Morgunblaðið - 21.09.1990, Blaðsíða 43
FRJALSIÞROTTIR / SPJOTKAST
Pétur Guömundsson
KNATTSPYRNA
Uppskeruhátið
í 2. deild
Uppskeruhátíð 2. deildar í
knattspymu verður haldin í
Glaumbergi, Keflavík í kvöld og
hefst klukkan 20. Þjálfarar hafa
valið besta leikmann deildarinnar
og þann efnilegasta og verður útn-
efningin hápunktur kvöldsins. Þá
verður besti markvörðurinn út-
nefndur, besti varnarmaðurinn,
besti miðvallarleikmaðurinn og
besti sóknarmaðurinn. Grétar Ein-'
arsson, Víði, var markakóngur
deildarinnar með 14 mörk og fær
hann Mitre-gullskóinn. Porca Salih,
Selfossi, og Kristinn Tómasson,
Fylki, voru næstir með 12 mörk og
fá silfurskóinn.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FOSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
; „Góða nólt
| Svíþjóð"
- segir Aftonbladet ífynrsögn
um frammistöðu sænsku liðanna
4 Pétur Gisðmundsson
‘ nálægt sínu besta
Morgunblaðið/Einar Falur
Anton Björn Markússon átti stórleik með Fram og leikmenn Djurgárden áttu ekki svar við öflugum mótherjum.
Nemethspjótið leyft
á mótum
ALÞJÓÐA frjálsíþróttasam-
bandið, IAAF, gaf það út f gær
eftir fund sinn í London að leyft
yrði að nota ungverska Ne-
meth spjótið á næsta ári og
að heimsmet Steve Backiey og
Jan Zelezny, sem þeir settu í
sumar, verði látin gilda.
Sambandið segir að Nemeth
spjótið verði leyft áfram eða
þar til reglunum verði hugsanlega
breytt á þingi sambandsins í apríl
1992. Tækninefnd IAAF mun
leggja það til á næsta þingi sam-
bandsins, sem fram fer í Tókýó í
ágúst á næsta ári, að Nemeth spjót-
ið verði dæmt ólöglegt. Tækninefnd
IAAF hafði á fundi sínum í ágúst
s.l. lagst gegn því að heimsmet með
Nemth spjótinu yrðu tekin gild.
Steve Backley setti heimsmet
með Nemeth spjótinu, 90,98 m., á
móti í London í sumar og bætti
met Jan Zelezny, 89,66 m, sett í
Osló skömmu áður með sömu gerð
af spjóti. Backley hefur einnig kast-
að Sandvic spjótinu lengst allra,
89,58 metra, en það gerði hann á
móti í Stokkhólmi 2. júlí. Backley
segir að með því að nota Nemeth
spjótið geti hann kastað þremur
metrum lengra en með ungverska
spjótinu.
Það kemur í hlut tækninefndar
Heimsmeistaramótsins í Tókýó og
síðan stórn IAAF að samþykkja
hvort spjótið verði leyft á Heims-
meistaramótinu í Tókýó í ágúst á
næsta ári. Ungverska spjótið var
ekki leyft á Evrópumeistaramótinu
í Split í Júgóslavíu í sumar, en aft-
ur á móti mátti nota það í úrslitum
Grand Prix mótanna í Barcelona í
fyrra.
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
úr HSK náði næst besta ár-
angri sínum á innanfélagsmóti Ár-
manns sem fram fór í Laugardaln-
um í gær. Pétur varpaði 20,31
metra, en lengst hefur hann varpað
kúlunni 20,66 metra.
. Helgi Þór Helgason, USAH, setti
nýtt sýslumet í kringlukasti á sama
móti, kastaði 57,20 metra. Pétur
Guðmundsson, HSK, náði sínum
besta árangri í kringlukasti er hann
kastaði 55,30 metra.
