Morgunblaðið - 28.10.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.10.1990, Blaðsíða 7
'MÍNNUÖKGÍM Jfó.C (DK!T(3>BER: Íð90 Núpi veturinn 1982-83. í bók sem Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður skráði um lífshlaup Þrastar og hét „Spaugsami spörfuglinn" segir Þröstur að þetta hafi verið ein af skrýtnum hugdettum hans en þær hefur hann iðulega framkvæmt. Skipherra frá 1960 Þorskastríðinu vegna 12 mílna útfærslunnar segir Þröstur að hann hafi að mestu misst af þar sem hann var nær eingöngu í fluginu fyrir LHG árin 1958 og 1959. „Flugið á þessum tíma var alveg sér á parti,“ segir Þröstur. „Eg man að fyrstu fjórtán dagana mína í því vorum við á DC-3 leiguvél frá Flugfélagi ís- lands, radarlausir og illa búnir tækj- um en áhuginn hjá flugáhöfninni bætti þetta upp og menn höfðu gam- an af að fljúgja í þessum hasar sem þá var. Mér er minnisstætt eitt at- vik frá þessum tíma, 31. ágúst 1958. Þá vorum við á hringferð kringum landið og sáum talsvert af skipum við fjögurra mílna mörkin suður af landinu, þar á meðal eina fimm belgíska togara. Er við flugum yfir þetta svæði daginn eftir höfðu þeir belgísku fært sig út fyrir 12 mílna mörkin og héldu sig þar eftir það en þeir voru fyrsta togaraþjóðin til að gera slíkt frá byrjun að frátöld- um Færeyingum." Þröstur varð skipherra hjá Land- helgisgæslunni árið 1960 og tók þátt í þorskastríðunum 1972 og 1975. Þröstur lenti oft í hættulegum og/eða skemmtilegum uppákomum í þeim darraðadansi sem þessi stríð voru. Hér fylgir með ein af frásögum hans úr síðasta þroskastríðinu eins og hún er skráð af Sigurdóri í fyrr- nefndri bók „Spaugsami spörfugl- inn“. „Ef maður lítur yfír tvö síðustu þorskastríð á hlutlausan hátt má fullyrða að íslensku varðskipunum tókst að trufla veiðar bresku togar- anna á þann hátt að þær voru sýnd- armennska ... í þessu sambandi get ég sagt frá skemmtilegu atviki sem sannar þessa skoðun mína. Okkur hafði einu sinni sem oftar tekist að stinga frei- gátu af og komum að togarahópi sem var að veiðum út af Sléttu. Um leið og við birtumst hífðu allir þann- ig að ekki kom til klippinga. Við dóluðum í kringum þá og héldum þeim frá veiðum. Freigáta sem verið hafði á Langanessvæðinu kom á vettvang og skömmu síðar spurði kafteinninn togaraskipstjóra sem var á reki rétt hjá okkur um staðar- ákvörðun. Hann sagðist vilja bera hana saman við staðarákvöðrun sína. Togaraskipstjórinn svaraði því til að hann hefði ekki hugmynd um hvar hann væri. Þetta vissi ég að var ósatt, þeir vissu alltaf hvar þeir voru þessir karlar. Hann grunaði að freigátan vissi ekki hvar hún væri og vildi ekkert vera að upplýsa þess- ar blágómur úr sjóhernum. Mér þótti tilvalið að blanda mér í málið og hafði samband við freigát- una og spurði hvort þeir vildu þiggja staðarákvörðun frá okkur. Fyrst var þögn, en síðan var það þegið. Ég var bara með lóran og því þurftum við að setja lóranlínur á kortið til að fá breidd og lengd. Þegar ég var að mæla upp breiddina las ég hana skakkt um 5 mínútur. Ég gaf honum upp 32 mínútur í stað 37. Um leið og ég er búinn að sleppa orðinu kallar fyrrnefndur tog- ari í okkur og skipstjórinn segir: „Ægir, sagðirðu 32 mínútur?" „Já, ég gerði það,“ svaraði ég. „Ægir, slæm staðarákvörðun," svaraði þá karlinn. Ég skoðaði málið betur og sá þá vitleysuna sem ég hafði gert og leið- rétti breiddina við freigátuna. Þá hló togarajaxlinn í talstöðina. Hann vissi alveg hvar hann var, en kærði sig bara ekkert um að hjálpa þessum „bölvuðu ösnum“ í sjóhernum eins og togarakarlarnir kölluðu þá ...