Morgunblaðið - 21.09.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
25
Kökubox og
krystallá
flóFEF
SÍÐASTI haustmarkaður Félags
einstæðra foreldra nú verður á
morgun, laugardag 22. september
og hefst að venju kl 2 e.h. í Skelja-
nesi 6.
Á flónni nú er mikið úrval eldhúsá-
halda, bökunarforma og gamalla
skrautlegra kökuboxa. Postulínsskál-
ar og gamlar bjórkrúsir úr tini má
nefna og hvers kyns skart og skraut-
munir. Að venju er mikið af góðum
og einatt kúnstugum fatnaði á bæði
kyn á öllum aldri. Er sérstaklega
ástæða til að geta þess að sett hefur
verið upp sérstök deild með yfírhöfn-
um feldum og skinnkápum fyrir vet-
urinn, segir í fréttatilkynningu frá
FEF. Eldri jólakort FEF fást með
vildarkjörum.
Sem fyrr rennur ágóði óskiptur til
að standa straum af húsum félagsins.
Lionskonur vinna að undirbúningi sölu á „Poka-pésa“.
„Poka-pési“ í fimmta sinn
ÁRLEG haustfjáröflun Lionsklúbbsins Eirar í Reykjavík fer nú af stað
í fimmta sinni, undir heitinu „Poka-pési“. Plastpokapakkningin „Poka-
pési“ er orðin nokkuð þekkt hér á Reykjavíkursvæðinu, enda aufúsu-
gestur á mörgum heimilum.
Andvirði „Poka-pésa“ hefur runn-
ið óskipt til líknarmála. Borgarbúar
hafa tekið sölukonum vel og á þann
hátt veitt þeim lið, sem um sárt eiga
að binda.
„Poka-pési“ hefur undanfarin ár
stutt asmaveik börn, Blindrabókasaf-
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
20. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 102,00 88,00 92,37 4,187 386.740
Þorskursmár 70,00 70,00 70,00 0,191 13.370
Ýsa 110,00 88,00 104,43 4,493 469.205
Ufsi 39,00 39,00 39,00 0,362 14.118
Steinbítur 70,00 65,00 66,49 0,275 18.285
Lúða 365,00 295,00 351,63 0,075 26.548
Samtals 96,53 9,657 932.233
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskursl. 114,00 91,00 95,44 37,670 3.595.117
Þorskursmár 85,00 85,00 85,00 1,306 111.010
Ýsa sl. 143,00 91,00 115,49 13,941 1.610.062
Grálúða 64,00 64,00 64,00 1,032 66.048
Karfi 45,00 22,00 40,36 1,570 63.367
Keila 29,00 29,00 29,00 0,301 8.729
Langa 74,00 48,00 66,53 4,348 289.265
Lúða 500,00 238,00 350,64 0,503 176.370
Saltfiskflök 155,00 115,00 138,86 0,167 23.190
Skata 155,00 150,00 153,33 0,348 53.360
Skarkoli 84,00 20,00 75,25 6,218 467.942
Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,034 6.800
Steinbítur 85,00 63,00 67,93 1,581 107.391
Ufsi 53,00 33,00 42,55 3,207 136.486
Undirmál 82,00 25,00 77,35 1,961 151.684
Samtals 92,51 74,283 6.871.687
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 130,00 50,00 105,54 35,038 3.733.035
Ýsa 111,00 75,00 97,00 6,618 641.917
Karfi 52,00 19,00 49,27 8,503 418.975
Ufsi 45,00 20,00 37,71 3,883 ' 146.447
Steinbitur 83,00 44,00 73,45 1,080 79.328
Lax 200,00 200,00 200,00 0,035 7.000
Langa 59,00 47,00 54,86 ' 2,911 159.698
Lúða 405,00 33,00 344,95 0,623 214.733
Skarkoli 63,00 63,00 63,00 0,025 1.575
Koli 78,00 73,00 75,74 0,104 7.877
Hákarl 112,00 112,00 112,00 0,061 6.832
Keila 38,00 29,00 31,99 4,373 139.894
Bleikja 206,00 206,00 206,00 0,026 5.356
Skata 93,00 87,00 91,18 0,097 8.844
Skötuselur 275,00 112,00 144,60 0,025 3.615
Samtals 87,88 63,466 5.577.445
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA
GÁMASÖLUR í Bretlandi 20. september
Þorskur 207,49 141,16
Ýsa 202,39 136,06
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 20. september.
