Morgunblaðið - 29.09.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.09.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990 43 * HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA íslensku lidin eiga góða möguleika Valurleikurgegn Sandefjord, FH gegn Kyndli og Framstúlkurn- ar leika gegn Stokkhólmspolisens IF Pettersen, fyrrverandi landsliðs- þjálfari Noregs. Féjagið var stofnað 1986 og er þetta í fyrsta sinn sem félagið tekur þátt í Evrópukeppni. Pettersen var kokhraustur eftir fyrri leikinn í Noregi sagði við fjöl- miðla að íslensk félagslið væru slök og það eina sem íslendingar gætu státað sig af í handboltanum væri gott landslið. FH mætir Kyndli frá Þórshöfn í Hafnarfirði á mánudagskvöld. Þoi-gils Óttar Matthiesen, þjálfari FH, var bjartsýnn á að lið hans næði að komast í 2. umferð keppn- innar, en FH sigraði með tveggja marka mun í Þórshöfn. „Þetta er lið sem við eigum að vinna með 4 til 5 mörkum á venjulegum degi, en það er ekkert sjálfgefið í þessu. Kyndill er með nokkuð gott lið og ' er línumaður þeirra sérstaklega góður. Hann gerði tíu mörk í leikn- um í Þórshöfn.“ Þorgils Óttar sagð- ist vonast til að Hafnfirðingar myndu styðja við bakið á liðinu þó svo á móti hafi blásið í fyrstu leikj- unum á íslandsmótinu og mæti á leikinn. íslandsmeistarar Fram í meist- araflokki kvenna mæta Polisen frá Stokkhólmi og ættu að eiga góða möguleika. Framstúlkurnar töpuðu með aðeins tveggja marka mun í fyrri leiknum og ættu að geta unn- ið þann mun upp á heimavelli. Valur endurheimtir titilinn Samkvæmt spá forráðamanna liðanna íVÍS-keppninni 1. deild r umferðum að þremur inni kl. 16:30. Víkingur, Valur og spánni hafna íslandsmeistarar FH annað árið í röð og I Þremur umferðum að þremur leikjum undanskyldum er lokið í 1. deild karla í handknatt- leik, VÍS-keppninni, en vegna Evrópuleikja um helgina verður aðeins einn leikur í keppninni um helgina; KR - Haukar leika í Höll- inni kl. 16:30. Víkingur, Valur og Stjarnan eru með sex stig á toppn- um, en forráðamenn liðanna spá því að sömu lið verði í þremur efstu sætunum í vor; Valur verði íslandsmeistari, Stjarnan í 2. sæti og Víkingur í 3. sæti. Samkvæmt spánni hafna íslandsmeistarar FH í 4. sæti, KR í 5. sæti og KA í 6. sæti. Síðan koma ÍBV, Hauk- ar, ÍR, Grótta, Fram og Selfoss. Vátryggingafélag íslands er helsti styrktaraðili keppninnar annað árið í röð og hefur óskað eftir að hafa forgang í því efni næstu þijú árin. Styrkurinn felst aðallega í kynningu á mótinu, en að auki tryggir félagið alla dómar- ana. HALBERG-ROHR óskar Hitaveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg til hamingju með opnun Nesjavallavirkjunar Halberg-Luitpoldhútte seldi til Nesjavallavirkjunar, 6200 metra af 900 mm ductil ferskvatnsleióslum, frá Þingvallavatni aó stöóvarhúsi. Ails vegur leióslan 2300 tonn með fylgihlutum. Vió þökkum Reykjavíkurborg og H.R. ánægjuleg viðskipti á síóastliónum 1 0 árum. Umboðsmaóur: Adolf Bjamason Hafnarhvoli v/Tryggvagötu Pósthólf 8ó0, 1 21 Reykjavík Sími 91-22432, fax 91-624049 ekki óyfirstíganlegt," sagði Þor- björn Jensson, þjálfari Vals, um leikinn á sunnudag. „Við komum vel undirbúnir og erum reynslunni ríkari frá fyrri leiknum í Noregi. Norska liðið er sterkt og í því marg- ir landsliðsmenn. Besti leikmaður liðsins er Sovétmaðurinn, Sergej Demidov, sem hefur leikið 67 lands- leiki fyrir land sitt. Hann er geysi- lega sterkur og hefur mikinn skot- kraft, “ sagði Þorbjörn. Brynjar Harðarson, leikmaður Vals, sagði að úrslitin á sunnudag myndu ráðast af varnarleiknum og markvörslunni. „Varnarleikurinn var ekki nægilega góður í fyrri leiknum og við ætlum okkur að bæta hann.“ Þjálfari Sandefjord er Gunnar HALBERG-LUITPOLDHÚTTE VERTRIEBES - GMBH P.O. Box 1 170 D-6604 Saarbriicken-Brebach Vestur-Þýskalandi Brynjar Harðarson og félagar hans i Val fá erfitt verkefni er þeir mæta norska liðinu Sandefjord í Evrópukeppni bikarhafa á sunnudagskvöld. Vals- menn verða að vinna upp fjögurra marka tap frá því í fyrri leiknum. ÞRÍR leikir verða í Evrópu- keppni félagsliða í handknatt- leik hér á landi á sunnudag og mánudag. Valur leikur gegn Sandefjord í Evrópukeppni bik- arhafa í Laugardalshöll á sunnudag kl. 20.30 og FH gegn Kyndli í Evrópukeppni meist- araliða í Haf narf irði á mánu- dagskvöld kl. 20. Fram leikur í Evrópukeppni kvenna í meist- araflokki gegn sænsku meist- urunum íLaugardalshöll kl. 16.30 á sunnudag. Valsmenn eiga erfíðasta verkef- nið fyrir höndum þar sem þeir töpuðu fyrri leiknum gegn Sande- fjord með fjögurra marka mun. „Þetta er verðugt verkefni og alls

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.