Morgunblaðið - 21.09.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
31
Hafdís S. Alfreðs-
dóttir - Minning
Fædd 12. maí 1946
Dáin 14. september 1990
Undarlegt hversu dauðinn kemur
manni ætíð á óvart, þrátt fyrir vitn-
eskju um að við lifum ekki til eilífð-
ar hér á jörðinni.
Þannig var okkur hér í Bjarkar-
ási innanbijósts er okkur barst lát
Hafdísar föstudaginn 14. septem-
ber sl. Við vissum að hún hafði
veikst skyndilega og verið flutt á
sjúkrahús, en dauðinn virtist svo
ijarri.
Hafdís kvaddi okkur að loknum
starfsdegi eins og venjulega mánu-
dag fyrir andlát sitt, en hún átti
ekki afturkvæmt.
Hafdís Sigríður var fædd í
Reykjavík 12. maí 1946 og var
annað barn hjónanna Jónínu G.
Jónsdóttur og Alfreðs H. Antonsens
bakara, Nökkvavogi 30. Hin börn
þeirra hjóna eru Erla skrifstofu-
maður og Birgir málarameistari.
Hafdís bjó alla tíð á heimili for-
eldra sinna, en hún var í hópi þeirra
einstaklinga í þjóðfélaginu sem
þarfnast leiðsagnar og stuðnings
alla lífsgönguna. Skólagöngu naut
Hafdís ekki, átti enda ekki samleið
með jafnöldrum sínum og sér-
kennsla eins og við þekkjum í dag,
ekki í boði.
Hafdís kom til okkar á Hæfingar-
stöðina Bjarkarás í apríl 1977. Þar
hófst hennar fyrsta skólaganga og
starfsþjálfun. 1 Bjarkarási eignaðist
Hafdís fljótt kunningja- og vinahóp.
Saumaklúbbur var stofnaður og
hittust þær stöllur reglulega í nokk-
ur ár, en þegar ein vinkonan flutti
aftur austur í heimabyggð og aðrar
breytingar urðu, lagðist þessi þáttur
niður.
Ætíð stóð heimili Hafdísar opið
vinkonum hennar og félögum, enda
foreldrar áhugasamir um velferð
hennar og allra er tengdust henni'
a einhvem hátt.
Málefninu sinntu þau af alúð og
voru í hópi þeirra foreldra er trú-
fastlegar héldu í mörg ár uppi
skemmtunum á vegum Styrktarfé-
lags vangefinna fyrir skjólstæðinga
þess.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund er eins og ætíð, minningar
leita á hugann. Við minnumst Haf-
dísar sem með sínum hvellandi
hlátri sá ætíð hið spaugilega í tilver-
unni. Við minnumst hennar sem
átti svo mikla umhyggju og ljúf-
lyndi gagnvart þeim sem hún gat
aðstoðað eða þurftu hjálpar með.
Einlægnin var svo fölskvalaus. Nú
hefur Gummi vinur hennar misst
mikið, og ekki framar fer Hafdís
I með hann í gönguferð um nágrenn-
ið.
Hve oft var ekki hrópað á „Hædí“
þegar þurfti að fá aðstoð við eitt-
hvert smáviðvik. Aldrei var svar
ónotalegt eða neikvætt, ætíð sama
| ljúfmennskan. Við sem fengum að
kynnast Hafdísi og vera samvistum
við hana hér í Bjarkarási þökkum
henni samfylgdina. Þökkum föls-
kvalausa tryggð og hlýju.
Starfsfólkið, vinnufélagar,
Margrét og börnin á Læk senda
foreldrum hennar og systkinum
IZutana/
innilegar samúðarkveðjur. Söknuð-
ur okkar er mikill.
Blessuð sé minning um elskuleg-
an, góðan félaga og við felum hana
góðum Guði á vald.
Hve gott að eiga grundvöll þann,
þá guðlaus vantrú hræðir,
að sjálfur Drottinn verkið vann,
sem veikan endurfæðir.
Eg, allslaust barn, gat ekki neitt,
en eilíft líf af náð var veitt,
mitt nafn í lífsbók letra.“ (Bjarni Eyjólfsson)
Greta
Margt er það sem gefur lífinu
gildi. Skaparinn hefur að mörgu
leyti lagt fyrir mannfólkið mjög
mismunandi þrautir, og mjög er
misjafnt hvernig við, börn hans,
bregðumst við þessum þrautum.
Þettar er mér ofarlega í huga,
þegar ég að leiðarlokum minnist
frænku minnar Hafsdísar Alfreðs-
dóttur.
Hugurinn hvarflar aftur áratugi.
Fyrir mér er ljós mynd brosmildra
systra, önnur kvik í hreyfingum og
snaggaraleg, hin fór hægar yfir og
virðist líta á hlutina frá öðru sjónar-
horni. Þarna voru þær frænkur
mínar Erla og Hafdís.
Hafdís veiktist á unga aldri sem
leiddi það af sér að hún gekk aldr-
ei heil til skógar eftir það, og náði
aldrei þeim andlega þroska sem við
hin,. Þó er hann svo afstæður
mælikvarðinn sem við leyfum okkur
að setja á þá hluti.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að vera ætíð aufúsugestur á heim-
ili Hafdísar, þar sem hún bjó í miklu
ástríki foreldra sinna Jónínu G.
