Morgunblaðið - 29.09.1990, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
Súkkulaði Sælkerans
0'
íP5&©twv
• ' «éHn
y-t
Heiiasöíubirgði: istensi' Dreifirig
•• ‘t r •; - OC- /«
18
15«
Félagsmálaráðherra
leitar að blóraböggli
eftir GeirH. Haarde
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra er mikið niðri fyrir
þessa dagana og ritsmíð hennar í
Morgunblaðinu sl. fimmtudag ber
vott um hreina örvæntingu. Það er
e.t.v. ekki að undra. Skýrsla ríkis-
endurskoðunar um fjárhagsstöðu
Byggingarsjóðs ríkisins og Bygg-
ingarsjóðs verkamanna staðfestir
nefnilega svo ekki verður um villst
.19
• 20
að fyrir aðgerðarleysi ráðherrans
allt frá árinu 1987 er nú svo komið
að sjóðunum er að blæða út og
þeir verða að óbreyttu gjaldþrota
skömmu eftir aldamót.
Stóryrði í stað
raunhæfra aðgerða
Þetta eru ekki ný tíðindi fyrir
þá sem fylgst hafa með þessum
málum og fyrr í sumar komst sér-
stök nefnd á vegum ráðherrans að
sömu niðurstöðu. í áliti nefndarinn-
ar sagði m.a. að ekki væri ráðlegt
„að víkjast lengur undan því að
koma jafnvægi á rekstur" Bygging-
arsjóðs ríkisins. Nefndin benti svo
á þá einföldu staðreynd að leiðirnar
til að koma á jafnvægi væru tvær,
annars vegar að hækka útlánsvexti
sjóðsins og hins vegar að tryggja
honum árlegt framlag úr ríkissjóði.
Staðreyndin er hins vegar sú að
hvorugt hefur verið gert og núver-
andi félagsmálaráðherra ber á því
fulla ábyrgð. Það er því e.t.v. ekki
að furða að það skuli fara í skapið
á ráðherranum þegar á það er bent
af óvilhöllum aðilum. Hins vegar
er enn hægt að grípa í taumana
og bjarga fjárhag þessara opinberu
sjóða ef vilji er fyrir hendi. Það
kemur fram í skýrslu ríkisendur-
skoðunar og sömuleiðis ráðherra-
nefndarinnar. En í stað þess að
grípa til viðhlítandi aðgerða og
reyna að ná um þær pólitískri sam-
stöðu fær félagsmálaráðherra útrás
fyrir skapsmuni sína með því að
snúa út úr ummælum Þorsteins
Pálssonar formanns Sjálfstæðis-
flokksins.
1
«
...og teiknaðu þægilegan stól
Það er meiri vandi en margur heldur, því góður stóll byggist ó þekkingu
ó mannslíkamanum, mismunandi þörfum einstaklinga og síðast en ekki
síst - reynslu og hæfni þeirra sem framleiða stólinn.
Komdu og prófaðu Wilkhahn og ERO stólana - þó veistu hvað þú vilt.
sess
FAXAFENI 9-108 REYKJAVÍK • SÍMI 67 93 99
Vaxtaklúður og
versnandi staða
Félagsmálaráðherra skaut sér
þegar árið 1987 undan ábyrgðinni
á því að hækka vexti á lánum Bygg-
ingarsjóðs ríkisins til samræmis við
það sem upphaflegar forsendur lán-
akerfisins frá 1986 gerðu ráð fyrir.
Óhjákvæmilegri ákvörðun var fre-
stað í tvö og hálft ár, þar til í désem-
ber sl., og varð svo á endanum
hreint klúður. Ráðherrann hefur
síðan staðið að því að lækka ríkis-
framlagið í sjóðinn í einn tuttugasta
af því sem það áður var í krónum
talið og mun minna að raungildi.
(Reyndar sagði félagsmálaráðherra
nýlega í fréttum að hún stæði ekki
að fjárlagafrumvarpi næsta árs þar
sem hún vildi ekki una niðurstöðum
þess varðandi byggingarsjóðina. Ég
leyfi mér að spá því hér að þessi
yfirlýsing reynist marklaus.)
Félagsmálaráðherra kýs að haga
sér í þessu máli eins og sá sem kom
báðum foreldrum sínum fyrir katt-
arnef og bað síðan um náð og mis-
kunn þar eð hann væri munaðar-
laus. Nema hvað ráðherrann geng-
ur lengra og kennir öðrum um
ódæðið. Af grein ráðherrans í Morg-
unblaðinu sl. fimmtudag má helst
ráða að það sé formanni Sjálfstæð-
isflokksins að kenna hvernig komið
sé! Hann lét sem kunnugt er af
embætti fjármálaráðherra sumarið
1987 og forsætisráðherra haustið
1988.
En hvað segir í skýrslu ríkisend-
urskoðunar um eiginijárstöðu
byggingarsjóðanna þau ár sem
hann kom hér við sögu? Þar kemur
fram að staða þeirra hafi batnað
um tæplega 3 milljarða króna á
árinu 1986, 2 milljarða 1987 og 1,5
árið 1988 en muni hins vegar rýrna
um 1 milljarð á þessu ári. Það er
dapurlegt hvernig félagsmálaráð-
herra reynir sí og æ að koma
ábyrgðinni á eigin vanrækslu yfir
á aðra.
Byggingarsjóður og
húsbyggjendur hlunnfarnir
Á meðfylgjandi mynd sem tekin
er úr skýrslu ríkisendurskoðunar
sést glöggt hvernig framlög ríkisins
til byggingarsjóðanna tveggja hafa
HVAÐ ER
IpIaIrIaIdIoIrI
ÞÝSKAR ÞILPLÖTUR
GÆÐAVARA í STÍL
Fyrirliggjandi
►. ÞOBOBlMSSON & C0
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640