■ PJERIN Noga, landsliðsmaður
Albaníu í knattspymu, hefur beðið
um hæli sem pólítískur flóttamaður
í Frakklandi. Noga, sem lék með
Albaníu gegn íslendingum á
Laugardalsvelli 30. maí, lék með
liði sínu, Dinamo Tirana í Evrópu-
keppni meistaraliða gegn Marseille
í fyrrakvöld. Hann mætti ekki á
flugvöllinn er lið hans hélt heim á
leið í gær. Hann fór síðan á lög-
reglustöðina í borginni og baðst
hælis. Noga er 27 ára og er sterk-
ur varnarmaður.
^ ■ BRÖNDBY, frá Danmörku,
kom mjög á óvart með 5:0 sigri á
Eintracht Frankfurt frá V-
^ Þýskalandi í UEFA-keppninni í
fyrrakvöld. í liði Frankfurt éru
fjórir um sigurliði V-Þýskalands á
4 HM. í leikhléi var staðan 1:0 og
dönsku sjónvarpsmennirnir náðu þá
tali af Morten Olsen, leikmanni
Bröndby, og spurðu hvort hann
væri ekki ánægður: „Ánægður með
1:0! Við ætlum að salta þá í síðari
hálfleik," sagði Olsen og það gekk
_J eftir.
KNATTSPYRNA
SÆNSK dagblöð eru sjálfum
sér lík eftir tap Djurgárden
gegn Fram á íslenskri grundu
á miðvikudag. Þau eru mjög
fáorð um leikinn enda telst það
afhroð að tapa fyrir litla íslandi.
Sem dæmi þá afgreiðir Express-
en, stærsta síðdegisblað í
Svíþjóð, leikinn í átta línum, talar
um algjörar hrakfarir og spyr:
„Hver trúir að
Djurgárden geti
snúið úrslitunum sér
í hag?“
„Góða nótt,
Svíþjóð," segir Aftonbladet í fyrir-
sögn um frammistöðu sænsku lið-
anna í Evrópukeppninni.
„Djurgárden sýnir ekki Framfæt-
urna“ er millifyrirsögn blaðsins um
viðureignina á Laugardalsvelli og
síðan fylgja 11 línur um leikinn.
Þar segir meðal annars: „Fram átti
að vera léttur biti fyrir Djurgárden,
en það reyndist öfugt. Tap, 0:3, og
fjögur gul spjöld fyrir grófan leik.
Islendingamir voru mun frískari og
ákveðnari í leik sínum og áttu sigur-
inn skilið." „Við erum ekki vanir
að spila í Evrópukeppninni, sem er
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifar
fráSvíþjóð
mun erfiðari en Allsvenskan," er
haft eftir Lennart Wass, þjálfara.
iDAG segir að landsliðsmaðurinn
í handknattleik, Jón Erling Ragn-
arsson, hafi sökkt Djurgárden með
tveimur mörkum. „Fram hefur spil-
að í Evrópukeppninni árlega síðan
1985, ekki skorað eitt einasta mark
en fengið á sig 25 mörk.“ [innsk.
rétt er 26 mörk síðan 1986].
Morgunblaðið GP segir að
Djurgárden hafi verið skellt af Is-
lendingum í golunni á Laugardals-
vellinum í Reykjavík. Hitinn hafi
verið nálægt frostmarki sem hafi
ekki gert Svíum leikinn auðveldari.
„Þetta er vísbending um það að
íslensk knattspyrna er á mikilli
uppleið og meistarar KA hafa einn-
ig staðfest það með því að vinna
CSKA 1:0.“
Sýnt var úr leiknum í sjónvarpi
og þegar Framarar skomðu var
sagt að það væru smáþjóðir eins
og Færeyjar og ísland sem settu
strik í reikninginn.
Sænsku liðin Ijögur stóðu sig illa
í fyrsta leik Evrópukeppninnar og
skýring sænskra fjölmiðla er ein-
föld: Eftir niðurlæginguna í HM á
Ítalíu er sænsk knattspyrna í lægð.