Jónsdóttur og Alfreðs Antonsens
bakarameistara. Þau bjuggu þess-
ari dóttur sinni sh'kt heimili að að-
dáunarvert var. Reyndu þau á allan
hátt að gera líf hennar sem ánægju-
legast og sem eðlilegast. Marga
ferðina átti ég inn á þetta heimili
þegar ég sem unglingur og ungur
maður var á ferð í höfuðborginni.
Alltaf var mér tekið eins og einum
af fjölskyldunni, og ekki var það
síst Hafdís sem var mjög umhugað
um mig, sem reyndar allt sitt
frændfólk. Mér er ofarlega í huga
fyrst eftir að Erla systir hennar og
Asgeir Þorvaldsson eiginmaður
Erlu stofnuðu sitt heimili, og systur-
synirnir komu í heiminn, hve frá-
sagnargleði Hafdísar var mikil þeg-
ar hún var að segja frá því sem á
daga þeirra hafði drifið. Hún leit
alltaf á heimili Erlu sem sitt annað
heimili.
Hafdís hafði mikið dálæti á litlum
börnum og var ætíð fyrsta spurning
hennar hvernig þetta og hitt barnið
hefði það. Þetta skynjaði litla
frændfólkið og var ætíð hlýtt á
milli þeirra allra og Hafdísar. Þessi
hlýja hennar í garð þeirra minnstu
Heílsuvörur
nútímafólks
& Ármúla 29 símar 38640 - 686100
Þ. Þ0RGRIMSS0N & C0
Armstrong LDFTAPLDTUR
RORR D PLAST GÓLFFLÍSAR
KORKFLÍSAR
Drifbúnaður
fyrir spil ofl.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
í frændhópnum var sannarlega eft-
irbeytnivert.
Hafdís átti heima síðustu 30 árin
í Gnoðavoginum. Þar þekkti hún
sig vel, og þrátt fyrir ýmsar hindr-
anir og örðugleika sem fötlun henn-
ar hafði í för með sér, þá tókst
henni á oft ótrúlegan hátt að aðlaga
sig umhverfinu. Ekki þurfti hún að
fara nema einu sinni ákveðna leið
til að hún rataði hana aftur.
Þessir sundurlausu punktar sem
hér eru settir á blað þegar Hafdís
hefur lokið dvölinni hér á meðal
okkar, eru fyrst og fremst skrifaðir
til að minnast og þakka fyrir það
sem, hún var okkur frændfólkinu.
Um leið og ég bið góðan guð að
vernda hana vil ég leyfa mér að
þakka þeim Jónu frænku og Alfreð
fyrir alúðlega ummönnun hennar í
gegnum þessi ár. Slík umönnun er
svo einstök að öllum sem til þekktu
mun seint úr minni hverfa.
Ég bið góðan guð að blessa minn-
ingu Hafdísar Alfreðsdóttur.
Frændi
Nú legg’ég augun aftur
ó, Guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Þessi bæn kemur í huga minn
nú þegar ég hugsa til Hædu
frænku, sem svo fljótt var kvödd
héðan. Minningarnar eru allar svo
fagrar og góðar. Hún föðursystir
mín gaf okkur svo mikið. Hún vildi
öllum gera gott og gleðja með
barnslegri elsku sinni. Við sonur
minn litli, Sverrir Halldór, þökkum
henni kærleikann sem hún ávallt
sýndi okkur og allar góðu samveru-
stundirnar.
Við biðjum góðan Guð að vaka
yfir lífi hennar á nýjum stað og
hugga og styrkja elsku ömmu og
afa og aðra ástvini.
Ingibjörg Jóna Birgisdóttir
NÁMSKEIÐIN
BYRJA 24. OG 25
SEPTEMBER
12 VIKNA TUNGUMÁLANÁMSKEIÐ
KR: 22.900,-
6 VIKNA TUNGUMÁLANÁMSKEIÐ
KR: 12.900,-
Sérnámsheið-12 vikur
ENSKA FYRIR BORN
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
PORTÚGALSKA
JAPANSKA
GRÍSKA
Önnur námskeid-4 vikur
Þessi námskeið hefjast 1. okt. og 5. nóv.
SAMRÆÐUTÍMAR - ENSKA - ÞÝSKA
"VERSLUNAR"ENSKA fyrir þá sem
hyggja á verslunarferðir til útlanda
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
9
Málaskólinn
Mímir
INNRITUN í SÍMUM 621066 06 10004.
ATH! Margir s t a r f s m e n n t u n a r s j ó ð i r v e r k a I ý ð s f é I a g a
styrkja félagsmenn sína til t u n g u m á I a n á m s.
TIMKEN
KEILULEGUR
FAE
KÚLU- OG RÚLLULEGUR
Itu
LEGUHÚS
BMF VINKLARÁTRÉ
Eigum á lager allar gerðir af
legum í bíla, vinnuvélar,
framleiðsluvélar og
iðnaðartæki. Allt evrópsk og
bandarísk gæðavara. Útvegum
allar fáanlegar legur með hraði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SiMI 84670