Morgunblaðið - 21.09.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
Tónlistarfélag Akureyrar:
Emil og Þórarinn leika
á fyrstu tónleikunum
FYRSTU tónleikarnir á vegum Tónlistarfélags Akureyrar verða
haldnir á sal Tónlistarskóla Akureyrar á morgun, laugardag, og
hefjast þeir kl. 17. Fram koma á tónleikunum þeir Emil Friðfinnsson
og Þórarinn Stefánsson. Vetrarstarf félagsins er þar með hafið, en
alls verða haldnir fimm tónleikar í vetur.
Þeir Emil og Þórarinn stunduðu
báðir nám við Tónlistarskólann á
Akureyri og luku stúdentsprófi af
tónlistarbraut Menntaskólans á Ak-
ureyri á árunum 1984 og ’85. Þá
héldu þeir suður til náms við Tón-
listaskóla Reykjavíkur þar sem þeir
luku einleikaraprófi árið 1987. Þeir
stunda nú framhaldsnám í Þýska-
landi, Emil við Tónlistarháskólann
í Essen hjá prof. Hermann Baumann
og Þórarinn í Hannover hjá prof.
Landsfundur
Bókavarðafé-
lagsins á KEA
Eriku Hasse. Emil hefur starfað sem
hornleikari með Sinfóníuhljómsveit
íslands í eitt ár og Þórarinn hefur
víða komið fram sem einleikari og
meðleikari og gert upptökur fyrir
útvarp og sjónvarp.
Næstu tónleikar Tónlistarfélags
Akureyrar verða í október þegar
franski orgelleikarinn Louis Thiry
leikur í Akureyrarkirkju, Arnaldur
Arnarson gítarleikari kemur fram á
þriðju tónleikum félagsins í janúar
og í mars Jónas Ingimundarson
píanóleikari, en síðustu tónleikar
félagsins á komandi starfsári verða
ljóðatónleikar Margrétar Bóasdótt-
ur sópran og Kristins Arnar Krist-
inssonar píanóleikara, sem haidnir
verða í tengslum við kirkjulistaviku
í apríl.
+
*
A vélsleða yfir Eyjafjarðará
Vélsleðakapparnir Vilhelm Vilhelmsson og Arnar Valsteinsson fóru létt með að sigla vélsleða yfir Eyja-
Ijarðará, milli þess sem þeir kepptu í sandspyrnu skammt frá Akureyri. Fjöldi áhorfenda fylgdist með
keppninni sem fór fram á sunnudaginn.Ólafur Pétursson vann tvo flokka á sérsmíðaðri spyrnugrind, Helgi
Schiöth í jeppaflokki, Sigurður Ólafsson í flokki standardjeppa og Jón Björn Björnsson vann flokk mótor-
hjóla. Vélsleðamennirnir Vilelm og Arnar bíða óþreyjufullir eftir snjókomu og nota á meðan vatnsfleti og
sanda til að halda sér í æfingu, eins og sjá mátti um helgina. Meðfylgjandi mynd tók Gunnlaugur Rögn-
valdsson af vélsleðaköppunum Vilhelm Vilhelssyni og Arnari Valsteinssyni.
Tilboð Gunnars Þórs Magnússonar í Hraðfrystihús Ólaísfjarðar:
Hluta fj ár sj ó ður hafnar tilboðinu
og bæjarsjóður einnig að svo stöddu
BÆJARSJÓÐUR ÓlafsQarðar hafnar að svo stöddu tilboði Gunnars
Þórs Magnússonar í hlutabréf Hraðfrystihúss Ólafsíjarðar, en Gunn-
ar Þór bauð í hlutabréfín fyrir hönd útgerðarfélaganna Stíganda
og Sædísar. Hlutafjársjóöur sem á meirihluta hlutabréfanna hafnar
tilboðinu einnig, en yfirlýsingar þar um voru lesnar upp á hluthafa-
fundi sem haldinn var í fyrrakvöld. Forseli bæjarstjórnar Ólafsíjarö-
ar segir að verið sé að taka á máluin HÓ í tíma, fyrirtækið stefni í
þrot innan nokkurra ára verði ekki eitthvað gert, en helsti vandi
þess sé að veiðiheimildir togarans Ólafs-Bekks ÖF séu ekki nægileg-
ar. Kaupfélag Eyfirðinga hefur lýst áhuga sínum á fyrirtækinu og
er líklegt að stjórn HÓ ræði við fulltrúa KEA í næstu viku.
