. Hann var reglumaður alla ævi, meðlimur í Stórstúku íslands. Þá kom hann víða við, honum lét vel að kenna æskulýðnum enda stundakennari í Gagnfræðaskólanum í Siglufírði. I stjórn Gesta- og sjómannaheimil- inu á Siglufirði. Formaður Búnað- arfélags Siglufjarðar. Þá var hann presta bestur að útbreiða Kirkjuri- tið á sínum tíma. Hann var jafnan í mörgum félagsskap aufúsu gest- ur og vann störf sín af kostgæfni. Þá kom að því að Dómkirkju- brauðið losnaði. Sótti sr. Óskar Þorláksson um það ásamt fleiri prestum og hiaut kosningu. Hon- um var veitt brauðið 1. júní 1951. Þjónaði hann því í 25 ár. Vel látinn sem áður í prestskapnum af söfn- uði sínum. Hann bar virðingu fyrir fyrirrennara sínum í brauðinu, sr. Bjarna Jónssyni, og bauð honum að predika í sínu gamla guðshúsi. Reyndist þetta vera síðasta messa sr. Bjarna. Sr. Óskar var valinn maður í sínu starfi óg var á seinni árum prófastur í Reykjavíkurprófast- dæmi. Ég kynntist sr. Óskari aðallega er ég var nýkominn til Reykjavikur og gerðist meðlimur í Félagi fyrr- verandi Sóknarpresta. Sr.Óskar sótti jafnan fundi félagsins og var um árabil í stjórn þess. Á seinni árum tók ég hann jafnan með mér ■ á leið að Grund. Að lokinni messu og fundi lá leið hans með okkur að Ilátúni þar sem kona hans Elísabet dvaldi. Við höfum fengið meðbræður okkar í félaginu á fundum til þess að flytja endurminningar um skólagöngu og prestsskapinn. Sr. Óskar var meðal þeirra. Ekki fyrir löngu, kvaddi hann sér hljóðs á fundi og flutti erindi blaðalaust, er laut að æskuhögum hans í Álfta- veri, Vík í Mýrdal og prestskap á Síðu. Honum var þetta létt, því hann hafði ritað fyrir löngu árbók Ferðafélags íslands. 1935 um Vestur-Skaftafellssýslu. Þetta er- indi hans var ógleymanlegt að efni, mælsku og góðum hugsunum, eins og hann væri orðinn ungur í annað sinn, þó sjúkur væri. Si'. Óskar var gæfumaður. Er hann var heima eða á sjúkrahúsi, naut hann mikillar umönnunar og kærleika síns venslafólks uns yfir lauk. Við kveðjum þennan starfsbróð- ur okkar, er átti langa ævi til starfa í heilagri kirkju og margir minnast hans. Pétur Þ. Ingjaldsson Mim díityurbijrjaroq mdwÁhjó/i {rí< Fálkmum. Hwti) móö þim ? " ___ v' s FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI84670 ÞARABAKKI 3, SIMI670100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.