Morgunblaðið - 21.09.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
21
Viðræður EFTA og Evrópubandalagsins:
EFTA-ríkin geta haft
strangari reglur en EB
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Á fundi yfirsamninganefnda
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagsins
(EB) í Brussel í gær féllust samn-
ingamenn EB á að EFTA- ríkin
gætu haldið strangari reglum
vegna heilbrigðiskrafna, um-
hverfismála, og öryggis á vinnu-
stöðum fyrir sig. Með þessu hef-
ur fyrsta skarðið verið höggvið
í fyrirvara EFTA-ríkjanna sem
fram að þessu hafa tafið mjög
samningaviðræðurnar um evr-
ópska efnahagssvæðið, (EES).
Samþykki EB þýðir í rauninni
að íslendingar geta t.d. látið þær
íslenskar reglur sem ganga lengra
en reglur EB gilda um innlenda
framleiðslu en óheimilt væri að
beita þeim til að takmarka innflutn-
ing frá einhverju EB-ríki. Haft er
eftir háttsettum embættismanni í
samningaviðræðunum að þessi eft-
irgjöf EB hafi aðeins táknræna
þýðingu og breyti þess vegna engu
um niðurstöður viðræðnanna en
geti vissulega liðkað viðræður
næstu vikna.
Samkvæmt óstaðfestum lista yfir
fyrirvara EFTA-ríkjanna sem
sænska dagblaðið Dagens Nyheter
Franz Blankart, aðalsamninga-
maður Sviss.
birti í fýrradag styttist listinn a.m.k.
tímabundið um tæpan helming við
þessa eftirgjöf EB. Eftir standa
fyrirvarar sem varða m.a. fjárfest-
ingar útlendinga, vinnumarkaði,
opinbera þjónustu og samgöngur
auk átta annarra viðlíka umfangs-
mikilla málaflokka.
Franz Blankart, aðalsamninga-
maður Sviss og talsmaður EFTA í
samningunum þetta misseri, sagði
á fundi með blaðamönnum í Bruss-
el að EFTA-ríkin væru ekki tilbúin
til að ræða einstaka fyrii-vara. Þá
yrði að ræða í beinum tengslum við
þau áhrif sem EFTA-ríkjunum
væru ætluð á stjórn og ákvarðanir
er snertu evrópska efnahagssvæðið.
Heimildarmenn herma að
EFTA-ríkin leggi áherslu á það á
þessum fundi að fá af hálfu EB
vilyrði fýrir aðild EFTA að starfs-
nefndum framkvæmdastjórnarinn-
ar sem, ákveða framkvæmd ein-
stakra reglugerða s.s. gildissvið
þeirra. í staðinn munu EFTA-ríkin
tilbúin til að draga úr skýlausum
kröfum um aðild að ákvörðunum
EB auk þess að semja um lausn á
þeim fyrirvörum sem standa samn-
ingum fyrir þrifum. Fundi yfir-
samninganefndanna lýkur í Brussel
í dag, föstudag, en af íslands hálfu
sitja fundinn sendiherrarnir Hannes
Hafstein, Einar Benediktsson og
Kjartan Jóhannsson auk Gunnars
Snorra Gunnarssonar, sendifulltrúa
í sendiráði Islands í Brussel.
Bandaríkin:
Vaxtalækkun ekki yfirvofandi
Washington. Reuter.
ALAN Greenspan, bankastjóri
bandariska seðlabankans, sagð-
ist í gær áhyggjufullur um
framtíð bandarískra efnahags-
mála og vaxandi óvissu á þeim
vettvangi vegna stríðsástandsins
við Persaflóa. Gaf hann til kynna
í fyrirspurnatíma á Bandaríkja-
þingi að lækkun vaxta væri ekki
yfirvofandi.
Greenspan sagði að verðhækkun
á olíu eftir innrás íraka í Kúvæt
yki hættuna á kreppu í bandarísku
efnahagslífi. Einnig hefði hún á
svipstundu gert að engu vonir
manna um að draga færi úr verð-
bólgu.
Greenspan sagðist ekki sjá bein
merki þess að kreppu væri farið að
Alan Greenspan.
gæta í efnahagslífinu en sagðist
jafnframt ekki geta útilokað
kreppu. Stríðsástandið við Persa-
flóa yki hættuna á kreppu stórum
vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkti
um framvindu þess. Sérfræðingar
í efnahagsmálum töldu ummæli
Greenspans þess eðlis að ekki væri
að vænta vaxtalækkunar í bráð.
Til þess að sporna við verðbólgu
hefur seðlabankinn beitt aðhalds-
stefnu til þess að koma í veg fyrir
aukningu útlána. Talið hefur verið
að slakað yrði á klónni til þess að
hleypa auknum þrótti í efnahagslíf-
ið. En meðan hætta er á aukinni
verðbólgu og engin sýnileg merki
samdráttar er að sjá segja sérfræð-
ingar að vaxtalækkunar sé ekki að
vænta.
Bændur - jardeigendur!
Óskum eftir að kaupa jörð í Árnes- eða Rangár-
vallasýslu. Þarf ekki að vera vel hýst eða með
miklu búmarki.
Vinsamlega sendið upplýsingar á auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „Jörð á Suðurlandi - 3200“
fyrir 1. október nk.
UflPPPRyillA
HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Á medan sýningin stendur yfir bjóða Flugleiðir sérstakan afslátt á innanlandsflugi fyrir
sýningargesti utan af landi. Nánari upplýsingar fást hjá ferðaskrifstofum,
sölumönnum og umboðsmönnum um land allt.
FLUGLEIÐIR
Opið 10 - 18 alla daga
m\M A HEIMMLIKVARM
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN, sem nú er
haldin í þriðja sinn í Laugardalshöll, hefur fest sig í sessi
sem alþjóðleg stórsýning á sviði sjávarútvegs. Sýningin í
ár verður glæsilegri en nokkru sinni fyrr og er von á þús-
undum gesta hvaðanæva að úr heiminum. Á 10 þúsund
fermetra rými munu á fimmtahundrað íslenskra og er-
lendra sýnenda kynna allar helstu nýjungarnar í veiðum,
vinnslu og markaðssetningu sjávarfangs..
I