Morgunblaðið - 21.09.1990, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D
214. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Saddam íraksforseti;
írakar bún-
ir undir lang-
varandi átök
Nikósíu. Reuter
SADDAM Hussein, forseti íraks,
lýsti yfír því í blaðaviðtali, sem
birtist í gær að Irakar væru bún-
ir undir langvarandi átök við
Bandaríkjamenn blossaði upp
styrjöld við Persaflóa. í gær-
kvöldi birti íraska byltingarráðið
síðan sérstaka yfirlýsingu þar
sem sagði að ekki kæmi til greina
að kalla herliðið heim frá Kuvæt
og boðað var heilagt stríð til að
frelsa Jerúsalem og aðra helga
staði múslima
Saddam forseti sagði í viðtali,
sem tekið var í Bagdad, höfuðborg
íraks, að her_ landsins hefði í átta
ár barist við írani. „Ef þörf krefur
munum við beijast í þijú, fjögur,
fimm eða sex ár til viðbótar,“ sagði
forsetinn. í gærkvöldi birtu írösk
stjórnvöld sérstaka yfirlýsingu þess
efnis að ekki kæmi til greina að
kalla herliði heim frá Kúvæt og
upplýsingaráðherra stjórnar Sadd-
ams lét þess getið í samtali við
blaðamenn í gær að írakar myndu
uppræta allar olíulindir í löndunum
við Persaflóa brytust út átök. Þá
skýrðu stjórnvöld í írak frá því að
ávarp Saddams til bandarísku þjóð-
arinnar hefði verið tekið upp á
myndband og hefðu bandarískar
sjónvarpsstöðvar verið beðnar um
að sýna það. Fulltrúi Bandaríkja-
stjórnar sagði hins vegar í gær-
kvöldi að Irakar yrðu sjálfir að
koma boðskap forsetans á fram-
færi.
Evrópskt
efnahagssvæði:
Tilslakanir
af hálfu EB
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FULLTRÚAR Evrópubanda-
lagsins (EB) hafa fallist á að
aðildarríki Fríverslunarbanda-
lags Evrópu (EFTA) geti við-
haldið strangari reglum á til-
teknum sviðum, verði komið á
samevrópsku efnahagssvæði,
sem nefnt er EES.
Þessi niðurstaða varð ljós í gær
er yfirsamninganefndir bandalag-
anna tveggja komu saman til
fundar í Brussel. Þessi tilslökun
Evrópubandalagsins varðar reglur
vegna heilbrigðiskrafna, umhverf-
ismála og öryggis á vinnustöðum
og munu EFTA-ríkin geta viðhald-
ið strangari reglum innan EES,
æski þau þess.
Sjá „EFTA-ríkin geta . . .“ á
bls. 21.
Þing Rússlands hvetur til afsagnar Sovétstj órnarinnar:
Mynduð verði ný ríkisstjóm
er njóti trausts almennings
Bush Bandaríkjaforseti sagði á
miðvikudagskvöld að Bandaríkja-
menn myndu hvergi hvika frá kröf-
um sínum í Persaflóadeilunni og
ítrekaði að hernaðaraðgerðir væru
hugsanlegar. „Við erum tilbúnir til
að grípa til frekari aðgerða skili
refsiaðgerðir og viðleitni til að leysa
deiluna eftir pólitískum leiðum ekki
árangri," sagði Bandaríkjaforseti. í
gær hófu Bandaríkjamenn að flytja
þýska skriðdreka til Saudi-Arabíu
sem hafa að geyma sérútbúnað til
að veijast eiturefnaárásum.
Líklegt að Æðsta ráðið samþykki áætlun um einkavæðingu og markaðsbúskap
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
ÞING Rússlands, stærsta lýð-
veldis Sovétríkjanna, hvatti
Nikolaj Ryzhkov forsætisráð-
herra og ríkissijórn hans í gær
til að segja af sér. Ryzhkov,
sem lagst hefur gegn áætlun
um róttækar breytingar á hag-
kerfí Sovétríkjanna, hefur að
undanförnu sætt óvenju
harðvítugri gagnrýni og þykir
staða hans mjög veik. Búist er
við að Æðsta ráð Sovétríkj-
anna leggi í dag, fóstudag,
blessun sína yfir áætlun er
kveður á um markaðsbúskap,
einkavæðingu og afnám mið-
stýringar- og tilskipanakerfis
Sovét-kommúnismans en sjálf-
ur hefur forsætisráðherrann
látið að því liggja að hann
muni segja af sér.
Tillagan um afsögn Sovétstjórn-
arinnar var samþykkt með 164 at-
kvæðum gegn 16, en í áskoruninni
segir að stjórn Ryzhkovs beri að
víkja fyrir nýrri ríkisstjórn er njóti
trausts og stuðnings almennings. Á
miðvikudag samþykkti þingheimur
í Rússlandi sérstaka yfirlýsingu þar
sem skorað var á Ryzhkov að láta
af störfum en Borís Jeltsín, forseti
Rússlands og þekktasti leiðtogi sov-
éskra umbótasinna, hefur þráfald-
lega hvatt forsætisráðherrann til
Suður-Afríka:
Hafnar friðarviðræð-
ur ANC og Inkatha
Jóhannesarborg. Ileuter, dpa, The Daily Telegraph.
