Morgunblaðið - 29.09.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
Fjárhagsstaða Vest-
mannaeyjabæjar:
Spörum
milljón
á mánuði
með skuld-
breytingu
- segir Guðjón Hjör-
leifsson, bæjarstjóri
GUÐJÓN Hjörleifsson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, segir
að lausafjárstaða bæjarins sé
afar erfið. 73 milljónir séu í van-
skilum og að auki séu nú að gjald-
falla skammtimalán, sem tekin
hafi verið í lok síðasta kjörtíma-
bils. Núverandi meirihluti telji
nauðsynlegt að fá skuldbreyt-
ingu og með því móti megi spara
um eina milljón króna á mánuði
í fjármagnskostnaði.
I Morgunblaðinu á föstudag birt-
ist athugasemd frá þremur fulltrúm
minnihlutans í bæjarétjórn Vest-
mannæyja, þar sem þeir segja, að
fulltrúar meirihlutans fari með
rangfærslur er þeir segi að van-
skilaskuldir bæjarins séu 115 millj-
ónir króna. Hið rétta sé, að þær
nemi 73 milljónum.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
segir það rétt að 73 milljónir króna
séu í vanskilum. Við það bætist
yfírdráttur og skammtímalán, sem
meirihluti vinstri manna hafí tekið
við lok síðasta kjörtímabils, til að
láta fjármál bæjarins líta betur út
fyrir kosningamar í vor. Þau lán
séu nú að gjaldfalla eitt af öðru.
Guðjón segir, að lausafjárstaða
Vestmannaeyjabæjar sé erfíð, enda
hafi fjármálin ekki verið tekin nógu
föstum tökum af meirihluta vinstri
manna. „Þegar við tókum við stjórn
bæjarins eftir kosningarnar í vor,
var mikið í vanskilum og það virtist
hafa verið aukaatriði að greiða lán.
Við teljum, að til að koma fjármál-
unum í rétt horf nú, þurfí að fram-
kvæma skuldbreytingu. Með því að
breyta skammtímalánum í lengri
lán má spara allt að eina milljón á
mánuði í fjármagnskostnaði að okk-
ar mati. Auk þess munum við ör-
ugglega þurfa að skera niður í
rekstri bæjarins," segir Guðjón.
©
INNLENT
Ljósmyndin sýnir Vestmannaeyjaflugvöll á miðri háey Heimaeyjar í nýjum búningi í nær 100 metra hæð.
Ljósmynd/Ólafur Bragason
Slitlag á V estmannaeyj aflugvöll
Vestmannaeyjum.
MIKLAR framkvæmdir hafa staðið yfir á Vestmannaeyjaflugvelli
undanfarnar vikur þar sem unnið hefur verið að endurnýjun og
uppbyggingu hluta flugbrautanna og lagningu bundins slitlags, otto-
dekks, á báðar brautirnar sem eru um 1.100 metra langar.
Framkvæmdin kostar tugi millj-
óna króna, en Vestmannaeyjaflug-
völlur er annar mesti umferðarvöll-
ur á landinu utan Reykjavíkur með
um 60 þúsund farþega á ári. Fram-
kvæmdin reyndist viðameiri en ráð-
gert hafði verið þar sem skipta
þurfti um tugi þúsunda af undir-
lagi, en lagning bundins slitlags er
mjög mikilvæg því segja má að
malarefnið í vellinum hingað til
hafí fokið á 5 ára fresti. Lagningu
bundins slitlags lýkur í næstu viku,
en þá er eftir frágangur meðfram
brautum og í haust verður byggð
tækjageymsla á vellinum. Það er
Klæðning h.f. sem framkvæmir
verkið. - Grímur
Skattahækkun vegna bensínverðshækkunar:
Útreikningar fjármálaráðuneytis-
ins breyta engu um tilmæli okkar
- segir Þórarinn V. Þórarinsson
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands, segir að útreikningar fjármálaráðuneytisins um
tekjutap ríkissjóðs á ársgrundvelli vegna olíuverðshækkana breyti
engu um þau tilmæli Vinnuveitendasambandsins og Alþýðusambands-
ins til ríkisstjómarinnar, að ríkið hækki ekki skatta sína a bensín í
hlutfalli við hækkanir bensínverðs, heldur haldi sköttunum óbreyttum
í krónutölu. Örn Friðriksson, varaforseti ASÍ, segir að samtök laun-
þega muni ekki líða þao, að olíuverðshækkunin verði látin lenda á
þeim einum.
