Morgunblaðið - 21.09.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
Launanefndir úrskurðuðu
verðbætur á tvennan hátt
LAUNANEFND Alþýðusambands íslands og vinnuveitenda og Sam-
bands bankamanna og bankanna úrskurðaði í gær að 550 króna
eingreiðsla skyldi koma á laun 1. október vegna verðbóta október
og nóvembermánaðar og síðan myndu launataxtar hækka um 0,27%
1. desember, auk áfangahækkunar sem þá er fyrirhuguð. Launa-
nefndir Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og ríkisins og Kennara-
sambands Islands og ríkisins ákváðu hins vegar að 0,27%-hækkunin
kæmi á taxta frá 1. október. Ákvörðun verðbóta er tilkomin vegna
hækkunar framfærsluvísitölu umfram viðmiðunarmörk kjarasamn-
inga.
Ásmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands, sagði að
ýmsar ástæður væru fyrir því að
þeir hefðu talið eingreiðslu verðbóta
fyrir október og nóvember heppi-
lega. Fyrir það fyrsta væru verð-
bæturnar miðaðar við 102 þúsund
króna meðaiaun en % hlutar félags-
manna ASÍ væru undir þeim mörk-
um og því högnuðust þeir í heild á
að þessari aðferð væri beitt. í öðru
lagi væri ekki minnsta ástæða til
verðhækkana vegna þessa úrskurð-
ar og það væri afar mikilvægt að
verðlagsaðhaldið tækist jafnvel
áfram og til þessa.
„Ég hefði kosið að það yrði al-
menn samstaða um þessa leið, en
virði alveg þau sjónarmið sem hafa
komið fram hjá opinberum starfs-
mönnum. Þetta er ekki stórt mál
og það verður hver og einn að
meta hvað hann telur skynsamlegt
í þessum efnum,“ sagði Ásmundur
ennfremur.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði að það hefði orðið nið-
urstaða þeirra að tryggja öllum fé-
lagsmönnum BSRB áð þeir hækki
um það sama hlutfallslega, enda
sé þessi leið mjög einföld í hinu
opinbera launakerfi. Þarna sé um
sáralitlar upphæðir að ræða og því
sé það ekkert meginatriði hvað leið
hafi verið valin. Mestu máli skipti
að það hafi tekist að ná tökum á
Búnaðarbanki lækk-
ar vexti um 1,25-2%
BÚNAÐARBANKINN hefur lækkað nafnvexti útlána um 1,25-2%,
og tekur vaxtabreytingin gildi í dag. Þá lækka vextir kjörbókar
Landsbankans úr 10% í 9%. Islandsbanki og Landsbanki munu vænt-
anlega lækka útlánsvexti um mánaðamótin, en hafa ekki tekið ákvörð-
un um vaxtabreytinguna.
Stefán Pálsson bankastjóri Bún-
aðarbankans sagði að forvextir
Ótíð á Suðurlandi:
Fjallmenn í
erfíðleikum
Syðra-Langholti.
FJALLMENN sem fóru í svo-
nefnt eftirsafn, sem er önnur
leit hér á Hrunamannaafrétti,
hafa lent í óveðri og erfiðleikum.
Þeir fóru á fjall síðastliðinn
sunnudag og hafa hreppt vond
veður.
í gær komust þeir við illan leik
úr Ásgarði í Kerlingafjöllum í leitar-
mannaskálann í Leppistungum í
stað þess að fara í Svínárnes sem
er á miðjum afréttinum. Þeir eru
níu saman og hafa með sér íjór-
hjóladrifna dráttarvél. Blindbylur
var þama innfrá allan daginn svo
vart sást út úr augum. Vonast er
til að þeir nái í Svínámes í dag en
yfir erfiðar ár er að fara.
Sig. Sigm.
víxla lækkuðu um 1,5% og eru nú
12,25%. Yfirdráttarlán lækka um
2%, í 15,5%, og kjörvextir óverð-
tryggðra skuldabréfa lækka um
1,25%. Það þýðir að algengir vextir
á skuldabréfum verða 12,5%.
Stefán sagði að ástæða þessarar
vaxtalækkunar væri fyrst og fremst
lækkun verðbólgunnar, og að reynt
væri að hafa samræmi á verð-
tryggðum og óverðtryggðum útlán-
um. Óverðtryggðu útlánin væru nú
mun hærri og hlytu því að fara
niður.
verðbólgunni og sá árangur sé
miklu mikilvægari en sú litla pró-
sentuhækkun sem sé til umræðu nú.