TÍUNDI landsfundur Bókavarða-
félags Islands verður haldinn á
Hótel KEA um helgina, en lands-
fundir eru haldnir annað hvert
ár. Megintilgangur fundanna er
að bókaverðir hvaðanæva af
landinu hittist og beri saman bæk-
ur sínar um það sem efst er á
baugi í málefnum bókavarða
hverju sinni.
Fundurinn verður settur á morg-
un, laugardag, og verður m.a. fjallað
um skýrslu sem unnin var fyrir
menntamálaráðuneytið um stefnu-
mörkun í bókasafna- og upplýsinga-
málum á íslandi. Gerð verður grein
fyrir efni skýrslunnar og munu full-
trúar bókasafna ijalia um hana og
benda á það sem betur mætti fara.
á fundinum mun Ágústína Ingv-
arsdóttir framkvæmdastjóri Stjórn-
sýslufræðslu ríkisins fjalla um ai-
mannatengsl, mannleg samskipti og
sjálfsvirðingu. Halldór Árnason for-
maður Gæðastjórnunarfélags íslands
heldur fyrirlestur um gæðastjórnun
með megináherslu á gæði opinberrar
þjónustu og þá mun Þórir Ragnars-
son bókavörður á Háskólabókasafni
kynna tölvuvæðingu Þjóðarbókhlöð-
unnar og hagnýtt gildi hennar fyrir
bókasöfn landsins.
Fréttatilkynning
Jón Þórðarson formaður stjórnar
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar, en
hánn situr í stjórninni fyrir hönd
Hlutafjársjóðs, sagði að á fundinum
hefðu verið lesnar upp yfirlýsingar
annars vegar frá Hlutafjársjóði þar
sem fram kemur að sjóðurinn hafn-
aði tilboði Gunnars Þórs Magnús-
sonar og hins vegar frá bæjarsjóði
Ólafsfjarðar sem einnig hafnar til-
boði hans að svo stöddu, eins og
það er orðað. Fyrir liggur ósk Kaup-
félag Eyfirðinga um viðræður við
stjórn félagsins með það í huga að
gera tilboð í hlutabréfin. „Við svör-
um öllum fyrirspurnum sem til okk-
ar berast og ég reikna með að við
munum ræða við fulltrúa KEA í
næstu viku,“ sagði Jón.
Hann sagði að Hlutafjársjóður
vildi gjarnan selja hlutabréf sín í
fyrirtækinu, en sjóðudnn á 49%
hlutafjár í félaginu. Lögum sam-
Hrakið hey
átúnum
SEINNI sláttur einhverra bænda
í Eyíjafirði er enn úti og er hey
því orðið mjög hrakið og fóður-
gildi því lítið. Á Norðurlandi
hefur snjóað síðustu þrjá daga
þannig að ekki er útlit fyrir að
heyið verði hirt.
Ólafur Vagnsson ráðunautur hjá
Búnaðarfélagi Eyjafjarðar sagði að
á einstöku stað í Eyjafirði lægi hey
enn úti á túnum og væri það í
ýmsu ásigkomulagi. Hey skemmd-
ist ekki mikið þó svo kalt væri í
veðri, en mikið af heyinu væri búið
að velkjast lengi og því væri um
lélegt fóður að ræða.
„I mörgum tilfellum er þarna á
ferðinni aukaheyskapur, sem menn
jafnvel allt að því neyddust út í þar
sem sprettan var svo mikil. Strangt
tekið þurfa bændur ekki á þessu
að halda, heyforðinn er orðinn næg-
ur, en sjálfsagt hafa menn ætlað
að eiga það til góða,“ sagði Ólafur.
kvæmt er sjóðnum skylt að selja
hlut sinn í fyrirtækinu innan fjög-
ura ára frá því hann kemur inn í
það, en enn eru um þijú ár til loka
þess tímabils.
