Morgunblaðið - 21.09.1990, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
13
að standa undir eigin rekstri.
Eins og fyrr segir er útvarpsstjór-
inn kominn út á hála braut þegar
hann fer að ræða fjármál stofnunar-
innar.
Það væri til að mynda gaman
að vita hvað réttlætir mun tíðari
ferðalög starfsmanna hans til út-
landa, en hjá samkeppnisaðilum.
Má hér nefna innkaupaleiðangra
vegna dagskrár sjónvarps til staða
eins og Moskvu, Parísar og fleiri
borga fyrir utan alla þá reglulegu
markaði sem viðkomandi starfs-
mönnum er ætlað að sækja, en
þeir eru mun fleiri en þeir innkaupa-
markaðir sem starfsmenn Stöðvar
2 og Sýnar hafa nokkurn tíma fund-
ið sig tilknúna að bera sig eftir
þrátt fyrir helmingi meiri innkaup.
En það verður kannski að virða
viðkomandi starfsmenn og stofnun-
ina í slíkum málum, enda óhægt
um vik að greiða starfsmönnum þau
laun sem þeir geta verið sáttir við
og því mun þægilegra gagnvart
okkur hinum að horfa framhjá
svona smáræði ef það hugsanlega
getur sefað óánægju viðkomandi
um stundarsakir.
Að lokum óska ég Markúsi far-
sældar í starfi og vona að hann
eigi eftir að kynnast betur innviðum
eigin fyrirtækis áður en yfir lýkur.
Höfundur er sjónvnrpsstjóri
Sýnar.
__________Brids_______________
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Barðstrend-
ingafélagsins
Vetrarstarfið hefst mánudaginn
24. sept. nk. í Skipholti 70 (2.
hæð) með einskvöldstvímenningi.
Mánudaginn 1. okt. hefst aðal-
tvímenningur, 5 kvölda. Keppni
hefst stundvíslega kl. 19.30 öll
mánudagskvöld.
Þátttaka er öllum heímil.
Spilastjóri í vetur verður Sigurð-
ur Vilhjálmsson.
Þátttökutilkynningar og upplýs-
ingar hjá Ólafi í síma 71374.
Hjónaklúbburinn
Starfsemi félagsins hefst þriðju-
daginn 25. sept. með 1 kvölda tví-
menningi og síðar hefst 3ja kvölda
tvímenningur. Spilað verður í húsi
bridssambandsins í Sigtúni 9, og
hefst spilamennska kl. 19.30. Spil-
arar geta skráð sig í síma 22378
(Júlíus). Nýir félagar velkomnir.
Bridsfélag kvenna
Aðalfundur félagsins var haidinn
17. sept. sl. Mjög góð mæting var.
í stjórn voru kosnar Ólína Kjartans-
dóttir (formaður), Brynhildur Matt-
híasdóttir (gjaldkeri) og Sigríður
Möller (ritari). 24. sept. hefst síðan
3ja kvölda tvímenningur og þar á
♦
♦
eftir hefst síðan barometerinn vin-
sæli (4-6 kvöld). Hægt er að skrá
sig í síma 32968 (Ólína) og 82254
(Brynhildur). Allar konur eru vel-
komnar.
Bridsdeild
Rangæingafélagsins
Miðvikudaginn 26. sept. hefst
spilamennskan hjá deildinni með
verðlaunafhendingu og eins kvölds
tvímenningi.
Gamlir og nýir félagar eru vei-
komnir og hváttir til að mæta í
Ármúla 40, 2. hæð, ekki seinna en
kl. 19.3.
Hreyfill - Bæjarleiðir
Vetrarstarf bílstjóranna hefst
mánudaginn 24. september með
tvímenningskeppni. Spilað verður
að venju í Hreyfilshúsinu við Grens-
ásveg. Spilamennska hefst kl.
19,30.
KongoROOS
kuldaskór m/riflás
Stærðir 25-39
Litur svartur
Verð frá kr.
3.995,-
5% staðgr. afsl.
Póstsendum samdægurs
—''SKORUÍÍÍ
VELTUSUND11
21212
Kringlunni,
sími689212
Domus Medica
S.18519.
NÚ ER HANN TVÖFALDUR
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
M . . *