Morgunblaðið - 21.09.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
Kirlqan á Kolfrejjustað brotnaði. Morgunblaðið/Albert Kemp
Kolfreyjustaður:
Messað í
kirkjunni 10
dögiun áður
en hún fauk
„ÉG stóð hérna við stofu-
gluggann og sá þegar kirkjan
lagðist á hliðina. Þetta var um
kl. 19.40 í alveg rosalegu veðri,
mesta veðri sem ég hef séð í þau
35 ár sem ég hef búið hérna,“
sagði Þorleifur Kristmundsson
prófastur að Kolfreyjustað í Fá-
skrúðsfirði.
Þorleifur sagði að togari sem
hefði verið á leið inn fjörðinn hefði
mælt 90 hnúta vind en eflaust hefði
verið enn byljóttara upp við landið
en úti á breiðu hafinu. „Kirkjan
lagðist á hliðina og þess vegna
skemmdist hún mun_ minna en ef
hún hefði fokið af grunninum. Nú
er búið að bera allan viðinn úr
henni í hús nema þakið sjálft og
það verður ótrúlega lítið sem við
þurfum að kaupa af nýjum við í
kirkjuna," sagði Þorleifur.
Hann sagði að ætlunin væri að
ganga frá grunninum í haust og
beðið yrði með frekari framkvæmd-
ir þar til næsta vor. Messað var
reglulega í kirkjunni að Kolfreyju-
stað en kirkjan var byggð 1878 og
er friðuð. Tíu dögum áður en kirkj-
an lagðist á hliðina var haldinn
héraðsfundur að Kolfreyjustað fyr-
ir Austfjarðarprófastdæmi og
messaði þá Þorleifur ásamt séra
Ólafi Skúlasyni biskupi íslands í
kirkjunni þótt búið væri að taka
ytri klæðninguna af kirkjunni.
„Það vildi svo vel til að arkitekt
húsafriðunarnefndar kom hér í
fyrradag, reyndar í öðrum til-
gangi, og þegar hann sá hvað hafði
gerst hjálpaði hann okkur að
merkja timbrið úr kirkjunni. Við
vonum svo að ágætur maður, Hall-
dór Sigurðsson frá Miðhúsum, sem
hafði unnið að endurbótum á kirkj-
unni, sjái sér fært að halda áfram
þeirri vinnu,“ sagði Þorleifur.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Þorleif í gær var að skella
á foráttuveður á ný og var Þorleif-
ur að halda af stað til kaupstaðar
til að birgja heimilið upp af matvör-
um fyrir helgina. „Það er orðið nóg
af svaðilförum. Illviðrin eru
snemma á ferð nú,“ sagði Þorleifur.
VEÐUR
VEÐURHORFURIDAG, 21. SEPTEMBER
YFIRLIT f GÆR: Búist er við stormi á norðausturmiðum, austurmið-
um, Austfjarðamiðum og suðausturmiðum. Milli íslands og Noregs
er hægfara 970 mb iægð en yfir Grænlandi er vaxandi 1028 mb
hæð. Lægðardrag norðaustur af landinu á leiö suðvestur.
SPÁ: Allhvöss norðanátt víða um land fram eftir degi en lægir
annað kvöid, fyrst austan tii. Slydduél og síðar skúrir norðanlands
og austan en léttskýjað nyrðra. Heldur hlýnandí veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAGmorðanátt um ailt land.
Él norðanlands, einkum austan tii, en léttskýjað syðra, Lægír smám
saman. Hiti 2 ti! 7 stig að deginum en víöa taisvert næturfrost.
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * 4
■J 0° Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V E1
= Þoka
— Þokumóða
’, ’ Suld
OO Mistur
—{- Skafrenningur
Þrumuveður
NF
r
▼ ■1 4
VEÐUR VIÐA UM HEIM
Hf» It.VU I hW Ql/ IQh IffffCf veftur
AKureyri 1 ■ slydda
Reykjavik 2 hálfskýjað
Bergen 8 skýjaö
Helsinki 10 rlgning
Kaopmannahöfn vantar
Narssarssuaq 4 léttskýjaö
Nuuk 3 heiðskírt
Ósló 13 skýjað
Stokkhólmur 13 skur
Þörshöfn i m bálfskýjað
Algarve 24 skýjað
Amsterdam vantar
Barcelona 24 rigning
Berlín 11 skúr
Chtoago 9 léttskýjað
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 14 skýjað
Qlasgow 24 rignlng
Hamborg 10 skúr
las Palmas 26 léttskýjað
London 13 rigning
LosAngeles 19 skýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Madnd 27 léttekýjað
Malaga 29 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 11 skúr
NewYork 16 heiðskirt
Orlando 23 skýjað
París 18 alskýjað
Róm 2S skýjað
Vín 22 féttskýjað
Washington 18 alskýjað
Wlnnipeg 10 alskýjað
Norðlendingar og Reyðfírðingar:
Fullyrðingar um yfír-
burði Keilisness rangar
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélag Austur-
lands telja að skýrsla Atlantsáls um staðarval fyrir álver, sýni
ekki marktækan mun á stofn- og rekstrarkostnaði milli staða, og
því sé ljóst að fullyrðingar ráðamanna um yfirburði Keilisness séu
beinlínis rangar.
