Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Við nýju landakortin, f.v.: Guðrún Hauksdóttir, formaður skólanefnd-
ar, Bjarney Valdimarsdóttir, yfirkennari, og Flemming Jessen, skóla-
stjóri.
Hvammstangi;
Kvenfélagið gaf grunn-
skólanum landakort
Hvammstanga.
GRUNNSKÓLI Hvammstanga var settur nýlega. í skólanum eru 150
börn í 10 deildum. Kennarar eru 15 alls, þar af 4 í hlutastarfi.
.Ýrnis nýbreytni er í skólastarfínu. Kvenfélagið á staðnum gaf skólan-
um þijú vönduð landakort að gjöf, og voru þau afhent við athöfnina.
Flemming Jessen, skólastjóri,
Bjarney Valdimarsdóttir, yfirkenn-
ari og Guðrún Hauksdóttir, formað-
ur skólanefndar, sögðu frá starfs-
háttum á nýbyrjuðu skólaári. Nú
er í fyrsta sinn skólaskylda 6 ára
barna og eru því bekkirnir 10 í stað
9 áður en sex ára börn hafa á liðn-
um árum verið í forskóla eða núll
bekk. Nú lengist skólaárið í níu
mánuði í stað átta og hálfs áður. í
tíunda bekk eru bundnar valgrein-
ar, vélritun og bókfærsla. Fijálsar
valgreinar eru: þýska, handmennt,
tölvufræði, félagsmálafræðsla og
tónlist, en Tónlistarskóli V-Hún.
hefur aðstöðu í skólahúsinu. Er þar
verulegt samstarf milli skólanna og
koma nemendur Tónlistarskólans
fram í Grunnskólanum við hátíðleg
tækifæri.
í vetur mun fagkvóti skólanna í
V-Hún. verða sameinaður, þannig
að starfskraftar, fagstjórar, nýtast
mun betur, heldur en hver skóli
væri að vinna í sínu horni. M.a.
verður samvinna skólanna í eina
viku í janúar í Reykjaskóla. Þar
verður íþróttahátíð, skemmtidag-
skrár, veislur og dansleikir.
Skólarnir í Vestur-Húnavatnssýslu,
Grunnskóli Hvammstanga, Lauga-
bakkaskóli, Vesturhópsskóli, Stað-
arhreppsskóli og einnig Borðeyrar-
skóli standa að þessari skólaviku.
Ekki var annað að heyra en að
starfsfólk og nemendur í Grunn-
skólanum hygðu gott til skóla-
starfsins. þótt sumarstarfið sé enn
við völd. Karl
■ í LOK septembcr hefjast í
Reykjavík námskeið um stjórnun
kvíða. Á námskeiðunum er tekist á
við helstu þætti sem orsaka og við-
halda kvíða í samskiptum manna.
Kenndar eru og æfðar sálfræðilegar
aðferðir til að fyrirbyggja og
yfirstíga einkenni kvíða, spennu og
streitu. Kvíðaviðbrögð koma ekki
einungis fram í líkamlegri vanlíðan,
(höfuðverk, vöðvabólgum, svita- og
skálftaköstum), heldur einnig í líki
undirgefni, vanmetakenndar, fé-
lagslegrar einangrunar og þung-
lyndis. Stjórnandi námskeiðanna,
Oddi Erlingsson sálfræðingur,
hefur um árabil leitt siík námskeið
og fengist við meðferð þessara
vandamála. Nánari upplýsingar eru
veittar um helgar og öll kvöld.
Blönduós:
Þrjár nýjar kennslu-
stofur teknar í notkun
Fyrsta opinbera notkun nýju íþróttamiðstöðvarinnar
Guðmundur Ingþórsson formaður bygginganefndar íþróttamið-
stöðvar afhendir Sveini Kjartanssyni skólasljóra grunnskólans
lyklavöldin að skólastofunum.
Blönduósi.
VIÐ setningu grunnskóla
Blönduóss voru skólanum af-
hentar þijár nýjar kennslustof-
ur til afnota. Kennslustofur
þessar eru á annari hæð nýju
íþróttamiðstöðvarinnar. Með
tilkomu þessa viðbótarhús-
næðis í þágu skólans má segja
að skólinn sé nánast einsetinn.
I hinu nýja kennsluhúsnæði
verður rekinn svokallaður op-
inn skóli fyrir nemendur ann-
ars, þriðja og Ijórða bekkjar.
