Morgunblaðið - 21.09.1990, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
27
Amæliskveðja
Max Adenauer
Margir útlendingar, sem kynnst
hafa íslenskri menningararfleifð og
stórbrotinni náttúru Islands, hafa
bundist því tryggðarböndum. Ýmsir
hafa unnið íslenskum málefnum
ómetanlegt gagn ? heimalöndum
sínum. Einn þessara manna er dr.
Max Adenauer, fyrrum yfirborgar-
stjóri í Köln, sem er áttræður í
dag, 21. september.
Dr. Max Adenauer er fæddur í
Köln árið 1910. Foreldrar hans voru
Frú Emma og dr. Konrad Adenau-
er, fyrsti kanslari Þýska Sambands-
lýðveldisins, sem vafalaust telst
meðal merkustu stjórnmálamanna
þessárar aldar. Dr. Max Adenauer
er lögfræðingur að mennt. Að loknu
háskólanámi starfaði hann hjá
Klöckner Werke AG og síðar
Klöckner - Humboldt - Deutz AG.
Hann var yfirborgarstjóri í Köln
árið 1953 og gegndi því starfi til
ársins 1965, en varð þá einn af
bankastjórum Rheinisch-Westfál-
ische Boden-kredit-Bank. Gegndi
hann því starfi til ársins 1977. Auk
ofangreindra starfa hefur dr. Max
gegnt ljölmörgum trúnaðarstörfum
og átt sæti í stjórnum ýmissa fyrir-
tækja og stofnana og gerir raunar
að nokkru leyti enn. Þá er þess að
eta, að hann er kjörræðismaður
slands í Köln. Kynni afmælisbarns-
ins af íslandi hófust fyrir mörgum
áratugum en fyrstu ferð sína til
íslands fór hann árið 1931.
Þýski jarðfræðingurinn, prófess-
or Heinrich Erkes, fór 8 rannsókn-
arferðir til Islands á fyrstu þremur
áratugum þessarar aldar. Hann
hafði viðað að sér miklum fjölda
íslenskra bóka á ferðum sínum og
birt mikið af greinum um ísland í
dagblöðum og tímaritum.
Arið 1917 var dr. Konrad Aden-
auer kjörinn borgarstjóri í Köln.
Kynntist hann þá Heinrich Erkes,
einum af borgarfulltrúum jafnaðar-
manna, og tengdust þeir vináttu-
böndum. Dr. Konrad Adenauer
sýndi mikinn áhuga á, að það mikla
safn íslenskra bóka, sem Erkes
hafði byggt upp, kæmist í vörslu
háskólabókasafnsins þar í borg.
Varð það úr og var þar með lagður
grunnur að einu stærsta safni
islenskra bóka á meginlandi Evrópu
í dag.
Dr. Max Adenauer hefur frá því
sagt, að þegar próf. Erkes hafi
komið að heimsækja vin sinn
Konrad Adenauer, hafi hann oft
sagt þeim systkinum sögur af ferð-
um sínum til íslands, ferðalögum
um landið á hestum, frá eldfjöllum,
jöklum, dýralífi og ósnortinni nátt-
úru þess. Þær frásagnir kveiktu
áhuga hans á landi og þjóð og leiddu
tii þess að hann fór að lesa
Nonnabækurnar. „Þar var lands-
laginu og þjóðarandanum svo vel
lýst, að ekki var hægt annað en
að hrífast", sagði hann í blaðavið-
tali, þegar hann heimsótti ísland
síðast, árið 1985, sem gestur Germ-
aníu. Varð þessi áhugi til þess að
hann fór sína fyrstu ferð til íslands
með fjölskylduvininum próf.
Henrich Erkes árið 1931.
Árið 1955 var stofnað félag ís-
landsvina í Köln. Dr. Max Adenau-
er var í upphafi kosinn formaður
þess og hefur hann gegnt for-
mennsku síðan. Starfsemi þess fé-
lags hefur verið lífleg alla-tíð en
það hefur fyrst og fremst haft að
J
markmiði að kynna íslenska menn-
ingu og inálefni á félagssvæði sínu
og víðar í Þýskalandi.
Félagið Germanía fljdur afmælis-
barninu hugheilar árnaðaróskir á
þessum tímamótum. ísland á sér
tryggan vin og talsmann þar sem
dr. Max Adenauer fer. Hann ber
aldurinn vel eins og faðir hans.
