Morgunblaðið - 29.09.1990, Page 30

Morgunblaðið - 29.09.1990, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAIIGARDAGUR 29. SEBTEMBER 1990 Greipur Sigurðsson, Haukadal — Minning Fæddur 17. maí 1938 Dáinn 19. september 1990 Það er misjafnt, hvem sess sam- ferðamennimir skipa í hugum okk- ar, þegar frá líður, og hversu fljótt fennir yfir þau spor, sem þeir marka í endurminningunni. Þá ræður ekki alltaf úrslitum, hversu lengi kynnin stóðu, heldur fyrst og fremst hitt, hver þau urðu. Kynni mín af Greipi Sigurðssyni í Haukadal í Biskupstungum, sem í dag verður til moldar borinn í kirkjugarði þeirra Haukdæla, vora stutt, mæld á kvarða mannsævinn- ar. Eigi að síður er það tilfinning mín, að hann verði í endurminning- unni í hópi þeirra manna, sem mér verða hvað minnisstæðastir. Hann var þeirrar manngerðar, að hann hlaut að snerta sérhvern þann, er honum kynntist. Þeir, sem höfðu af Greipi lengri kynni en ég, eru án efa betur til þess fallnir að lýsa ævi hans og störfum, manngerð, mannkostum og göllum, ef ein- hveijir voru. En hver, sem finnur sig til þess knúinn á stundu sem þessari, að senda Greipi kveðju, hlýtur að minnast þess og lýsa því, sem fyrir augun bar, jafnvel þótt kynnin hafi verið stutt. Greipur Sigurðsson í Haukadal kom mér fyrir sjónir sem fjölhæfur maður, enda var persónuleiki hans margslunginn. Um hann má segja það, sem sagt var forðum daga um annan góðan Haukdæla: „að hann mátti vera víkingahöfðingi, og hefði hann verið vel til þess fenginn. Þá mátti hann og vera konungur af sínu skaplyndi, og hefði verið vel fengið. Með þriðja hætti hefði hann mátt vera biskup, og það myndi hann helst hafa hlotið, og vera hinn mesti ágætismaður." Starfsmöguleikar mannanna eru sem betur fer margbreytilegri nú en voru, þegar Haraldur konungur harðráði mælti hin fleygu orð um Gizur biskup ísleífsson, en tiltlnning mín er sú, að hógværð Greips og lítillæti hafi staðið því í vegi að hann sæktist eftir mannaforráðum og virðingartitlum, hvort heldur sem var innan sveitar eða utan, en vel hefði hann veríð að þeim kom- inn. Hann kaus fremur að eyða ævidögunum á fæðingarslóðum, og þar valdi hann sér það að ævi- starfi, sem hjarta hans stóð næst, ræktun landsins og verndun gróð- ursins, og hann var sem land- græðsluvörður og garðyrkjubóndi trúr sérhverju því, sem hann var settur yfir. En Greipur var ekki einasta áhugamaður um ræktun landsins, heldur og lýðsins líka. Án þess að hann gerði sér fyllilega grein fyrir því sjálfur, hafðj hann mannbæt- •andi og þroskandi áhrif á þá ungl- inga, sem störfuðu með honum á sumrin að landgræðslu og nutu þess, sem ég vil fá að kalla forrétt- indi að vera samvistum með honum á ijöllum uppi undir handleiðslu hans og handaijaðri. Einlægni Greips, hjartahlýja og glaðværð gerðu það að verkum, að hann átti auðvelt með að nálgast ungmennin, skilja og skynja vandamál þeirra og verða vinur þeirra. Hann leysti úr vandamálunum, þegar þannig stóð á, og hann tók líka þátt í því að skipuleggja framtíðina, ef svo bar undir, og reyndist þá jafnan hollráður hveijum þeim, er til hans leitaði. Því má með miklum sanni segja um Greip það sama og sagt var um Eriing Skjálgsson á Sóla forðum daga: „að öllum mönnum kom hann til nokkurs þroska." Mér verða alltaf minnisstæð þau hlýju ummæli, sem ég las um Greip í blaðaviðtali fyrir fáum áram, höfð eftir ungum presti, sem þá var ný- kominn til starfa í Reykjavík, en presturinn hafði á námsárum sínum starfað hjá Greipi. Ummæli eins og þau, sem þar féllu um Greip, hlýtur enginn nema sá, sem markað hefur spor í vitund og þroska þess, er þar mælti. Þessum eiginleikum Greips kynntist ég líka fyrir milligöngu sonar míns, sem starfaði hjá Greipi í sumar og var með honum á