„Annars lít ég svo á að þjóðar-
sáttin sé fyrst og fremst krafa um
breytingar og nú hafa skapast for-
sendur til þeirra. Það hefur staðið
á að fjármagnskerfið hafí látið til
sín taka og það verður ekki liðið
að það standi ábyrgðarlaust hjá.
Vaxtabyrðin hefur leikið mörg
heimili og heilar atvinnugreinar illa
og raunvaxtalækkun er miklu
stærra kjaraatriði en þessa litla
hækkun sem við vorum að úrskurða
núna,“ sagði Ögmundur.
Maður ákærður fyr-
ir misneytingn:
Komst yfír
2,5 millj. og
fór úr landi
SAKADÓMUR Reykjavíkur hef-
ur til meðferðar mál gegn manni
sem ákærður er fyrir að hafa
notfært sér vanheilsu, greindar-
skort og dómgreindarleysi konu
nokkurrar til að fá hana til að
undirrita 20 fjárskuldbindingar,
samtals að höfuðstóli um tvær
og hálf milljón króna. Ekki hefur
reynst unnt að taka málið fyrir
í sakadómi þar sem hinn ákærði
dvelur erléndis og ekki er vitað
með vissu hvar hann heldur sig.
Maðurinn fékk konuna til að
gefa út tékka, víxla og skuldabréf,
fyrir 2,5 milljónir króna að höfuð-
stóli en málið var höfðað í fyrra-
vor. Þessar skuldbindingar leiddu
til þess að hún varð gjaldþrota og
missti eigur sínar. Talið er að mað-
urinn hafi gert konuna háða sér og
misnotað traust hennar með þess-
um hætti. Málið var höfðað í fyrra-
vor en síðan hefur ekki reynst unnt
að ná til mannsins þar sem hann
hefur haldið sig erlendis.
Aðalsteinn Guðmundsson heldur á heytuggu og si\jó úr nýslegn-
um fiekknum.
Snjór í slægjunni
Selfossi.
„ÞETTA ER fínt í hrossin, maður rúllar þessu upp og fleygir
siðan í þau,“ sagði Aðalsteinn Guðmundsson á Húsatóftum 2a
á Skeiðum, sem í gær var að slá túnspildu. Hann hóf sláttinn
í fyrradag en varð að hætta vegna þess hversu mikið snjóaði.
Bændur eiga víða óslegin tún og nokkrir eiga flatt hey þó flest-
ir hafi sloppið fyrir horn með heyskapinn.
„Það hefur ekki móað af steini Brynjólfur sagði svona
frá því 9. júlí, ekki til að þurrka óþurrkatíð ekki hafa komið frá
hey,“ sagði Brynjólfur Guðmunds-
son á Núpstúni í Hrunamanna-
hreppi. Hann á flatt hey á fimm
hekturum og nokkrar túnspildur
óslegnar. Hann kvaðst láta þær
eiga sig en hann þyrfti að ná
síðasta flekknum fyrir rollurnar.
„Þetta væri í lagi ef ekki væri
frost og hann næði að blása sæmi-
lega í þetta,“ sagði Brynjólfur, en
í gær fór hitastigið varla upp fyr-
ir frostmarkið.
því 1969, en þá rigndi allt sumar-
ið þar til fjóra daga í lok ágúst.
Tveir dagar komu þetta ár þurrir
í september og 26.-28. ágúst voru
góðviðrisdagar.
Óþurrkatíðin kemur illa við
suma bændur. Flestir eru sloppnir
fyrir horn með heyskapinn og er
þar fyrir að þakka rúllubagga-
tækninni.
— Sig. Jóns
Fjárhagrir Kópavogs verri
en ársreikningar 1989 sýna
FJÁRHAGSSTAÐA bæjarsjóðs
Kópavogsbæjar um síðastliðin
áramót var verri en ársreikning-
ur fyrir árið 1989 sýnir. Nettó-
skuld samkvæmt ársreikningi
var vantalin um 109 milljónir
króna og hreint veltufé ofmetið
um 94 milljónir. Þetta kemur
fram í úttekt á fjárhagsstöðu
bæjarsjóðsins, sem Endurskoð-
Ritsafnið íslensk
skip að koma út
ÚT ER að koma hjá Iðunni ritsafnið „íslensk skip“. Alls er um
fjögur bindi að ræða sem hafa að geyma upplýsingar um nánast
öll skip og báta sem á íslandi hafa verið frá árinu 1860 fram á
mitt árið í ár. Greint er ítarlega frá ferli skipanna úr skráðum
heimildum, stærð, gerð, öllum skráningum og umskráningum,
eigendum og endalokum ef um slík er að ræða. Á þriðja þúsund
mynda er að finna í verkinu og eru sumar þeirra mjög sjaldgæf-
ar. Höfundur verksins er Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð í Vest-
mannaeyjum.