Eftir setningu grunnskólans
var nemendum og gestum boðið
að skoða hina nýju og glæsilegu
kennsluaðstöðu á annari hæð
íþróttamiðstöðvarinnar.
í ræðu sem Guðmundur Ing-
þórsson formaður bygginganefnd-
ar íþróttahúss flutti við setningu
grunnskólans kom fram að liðin
væru ijórtan ár frá því tekin var
ákvörðun um byggingu íþrótta-
húss á Blönduósi. Á þessum
áfanga, sem er kennsluhúsnæði
fyrir grunnskólann, var byijað á
sl. ári og var kostnaður við gerð
hans um tuttugu milljónir en
heildarkostaður við gerð íþrótta-
húss er kominn í níutíu og fimm
milljónir. Guðmundur sagði enn-
fremur að til að ljúka íþrótta hús-
inu þyrfti um 45 milljónir króna.
Að sögn Sveins Kjartanssonar
skólastjóra grunnskólans verður
rekinn svokallaður opinn skóli í
hinu nýja kennsluhúsnæði. í því
felst m.a. að sögn Sveins að bekkj-
ardeildum verður blandað meira
saman og nemendum gefið meira
tækifæri á að velja sér verkefni.
Það kom fram hjá Sveini skóla-
stjóra að nemendur hins opna
skóla, þ.e nemendur 2. 3. og 4.
bekkjar, geta ekki byijað alveg á
sama tíma og aðrir nemendur
skólans því þessi nýja tilhögun í
skólastarfinu krefst mikils skipu-
lags og undirbúnings að hálfu
kennara og er því undirbúnings-
starfi ekki lokið. í vetur munu um
240 nemendur stunda nám við
grunnskóla Blönduóss og er það
tíu nemendum fleira en var sl.
skólaár.
Jón Sig
Nýju kennslustofurnar eru á annarri hæð nýju íþróttamiðstöðvarinnar.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ný viðbygging Flataskóla, ofan við eldri byggingarnar, og nýr aðalinngangur skólans.
Nýbygging við Flataskóla
tók þrjá og hálfan mánuð
Morgunblaðið/Börkur
Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri í Garðabæ afhendir Sigrúnu
Gísladóttur skólastjóra lyklana að nýbyggingu Flataskóla.
NÝBYGGING við Flataskóla í Garðabæ var formlega afhent í byrjun
mánaðarins. í lok ágústmánaðar var hún þó tilbúin og þá þegar tekin
í notkun, að sögn Sigrúnar Gísladóttur skólastjóra. Bygging hússins
tók óvenju skamman tíma, þrjá og hálfan mánuð, frá því framkvæmd-
ir hófust á byggingarstað þar til húsið var tilbúið til notkunar.
Sigrún segir að ákveðið hafi ver-
ið vorið 1989 að reisa þessa ný-
byggingu við skólann. Fyrir um ári
síðan hófst arkitektavinna við
teikningar og 10. maí síðástliðinn
var byijað að slá upp sökklum.
Loftorka í Borgarnesi var verktaki.
Húsið er gert úr steinsteyptum ein-
ingum, svokölluðum samlokuein-
ingum, sem voru steyptar í verk-
smiðju Loftorku í Borgarnesi og
þegar grunnur viðbyggingar og
kjallari tengibyggingar voru tilbún-
ir, var þegar hægt að ganga í að
reisa veggina. Með þessari aðferð
var hægt að fullgera húsið á þrem-
ur og hálfum mánuði frá því fram-
kvæmdir hófust á byggingarstað.
í viðbyggingunni eru fjórar
kennslustofur og nýr aðalinngangur
skólans. Tengibygging var einnig
reist milli hennar og aðalbygging-
ar. Alls er nýbyggingin 507 fer-
metrar og er byggingarkostnaður
um 30 milljónir króna, auk kostnað-
ar við hönnun og ýmsan búnað, um
fimm milljónir, þannig að heildar-
kostnaður er um 35 milljónir.
Sigrún Gísladóttir segir bygging-
una hafa heppnast einkar vel, sér-
staklega sé ánægjulegt hve vel hafi
tekist að samræma útlit nýbygging-
arinnar við eldri byggingárnar. 520
nemendur, 6 til 11 ára, eru í Flata-
skóla.
Arkitektar hússins eru Einar
Ingimarsson og Pálmar Ólason,
burðarþols- og lagnahönnun annað-
ist Ráðgjöf sf. og raflagnahönnun
var í höndum Stýritækni sf.