Haukadalsheiðinni, þegar kallið mikla kom svo snöggt og óvænt. Það hlýtur að vera eldskírn fyrir óharðnaðan ungling að komast með þessum hætti í kynni við návist dauðans, einn og hjálparlaus fjarri mannabyggðum. En þakklátur er hann Greipi fyrir þau kynni, sem þeir áttu í sumar. Þeirra mun hann lengi minnast, með hlýju og af virð- ingu. Af því að Greipur í Haukadal var hógvær maður, þá kunni hann illa öllu hóli um sjálfan sig. Það var eins og að stijúka kettinum öfugt að klappa Greipi með hóli. Þegar ég minntist eitt sinn við hann á ummæli prestsins í blaðaviðtalinu, svaraði hann af sinni alkunnu hóg- værð og glettni: „Æ, ekkert skil ég í því, hvað þeir sækja í að koma hingað aftur, strákarnir, eins og ég er orðinn geðillur og leiðinlegur.“ En þar sem Greipur átti til fleiri hliðar en þær, sem ég að framan lýsti, og þær hliðar gerðu hann ekki síður eftirsóknarverðan og eft- irminnilegan í augum samferða- mannanna, þá verð ég að fá að syndga svolítið upp á náðina og halda frásögninni áfram eilítið leng- ur. Oðru fremur finnst mér það hafa verið glaðværðin í lundinni, sem einkenndi persónuleika Greips, og sá smitandi léttleiki, sem jafnan ríkti í kringum hann. í hans augum var lífinu ekki lifað til þess að hafa af því vandræði. Hann var alft í senn ræðinn, söngvinn, kátur, hlýr og skemmtilegur, og hann hafði þetta kynngimagnaða aðdráttarafl, sem bara sumum er gefið. Ef ein- hver sannindi felast í þeim orðum, að útlitið lýsi innra manni, þá finnst mér það eiga við um Greip, því ég man varla eftir honum öðra vísi en brosandi. Okkur Gránufélagsmönnum fannst tómlegt að fara um Tung- urnar hvort heldur sem var akandi eða ríðandi, ef ekki var komið við í Haukadal hjá Greipi og Stínu. Móttökurnar vora alltaf höfðingleg- ar, en fyrst og fremst var það við- mótið og hjartahlýjan, sem gerði það eftirsóknarvert að ná fundi þeirra. I fyrrahaust átti ég þess kost, fyrir góðra manna tilstilli, að fara á fjall með þeim Tungnamönn- um. Ég lagði upp ríðandi frá Miðd- al með viðkomu í Úthlíð hjá þeim sæmdarhjónum Birni Sigurðssyni, mági Greips, og Ágústu, konu hans. Ferðinni var heitið að Kjóastöðum, þar sem fjallmenn safnast saman, en þangað hafði ég ekki riðið áður. Ég spurði Ágústu, hversu lengi ég væri að ríða að Kjóastöðum, og verður mér lengi minnisstætt tilsvar hennar, þegar hún sagði: „Þar ræð- ur tvennt: Fyrst hversu hratt er riðið og svo hversu lengi er stoppað hjá Greipi og Stínu.“ Það var líka ósjaldan, sem þau hjónin, Greipur og Stína, slógust í för með okkur félögunum, þótt annirnar væru miklar og fyrirvarinn oftast enginn. Við höfðum líka á orði, að um garð þeirra hjóna ætti við það, sem segir í stökunni góðu eftir Guðmund Böðvarsson á Kirkjubóli, að Gott er að koma að garði þeim, er góðir vinir byggja. Þá er meir en hálfnað heim, hvert sem vegir liggja. Annað það sem gerir Greip í Haukadal minnisstæðan í mínum huga var framkoma hans og til- svör. Að eðlisfari var hann mikill strákur, ólgandi af prakkaraskap, lífsgleði, þrótti og krafti, allt fram til hinstu stundar. Einlægnin og hrekkleysið sat þó alltaf í fyrir- rúmi, ogtil dyranna kom hann jafn- an eins og hann var klæddur, í eig- inlegri og óeiginlegri merkingu. Hann sagði umbúðalaust sína mein- ingu og ef honum þótti mikið við liggja á heitum sumardögum á fjöll- um uppi að komast úr sokkum og skóm, þá segja mér góðir Tungna- menn, að hann hafi ekki sett það fyrir sig að kasta af sér klæðum og skæðum og skoppa um berfætt- ur á egghvössu gijótinu, en þó far- ið jafnhratt yfir eins' og þeir, sem skæddir voru. Tilsvör Greips gátu verið hnyttin og oft sérstæð, og þau minntu mig stundum á tilsvör afa míns, Þor- geirs í Gufunesi, sem í þeim efnum batt ekki alltaf bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir, en með þeim Greipi og afa mínum var gott vinfengi. Átti sú vinátta án efa rót sína að rekja allt aftur til þess tíma, er þeir Þorgeir og Sigurður Gréipsson í Haukadal, faðir Greips, fóru saman um Norðurlönd, lærðu þar íþróttir og sýndu glímu á þriðja áratug þessarar aldar. Væntum- þykju afa míns í garð Sigurðar Greipssonar og hans fólks má kannski best lýsa með frásögn af þeim atburði, þegar afi minn eitt rigningarsumarið, loksins þegar þurrk gaf, stóð upp úr flekknum hjá sjálfum sér og hélt austur í Haukadal til Sigurðar Greipssonar með heyblásara í farteskinu til þess að hjálpa Sigurði að taka .saman. Og aðspurður af hveiju hann hefði ekki frekar tekið saman hjá sjálfum sér og komið sinni eigin töðu í hlöðu, þá svaraði hann: „Jú, af því að þetta er svo góður maður.“ Þau ummæli eiga líka við um Greip, son Sigurðar, sem nú er kvaddur. Við Gránufélagsmenn hættum án efa ekki að fara um Tungurnar, þótt Greipur Sigurðsson í Hauka- dal, þessi sanni heiðursmaður, sé nú fallinn frá, langt um aldur fram. Honum hefði ekki Verið það að skapi, að sín yrði minnst með þeim hætti. Það verður vonandi farin önnur Grundarreið og haldin önnur árshátíð Gránu, þótt Greipur verði ekki með okkur. En vinar og félaga verður saknað í stað. Það er líka tilfinning mín, að okkur muni þykja Bjarnarfellið, Bláfellið og Jarihett- urnar kollóttari á að líta, þegar okkar góða vinar nýtur ekki lengur við á þeim fögru slóðum, þar sem hann ólst upp, eyddi starfsævinni, en beið líka sinn bana í önnum dagsins. Staddur í fjarlægu landi á ég þess ekki kost að fylgja mínum góða vini og velgjörðarmanni, Greipi Sigurðssyni í Haukadal, síðasta spölinn, sem ég þó gjarna hefði viljað gera. Þessi fátæklegu kveðjuorð verða því að nægja, að sinni. Hans góðu frú, Kristínu Sig- urðardóttur frá Úthlíð, og upp- komnum börnum þeirra hjóna, Hrönn og Sigurði, sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Þeirra er mikill harmur, en minningin um góðan dreng lifir. Það hlýtur að vera huggun harmi gegn. Þorgeir Órlygsson Við fráfall Greips Sigurðssonar, Haukadal, koma upp í hugann minningar um góðan dreng, sem tókst á við verkefni líðandi stundar hiklaust og með því hugarfari, að erfiðleikarnir væru til þess að sigr- ast á þeim. Greipur féll frá langt um aldur fram í miðri önn dagsins. Viðhorf hans var jafnan, að standa skyldi meðan stætt væri og leysa þau verkefni, sem fyrir lægju eins vel og unnt væri. Þetta gæti að vissu leyti verið örstutt lýsing á farsælli starfsævi. Greipur Sigurðsson hóf kornung- ur störf hjá Skógrækt ríkisins í Haukadal og hafði síðan lengi eftir- lit með staðnum auk þess, sem hann sá þar um ýmsar framkvæmd- ir. Þær era orðnar æði margar tijáplönturnar í Haukadal, sem Greipur gróðursetti og hlúði að. Hann fylgdist hreykinn og ánægður með því hvemig þær uxu og döfn- uðu og urðu stórvaxin tré, sem boðið gátu veðri og vindum birginn, en skjólið og gróðursældin jókst eftir því sem árin liðu. Þegar af- rakstur ræktunarinnar varð stað- reynd sem jóhitré af ýmsum stærð- um var Greipur ómissandi við högg og flutning, enda tveggja manna maki í öllum verkum. Var ómetan- legt að geta leitað til Greips á þeim tímum, þegar vélakostur var fátæk- legur, aðstaða örðug og fjármunir af skornum skammti. Greipur var hugmaður í störfum sínum og naut Skógrækt ríkisins góðs af þeim eig- inleikum hans. Þeim hjónum, Greipi og Kristínu, sem oftar en ekki vora nefnd í sömu andránni, var það kappsmál að veg- ur Haukadals yrði sem mestur og sýndu það með verkum sínum. Á þeim áram, sem Greipur starfaði mest við skógrækt í Haukadal, var Kristín ráðskona þar og þegar ekki varð lengur komist hjá að bæta húsakost staðarins studdu þau þær framkvæmdir