Morgunblaðið - 21.09.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hann áttí sér draum
Til Velvakanda.
Ja, hérna, það var nú draumur
í lagi. Sú var tíðin að þessi mikli
draumóramaður var kosinn formað-
ur Alþýðuflokksins á sögulegu
flokksþingi. Menn muna enn um-
mæli Jóns Baldvins um forvera sinn.
Hann átti að vera getulaus að öllu
því sem að uppbyggingu flokksins
sneri og í ofanálag var hann skip-
stjóri sem fiskaði ekki og því þurfti
að skipta um karlinn í brúnni.
Nú var kominn tími fyrirheit-
anna, fyrirheita nýs formanns.
Hans fyrsta verk var að reka fram-
kvæmdastjóra flokksins, síðan hef-
ur ekki verið framkvæmdastjóri
nema að þrír einstaklingar hafa
gripið í starfið í stuttan tíma í senn
og síðustu mánuði hefur enginn
framkvæmdastjóri verið á skrif-
stofu flokksins.
Draumóramaðurinn hefur haft
lítinn tíma til að sinna innra starfi
flokksins og í þau fáu skipti sem
hann hefur gert það þá hefur fólk
það á tilfinningunni að það sé gert
í algjörri neyð. Flestar þær stöðu-
veitingar sem hann hefur veitt eru
annað hvort til ættingja, vina eða
nýrra flokksmeðlima sem þarf að
kaupa til liðs við flokkinn. Van-
traust formannsins á krötum er al-
gjört og í kringum Jón Baldvin star-
far fámennisklíka sem hugsar fyrst
og fremst um eigin hagsmuni.
Kjarkur hans brást í síðustu
borgarstjórnarkosningum þar sem
hann hafði ekki þor til að bjóða
fram lista undir nafni Alþýðuflokks-
ins. Afleiðingar þess eru að flokkur-
inn á engan borgarfulltrúa í
Reykjavík í dag. Ofan á allt annað
sem kjósendur Alþýðuflokksins
hafa þurft að þola er að þeir eiga
engan þingmann í Reykjavík. Aftur
á móti eiga þeir þtjá ráðherra sem
engan tíma hafa til að sinna málefn-
um kjördæmis síns vegna anna í
ráðuneytinu.
Hvernig fór um sjóferðina sem
hófst með fullfermi af draumum
eftir formannskjör Jóns Baldvins
Hannibalssonar?
Það er blákaldur raunveruleiki
að karlinn í brúnni er löngu hættur
að fiska, búinn að tapa kvótanum,
togarinn liggur bundinn við bryggju
og úreldingarsjóður bíður eftir tog-
aranum. Karlinn í brúnni situr á
bryggjustólpanum, þreytulegur og
dorgar með hálfbrotinni stöng á
ótraustum nýjum vettvangsmiðum.
Hvaða ráð skyldi formaðurinn
gefa þessum þreytta manni ef ekki
væn um hann sjálfan að ræða?
Orn Karlsson alþýðuflokks-
maður, Kleppsvegi 126, R.
BOSS SPIRIT
NÝR KEIMUR FRÁ BOSS
Útsölustaðir:
Clara, Kringlu og Laugavegi - Snyrtivöruverzlunin Glaesibæ - Snyrtivöruverzlunin Laugavegi 76 -
Holts Apótek - Gullbrá, Nóatúni - Hygea, Austurstræti - Topptískan, Aðalstræti - Rakarastofan
Suðurlandsbraut 10 - Hjá Sævari Karli - Andorra, Hafnarfirði - Apótek Keflavikur - Apótek Ólafsvikur
- Krisma, isafirði-Vörusalan, Akureyri-ApótekSiglufjaröar- Hilma, Húsavík- Ninja, Vestmannaeyjum
- Snyrtihúsið, Selfossi - Snyrtihöllin, Garðabæ.
Þakstál með stfl
r
Plannja þakstál
Aðrir helstu sölu- og
þjónustuaðilar:
Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi,
sími 78733.
Blikkrás hf, Akureyri,
slmi 96-26524.
Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns,
Reyðarfirði, sími 97-41271.
Vélaverkstæðið Þór,
Vestmannaeyjum, sími 98-12111
Hjáokkurfærðuallar
nýjustu gerðir hins vinsæla
og vandaða þakstáls
frá Plannja. Urval lita
og mynstra, m.a. Rannja
þakstál með mattri litaáferð,
svartri eða tígulrauðri.
Pósthólf 435 • 202 Kópavogur
Sími 91-670455 -Fax 670467
SPRENGIDAGAR
LAUGAVEGI 33
Við bjóðum viðskiptavinum okkar nú að nýta sér
hina stórkostlegu sprengidaga, sem verða í versl-
un okkar á Laugavegi 33 og standa yfir í 2 daga
mánaðarlega:
21. og 22. september
19. og 20. október
23. og 24. nóvember
Við bjóðum upp á stórkostlegt úrval af hljómplöt-
um, kassettum og geisladiskum.
Misstu ekki af þessu einstæða tækifæri og nældu
þér í uppáhaldstónlistina þína á sprenghlægilegu
verði.
S* K* I• F*A* N
ATH. LAUGAVEGI 33, SÍMI 600933
KÁTAMASKlNAN/SEK