Þess er því óskandi, að hann eigi
enn um sinn eftir að hafa á hendi
forystu í félagi vina þess lands sem
hann batt tryggð við ungur að
árum. Við Almut flytjum afmælis-
barninu einnig persónulegar árn-
aðaróskir.
Þorvarður Alfonsson
Almanak Háskólans komið út
ÚT er komið Almanak fyrir ís-
land 1991, sem Háskóli íslands
gefur út. Þetta er 155. árgangur
ritsins, sem komið hefur út sam-
fellt síðan 1837. Dr. Þorsteinn
Sæmundsson stjarnfræðingur
hjá Raunvísindastofnun Háskól-
ans hefur reiknað almanakið og
búið það til prentunar. Ritið er
96. bls. að stærð.
Auk dagatals með upplýsingum
um flóð og gang himintungla flytur
almanakið margvíslegan fróðleik
s.s. yfirlit um hnetti himingeimsins,
mælieiningar, skrá um veðurmet
og töflu sem sýnir stærð, mann-
fjölda og höfuðborgir allra sjálf-
stæðra ríkja. Þá er þar að finna
tölvuforrit til almanaksútreikninga,
stjörnukort, kort sem sýnir áttavita-
stefnur á íslandi og litprentað kort
sem sýnir hvað klukkan er hvar sem
er á jörðinni. Af nýju efni má nefna
grein um heimskautsbauginn og
hreyfingu hans og upplýsingar um
nálægustu fastastjörnur.
Háskólinn annast sölu almanaks-
ins og dreifingu þess til bóksala.
Almanakið kemur út í 7.000 eintök-
um, en auk þess eru prentuð rúm-
lega 2.000 eintök sem Þjóðvinafé-
lagið gefur út sem hluta af sínu
almanaki með leyfi Háskólans.
Hofum opnað læknastofu
í Læknastöð Vesturbæjar, Melhaga 20-22,
sími 628090.
Borghildur Einarsdóttir. Dr. med. Úrsúla Schaaber.
Sérgrein: Geðlækningar. Sérgrein: Geðlækningar.
IftTft
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BUIÐ
KRINGLUNNI
FÖSTUDAGUR T1L FJAR
HRÆRIVÉLAR
í DAG
KOSTNAÐARVERÐI
byggtÖbDiö
KRINGLUNNI
!M\W
Þjóðleikhúsið
frumsýnir í íslensku óperunni
nýjan gamanleik með söngvum
Orfá sæti laus
eftir Karl Ágúst Úlfsson, Pálma Gestsson,
Randver Þorláksson, Sigurð Sigurjónsson
og Örn Árnason.
Handrit og söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson
Leikstjöri: Egill Eðvarðsson
Tónskáld: Gunnar Þórðarson
Leikmynda- og búningahönnuður: Jón Þórisson
Dansahönnuður: Ásdís Magnusdóttir
Hljómsveitarstjóri: Magnús Kjartansson
Ljósahðnnuður: Páll Ragnarsson
Sýningarstjóri: Kristín Hauksdóttir
Leikarar:
Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bessi Bjarnason,
Jóhann Sigurðarson, Karl Ágúst Úlfsson,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Lilja Þórisdóttir,
Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson,
Rúrik Haraldsson, Sigurður Sigurjónsson,
Steinn Ármann Magnússon, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Þórarinn Eyfjörð og Örn Árnason.
Dansarar:
Asta Henriksdóttir, Ásdís Magnúsdóttir,
Helga Bernhard og Guðmunda H. Jóhannesdóttir.
Hljóðfæraleikarar:
Magnús Kjartansson (píanó og hljómsveitarstjórn),
Finnbogi Kjartansson (bassi),
Vilhjáimur Guðjónsson (gítarog blásturshljóðfæri),
Gunnlaugur Briem (trommur og slagverk),
Stefán S. Stefánsson (blásturshljóðfæri).
Föstud. 21. sept. (frumsýning) uppselt, laugard. 22.
sept., 2. sýn., sunnud. 23. sept., 3. sýn., fimmtud. 27.
sept., 4. sýn., föstud., 28. sept., 5. sýn. uppselt, sunnud.
30. sept., 6. sýn. uppselt, föstud. 5. okt., 7. sýn. upp-
selt, laugard. 6. okt., 8. sýn. uppselt, sunnud. 7. okt.,
föstud. 12. okt. laugard. 13. okt. uppselt
ogsunnud. 14. okt.
Miðasala og símapantanir í íslensku óperunni
alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18.
Símapantanir einnig alla virka daga frá kl. 10-12.
Símar 11475 og 11200.