Morgunblaðið - 29.09.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
21
Deilt um skólamjólk í Svíþjóð:
Keyptu mjólkurkú svo
börnin fengju mjólk
í stað kranavatns
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SKOLAYFIRVÖLD á Uppsala-svæðinu ákváðu í sparnaðarskyni
að hætta að gefa grunnskólabörnum mjólk með matnum nú í haust
og bjóða þeim í staðinn upp á glas af kranavatni. Foreldrum í
bænum Knivsta suður af Uppsala-borg þótti það ósvinna hin
mesta, enda töldu þau sig borga það háa skatta að eitthvað hlyti
að vera afgangs af þeim til að kaupa skólamjólk. Keyptu þeir hlut
í kú til tryggja börnum sínum nánast spenvolga nýmjólk dag hvern.
Börnin 80 í barnaskólanum í
Knivsta mótmæltu mjólkurbanni
yfirvalda og fannst súrt í broti að
mega ekki drekka mjólk þar sem
öll tún í bæjarlandinu voru full af
mjólkurkúm. Kennslukona sem
gift er mjólkurbónda kom til móts
við börnin og tók daglega með sér
fullan tíulítra brúsa í skólann.
Börnin gátu ekki fengið nýrri
mjólk og runnu á bragðið. Báðu
þau stöðugt um meira.
Skrifræðisþrælunum og möppu-
dýrunum á skólaskrifstofunum var
lítt skemmt yfir uppátækinu. Bann
var lagt við þessum mjólkurflutn-
ingum eftir að skólakokkurinn
spurðist fyrir um það hjá yfirvöld-
um hvort bónda væri leyfilegt að
láta börnunum í té mjólk milliliða-
laust. Sagt var að samkvæmt
neytendalögum væri harðbannað
að drekka ógerilsneydda mjólk
nema menn ættu kúna sjálfir.
Börnin skýrðu nú foreldrum
sínum frá því að þeim hefði verið
bannað drekka spenamjólkina og
yrðu að gera sér kranavatnið að
góðu. Ákveðin í að knésetja kerfið
skutu foreldrarnir á fundi og ák-
váðu að kaupa kú. Varð úr að þau
ákváðu að kaupa hlut í þeirri
skjöldóttu af manni kennslukon-
unnar og varð að samkomulagi
að greiðslan yrði innt af hendi á
nokkuð löngum tíma, enda sáu
yfirvöld ekkert athugavert við það.
En nú kann svo að fara að börn-
in verði senn af spenamjólkinni
og fái aftur skólamjólkina því
stjórnmálamenn í Knivsta hafa
CMC korfi fyrir nifturhongd loft, er úr
galvaniseruöum málmi og eldþoiið.
CMC kerfi er auövcll i uppsetnlngu
og mjög sterkt.
CMC kerfi er fest með stillanlegum
upphengjum sem þola allt að
50 kg þunga.
CMC kerfi tæst i mðrgum gerðum beeði
sýnilegt og fallð og verðið er
ótrulega lágt.
CMC kerfi er serstaklegb hannad Hringið eftir
fyrir lottplötur frá Armstrong Irekan upplýsmgum
tt
Etnkaumboá t Mandi
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykavík - sími 38640
í Kaupmannahöffn
* FÆST
I BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
látið málið til sín taka eftir þá
athygli sem kýrkaupin hafa vakið.
Hafa þeir komið því til leiðar að
mjólkurbanninu verður senn aflétt.
Keuter
Morðingjar
Begnino Aquino
dæmdir
Sextán hermenn voru í gær dæmd-
ir í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa
myrt Begnino Aquino, eiginmann
núverandi forseta Filippseyja,
Corazón Aquino, árið 1983. Begn-
ino Aquino var þá leiðtogi stjómar-
andstöðunnar á Filippseyjum. Á
meðal þeirra sem dæmdir voru í
gær er Rogelio Moreo en hann var
sakaður um að hafa hleypt af skot-
inu sem varð Aquino að fjörtjóni.
„Þeir náðu byssumanniinum en sá
sem skipulagði morðið hvílir nú í
friði,“ sagði Agapito Aquino, bróðir
Corazón Aquino, og átti þar við
Ferdinand Marcos, fyrrum forseta
Filippseyja.
SUZUKI SWIFT 4WD
SUZUKI
HAUSTSYNING
NU UM HELGINA
SUZUKI
VITARA
Hanrt sameinar marga kosti, glæsivagninn
Suzuki Swift 4WD. Þú getur
verið alveg viss um að komast
leiðar þinnar við næstum hvaða
aðstæður sem er þar sem
hann er fjórhjóladrifinn. Að auki er hann kraftmikill og
einstaklega lipur í akstri. Suzuki Swift 4WD er vissulega
þess virði að þú skoðir hann nánar.
En við sýnum einnig ýmsar aðrar gerðir af Suzuki bílum,
þessum einstöku fararskjótum sem hafa slegið í gegn undanfarin
ár, enda margverðlaunaðir fyrir ótrúlega sparneytni. Og þá er
ekki síður gaman fyrir bílaáhugamenn að kynna sér Suzuki
Vitara, þennan stórskemmtilega jeppa, sem er eins
og Ijúfasti fólksbíll í bæjarakstri en sannkallaður
fjallagarpur á vegleysum.
Aðalsmerki allra Suzuki bíla er lág
bilanatíðni og hátt endursöluverð.
Verifc velkomin á haustsýningu
Suzukibíla að Skeifunni 17 um helgina.
Laugardag frá kl. 10-17
Sunnudag frá kl. 13-17
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF. - SKEIFUNNI 17 - S. 685100
SUZUKI
SWIFT GTi