í Morgunblaðinu í gær var greint 400 til 500 milljóna króna tekjutap
frá því, að fjármálaráðuneytið gerði fyrir ríkissjóð.
ráð fyrir að yfirvofandi olíuverðs- Þórarinn V. Þórarinsson segir að
hækkun_ geti á ársgrundvelli þýtt þessir útreikningar breyti engu um
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son kjörinn formaður
þau tilmæli, sem ASÍ og VSÍ hafi
beint til ríkisstjórnarinnar. „Við ef-
umst ekki um að það sé rétt, að
ríkið muni ekki hagnast á hækkun
bensínverðs þegar til lengri tíma
er litið. í okkar tilmælum vorum
við hins vegar ekki að tala um
lengri tíma, heldur aðeins, að ríkið
gefi eftir hluta skatttekna sinna á
næstu vikum vegna þessara hækk-
ana.“
Öm Friðriksson, varaforseti ASÍ,
segir að menn geti leikið sér að
alls konar útreikningum í sambandi
við olíuverðshækkunina og áhrif
hennar. Aðalatriðið í þessu máli sé
hins vegar það, að ríkisvaldið og
aðilar vinnumarkaðarins þurfí að
leggja sitt af mörkum við að halda
jafnvægi í efnahagslífínu. Nú hafi
orðið tímabundnar erlendar hækk-
anir á olíu og ef þeim verði velt af
fullum þunga út í verðlagið, sé ver-
ið að eyðileggja þann árangur í
verðlagsmálum, sem náðst hafi í
kjölfar samninga í febrúar. Það sé
ljóst, að launþegasamtökin muni
ekki líða, að þessar hækkanir lendi
á launþegum einum, en ekki á
ríkinu eða fyrirtækjum.
Stakk af á
ofsahraða
ÖKUMAÐUR bfls sem mældist aka
um Sæbraut við Dugguvog á 108
kílómetra hraða í fyrrinótt hvarf
sjónum lögreglu, sem skömmu
síðar fann bílinn mannlausan í
Eikjuvogí.
Skömmu siðar sást til ungs manns
veifa bílum við nálæga götu. Þar
reyndist vera sonur skráðs eiganda
bifreiðarinnar og var hann undir
áhrifum áfengis. Hann var færður á
lögreglustöðina þar sem hann neitaði
harðlega að hafa ekið bílnum né vita
nokkuð um málið. Pilturinn gisti
fangageymslur og var síðan færður
til yfírheyrslu.
Ágreiningur um val í sljórn
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, var í kjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfé-
laga. Mikill ágreiningur kom upp á landsþingi sambandsins í gær
um kosningu stjórnar, en eftir nokkurt þóf náðist samkomulag um
uppstillingu, sem samþykkt var samh\jóða.
Samband íslenskra sveitarfélaga
hélt 14. landsþing sitt í Reykjavík
í gær og fyrradag. Fulltrúar voru
á þriðja hundrað, hvaðanæva af
landinu.
í stjórn sambandsins eiga sæti
níu menn, tveir úr Reykjavík og
einn úr hveiju hinna kjördæma
landsins. Síðdegis í gær kom upp
ágreiningur á þinginu um. uppstill-
ingu í stjóm og var deilt um skipt-
ingu stjórnarmanna milli stjóm-
málaflokka eftir kjördæmum. Fram
kom málamiðlunartillaga um að
stjómarmenn Reykjaneskjördæmis
yrðu tveir í stað eins, þannig að
stjómarmenn yrðu tíu. Var þessi
tillaga felld og leit um tíma út fyr-
ir að til kosninga kæmi um skipan
stjórnarinnar í fyrsta sinn í sögu
sambandsins.
Eftir mikil fundarhöld í kjömefnd
þingsins náðist samkomulag um
uppstillingu, sem var samþykkt
samhljóða af þingfulltrúum. Sam-
kvæmt tillögu kjörnefndar var Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgar-
fulltrúi í Reykjavík, kjörinn formað-
ur og aðrir í stjóm, Jón G. Tómas-
son, borgarritari í Reykjavík, Ing-
var Viktorsson, Hafnarfírði,
Bryndís Brynjólfsdóttir, Selfossi,
Kristján Magnússon, Vopnafirði,
Sigríður Stefánsdóttir, Akureyri,
Valgarður Hilmarsson, Engihlíðar-
hreppi, Ólafur Kristjánsson, Bol-
ungarvík og Ingvar Ingvarsson,
Akranesi.
Dvergasteinn hf. á Seyðisfirði:
Eignir Norðursíldar
keyptar á 47 milljónir
FISKVINNSLAN Dvergasteinn
hf. á Seyðisfirði hefur keypt eign-
ir þrotabús Norðursíldar hf. af
Landsbanka íslands á 47 miHjónir
króna. Áður hafði fyrirtækið
keypt eignir Fiskvinnslunnar hf.
af Byggðastofnun á 55 milljónir.
Fiskvinnslan Dvergasteinn hf. er
almenningshlutafélag i eigu eigenda
útgerðar togarans Gullvers, einstakl-
inga á Seyðisfirði, bæjarsjóðs, hafn-
arsjóðs og Verkamannafélagsins
Fram. Fyrirtækið var stofnað fyrr á
þessu ári til að taka við rekstri Fisk-
vinnslunnar-Norðursíldar hf„ sem
gjaldþrota varð á síðasta ári. Við
skipti þrotabús fyrirtækisins eignað-
ist Landsbanki Islands eignir Norð-
ursíldar og Byggðastofnun eignir
Fiskvinnslunnar.