Morgunblaðið - 21.09.1990, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ
Sigurður Jónsson í síðasta landsleik sínum — gegn Austurríki í fyrra.
„Kem kátur og hress
til Tékkóslóvakíu“
- segirSigurðurJónsson, sem kemurinn í
landsliðshópinn eftir liðlega árs fjarveru
„Ég kem kátur og hress til
Tékkóslóvakíu," sagði Sigurð-
ur Jónsson í gær. Hann átti við
meiðsl að stríða í sumar, en
er orðinn góður og kemur 'a
ný inn í landsliðshópinn eftir
liðlega árs fjarveru — lék síðast
gegn Austurríki ytra íágúst í
fyrra.
Bo Johansson, landsliðsþjálfari,
tilkynnti hópinn í gær, sem
hann hefur valið fyrir leikinn í Evr-
ópukeppninni gegn Tékkóslóvakíu
íKosice 26. september. Ein breyting
er frá Frakkaleiknum, Sigurður
kemur í stað Þorvaldar Örlygsson-
ar. Guðni Bergsson er í hópnum,
en enn er ekki víst hvort hann verði
með, þar sem Tottenham á bikar-
leik sama dag.
A-liðið
Bjarni Sigurðsson Val
Birkir Kristinsson Fram
Atli Eðvaldsson KR
Pótur Pétursson KR
Sævar Jónsson Val
Þorgrímur Þráinsson Val
Anthony Karl Gregory V al
Ólafur Þórðarson Brann
Pétur Ormslev Fram
Sigurður GrétarssonGrashoppers
Sigurður Jónsson Arsenal
Guðni Bergsson Tottenham
Ragnar Margeirsson KR
Arnór Guðjohnsen Anderleehl
Rúnar Kristinsson KR
Kristján Jónsson Fram
U-16 liðið
Pálmi Ilaraldsson ÍA
Árni Arason ÍA
Alfreð Karlsson ÍA
Gunnlaugur Jónsson ÍA
Stefán Þórðarson ÍA
Orri Þórðarson FH
Hrafnkell Kristjánsson FH
Lúðvík Jónasson Stjörnunni
Viðar Erlingsson Stjörnunni
Helgi Sigurðsson Víkingi
Gunnar Þórisson Víkingi
Guðmundur Benediktsson Þór, Ak..
Brynjólfur Sveinsson KA
Þoi-valdur Ásgeirsson Fram
Sigurbjörn Hreiðarsson Dalvík
Einar Árnason KR
Sigurður hefur leikið þrjá leiki
með varaliði Arsenal síðustu daga
og staðið sig vel. Hugsanlega verð-
ur hann í hópnum, sem mætir Nott-
ingham Forest á útivelli á morgun,
en ef ekki leikur hann með varalið-
inu. „Svo framarlega sem ég meið-
ist ekki, er ég til í slaginn og hlakka
mikið til.“
Marteinn Geirsson, þjálfri U-21
liðsins, tilkynnti einnig sitt lið, en
það mætir Tékkum í Michalovce á
þriðjudag. Drengjalandsliðið skipað
leikmönnum undir 16 ára leikur
seinni leik sinn gegn Wales í Evr-
ópukeppninni á mánudag og fer
viðureignin fram á Selfossi kl. 16.
ísland tapaði fyrri leiknum 1:0, en
það lið, sem stendur betur að tveim-
ur leikjum loknum, heldur áfram.
U-21 liðið
Ólafur Pétursson ÍBK
Kristján Finnbogason KR
Þormóður Egilsson KR
Jóhann Lapas KR
Helgi Björgvinsson Víkingi
Kristján Halldórsson IR
Steinar Adolfsson Val
Haraldur Ingólfsson í A
Ingólfur Ingólfsson Stjörnunni
Valdimar KristóferssonStjörnunni
Valgeir Baldursson Stjörnunni
Steinar Guðgeirsson Fram
Gunnar Pétursson Fylki
Gunnlaugur Einarsson Grindavík
Ríkharður Daðason Fram
Anton Björn Markússon Fram
Golf
1. Aloha-mót Keilis
Fyrsta Aloha-mótið fór fram hjá Golf-
klúbbnum Keili um síðustu helgi. Mótið er
haldið til styrktar A-sveit klúbbsins sem
tekur þátt í Evrópumótinu á Spáni í vetur.
Með forgjöf:
Baldvin Jóhannsson, GK.................76
Guðlaugur Georgsson, GK................69
Sigurður Héðinsson, GK.................70
Baldvin lék best án forgjafar, á 76 högg-
um.
■ Næsta Alohamót verður haldið á morg-
un á Hvaleyrarvelli. Ræst verður út frá kl.
8.30 og skráning er í síma 53360.
I Þróttarar halda goli'mót á Hvammsvelli
í Hvammsvík á morgun. Ferið verður með
rútu frá Þróttarheimilinu kl. 12.