Þorskur 219,66 87,86
Ýsa 180,05 93,62
Ufsi 91,46 72,02
Karfi 123,15 64,82
Olíuverö á Rotterdam-markaði
1. ág. -19. sept., dollarar hvert tonn
nið, Fæðingarheimili Reykjavíkur,
Fíkniefnalögregluna, Vímulausa
æsku, Kvennaathvarfið, Hjarta- og
lungnastöð, Heilsuverndarstöð —
öldrunardeild, Seljahlíð — vistheimili
fyrir aldraða, Krabbameinsfélagið —
heimahlynningu.
Þar fyrir utan hafa einstaklingar,
sem staðið hafa í miklum bágindum
og þrengingum, fengið umtalsverðan
stuðningfrá „Poka-pésa“. Lionsklúb-
burinn Eir í Reykjavík var stofnaður
12. janúar 1988, en hét áður Lio-
nessuklúbburinn Eir.
Stjórn klúbbsins skipa nú í ár:
Jóna Ólafsdóttir, forntaður. Bjartey
Friðriksdóttir, ritari. Guðlaug Ingi-
bergsdóttir, gjaldkeri.
(Úr fréttatilkynningu)
Þórsmerkurgöngunm
lýkur um helgina
ÞÓRSMERKURGANGAN kemur í hlað í Básum á laugardag 22. sept-
ember. Raðgangan hófst 14. janúar siðastliðinn við skrifstofu Utivistar
i Grófinni 1 og hefur leiðin verið gengin í 17 áföngum.
Ráðstefna
um nýöldina
RÁÐSTEFNA um nýaldarmál
verður haldin í ráðstefnusal Hót-
el Loftleiða á morgun, laugar-
daginn 22. september, og hefst
klukkan 14. í framhaldi af ráð-
stefnunni verður kvöldsamkoma,
þar sem boðið verður upp á upp-
lestur úr ýmsum nýaldarbók-
menntum o.fl., en samkomunni
lýkur laust eftir miðnætti, með
athöfn sem tengist jafndægri á
hausti. Ráðstefnan er opin öllu
áhugafólki um nýaldarmál og er
dagskráin sem hér segir:
Klukkan 14 setning, Rafn Geir-
dal skólastjóri. Klukkan 14.30 frétt-
ir af Alþjóðaráðstefnu miðla, erindi
Guðmundar Einarssonar verkfræð-
ings. Klukkan 15.30 Lifðu í gleði,
erindi Guðrúnar G. Bergmann,
framkvæmdastjóra Betra lífs.
Klukkan 16.30 Tíbet horðursins,
erindi Þorsteins Bárðarsonar móts-
stjóra Snæfellsássmótsins. Klukkan
17.30 Tengsl móður jarðar og
heilsufars manna, erindi Hallgríms
Þorsteins Magnússonar læknis.
Klukkan 18.30 matarhlé. Klukkan
21 kvöldsamkoma með upplestri,
spjalli o.fl., sem lýkur með sér-
stakri athöfn um miðnætti er teng-
ist jafndægri á hausti.
Ráðstefnugjald er 1.000 krónur
fyrir manninn. (Frcttatiikynning)
■ NÝfélagsmiðstöð, Selið, verður
opnuð við Suðurströnd á Seltjarn-
arnesi (í kjallara heilsugæslustöðv-
arinnar)! kvöld klukkan 20.30. Á
eftir leikur Risaeðlan fyrir dansi.
