Morgunblaðið - 21.09.1990, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
BÁRUSTÁL
Sígilt form—Litað og ólitað
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
Heimssýningin í
Sevilla:
Þátttöku-
kostnaður
of mikill
- segir utanríkis-
ráðherra
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segir að hætt
hafí verið við þátttöku íslands
í heimssýningunni í Sevilla á
Spáni árið 1992, þar sem ljóst
hafi verið að kostnaður yrði
mun meiri en ríkisstjórnin teldi
réttlætanlegt að verja til þess
verkefnis.
Sævar Daníelsson: Nafnlaust. 1990.
Utanríkisráðherra segir, að ríkis-
stjórnin hafi tekið ákvörðun um
hámark þeirrar upphæðar, sem hún
teldi réttlætanlegt að verja vegna
þátttöku i heimssýningunni. Sú
upphæð hafi verið 50 milljónir
króna, en stjórnin hafi verið reiðu-
búin að hækka hana í 60 milljónir.
Útflutningsráði hafi verið falið að
annast framkvæmdina, en það hafi
komist að þeirri niðurstöðu, að ekki
væri hægt að taka þátt í sýning-
unni, svo sómi væri af, nema veija
til þess fimm eða sex sinnum hærri
upphæð.
Ráðherrann segir, að í kjölfar
þessa hafi verið leitað til útflytj-
enda, sem hagsmuna eigi að gæta
á Spáni, en útkoman úr því hafi
verið neikvæð. Þá hafi verið settur
á stofn starfshópur ráðuneyta til
að kanna hvort hægt væri að draga
úr kostnaði við þátttökuna, en nið-
urstaða hans hafi einnig verið á
þann veg, að ekki væri hægt að
halda kostnaðinum innan þess
ramma, sem ríkisstjórnin sam-
þykkti.
Utanríkisráðherra sagði að lok-
um, að þar sem einstakir aðilar
atvinnulífsins teldu sér ekki hag í
því að leggja fé í sýninguna, væri
ekki réttlætanlegt, miðað við stöðu
ríkissjóðs, að vera með. Lítil þjóð
og skuldug yrði að sníða sér stakk
eftir vexti.
mýtt símanúmer
BlAÐAAfGRElKL^^
6GB*1
Hið óvænta
________Myndlist_____________
Eiríkur Þorláksson
í Ásmundarsal við Freyjugötu
stendur nú sýning á málverkum og
höggmyndum frá hendi Sævars Dan-
íelssonar. Sævar er ekki mjög þekkt
nafn í listaheiminum, en hann sótti
á sínum tíma námskeið í Myndlistar-
skólanum hjá Hring Jóhannessyni,
og átti verk á samsýningum FÍM um
árabil. Hann hélt einkasýningu 1984,
en hefur ekki tekið þátt í sýningum
frá þeim tíma. Vegna þessa eru þetta
væntanlega fyrstu kynni áhugafólks
af yngstu kynslóðinni af verkum
Sævars, og eni líkur til að þau komi
nokkuð á óvart.
Á sýningunni eru tíu olíumálverk
og ijórtán höggmyndir úr graníti og
marmara, öll nafnlaus. Hvoru
tveggja hafa til að bera eiginleika,
sem á einhvern hátt staðsetja þau
utan hins mögulega reynsluheims
mannsins; þau eru óvænt, jafnvel
skelfandi í mýkt sinni. Sævar kann
vel til verka, og tæknilega eru verk-
in vel unnin og hnökralaus í út-
færslu. Einkum eru höggmyndirnar
vandaðar, enda vinnur listamaðurinn
í steinsmiðju og er því vel kunnugur
eiginleikum efnisins og nýtir sér það
til fullnustu.
Málverkin eru við fyrstu sýn öll
landslagsverk frá Þingvöllum. En
þetta er ekki hið landfræðilega hjarta
Islands, heldur virðist staðurinn til-
heyra annarri veröld, öðrum heimi.
Hraunið tekur ýmist á sig mynd
margflókins vefnaðar, yfirbreiðslu
eða sneiðmyndar af heilaberki; það
er nær því að vera lifandi, iðandi kös
lífsforma en að vera staðfastar stein-
myndanir náttúrunnar. Litaval Sæv-
ars styrkir þessa framandi tilfinn-
ingu, því þó ríkjandi litir séu brúnir,
grænir og gráir, þá eru það ekki lit-
ir náttúrunnar sem birtast í málverk-
inu, heldur einhver skelfandi blær
hins ókunna. Þessi tilfinning vex við
að sjá blóðrefil þvert yfir snjóbreið-
una (sem er raunar yfirbreiðsla) og
gadda djúpt í bláum gjánum; og
fæstir tengja Almannagjá við þá
nöturlegu ógnun sem birtist hér.
Sævar hefur tileinkað sér óvænt
sjónarhorn á landið í sínum myndum,
og minnir með því óþægilega á
tvírætt eðli náttúruaflanna, sem eru
jafnt ógnun sem blessun mannsins
sem landið byggir.
Marmari og granít eru harðar
steintegundir, og höggmyndir bera
oftast merki þess í úrvinnslunni. Því
kemur á óvart að sjá hér marmarann
undinn og snúinn nánast eins og leir;
í höggmyndum Sævars er hann
sveigður, honum er þrýst að granít-
inu, hann er skorinn og mótaður á
fjölbreytilegan hátt. En líkt og í
málverkunum stendur einhver ógn
af þeim verkum sem blasa við áhorf-
andanum. Þar finnur augað fallöxi,
tennta dýrboga og altari, sem virð-
ast frekar ætluð til fórna en til-
beiðslu. Allt er þetta fágað og slétt,
en jafnframt kalt og hart, þar sem
hvítur marmarinn og svart granítið
vinna vel saman.
Myndlist Sævars er óvænt; hún
býður áhorfandanum inn í ókunna
veröld sem ekki er gott að átta sig
á. Sumir munu sjá þar ævintýraheim,
sem maðurinn á ekkert erindi inn í,
en aðrir munu sjá ógnun hins
óþekkta. I öllu falii er þessi óvænta
sýn þess virði að sjá hana eigin aug-
um, en sýning Sævars í Ásmundar-
sal stendur of stutt; henni lýkur
mánudaginn 24. september.
E—
?VWWWWWWWWWWWWW V 'V ú
Nú er tækifærið!
Arnarhóll - Operukjallarinn
býður þér fyrir sýningu
glæsilegan matseðil á aðeins
kr. 1400 -
forréttur
Reyktur lax afl hætti Ragga Reykás
aðalréttur
Innbakaftur svínahryggur spaugarans
kaffi á eftir
frítt í Operukjallarann að sýningu lokinni
fyrir matargesti
borftapantanir í miftásölu og í síma 18833