Morgunblaðið - 29.09.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
19
Deilur um hrossakynbætur:
Kynbótafræðingur slítur sam-
starfi við hrossaræktendur
en ekki væri búið að skipa í mats-
nefndina. Sagði hann að lítilsháttar
ágreiningur væri milli Þorvalds og
Halldórs hvemig bæri að standa
að vali manna í matsnefnd en taldi
hinsvegar að ekki yrði mikið mál
að jafna þann ágreining.
DR. ÞORVALDUR Árnason kynbótafræðingur hefur sagt upp öllu
samstarfi við islenska hrossaræktarmenn um sinn í bréfi sem hann
ritaði búnaðarmálastjóra fyrir nokkru. Ástæður uppsagnar Þorvalds
má rekja til fundar hjá hrossaræktarnefnd Búnaðarfélags Islands
skömmu eftir síðustu páska en Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðu-
nautur hafði boðið Þorvaldi að sitja fundinn þar sem hann var stadd-
ur hérlendis um þær mundir.
, Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Þorvaldur Arnason við dómstörf á Evrópumótinu í Svíþjóð 1985
ásamt Þorkeli Bjarnasyni og Heidi Schwörer Þýskalandi.
Jarlinn
'■VEITINGASTOFA-
Á fundinum mun einn nefndar-
manna séra Halldór Gunnarsson í
Holti, hafa gagnrýnt harðlega störf
og menntun Þoi-valds en hann hefur
hannað tölvuforrit fyrir BI sem
notað hefur verið síðustu árin í
hrossaræktinni við gerð kynbóta-
gildisspár. Lagði Halldór til að bún-
aðarfélagið stæði fyrir mati á
menntun og störfum Þorvalds þann-
ig að ótvírætt kæmi í ljós hvort
tölvuforritið eða kynbótagildisspáin
væri nothæf í hrossarækt. Hefur
Atlaga gerð að
áratuga starfi
- segir Þorvaldur
Arnason
í SAMTALI við dr. Þorvald Árna-
son kynbótafræðing sem starfar
í Svíþjóð sagðist hann fagna því
að gerð yrði hlutlaus úttekt á
hvort þau verk sem hann hafi
unnið fyrir Búnaðarfélag íslands
væru nothæf vísindi eða fúsk eða
léttgeggjað rugl eins og ýmsir
hafa viljað kalla það.
Halldór reyndar sjálfur dregið í efa
að svo sé og látið að því liggja að
með notkun þess gæti hlotist af
mikill skaði í ræktun íslenskra
hrossa.
í bréfinu segir Þorvaldur að við
svo búið sé honum ekki fært að
vinna með íslenskum hrossaræktar-
mönnum meðan nefndarmaður í
opinberri nefnd hafi slíkar efasemd-
ir sem Halldór hafi á menntun hans
og störfum og óski hann því eftir
að losna undan samstarfi við BÍ og
íslenska hrossaræktarmenn þar til
úttekt hafi farið fram á hans verk-
um og því hvort hann geti með
sönnu kallast vísindamaður.
Jónas Jónasson, búnaðarmála-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að búnaðarfélagið myndi
standa að úttekt á hæfni Þorvalds
Bréfið sem um getur í frétt Morg-
unblaðsins af uppsögn Þorvalds
kveðst hann hafa skrifað fyrir rúm-
um mánuði þar sem hann telji ekki
eðlilegt að hann starfi fyrir íslenska
hrossaræktarmenn meðan úttektin
fari fram.
Þorvaldur sagðist líta það aivar-
legum augum þegar slíkar ávirðing-
ar um hæfni hans komi fram í
máli opinbers nefndarmanns því
þarna væri gerð atlaga að áratuga
starfi sem hann hefði lagt sig allan
fram um gera sem best. Þá gat
hann þess að nú þegar hafi í tvígang
farið fram mat á störfum hans,
fyrst þegar hann hlaut doktorsnafn-
bót 1983 við háskólann í Ultuna
og síðar þegar hann hiaut dósents-
stöðu við sama skóla.
Ekki sagðist Þorvaldur vita með
vissu hvernig yrði valið í mats-
nefndina en reiknaði þó með að
valdir yrðu 3 eða 5 vaiinkunnir
menn innlendir eða erlendir eða
hvort tveggja. Sagðist hann reynd-
ar hafa gert tillögu um að í nefnd-
inni yrði erfðafræðingur, kynbóta-
fræðingur og tölfræðingur. Lagði
hann áherslu á að nefndin yrðu
skipuð raunvísindamönnum en ekki
leikmönnum því hann vildi ekki að
matið færi fram með svipuðum
hætti og kirkjuþingið í Róm þegar
menn greiddu atkvæði um það hvort
jörðin væri flöt eða hnöttótt.
Að endingu sagðist hann vera
óhræddur við þetta mat ef þannig
yrði að þessum rannsóknum staðið
að bæði hann og aðrir málsaðilar
gætu sætt sig við.
Hef miklar efasemdir um Blup-ið
- segir Halldór Gunnarsson í Holti sem hefur
óskað mats á notagildi tölvunnar í hrossarækt
„ÞAÐ er rétt að ég hafi vefengt
Blup-ið á þessum fundi hrossa-
ræktarnefndar og farið fram á
mat á því hvort það væri nothæft
í hrossarækt,“ sagði séra Halldór
Gunnarsson í Holti þegar hann var
spurður um tildrög þessa máls.
Sagðist hann hafa miklar efa-
semdir um að hægt væri að nota
slíkt tölvuforrit í- hrossarækt þar
sem svo margir þættir kæmu inn
í myndina.
Benti Halldór á að svona nokkuð
hefði hingað til eingöngu verið notað
í búfjárrækt þar sem verið er að
rækta fram einn eða tvo þætti, til
dæmis í kjötframleiðslu. Þá sagði
hann ennfremur að skekkjuþættir
væru sterkari í myndun einkunna í
kynbótadómum hrossa en eðlið í
hestinum.
„Það er mikill munur hvort svona
kynbótagildisspá er notuð til leið-
beiningar eða á afgerandi hátt eins
og nú er farið að gera með því að
verðlauna afkvæmahesta eftir
spánni. Þess vegna er ósk mín um
fræðilega athugun fram komin,“
sagði Halldór ennfremur.
Aðspurður um hvernig staðið yrði
að vali í matsnefndina sagði Halldór
að honum fyndist um tvo möguleika
að ræða. Annarsvegar væri að BÍ
leitaði til ýmissa stofnana og nefndi
hann sem dæmi Háskóla íslands, sem
aftur myndu tilnefna menn í nefnd-
ina. Eða hinsvegar mætti kalla til
leikmenn sem síðan leituðu til sér-
fræðinga.
Þá var Halldór spurður hvort engu
skipti að mat hefði verið lagt á störf
Þorvalds þegar hann varði doktors-
ritgerð sína í Svíþjóð. Sagði Halldór
það undarlegt að ekki hefði verið
leitað til einhvers sem væri vel kunn-
ugur hrossarækt, til dæmis Gunnars
Bjamasonar.
VAGIP8
Á VEGGI. LOFT OG GÓLF
TRAUSTARI HUÓÐEINANGRUN,
ÞYNGRI OG STEINULL
ÞVI' ÓÞÖRF. A FLOKKUR
ELDTRAUSTAR
VATNSHELDAR
ÖRUGGT NAGLHALD
KANTSKURÐUR SEM EGG
HOLLENSK GÆÐAVARA
Þ.MRGHlMSSOH&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640