“ Alfarið í land 1985 Þröstur kom alfarið í land hjá Gæslunni 1985 og hefur lítið farið á sjó síðan. Hann hefur á þessum árum sem liðin eru starfað í stjórn- stöð LHG hér í Reykjavík en stund- um skroppið með í eftirlits- og leitar- flug. „Frá því ég hóf störf hjá Land- helgisgæslunni hef ég loggað 2.700 flugtíma þar og hef oft fengið að Ci 7} taka í Fokkerinn og fleiri vélar en aldrei lært að fljúga. Siguijón Sveinsson flugstjóri segir þó að ég sé efnilegasti flugnemi sem hann hefur kynnst," segir Þröstur og minnist þessara stunda greinilega með tregablandinni eftirsjá. Starf Þrastar í stjórnstöðinni hef- ur einkum verið fólgið í skipulagn- ingu á ferðum varðskipanna og flug- vélanna, eftirliti með tækjakosti LHG og miðlun upplýsinga til sjó- manna um veiðisvæði og lokanir. Aðspurður um álit sitt á Land- helgisgæslunni að loknum þessum langa starfsferli þar segir Þröstur að hann sé ánægður með margt en miður ánægður með annað. „Ég er ánægður með þá stefnu sem tekin hefur verið í þyrlumálum stofnunar- innar, ef úr verður að fá hingað til lands aðra samskonar þyrlu og við eigum og staðsetja hana á Austijörð- um. Þá eru til mikilla bóta áform um að koma upp 360 gráðu radar í Fokker-vélinni, við það verður hún þokkalega búin til starfa," segir Þröstur. „Til verri vegar horfir hins- vegar hve varðskipin eru orðin göm- ul, hið nýjasta þeirra, Óðinn, er kom- ið á þrítugsaldurinn. Það sem þyrfti að koma til er nýtt fjölhæfnisskip sem búið yrði tækjum til að lyfta þungum hlutum af hafsbotni, gæti lagt og tekið upp neðansjávarkapla, hafði veltitank, væri útbúið sem ís- brjótur og fleira. Hvað síðasttalda atriðið varðar má nefna að á síðustu íjórum árum hefur munað hárs- breidd að hafís lokaði siglingaleiðum norður fyrir land og ég vil að við eigum skip sem getur siglt um við þannig aðstæður." Veiðimennska er áhugamálið Aðaláhugamál Þrastar í gegnum tíðina hafa verið veiðimennska, bæði á stöng og byssu. Og nú í seinni tíð hefur hann stundað nokkuð golf. Hann hugsar gott til glóðarinnar með hið nýja áhugamál sitt á Þing- eyri því hann hefur frétt að hægt sé að útbúa með góðu móti, eina eða tvær holur við flugvöllinn á staðnum. „Ég hef einnig frétt að prestur stað- arins muni vera golfáhugamaður og kannski tekst mér að virkja hann í að koma upp einhverri aðstöðu fyrir þetta sport á staðnum,“ segir Þröst- ur. Stangveiðina stundar Þröstur að- eins á flugu og hans uppáhaldsveiði- svæði er urriðasvæðið neðan við Mývatn. Hann hefur gaman af að segja sögu af sér er hann fór í fyrsta sinn til fluguveiða á þetta svæði: „Ég kunni víst lítið að fara með flugustöngina á þessum tíma en hafði lesið mér aðeins til i fræðun- um. Auk þess var útbúnaður minn fátæklegur og ég gekk um á strigas- kóm sem ekki þótti mjög veiði- mannslegt. En mér tókst að landa einum vænum urriða fyrsta daginn og það var meira en margir aðrir þótt þeir væru dubbaðir upp með allan útbúnað. Næsta dag svaf ég vel út og mætti á mitt svæði löngu á eftir öllum öðrum. Þann dag fékk ég ijóra fiska væna og koma það víst þeim í vöðlunum nokkuð á óvart. En þetta var víst glópalán hjá mér.