Óskar Þór Sigurbjörnsson forseti
bæjarstjórnar Olafsfjarðar sagði að
stefnt væri að viðræðum við þá
aðila sem áhuga hefðu á kaupum
fyrirtækisins, en ákveðið hefði verið
að bæjarsjóður myndi hafna tilboði
Gunnars Þórs að svo stöddu. „Það
þýðir að hann er ekki út úr mynd-
inni, í þessari ákvörðun, að hafna
tilboðinu að svo stöddu felst að
málið en enn opið,“ sagði Óskar Þór
„Við viljum leita þeirra leiða sem
færar eru svo fyrirtækið geti áfram
verið sú kjölfesta í atvinnulífinu sem
það hefur verið og að öll sú starf-
semi sem þar hefur farið fram verði
áfram hér í bænum undir forystu
heimamanna. Það getur falið í sér
sölu, að sterkir aðilar komi inn í
fyrirtækið eða með hlutafjáraukn-
ingu, við höfnum engum leiðum
fyrirfram."
Óskar Þór sagði vanda fyrirtæk-
isins liggja í því að nægar veiði-
heimildir skorti. Því væri m.a. verið
að leita eftir aðilum sem ættu
kvóta. „Fyrirtækið er alls ekki kom-
ið í þrot, en það stefnir í það innan
nokkurra ára og þess vegna erum
við að taka á málunum núna, en
Mývatnssveit:
Hætt er við, ef fresta þarf
göngum um fleiri daga, að það
gæti komið til með að hafa áhrif á
slátrun. Að undanförnu hefur verið
hvöss norðanátt hér í Mývatnssveit
og gengið á með dimmum éljum.
Komin er nokkur snjór í byggð og
vafalaust meiri til fjalla. Hætt er
ekki þegar í óefni er komið," sagði
Óskar Þór.
Tilboð Gunnars Þórs Magnússon-
ar hljóðaði upp á 50 milljóna króna
staðgreiðslu fyrir hlutabréfin, auk
yfirtöku áhvílandi skulda, sem eru
um 500 milljónir króna.
Mj ólkur fræðingar:
Námskeið
um ostagerð
Ostar og ostagerð er heiti á nám-
skeiði sem Mjólkurfræðingafélag
íslands heldur í Alþýðuhúsinu á
Akureyri, en það hófst í morgun,
föstudag.
Á námskeiðinu munu tveir fyrir-
lesarar frá Danska mjólkurskólan-
um í Óðinsvéum fjalla um osta og
ostagerð. Þetta er í annað sinn sem
mjólkurfræðingar hittast á sameig-
inlegu námskeiði, en í fyrra var það
haldið í Reykjavík. Á námskeiðinu
nú verður farið í það helsta og nýj-
asta sem á döfinni er varðandi osta-
gerð.
Námskeiðið hófst í morgun,
föstudag, og því lýkur á laugardag.
Um 50-60 mjólkurfræðingar sækja
námskeiðið.
við ef heldur áfram að snjóa að
erfitt geti reynst að smala og reka
féð heim úr afréttinni. Margt fé
hefur komið af fjöllum undanfarna
daga og var því víða smalað saman
í gær. Talið er að færð sé nokkuð
góð á vegum, þó er mikil hálka og
betra að aka gætilega. Kristján
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sólbakur kemur úr fyrstu
veiðiferðinni fyrir ÚA
Sólbakur EA-307, áður Aðaivík KE, kom úr fyrstu veiðiferðinni fyr-
ir Útgerðarfélag Akureyringa síðastliðinn miðvikudag. Sólbakur var
með 134 tonn af heilfrystum karfa og frystum flökum og er verðmæ-
tið áætlað um 21 milljón króna, að sögn Einars Óskarssonar hjá
ÚA. Skipið hélt til veiða 1. september síðastliðinn og var því úti í
19 daga. Landað verður úr skipinu í dag, en áætlað er að það fari
út aftur á sunnudagskvöld.
Göngura frestað vegna
snjóa og slæms veðurútlits
Mývatnssveit.
FYRSTU göngnr sem heQast áttu fímmtudaginn 20. september á
Austurafrétt Mývetninga var í gær frestað vegna snjóa og slæms
veðurútlits. Áætlað var að rétta í Reykjahlíðarrétt laugardaginn 22.
september.