SKÝRT var frá því í Jóhannesarborg í gær að fulltrúar stríðandi
fylkinga blökkumanna, Afríska þjóðarráðsins (ANC) og Inkatha-
hreyfingarinnar, hefðu komið saman til fundar til að ræða hvern-
ig binda mætti enda á átökin. Sögðu fjölmiðlar í Suður-Afríku að
fund þennan mætti með réttu segja sögulegan og vísuðu til þess
að svo háttsettir fulltrúar hrey finganna hefðu ekki ræðst við í 11. ár.
í sameiginlegri yfirlýsingu sem
birt var í gær sagði að ágreiningur
hreyfinganna tveggja og ofbeldis-
verk blökkumanna hefðu verið til
umræðu og hefðu náðst sættir um
að halda viðræðunum áfram í
næstu viku. Á undanförnum sex
vikum hafa ekki færri en 760 menn
fallið í átökum fylkinganna
tveggja, sem báðar freista þess að
treysta stöðu sína á pólitíska svið-
inu. Raunar þykir nú fullsannað
að hvítir öfgamenn hafi ýmist
framið eða skipulagt nokkur þess-
ara voðaverka til að spilla fyrir
friðarviðræðum blökkumanna og
stjórnvalda. Sagði talsmaður lög-
regluyfirvalda í gær að leitað væri
bæði hvítra og blakkra ofbeldis-
manna.
Reuter
Vopnaðir lögreglumenn í eftir-
litsferð í einu úthverfa Jóhannes-
arborgar.
Fundur fulltrúanna þykir til
marks um umtalsverðar tilslakanir
af hálfu ANC. Nelson Mandela,
þekktasti leiðtogi þjóðarráðsins,
hefur fram til þessa neitað að eiga
viðræður við Mangosuthu Buth-
elezi, leiðtoga Inkatha, en í gær-
kvöldi var skýrt frá því að Buth-
elezi myndi eiga viðræður við full-
trúa ANC.
F. W. de Klerk, forseti S-Afríku,
skýrði frá því um síðustu helgi að
ákveðið hefði verið að herða veru-
lega öryggisgæslu í landinu til að
koma í veg fyrir frekari ofbeldis-
og óhæfuverk. Nelson Mandela
sagði í viðtali við breska ríkissjón-
varpið í gær að þessar aðgerðir
yrðu einkum til þess að hefta
stjórnmálafrelsi manna í landinu.
Sýnilegt væri að tilgangur stjórn-
valda væri annar en sá að afstýra
frekara blóðbaði. Lýsti hann yfir
því að þessi ákvörðun forsetans
kynni að stofna viðræðunum í
hættu og að „stríð“ myndi bijótast
út, hundsuðu yfirvöld friðaivilja
ANC.
að gera einmitt þetta.
Flest bendir til þess að í dag,
föstudag, muni Æðsta ráð Sovét-
ríkjanna greiða atkvæði um áætlan-
ir er varða framtíðarstefnu Sovét-
stjórnarinnar á efnahagssviðinu.
Þykir líklegt að samþykkt verði
áætlun, sem kennd er við hagfræð-
inginn Staníslav Sjatalín, og kveður
á um að fijálsu markaðshagkerfi
verði komið á í Sovétríkjunum.
Segja fréttaskýrendur að sú sam-
þykkt muni í raun jafngilda því að
grundvallarkennisetningum komm-
únsimans á vettvangi efnahags-
stjórnunar hafi verið varpað fyrir
róða. Ryzhkov hefur boðað að hann
muni ekki hrinda áformum þessum
í framkvæmd, samþykki þingheim-
ur þau, og látið að því liggja að
liann muni segja af sér. Líklegt
þykir að Gorbatsjov Sovétleiðtoga
verði fengið sérstakt vald til að
unnt verði að framkvæma umskipti
þessi.
I sovéskum dagblöðum hefur
verið fjallað ítarlega um óánægju
innan hersins vegna slökunarstefnu
valdhafa. Háttsettur herforingi í
Moskvu lýsti því þannig yfir í gær
að róttækir umbótasinnar væru
með framferði sínu að grafa undan
ríkinu og sagði þá hundsa ógnun
af hálfu Vesturlanda við öryggis-
hagsmuni Sovétríkjanna. Edúard
Shevardnadze utanríkisráðherra
sagði á hinn bóginn að Sovétmenn
gætu aðeins tryggt öryggishags-
muni sína með því að uppræta
meinsemdirnar í sovésku þjóðlífi og
á vettvangi efnahagsmála.