Morgunblaðið - 29.09.1990, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
Háskólinn og Hafrannsóknastofnun:
Rætt um samvinnu
vegna rannsókna á
þorskeldi í Eyjafírði
ÞORSKELDI í Eyjafirði er verkefni sem rætt hefur verið um að unn-
ið verði að í samvinnu Háskólans á Akureyri og Hafrannsóknastofnun-
ar. Stofnunin hefur flutt útibú sitt til Akureyrar og hefur verið rætt
um að það og sjávarútvegsdeild háskólans gerðu í samvinnu rannsókn-
ir á sviði þorskeldis í firðinum.
Ólafur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar,
sagði á fundi sem haldinn var í há-
skólanum um atvinnumál að Norð-
menn væru lengst komnir varðandi
rannsóknir á þorskeldi og þorskklaki
og hefðu þeir um tíu ára reynslu af
rannsóknum á því sviði. Þar í landi
væru menn ekki tilbúnir enn til að
svara hvort hafbeit á þorski borgaði
sig í framtíðinni.
„Ég trúi því að þetta sé hægt, við
getum örugglega stundað hafbeit á
þorski eins og á laxi. Við vitum að
þorskurinn hrygnir hér í Eyjafirði,
að vísu ekki í miklum mæli. Við
höfum rætt það alvarlega að Háskól-
inn á Akureyri og Hafrannsókna-
stofnun hafi um það forgöngu að
ráðist verði í verkefni hér í firðinum
varðandi klak og eldi á þorski,“ sagði
Ólafur.
Hafrannsóknastofnun hefur flutt
útibú sitt á Húsavík til Akureyrar
og sagði Ólafur að rætt hefði verið
um að á vegum útibúsins og háskól-
ans yrði farið út í rannsóknir á sviði
þorskeldis;
Sveinsmótið í skák
á Dalvík um helgina
SVEINSMÓTIÐ í skák verður
haldið í Víkurröst á Dalvík um
helgina, en það hefst í dag, laug-
ardag kl. 13.30.
Taflfélag Dalvíkur efnir til móts-
ins í samvinnu við Sparjsjóð Svarf-
dæla, og er það haldið til minningar
um Svein Jóhannesson fyrrverandi
sparisjóðsstjóra. Mót þessi hafa
verið haldin undanfarin ár og eru
kölluð Sveinsmót.
Teflt verður í Víkurröst, 9 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Öllum er
heimil þáfttaka, en skráning fer
fram á keppnisstað. Hópur félaga
úr Skákfélagi Akureyrar ætlar að
fjölmenna á mótið á Dalvík, þannig
að búast má við ágætri þátttöku.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Klukkufjöltefli
Þýski stórmeistarinn Robert Hiibner telfdi klukkufjöltefli við félaga í
Skákfélagi Akureyrar í fyrrakvöld. Leikar fóru svo að stórmeistarinn
vann 9 skákir, gerði eitt jafntefli, við Bjarna Einarsson, og tapaði
tveimur skákum, fyrir Arnari Þorsteinssyni og Skafta Ingimarssyni.
Teflt var í skákheimilinu við Þingvallastræti.
Barnastarf í
Glerárkirkju
að hefjast
BARNASTARF Glerárkirkju
hefst með samverustund í kirkj-
unni á morgun, sunnudag, og hefst
það kl. 11. Barnastarfið hefur
verið fjölsótt siðustu ár og eru
foreldar hvattir til að koma með
börnum sinum og taka þátt í starf-
inu.
Æskulýðsstarf kirkjunnar hefur
einnig strarfað af krafti síðustu vetur
og er vetrarstarf hópsins þegar haf-
ið. Aætlað er að hafa tvo hópa í
vetur, hópur eldri unglinga í 9. bekk
eða eldri og svo yngri deild, þ.e. 8.
bekkur. Þessir hópar starfa einnig
saman. Leiðtogi æskulýðsstarfsins
er Jóhann Þorsteinsson.
