Morgunblaðið - 21.09.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTBMBER 1990
STJÖRNUSPA
eftir Frartces Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú kennir lasleika árla morguns-
ins. Skoðanaágreiningur milli þin
og samstarfsmanns þíns gerir
vart við sig. Nýjar hugmyndir
sem þú hefur lagt fram reynast
árangursríkar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Minni háttar fjármáladeila getur
nú látið á sér kræla á vinnustað
þínum. Hjón skemmta sér saman
á nýstárlega hátt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Mundu að sýna tilfinningum fjöl-
skyldufólksins tillitssemi í dag.
Þú getur verið að troða einhveij-
um um tær án þess að gera þér
grein fyrir þvi. Eitthvað óvænt
en jákvætt ber fyrir þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HISB
Eitthvert lítilræði getur farið úr
skorðum heima við i dag og þú
nýtur þess að skipta um um-
hverfi. Hjónum finnst tilvalið að
fara saman út í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) ‘eC
Smápirrings gætir hjá þér núna
út í vin eða kunningja. Farðu
varlega í peningamálum í dag.
Þú ættir að ráðast í Ijúka verk-
efni sem þú hefur ýtt á undan
þér heima fyrir.
MeyjU Jti
(23. ágúst - 22. scptember) <T.--
Það rís upp minni háttar ágrein-
ingur hjá þér og starfsfélaga
þínum. Gerðu eitthvað óvænt og
skemmtilegt í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Óþolinmæði þín setur mark sitt
á morguninn hjá þér. Láttu
skapsmunina ekki leiða þig af-
vegá og spilla fyrir árangri þínum
í starfi. Þú kaupir eitthvað til
heimilisins án þess að hugsa þig
um tvisvar.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Fjárhagsáhyggjur íþyngja þér í
morgunsárið. Þið vinirnir eruð
ekki á sömu bylgjulengd í dag. í
kvöld hugsar þú ekki um annað
en það sem þú ert að fást við í
vinnunni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) &
Gættu þess að flýta þér ekki um
of árdegis. Vini þínum gengur
gott eitt til, en ráðleggingar hans
verða að litlu liði. Þróunin í pen-
ingamálum kemur þér þægilega
á óvart.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Leitastu við að vera samvinnu-
þýðari við samstarfsmenn þína
en raun ber vitni núna. Ekki er
víst að. þú fáir svör við öllum
spumingum þínum varðandi
verkefni sem þú vinnur að. Láttu
félagslífíð ganga fyrir í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú verður að sýna barninu þínu
meira umburðarlyndi en þú gerir.
Dómgreind þín í fjármálum er
ekki upp á það skarpasta núna.
Þó stefnir allt í rétta átt hjá þér.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Hjón eru ekki sammála núna um
ráðstöfun fjár síns. Þú eignast
nýjan vin í ferð serrt þú tekur
þátt í. Einhver sem þú hefur ekki
hitt um langt skeið lætur nú í
sér heyra.
AFMÆLISBARNIÐ er fjölhæft,
en verður að gæta þess vandledga
að dreifa kröftum sínum ekki um
of. Þegar því hefur lærst að
treysta samferðarmönnum sínum
kemst það að raun um hversu
hjálpsamir og raungóðir þeir geta
verið. Kímnigáfan verður því
ævinlega til framdráttar og það
laðast oft að störfum á sviði upp-
lýsingamiðlunar, skrifta, útgáfu
eða auglýsinga.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindategra staóreynda.
DYRAGLENS
GRETTIR
( LEVWOAP/M^LIP vi0 rOGLA- )
\v&PA£ BK þOLINtíuepl )
TOMMI OG JENNI
0/0 ^ c
FERDINAND
,Gsj5L f
SMAFOLK
MY FRIENDS SEEM TOTMINIK
TMAT I BORROIa) TOO MUCH,
CMUCK..WMAT DOYOUTHINK?
v' A 600D LATHER 15
HALF THE 5HAVE "
Vinir mínir segja að ég fái of margt „Gott löður er hálfur raksturinn." Ertu vakandi, Kalli?
að láni, Kalii. Hvað fínnst þér?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Á opnu borði er létt verk að
hnekkja 4 spöðum suðurs. En
það er ekki eins auðvelt við
sjálft spilaborðið.
Suður gefur NS á hættu.
Norður
♦ 10972
¥ G74
♦ KG93
♦ 83
Vestur Austur
4054 46
¥983 ¥ D1052
♦ Á75 ♦ 10862
♦ KG62 *ÁD74
Suður
♦ ÁKD83
¥ ÁK6
♦ D4
+ 1095
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vörnin er í stuttu máli þessi:
Þrisvar lauf í upphafi og blindur
styttur í trompi. Síðan er tígul-
drottningin dúkkuð einu sinni
og þá kemst suður ekki hjá því
að gefa slag á hjarta. Hann á
ekki innkomu á frítígul. En
hvernig á að finna þessa vöm?
í fyrsta lagi verður vestur að
spila út laufi. Útspil frá KG eru
tvíeggjuð, en hér eru valkostim-
ir ekki upp á marga fiska (hjarta
eða tromp) svo laufsexan (3.
hæsta) er ekki vitlaust útspil.
I annan stað má austur ekki
skipta yfir í hjarta, en það kem-
ur vissulega til greina. Austur
getur hugsað sem svo: Vestur
verður að eiga tígulásinn, og
útspilið (sexan) bendir tií að
hann sé með háspil í litnum,
sennilega kónginn. Þá hlýtur
sagnhafi að eiga ÁK í hjarta.
I þriðja lagi þarf vestur að
spila laufinu aftur. Hann getur
lesið laufleguna eftir spili makk-
ers (fjarkinn) og veit að sagn-
hafi á þar með eitt lauf eftir.
Og þá getur varla sakað að spila
iaufinu enn.
Og loks er eftir að dúkka
tíguldrottninguna, sem getur*
hæglega verið einspil. Það mál
leysist ef sagnhafi tekur þrisvar
tromp áður en hann spilar tígli.
Austur gefur þá talningu. En
ef sagnhafi fer heim á spaðaás
og spilar tíguldrottningunni,
verður vestur einfaldlega að
giska rétt á leguna.
Svona er vörnin oft á tíðum
— þolir ekki feilspor.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á breska meistaramótinu í
ágúst var þessi stutta skák tefld.
Hvítt: Cooper (2.390), Wales,
svart: Muir: (2.310), Skotlandi.
Drottningarbragð, 1. d4 - d5,
2. c4 - e6, 3. Rf3 - Rf6, 4. Rc3
- c6, 5. cxd5 - exd5, 6. Bg5 -
Bf5, 7. Db3 - Rbd7, 8. Rh4 -
Be6, 9. Dxb7 - Hb8, 10. Dxc6 -
Hxb2, 11. Bxf6 - gxf6, 12. e3 -
Bb4, 13. Hcl - Da5, 14. Bd3 -
0-0, 15. a3? (Skákblinda og augu
hvíts opnast heldur ekki í næsta
leik) 16. - Bxc3+, 16. Hxc3?
Mlli
.. ........ ‘fVÆ' ÍÉMi, Éill
16. - Hc8! og hvítur gafst upp,
því hann tapar drottningunni eða
verður mát.