Góð þátttaka hefur verið í Þórs-
merkurgöngunni allt frá byrjun og
hefur myndast um 30 manna kjarni
sem hefur hvorki látið stórhríð né
önnur válynd veður aftra sér frá
þátttöku í göngunum. Athyglisvert
er að stærsti hluti þeirra tæplega
1.000 þátttakenda í Þórsmerkur-
göngunni er fólk sem gengið hefur
í félagið á þessu ári.
Göngumenn hafa lent í ýmsum
ævintýrum á leið sinni inn í Bása.
Þeir hafa þurft að ösla yfir ár og
sprænur, verið feijaðir yfir stórfljót
við forna feijustaði og jafnvel fengið
heimsókn aftur úr fortíðinni en þar
voru á ferð félagar úr Leikfélagi
Selfoss, sem brugðu sér í gervi 19.
aldar ferðafólks við hinn forna feiju-
stað yfir Ölfusá við Laugardælur.
Gengnar hafa verið gamlar þjóðleiðir
og hafa göngumenn kynnst athyglis-
verðum stöðum sem nú liggja utan
alfaraleiða. Einnig hafa göngumenn
kynnst staðarmönnum sem hafa ver-
ið leiðsögumenn hópsins uin heima-
slóðir sínar.
Síðasti áfanginn, sem genginn
verður núna á laugardaginn, hefst
við jökullónið við Fjalljökul og verður
gengið áfram inn með hlíðum Eyja-
fjallajökuls og skoðaðar gjár og gil,
jökullón og önnur náttúruundur sem
Þórsmerkurfarar gefa sér að öðru
jöfnu ekki tíma til að staldra við.
Að kveldi laugardags tekur göngu-
hópurinn síðan þátt í grillveislu í
Básum, en þessa helgi er hin árlega
haustlita- og grillveisluferð Utivistar.
í Básum verður mikið um áð vera
þetta kvöld. Eftir sameiginlega grill-
máltíð verður heilmikil kvöldvaka við
varðeld. M.a. verða afhent viður-
kenningarskjöl og verðlaun fyrir
góða þátttöku í Þórsmerkurgöngunni
og einnig mun nýkjörin «skemmti-
nefnd» Þórsmerkurgöngunnar
standa fyrir sérstakri dagskrá.
Þeir sem vilja vera með í þessari
síðustu ferð Þórsmerkurgöngunnar
geta valið um að fara frá Reykjavík
á föstudagskvöld og gista í Básum
eða þá að leggja af stað að morgni
laugardags. Til baka er hægt að fara
á laugardagskvöld og einnig á sunnu-
dag. Einnig er boðið upp á dagsferð
á laugardag og verður þá haldið til
baka seint á laugardagskvöld að lok-
inni grillveislu. Ollum farþegum Úti-
vistar, sem eru í Básum á sunnudags-
morgni, er boðið að taka þátt í fyrsta
áfanga Reykjavíkurgöngunnar á
sunnudag, göngu á Þríhyrning, án
nokkurs aukakostnaðar.
Vegna mikilla vinsælda Þórsmerk-
urgöngunnar og fjölda áskorana,
hefur verið ákveðið að láta ekki stað-
ar numið í Þórsmörk, eða réttara
sagt í Básum í Goðalandi, eins og
svæðið heitir sunnan Krossár, heldur
snúa við og taka fyrir valda staði á
leiðinni úr Fljótshlíð til Reykjavíkur.
Ekki verður um samfellda göngu að
ræða eins og tilfellið var með Þórs-
merkurgönguna heldur verða valdir
forvitnilegir staðir og áhugaverðar
gönguleiðir í uppsveitum Rangár- og
Árnessýslu. Fyrsta ferðin í
Reykjavíkurgöngunni verður farin
næstkomandi sunnudag, 23. sept-
emeber, og verður sem fyrr sagði
gengið á Þríhyrning. Gengið verður
upp frá Vatnsdal á suð-vesturhornið
og geta gönguglaðir skokkað upp á
hin hornin á meðan þeir rólegri njóta
útsýnisins af vesturhorninu. Lagt
verður af stað í ferðina frá Reykjavík
kl. 9.00 um morguninn frá BSÍ-
bensínsölu og úr Básum kl. H. Rút-
an úr Reykjavík stansar við Árbæjar-
safn,-við Fossnesti á Selfossi kl. 10,
Grillskálann á Hellu kl. 10.30 og við
Hlíðarenda á Hvolsvelli kl. 11.