Yfirlýsing þessa efnis var sam-
þykkt á sameiginlegum fundi fé-
laganna á Reyðarfirði á miðviku-
dag. Er þar byggt á úttekt ver-
fræðistofunnar Hönnun og ráðgjöf
á Reyðarfirði, á skýrslu Meemo
Trepp fyrir Atlantsál, sem dagsett
er í ágúst í sumar.
í úttekt stofunnar er helstu
ályktunum skýrsluhöfundarins
mótmælt, og komist að þeirri nið-
urstöðu, að ýmsir kostnaðarþættir
því samfara að reisa álver á Leir-
um við Reyðarfjörð séu ofmetnir.
Meðal annars hafi ekki verið tek-
inn inn stofnkostnaður við höfn,
við mat á heildarfjárfestingu. Mið-
að við það, sé stofnkostnaður á
Reyðarfirði minnstur, eða sem
nemur 1,7 milljónum Bandaríkja-
dollara, eða um 100 milljónum
króna. Og sé áætluðum auka-
kostnaði, sem Reyðfirðingar segja
að sé óraunhæfur, haldið utan við,
lækki samanburðurinn um 18,4
milljónir bandaríkjadollara, sem
þýði að stofnkostnaður á Leirum
verði lægstur sem nemi 20,1 millj-
ón dollara eða tæpum 1.200 millj-
ónum króna.
Hönnun og ráðgjöf gagnrýnir
fleira í staðarvalsskýrslunni. Með-
al annars sé þar bent á að álver
á Grundartanga muni hafa óæski-
leg áhrif á búsetuþróun landsins,
en ekkert sé minnst á slík áhrif
varðandi staðarval á Keilisnesi.
Þá sé fjallað um jarðskjálftahættu
á Keilisnesi, en ekki verði séð að
mat sé lagt á aukakostnað vegna
hennar, í formi hærri trygginga-
riðgjalds eða áhættu á neinn hátt.
Þá séu fasteignagjöld á Leirum
talin vera hærri en á Keilisnesi eða
Dysnesi, án þess að rök séu færð
fyrir þeirri fullyrðingu.
Forsætisráðherra ritar Frakklands-
forseta bréf:
Biður um stuðning til að
fá fellda niður tolla af
íslenskum sjávarafurðum
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra, hefur ritað Franco-
is Mitterrand, Frakklandsforseta, bréf þar sem hann óskar eftir að
Frakklandsforseti beiti áhrifum sinum til að bandalagið fallist á
samninga um niðurfellingu tolla af islenskum sjávarafurðum.
Minnir forsætisráðherra í bréfi
sínu á blaðamannafund Prakk-
landsforseta hér á landi 29. ágúst
sl. þar sem Mitterrand sagðist m.a.
gera sér fulla grein fyrir sérstöðu
Islands og að erfitt væri fyrir ís-
lendinga að deila fiskveiðum með
öðrum því að lífsafkoman byggðist
á þeim.
Þá segir forsætisráðherra í bréfi'
sínu að það sem ísland hafi lagt
áherslu á undanfarin ár er að semja
við bandalagið um að það felli niður
þá tolla sem enn eru innheimtir af
innfluttum sjávarafurðum íslend-
inga án þess að bandalagið geri
kröfu um fiskveiðiréttindi við ís-
land.
Framkvæmdastjórn EB fari með
samninga við ríki utan bandalagsins
og þurfi hún að leggja tillögu um
samningsumboð sér til handa fyrir
ráðherraráð bandalagsins til sam-
þykktar áður en samningaviðræður
geta hafist. Þegar um tolla á sjávar-
afurðum sé að ræða þurfi slík til-
laga að hljóta samþykki ráðherra-
Maður lést
í vinnuslysi
AXEL Davíðsson, 68 ára gamall
lést í fyrrinótt á sjúkrahúsi eftir
að hafa orðið fyrir vinnuslysi á
Kefiavíkurflugvelli.
Ekki voru sjónarvottar að slysinu
en talið er að Axel hafi fallið úr
stiga eða af palli þar sem hann var
við vinnu í vöruskemmu Varnarliðs-
ins. Hann var fluttur á sjúkrahús
og lést þar skömmu síðar.
Axel Davíðsson var búsettur á
Vesturgötu 40 í Keflavík og starf-
aði sem trésmiður í birgðadeild
Vamarliðsins. Hann var kvæntur
og lætur eftir sig fimm uppkomin
börn.
ráðs bandalagsins, skipuðu sjávar-
útvegsráðherrum þess.
Síðan segir í bréfi forsætisráð-
■herra: „í framhaldi af framan-
greindum ummælum yðar og með
hliðsjón af óskum sem fram hafa
komið á Islandi leyfi ég mér að
fara þess á leit við yður, herra for-
seti, að þér beitið áhrifum yðar til
þess að framkvæmdastjórn banda-
lagsins leggi fyrir ráð þess til sam-
þykktar tillögu að samningsumboði
við ísland þar sem framkvæmda-
stjórn verði hejmilað að ganga til
samninga við ísland um að tollar
verði felldir niður af öllum útflutn-
ingi sjávarafurða íslendinga til ríkja
Evrópubandalagsins án þess að
nokkrar kröfur verði gerðar um
aðgang fiskiskipa frá bandalaginu
af fiskimiðunum innan 200 sjómílna
fiskveiðilögsögu íslands.
Ég leyfi mér að þakka yður fyrir-
fram fyrir framgöngu yðar í þessu
máli, herra forseti, og vænti þess
að heyra frá yður hið fyrsta.“
Axel Davíðsson.