Morgunblaðið - 21.09.1990, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
nmmim
hún?
Frábær
grein
Kæri Velvakandi.
Astæðan fyrir því að ég tek mér
penna í hönd og skrifa þetta er að
mig langar til að þakka Sverri
Stormsker og Leifí Reynissyni fyrir
hreint út sagt frábæra grein sem
birtist í Morgunblaðinu þann 13.
september. Þetta er eitt það lang-
besta sem ég hef séð í blaðinu hing-
að til. Þeir tala sko fyrir hönd fjölda
fólks.
Ég ætla mér ekkert að fara að korn. Þrefalt húrrahróp fyrir Sverri
fjalla um þessa grein, heldur skora Stormsker og Leifi Reynissyni!
á alla landsmenn að lesa þetta gull- Hófdrykkjumaður
Opið bréf til Arna
Helgasonar
eftir Sverri
Stormskerog
LeifReynisson
Ámi niinn.
Í gegnum tíðina höfum við fylgst
af miklum áhuga með blaðagreinum
þínum og ástundum ekki minni
áhuga á þeim boðskap sem í þeim
hefur komið fram. Kóróna þinna rit-
verka verður þó að teljast Morgun-
blaðsgrein þín. sem birtist þann 29.
ágúst síðastliðinn. Greinin var að
vísu orðfá og rvr f veraldlegum skiln-
HÍÍMÍil
Yilla Aríiisar
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru var vikið að þeim
kafla kirkjusögunnar sem fjallar
um Aríus nokkurn, trúvilling sem
uppi var á fyrstu öldinni eftir að
kirkja Krists hafði náð fótfestu
og söfnuðir hennar höfðu fengið
náðarsamlegast leyfi yfirvalda til
að starfa. Nokkuð var fjallað um
Aríus þennan í grein sem birtist í
Velvakanda fyrir nokkru en ekki
útskýrt til fulls í hveiju villa hans
var fólgin. Þar sem ég þekki dá-
lítið til kirkjusögunnar á þessum
tíma vil ég freista þess að gera
nokkuð betur.
Sumir hafa látið á sér skilja að
skrif sem þessi séu lítt áhugaverð
og vilja heldur dægurþrasið. Ég
vil þá benda á að kristindómurinn
er grundvöllur þjóðkirkjunnar og
réttur skilningur hlýtur því að
varða miklu. En nóg um það.
Aríus, sem villan er kennd við,
leit svo á að Kristur og Skaparinn
séu ekki eitt. Hann taldi að Krist-
ur væri hið sanna Logos, hið æðsta
alls hins skapaða og hið fyrsta sem
skapað var. En ef sonurinn var
getinn af föðurnum þá hlaut það
að hafa gerst í tímanum, og þá
gat sonurinn ekki hafa verið til
frá upphafi. Hann áleit að ef Krist-
ur hefði verið skapaður þá hlyti
það að hafa verið af einingu við
guð. Heilagur andi var að hans
skilningi getin af Logos og því
fjarskyldari guði en Kristi. Aríus
vildi ekki láta af þessum skilningi
sínum þrátt fýrir skynsamleg rök
og reyndar snerust ýmsir á sveif
með honum. Það var páfanum í
Róm að þakka að þessi villa var
Til Velvakanda.
Á laugardag 15.9. sl, var mér
boðið í 70 ára afmæli Germaníu í
Gamla bíói. Þar hlustaði ég m.a. á
Gunnar Guðbjömsson, ungan ís-
lenzkan tenór, syngja „Fuglinn í
fjörunni" miklu betur en Kristján
Jóhannsson hefur nokkru sinni gert
og „Granada" miklu betur en José
Carreras gerir. — Með allri virðingu
fyrir stórsöngvurum á borð við Pav-
arotti, Domingo og Carreras, þá
endanlega fordæmd á kirkjuþingi
og höfundur hennar, Aríus, rekinn
í útlegð.
Kenning Aríusar er langsótt og
á það sammerkt með kenningum
margra annarra sem reynt hafa
að snúa út úr guðspjöllunum, en
þeir em því miður margir og nú
á tímum helst mönnum slíkt uppi
átölulaust í skjóli ftjálslyndis. En
gjörð þeirra er hin sama.
J. Sigurðsson
finnst mér einum og mikið af því
góða að fá þá inn í stofu trekk í
tekk með svo stuttu millibili. Sjón-
varpinu væri nær að beina augum
okkar að þeim íslenzku söngvurum,
sem em að gera það virkilega gott
erlendis um þessar mundir. Má þar
t.d. nefna Þýzkaland, þar sem fyrr-
nefndur Gunnar Guðbjömsson er á
samningi í Kiel og Kristin Sig-
mundsson í Wiesbaden.