“ Þröstur talar um að í fluguveið- inni séu nokkur stig sem menn þurfi að fara í gegnum. Hið fyrsta þeirra sé að véla konu sína til að gefa sér flugustöng, hjól og línu í afmælis- eða jólagjöf. Efsta stigið sé hinsvegar að hafa ekki öngul eða agn á línunni heldur eftirlíkingu af flugu og fínna þegar fískurinn nart- ar í og samgleðast honum svo yfir að hafa sloppið. Munum sakna Fossvogsdalsins Þeim hjónunum, Þresti og Guð- rúnu, hefur orðið fjögurra barna auðið, þriggja dætra og eins sonar en sonurinn fetar í fótspor föðursins og er nú sjómaður í Vestmannaeyj- um. Þau hjónin giftu sig 1954 og bjuggu í kjallaraíbúð í Miðtúni fram til 1969 að þau byggðu sér raðhús í Fossvogsdalnum. „I Fossvogsdaln- um er að finna einhveija mestu veð- ursæld í borginni og því munum við örugglega sakna hans mest af öllu héðan,“ segir Þröstur. Þau hjónin hafa flutt lögheimili sitt vestur á firði þannig að för Þrastar þangað nú virðist vera meira en ein af þess- um skrýtnu hugdettum hans. V ÆStjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins V V' Kvöld- og helgarskóli 29. október - 8. nóvember 1990 Hvað veist þú um stjórnmál? Vilt þú vita meira, t.d. um alþingiskosningarnar í vor? Staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. Tími: Mánud.—föstud. kl. 17.30—22.00 og laugardag kl. 10.00—16.00. Innritun stendur yfir. Sími 82900. Dagskrá: Mánudagur 29. október: Kl. 17.30 Skólasetning: Bessí Jóhannsdóttir, formaður skólanefndar. Kl. 17.50-19.30 Sjálfstæðisflokkurinn ídag: Hannes H. Gissurarson, lektor í stjórnmálafræði. Kl. 20.00-22.00 Saga stjórnmálaflokkanna: Sigurður Líndal, prófessor. Þriðjudagur 30. otkóber: Kl. 17.30-19.00 Skipulag - starfshættir og kosningaundirbúningur Sjálfstæðisflokksins: Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri flokksins. Kl. 19.30-19.50 Myndataka Stjórnmálaskólans. Kl. 19.50-22.00 Ræðumennska og fundarsköp: Gísli Blöndal, markaðsstjóri. Miðvikudagur 31. október: Kl. 17.30-19.00 ísland á alþjóðavettvangi: Björn Bjarnason, lögfræðingur. Kl. 19.50-22.00 Sjálfstæðisstefnan: Friðrik Sophusson, alþingismaður. Sjálfstæðisflokkurinn í stjórnarandstöðu: Friðrik Sophusson, alþingismaður. Fimmtudagur 1. nóvember: Kl. 17.30-22.00 Ræðumennska og sjónvarpsþjálfun: Gísli Blöndal, markaðsstjóri, og Björn G. Björnsson, formaður FÚN. Föstudagur 2. nóvember: Kl. 17.30-22.00 Heimsókn á Alþingi. Starfshættir Alþingis og meðferð þingmála: Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokksins, Ólafur Arnarson, framkvæmdastjóri þingflokksins. Laugardagur 3. nóvember: Kl. 10.00-16.00 Ræðumennska og sjónvarpsþjálfun: Gísli Blöndal, markaðsstjóri, og Björn G. Björnsson, formaður FÚN. Mánudagur 5. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Stjórnskipan og stjórnsýsla: Sólveig Pétursdóttir, lögfræðingur. Kl. 19.30-22.00 Viðhorfin og verkefnin framundan: Hannes H. Gissurarson, lektor í stjórnmálafræði. Þriðjudagur 6. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Fjöl.miðlaþróun og breytingar gagnvart stjórnmálaflokkunum: Ellert B. Schram, ritstjóri. Kl. 19.30-22.00 Útgáfustarf, greina- og fréttaskrif: Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur. Miðvikudagur 7. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Heimsókn í fundarsal borgarstjórnar - hlutverk borgarstjórnar: Davíð Oddsson, borgarstjóri. Kl. 19.30-20.40 Sveitarstjórnamál: Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Kl. 20.45-22.00 íslensku vinstri flokkamir: Geir H. Haarde, alþingismaður. Fimmtudagur 8. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Sjálfstæðisflokkurinn - Alþingiskosningarnar 1991. Stjórnandi: Bessí Jóhannsdóttir. Kl. 19.00-21.00 Skólaslit: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.