í öðrum áfanga Reykjavíkur-
göngunnar eftir hálfan mánuð, verð-
ur gengið um Krappann, perlu fyrir
ofan Vallarkrók sem fáir þekkja.
Verður gengið frá Fiská upp með
Rangá og Tungufoss skoðaður. Síðan
verður haldið áfram upp Krappa og
að Keldum.
Atriði úr leikritinu „Virgill litli“
sem Leikfélag Kópavogs sýnir.
Leikfélag Kópavogs:
Sýningar hefj-
ast aftur á
„Virgill litliu
í FEBRÚAR sl. frumsýndi Leik-
félag Kópavogs leikritið „Virgill
litli“ eftir hinn vinsæla danska
barnabókahöfund Ole Lund
Kirkegaard. Leikstjóri var Ásdís
Skúladóttir, Gerla _ gerði leik-
mynd og Egill Örn Árnason lýsti
sýninguna.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
þýddi verkið og samdi auk þess fjör-
ug lög og skemmtilega söngva við
verkið þannig að segja má að Virg-
ill sé orðinn að nokkurs konar söng-
leik í þessari uppsetningu.
Leiksýningin hlaut svo góðar við-
tökur að nauðsynlegt er að sýna
bæði á sunnudögum og laugardög-
um, tvær sýningar báða dagana.
Nú eftir sumarfrí hefur því verið
ákveðið að taka Virgil aftur til sýn-
inga. Fýrsta sýning verður nk. laug-
ardag 22. september klukkan 14
og önnur sýning sama dag klukkan
16.30. Á sunnudeginum verða sýn-
ingar á sama tíma.
Afmæliskveðja:
m
Emil Björnsson
Séra Emil Björnsson fyrrverandi
prestur Óháða safnaðarins og
fréttastjóri RíkisútVarps og Sjón-
varps er 75 ára í dag.
Sr. Emil er þjóðkunnur maður
og segja má að hann hafi lyft mörg-
um „Grettistökum" á farsælli
starfsævi. Hann vann brautryðj-
endastörf í fréttamennsku hjá út-
varpi og sjónvarpi hér á landi og
hann vann það stórvirki, ásamt
mörgum öðrum dyggum samherj-
um, að byggja upp fríkirkjusöfnuð
og veita honum forystu í 34 ár sam-
fleytt.
Þegar safnaðarfólk Óháða safn-
aðarins hélt upp á 40 ára afmæli
safnaðarins sl. vor, afhenti sr.
Emil söfnuðinum að gjöf handrit
af sögu safnaðarins, sem hann hafði
tekið saman og útbúið til prentun-
ar. Sr. Emil færði söfnuðinum þá
dýrmætustu gjöf, sem hægt er að
fá við slíkt tækifæri: Nákvæma frá-
sögn í mynd og máli af undirbún-
ingi, stofnun og starfi safnaðar,
sem um miðja öldina steig öruggum
og fijálsum skrefum út í íslenskt
samfélag og vann sér þar sess með
farsælu starfi á akri Drottins.
Undirbúningur er þegar hafinn
að útgáfu ritsins og mun það verða
tilbúið til prentunar í vetur og koma
út á vordögum næsta árs.
Safnaðarfólk Óháða safnaðarins
færir sr. Etnil og frú Álfheiði bestu
afmæliskveðjur og biður afmælis-
barninu áframhaldandi bata og
góðrar heilsu á ævikvöldinu.
Þórsteinn Ragnarsson,
safnaðarprestur.