Félagi í Germaníu
Islenskir söngvarar
Víkverii skrifar
Eftirfarandi bréf hefur borizt
Víkveija:
Heiðraði VíkveijH
í skrifum þínum þann 13. sept-
ember sl. víkur þú að skammarleg-
um vinnubrögðum Landsbankans
við birtingu áskorunarstefnu.
Þar sem nokkrar rangfærslur
koma fram i skrifum þínum, vil ég
koma á framfæri eftirfarandi:
Landsbankinn sér ekki um að
birta áskorunarstefnur fyrir fólki.
Það er í verkahring stefnuvotta
(tveggja), sem til þess eru skipaðir
af héraðsdómara í viðkomandi um-
dæmi.
Áskorunarstefnur eru að jafnaði
sendar stefnuvottum 4-6 vikum
áður en þingfesta á mál. Lágmarks
stefnufrestur er þrír dagar fyrir
þingfestingu. Vinnulag bankans
miðar að því að stefna sé komin í
hendur stefnda tímanlega fyrir
þingfestingu, svo að hægt sé að
koma í veg fyrir dómtöku, ef ein-
hver úrræði eru fyrir hendi hjá
skuldara og ábyrgðarmönnum.
Stefnandi í skuldamáli verður að
leggja traust sitt á stefnuvotta.
Vottorð þeirra um að stefnan hafi
verið afhent skuldara, eða einhveij-
um'aðila sem er skyldur til að af-
henda hana, er Iagt til grundvallar
við uppkvaðningu dóms (áritunar á
áskorunarstefnu). Það er þá dómari
sem skoðar vottorð stefnuvottanna
og metur það ekki gilt nema að það
sé mjög skýrt að stefndi hafi feng-
ið vitneskju um fyrirtekt málsins.
Að lokum er rétt að geta þess,
að það er borgaraleg skylda að af-
henda eftirrit af stefnum og leggja
sektir við ef af er brugðið. Sé þess
ekki kostur, að afhenda skuldara
stefnuna, þá skal afhenda þeim er
líklegastur er að 'fá viðkomandi
skuldara eftirrit nægilega tíman-
lega.
Telji Víkveiji ástæðu til að
skamma Landsbankann aftur fyrir
vinnubrögð sín, eru starfsmenn
bankans fúsir til að leiðrétta og
svara fyrir ætlaðar ávirðingar, áður
en önnur hlið málsins er kynnt opin-
beríega.
Benedikt E. Guðbjartsson,
lögfr. Landsbanka íslands.
xxx
Að mati Víkveija er það höfuðat-
riði þessa máls, að 14 ára
unglingi var afhent áskorunar-
stefna þremur dögum fyrir þing-
festingu án nokkurra skýringa.
Samkvæmt bréfi Benedikts var það
borgaraleg skylda unglingsins að
koma endurritinu til skuldarans,
sem staddur var á Spáni, að viðlögð-
um sektum! Umrætt tilvik sýnir að
þessi mál eru í ólestri og Lands-
bankinn hlýtur að ræða það við við-
komandi héraðsdómara, í þessu til-
viki í Reykjavík, hvemig bæta megi
úr.
xxx
Sjávarútvegssýningin í Laugar-
dalshöll var formlega opnuð
sl. mið- vikudag og lýkur sýning-
unni á sunnudaginn. Ástæða er til
þess að hvetja alla áhugamenn um
sjávarútveg og atvinnumál til þess
að skoða sýninguna. Víkveiji lofar
því að menn verða mjög hissa á
þeim gífurlegu framförum, sem orð-
ið hafa í fiskvinnslu og útgerð á
undanförnum árum.
X X X
á er lokið æsispennandi ís-
landsmóti í knattspyrnu.
Framarar urðu meistarar en naum-
lega þó. Ekki er hægt annað en
vorkenna KR-ingum. Þeir töpuðu
bikarkeppninni á sjöundu víta-
spyrnu eftir tvo úrslitaleiki og í
deildarkeppninni tapa þeir á marka-
mun eftir að hafa verið sjö mínútur
frá sigri. Þetta hlýtur að vera
heimsmet. En KR-ingar geta hugg-
að sig við að lið þeirra er það bezta
sem félagið hefur teflt fram um
árabil og langri bið eftir titlum hlýt-
ur að fara að ljúka.