með ráðum og dáð. Hefði orðið erfitt um vik, ef ekki hefði komið til liðsinni þeirra hjóna. Tóku þau jafnvel starfsmenn Skóg- ræktar ríkisins í fæði og húsnæði ef á þurfti ^ð halda. Þau ár, sem mér gafst kostúr á að hafa umsjón í Haukadal, var Greipur einn þeirra manna, sem gott var að geta leitað til. Þótt _ hann væri þá hlaðinn öðrum störf- um hljóp hann jafnan undir bagga ætti hann stundir aflögu. Útsjónar- semi hans, kjarkur og lagni gerðu honum störfin að leik. Mér er bæði ljúft og skylt að þakka Greipi Sig- urðssyni störf hans í Haukadal, gestrisni og greiðasemi, er aldrei brást. Trén, sem hann gróðursetti og annaðist af kostgæfni og ár- vekni, minna á störf hans. Við hjónin sendum Kristínu hans Greips og bömunum, Sigurði og Hrönn, innilegar samúðarkveðjur og þökkum samfylgd á liðnum áram. Baldur Þorsteinsson „Hann var allra manna fríðastur, þeirra er fæðzt hafa á Islandi. Hann var mikilleitur og vel farinn í and- liti, manna bezt eygður og ljóslitað- ur. Mikið hár hafði hann og fag- urt, sem silki, og féll með lokkum, mikill maður og sterkur, eftir því sem verið hafði Egill móðurfaðir hans, eða Þórólfur. Kjartan var hveijum manni betur á sig kominn, svo að allir undraðust þeir er sáu hann. Betur var hann og vígur en flestir menn aðrir. Vel var hann hagur og syndur manna bezt. Allar íþróttir hafði hann mjög umfram aðra menn. Hveijum manni var hann lítillátari og vinsæll, svo að hvert barn unni honum. Hann var léttúðugur og mildur af fé.“ Ungur að árum er ég las þessa lýsingu á Kjartani Ólafssyni í Lax- dælu kom strax upp í huga mér annar maður, Greipur Sigurðsson á Geysi. Eftir því sem árin liðu og leiðir okkar Greips lágu meira sam- an varð mér hins vegar sífellt ljós- ara hvað þeir áttu margt sameigin- legt Greipur og Kjartan, og það þrátt fyrir að afi Kjartans var Egill Skallagrímsson en langafi Mýr- kjartan írlandskonungur. Hvorki Kjartan né Greipur kenndu sér meins um ævina. Hvor- ugur varð gamall, báðir féllu frá í blóma lífsins þegar framtíð þeirra var hvað björtust. Greipur er horfínn og með honum óvenjuleg hjálpsemi og stórfengleg gamansemi. Þeim mun ekki leiðast sem lenda hvað næst honum hinum megin við móðuna miklu. Björn Hróarsson Baráttan við eyðingu íslenskra gróðurlenda og vemdun þeirra hef- ur aðallega hvílt á herðum fárra lykilmanna. Það er fáum ljóst hversu mjög við eigum þessum mönnum að þakka þann árangur, sem náðst hefur í landgræðslustarf- inu. Nú hefur einn af þessum baráttu- mönnum fallið í valinn. Hné niður á vígvellinum, þar sem hann vann að friðun á hluta hálendisins sem ógnað er af uppblæstri. Það var Greipur Sigurðsson frá Haukadal sem kallaður var burt í blóma lífsins, mitt í annasömu starfi í þágu landgræðslu og skógræktar. Þetta bar að svo skjótt og óvænt að það er engin leið að sætta sig við slíkt óréttlæti að maður sem var ímynd hreysti og heilbrigði skuli, liðlega fimmtugur að aldri þurfa að hverfa fjölskyldu sirtni, vinum og göfugu starfi. Að okkur vinum t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, RUNÓLFUR GUÐMUNDSSON bóndi, Ölvisholti, Hraungerðishreppi, lést í hjúkrunarheimilinu Ljósheimum að kvöldi 27. september. Ögmundur Runólfsson, Heidi Runólfsson, Kjartan Runólfsson, Margrét Kristinsdóttir, Sveinbjörn Runólfsson, Lilja Júlíusdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, KRISTINN GUÐJÓNSSON forstjóri, Víðimel 55, lést 28. september. Sigurveig Eiríksdóttir, Rannveig'Hrönn Kristinsdóttir, Guðrún Drifa Kristinsdóttir, Kristfn Mjöll Kristinsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, HARALDUR KARLSSON, Látraströnd 50, Seltjarnarnesi, lést í Borgarspítalanum miðvikudaginn 26. september. Ingibjörg Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.