í formála segir Jón Bjömsson
að upphaf verksins megi rekja til
þess er hann var staddur hjá vina-
fólki í Vestmannaeyjum fyrir
mörgum árum. Þegar hann fór
að skoða myndir hafi rifjast upp
ótal minningar frá uppvaxtarár-
um hans í Eyjum. Hafi þær kveikt
með honum löngun til að eignast
myndir af sem flestum Eyjabátum
og hafi hann byrjað að safna.
Fljótlega kom að því að Jón ákvað
að einskorða sig ekki aðeins við
Vestmannaeyjar og að ágrip af
sögu hvers báts þyrfti að fylgja
myndinni.
„Að lokum var komið að því
að ég fór að viða að mér upplýs-
Jón Björnsson
ingum um alla báta og skip, hvort
sem mér auðnaðist að finna mynd-
ir af þeim eða ekki. Segja má að
hér sé nú komin heildarskrá yfir
öll skip sem skráð hafa verið á
íslandi," segir í formála Jóns.
endaþjónustan framkvæmdi að
beiðni bæjarstjóra í júnímánuði
síðastliðnum og var kynnt í bæj-
arráði Kópavogs í síðustu viku.
Samkvæmt úttektinni var nettó-
skuld bæjarsjóðs um áramót 710
milljónir króna, en var í ársreikn-
ingi talin 109 milljónum króna
lægri, eða 601 milljón. Hreint
veltufé var í ársreikningi talið 34,3
milljónir, en er samkvæmt endur-
skoðun neikvætt um 59,6 milljónir,
mismunurinn er 93,9 milljónir.
Þá segir að fjárhagsstaða bæjar-
sjóðs hafi „versnað verulega undan-
farin ár. Nettóskuld sem hlutfall
af sameiginlegum tekjum hefur
hækkað úr 19,2% í árslok 1985 í
rúmlega 60% í árslok 1989.“ Fram-
kvæmdir og fjárfestingar áranna
1986-1989 fóru samkvæmt úttekt-
inni umtalsvert fram úr því sem
reksturinn skilaði. „Skuldir hafa því
hlaðist upp,“ segir í niðurstöðum.
Heildarskuldir á hvern íbúa
Kópavogs hafa hækkað, miðað við
verðlag í árslok 1989, úr 32.068
krónum í lok árs 1985 í 85.231
krónu í lok síðasta árs. Það er
165,8% raunaukning. Á sama tíma
jukust heildartekjur á hvern íbúa
um 29%.
Þá segir að hæpið virðist að nið-
urstöður fjárhagsáætlunar fyrir
þetta ár standist miðað við rekstrar-
afkomu fyrstu fimm mánuðina.
„Ýmislegt bendir til að tekjur verði
lægri en áætlað var og útgjöld
hærri.“
Gunnar Birgisson formaður bæj-
arráðs Kópavogs segir þessar niður-
stöður staðfesta það sem sjálfstæð-
ismenn hafi haldið fram um fjármál
bæjarins fyrir kosningar í vor. „Nið-
urstöðumar sýna að síðastliðið
kjörtímabil hefur bærinn safnað
allt of miklum skuldum og rekstrar-
kostnaður bæjarins er allt of mik-
ill. Fjármál bæjarins eru komin á
hættumörk og verður augljóslega
að taka duglega til höndunum að
koma þeim í lag,“ segir Gunnar.
Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins segir að frá
sínum bæjardyrum séð komi af-
skaplega fátt á óvart í þessum nið-
urstöðum. „Þær eru mjög í sam-
ræmi við það sem reikningar þeir
sýndu, sem við vorum búin að fá
fyrir kosningar.“ Hann segir niður-
stöðurnar sýna að heildarskuldir
hafi hækkað mun minna en and-
stæðingar fráfarandi bæjarstjóm-
armeirihluta hafi haldið fram fyrir
kosningar. Hann segir að eigna-
staða bæjarins sé góð, 7,5 milljarð-
ar króna, og að þar sjáist í hvað
peningarnir, skuldaaukningin, hafi