Fermingaundirbúningur hefst
fyrstu vikuna í október og mun hvert
fermingarbarn að jafnaði koma í
fræðslustund einu sinni í viku, auk
þess að sækja messur og aðrar sam-
komur í kirkjunni.
Kirkjukórinn æfír tvisvar í viku
undir stjóm organistans Jóhanns
Baldvinssonar og er söngáhugafólk
hvatt til að taka þátt í starfí kórsins.
Kvenfélagið Baldursbrá starfar
innan kirkjunnar og hefur aðstöðu á
neðri hæð hennar undir sína starf-
semi, en félagið styrkir kirkjuna með
peningagjöfum og öðru og annast
kaffíveitingar eftir messu.
Fyrirbænastundir eru í kirkjunni
hvern miðvikudag kl. 18 þar sem
fólkí gefst tækifæri á að eiga kyrrð-
ar- og bænastund, þar er spiluð tón-
list og lesið úr Ritningunni.
Fjórfalt fleiri íbúar á lækni
á Sauðárkróki en Reykiavík
Bootlegs í
Dynheimum
Hljómsveitin Bootlegs heldur
tónleika í Dynheimum á Akur-
eyri á laugardagskvöld og hefj-
ast þeir kl. 22.
Bootlegs er ein af kraftmestu
rokksveitum landsins og munu þeir
eflaust sanna það fyrir Norðlend-
ingum á þessum tónleikum. Þó svo
tónleikamir fari fram í Dynheimum
er ekki um að ræða unglinga-
skemmtun einvörðungu, heldur eru
allir hjartanlega velkomnir. Miða-
verð er 500 krónur.
(Úr fréttatilkynningu)
Mývatnssveit:
Farið í aðr-
ar göngur
Mývatnssveit.
FARIÐ var í aðrar göngur á
Austurafrétt Mývetninga í gær,
föstudag, í sunnan golu og
glampandi sólskini.
Óhagstætt veður var í fyrstu
göngum, allmikill snjór og þoka
báða gangnadagana, enda voru
heimtur slæmar. Síðustu daga hef-
ur snjór verulega minnkað til fjalla.
- Kristján
Reykjahlíð en
ekki Reynihlíð
I frétt sem birtist hér í blaðinu
á fímmtudag af útför Jóns Bjart-
mars Sigurðssonar var rangt farið
með nafn á hóteli, en hann var einn
eigenda Hótels Reykjahlíðar, en
ekki Reynihlíðar eins og sagt var.
Þetta leiðréttist hér með um leið
og hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar.
SJÖTÍU Iækna vantar í þrjá
kaupstaði á Norðurlandi og 138
háskólamenntaða hjúkrunar-
fræðinga ef sama hlutfall lækna
og hjúkrunarfræðinga væri á
hvern íbúa í Reylyavík og annars
staðar. Þetta kom fram í erindi
sem Margrét Tómasdóttir, for-
stöðumaður heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, hélt á
fundi sem skólinn efndi til með
forsvarsmönnum ýmissa fyrir-
tækja og stofnana á Norðurlandi
í fyrradag.
í erindi Margrétar kom fram að
í Reykjavík störfuðu 477 læknar,
sem er einn læknir á 200 íbúa. A
Akureyri stafa 40 læknar, eða einn
á 416 íbúa, þannig að ef sambæri-
leg læknisþjónusta væri á Akureyri
og í Reykjavík þyrftu að vera starf-
andi 83 læknar á Akureyri. Alls
vantar því 43 lækna til starfa í
bænum til að fá sambærilegt hlut-
fall og er í Reykjavík. Tölur þessar
vann Margrét upp úr heilbrigðis-
skýrslu landlæknisembættisins frá
1988.
Ef litið er til nágrannabæjanna,
Húsavíkur og Sauðárkróks, kemur
enn lakara hlutfall læknisþjónustu
í ljós, en 5 læknar starfa á Húsavík
sem gerir einn lækni á 871 íbúa.