FRJALSAR
LAUGARDALSVOLLUR / ITR
Hlaupabraut í
undirbúningi
Júlíus Hafstein, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur, mun á næstunni
leggja fram tillögur þess efnis að
útbúin verði átta rása hlaupabraut
á aðalleikvanginum í Laugardal og
að gert verði ráð fyrir henni í fjár-
hagsáætlun borgarinnar næsta ár.
Miðað er við að framkvæmdir hefj-
ist á næsta ári og verði lokið í júní
1992, en áætlaður kostnaður er um
66 millj. kr. Áður hafði verið ákveð-
ið að fara í framkvæmdir vegna sex
brauta og átta á beinu köflunum,
en Júlíus sagði að forystumenn
fijálsíþrótta hefðu lagt áherslu á
átta brautir allan hringinn og verð-
ur unnið að málinu samkvæmt ósk-
um þeirra.
Að sögn Júlíusar verður engin
röskun á starfsemi vallarins varð-
andi knattspyrnuleiki meðan á
framkvæmdum stendur og stærð
knattspyrnuvallarins breytist ekki.
Stúka ekki á dagskrá
Áður hefur margoft komið fram
að Alþjóða knattspyrnusambandið
hefur ákveðið að frá og með undan-
keppni næstu HM, sem hefst 1992,
verður aðeins heimilt að selja sætis-
miða á leiki. Vegna þessa hefur
KSÍ óskað eftir nýrri stúku við
Laugardalsvöll, en Júlíus sagði að
slíkar framkvæmdir væru ekki á
dagskrá eins og er. „Við höfum
óskað eftir því við knattspymufor-
ystuna að leitað verði eftir undan-
þágu og ég reikna með því að knatt-
spyrnuforystan sé að vinna að því
af heilum hug.“
Engin flóðljós eru á Laugardals-
velli og sagði Júlíus að ósk um þau
hefði ekki komið upp mjög lengi.
„Eg hef hins vegar átt viðræður
við vallarstjóra um fljóðljós framan
á stúkuna og svo hinum megin eft-
ir því hvaða ákvarðanir verða tekn-
ar.“ Hann bætti við að ekki hefði
verið þörf á fljóðljósum í mörg und-
anfarin ár, „en nú stöndum við allt
í einu frammi fyrir því að Fram
verði í 2. umferð Evrópukeppninnar
og þá er spurning um hvar liðið
getur spilað.“
Leikirnir í 2. umferð Evrópu-
keppninnar eiga að fara fram 24.
október og 7. nóvember. Garðar
Lárusson hjá verkáætlanadeild Raf-
magnsveitunnar sagði að heildar-
kostnaður vegna fljóðljósa eins og
eru á gervigrasvellinum væri um
10 millj. kr. Hann sagði ennfremur
að gera mætti ráð fyrir fjögurra til
fimm mánaða vinnu til að ljúka
verkinu eftir að ákvörðun um upp-
setningu væri tekin, en mestur tími
fer í að smíða möstrin.
HANDBOLTI
Svíar
koma
Heimsmeistarar Svía í hand-
knattleik hafa ákveðið að
leika tvo landsleiki gegn Islend-
ingum í Laugai-dalshöllinni milli
jóla og nýárs. „Við vorum að fá
staðfestingu og ég á ekki von á
öðru en að þeir mæti með sterk-
asta liðið," sagði Þorbergur Að-
alsteinsson, þjálfari íslenska
landsliðsins.
Flestir leikmenn Svía leika
með liðum í sænsku deildinni
og gert er ráð fyrir að leikmenn
liðsins frá vestur-þýskum og
spænskum liðum verði einnig
með. „Ég geri ráð fyrir því að
við notum svipað lið og í sumar
og líst vel á að fá leiki gegn
meisturunum,“ sagði Þorbergur.
í kvöld
Einn leikur fer fram í 1. deild
karla í handknattleik í kvöld. KA
og Selfoss leika í íþróttahöllinni á
Akureyri kl. 20.20.
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts-
ins í hand'knattleik karla fer fram
í Seljaskóla í kvöld. Víkingur og
KR mætast og hefst viðureignin
kl. 20.30.
.fofam
■ FOLK