Ef boðið væri upp á svipaða þjón-
ustu þar og í Reykjavík yrðu starf-
andi læknar þar 21 og vantar því
16 lækna upp á að svo sé. Á Sauðár-
króki eru einnig starfandi 5 lækn-
ar, eða einn á 887 íbúa. Þar þyrftu
læknar að vera 22 ef hlutfallið
ætti að vera svipað og í Reykjavík
og því vantaði þangað 17 lækna til
starfa.
Sama gildir um háskólamenntaða
hjúkrunarfræðinga, en í Reykjavík
er hlutfallið einn hjúkrunarfræðing-
ur á 95 íbúa, á Akureyri er hlutfall-
ið einn á móti 137 íbúum, á Húsavík
einn á 256 íbúa og á Sauðárkrókí
einn á 202 íbúa. Á Akureyri vantar
74 hjúkrunarfræðinga til að ná
Á FIMM ára tímabili, frá 1990-95
er rciknað með að það fjármagn
sem að lágmarki fylgir starfsemi
Háskólans á Akureyri og kæmi inn
á svæðið verði 3,5 milljarðar
króna. Miðað er við að nemendur
verði um 445 árið 1995 og er tek-
ið með i dæmið rekstur skólans,
byggingar við hann sem og einnig
stúdentagarða, húsnæði fyrir
væntanlegt starfsfólk og eyðslu
nemenda. Margfeldisáhrif ýmiss
konar eru ekki reiknuð með. Þetta
er niðurstaða útreikninga Stefáns
G. Jónssonar forstöðumanns
Rekstrardeildar Háskólans á Ak-
ureyri, en frá þeim greindi hann
á fundi sem skólinn boðaði til í
síðustu viku um atvinnumál og
áhrif Háskólans.
Stúdentar við skólann eru nú 120
og miðað við óbreytta starfsemi
skólans, þ.e. kennslu í heilbrigðis-
deild, rekstrardeild og sjávarútvegs-
deildar er áætlað að nemendur verði
um 265 árið 1995, en ef til kemur
viðbót við starfsemi skólans er áætl-
að að nemendur verði 445 talsins.
Talið er að hlutfall innanbæjarnem-
enda haldist svipað og nú er þannig
að fyrst og fremst yrði um að ræða
aðkomunemendur.
sambærilegu hlutfalli og er í
Reykjavík, á Húsavík 34 og 30 á
Sauðárkróki, eða samtals 138
hjúkrunarfræðinga.
Margrét sagði að innan við 10%
í útreikningum Stefáns er gert ráð
fyrir að bætt verði við nýjum deildum
við skólann árið 1992 og nemendur
verða því um 445 eftir fimm ár, eða
á árinu 1995.
Gert er ráð fyrir að rekstrarkostn-
aður skólans á þessu fimm ára tíma-
bili nemi um 975 milljónum króna
byggja þyrfti húsnæði við skólann
fyrir um 320 milljónir króna og þá
er einnig miðað við að byggðar verði
nægilega margar íbúðir fyrir stúd-
enta, sem eins og áður sagði yrðu
háskólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga byggju utan höfuðborgarsvæð-
isins og hið eina sem dygði til að
breyta því væri að færa menntunina
út á land.
að meirihluta aðkomufólk. Taldi
Stefán að byggja þyrfti stúdenta-
garða fyrir um 825 milljónir króna
á tímabilinu. Miðað er við að starfs-
fólk skólans yrði u.þ.b. 100 manns,
þar af kæmu um 60 annars staðar
frá og reiknaði Stefán því með um
360 milljónum króna vegna hús-
næðis sem það þyrfti með og eyðsla
nemenda í bænum á tímabilinu var
áætluð röskur milljarður. Samtals
gerði þetta um 3,5 milljarða króna
se'm kæmu beint inn á svæðið.
Akureyri:
Háskólinn veitir 3,5 millj-
örðum króna inn á svæðið
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frá ráðstefnu Háskólans á Akureyri um atvinnumál.