Morgunblaðið - 09.11.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.11.1990, Blaðsíða 4
i MORGÚNBLAÐIÐ FÖSTÚDAGUR 9. NÖVEMBER 1990 Vafamál að nokkur hafi hag af slíkum dómum - segir stjórnarmaður Alþjóðasamtaka flugximferðarstjóra PREBEN Falkman-Lauridsen, fulltrúi Evrópuríkja í stjórn Alþjóða- samtaka flugumferðarstjóra, segir að nýfallinn dómur í Hæstarétti í máli flugstjóra og flugumferðarsljóra veiki flugöryggi. Menn í slíkum stöðum reyni sitt besta til að gera engin mistök og ef ríkissaksóknari lögsæki þá muni þeir fremur freistast til að þegja yfir slíkum atvikum. Stjórn Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra hafi áhyggjur af þessum dómum, því það sé vafamál að nokkur hafi hag af þeim, heldur þvert á móti. Hann segir að ekki sé aðeins um að ræða mistök flugumferðsastjóra og flugstjóra. í máli tveggja flugum- ferðarstjóra, sem hafi verið dæmt í hér á landi fyrir nokkru, hafi spum- ingin ekki eingöngu verið um það hvort þeir hefðu gert mistök, heldur hefði komið í ljós gloppa í íslenska flugumferðarstjórnarkerfinu, sem yrði að laga. „Ég held að höfðun refsimála verði ekki til að draga úr slíkum atvikum, heldur aðeins vekji þau ótta, svo menn veigri sér við að segja frá slíkum atvikum. Nú er mikið rætt í Evrópu að menn eigi að geta tilkynnt um atvik, án þess að gefa upp nöfn. Þannig finnst mér að eigi að taka á þessum málum.“ Falkman-Lauridsen segir að yfir- leitt geri opinberar nefndir ráðstaf- anir eftir rannsóknir. Sé málið ekki þeim mun alvarlegra fari það aldrei lengra, en innra eftirliti væri ætlað að koma í veg fyrir að slíkt endur- tæki sig. í Danmörku hefði venjan verið súað sekta menn um háar fjár- hæðir, en nú væri verið að víkja frá því. Slíkar refsingar kæmu ekki í veg fyrir að atvik endurtækju sig. Hann sagði að stefnan væri alls staðar sú, að reyna að koma í veg fyrir að mistök væru endurtekin og höfðun refsimála væri ekki rétta leiðin. „Ástandið er mjög sérstætt á íslandi, þar sem ríkissaksóknari leit- aði álits flugmálayfirvalda, utanrík- isráðuneytisins og samgönguráðu- neytisins á málunum. Allir aðilamir þrír lögðu til áð ekki yrði gripið til frekari aðgerða, enda hefðu viðeig- andi ráðstafanir verið gerðar. Þessu sinnti ríkissaksóknari ekki. Mér sýn- ist hann því ekki hlíta ráðum þeirra sem best þekkja til.“ Falkman-Lauridsen kvaðst ætla að afla sér nánari upplýsinga frá Felagi íslenskra flugumferðarstjóra og koma þeim á framfæri við stjórn Ajþjóðasamtaka flugumferðarstjóra. „Ég óttast að þessir dómar gætu gert flugumferðarstjóra, ekki bara á íslandi heldur um allan heim, hik- andi við að skýra frá öllum mála- vöxtum ef mistök verða. Stjórn Al- þjóðasamtaka flugumferðarstjóra hefur áhyggjur vegna þessara dóma, því það er efast um að nokkur hafi hag af þeim, heldur þvert á móti. Þeir gætu orðið til að draga út flug- öryggi,“ sagði Preben Falkman- Lauridsen, fulltrúi Evrópu í stjóm Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra. VEÐURHORFUR í DAG, 9. NÓVEMBER YFIRLIT í GÆR: Milli Færeyja og Noregs er 1030 mb hæð og þaðan hæðarhryggur norðvestur um Grænland. Um 1.100 km suð- suðvestur af Reykjanesi er 976 mb lægð sem þokast norður. SPÁ: Fremur hæg austan- og suðaustanátt. Rigning sgnnan- og suðvestanlands, en skúrir um austanvert landið.þ VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austan- og suðaustan- átt, stinningskaldi eða allhvasst við suðurströndina en mun hæg- ari norðaustan og austanlands. Súld eða rigning verður sunnan- og austanlands en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 4 til 6 Stig. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning / r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * ■) 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir — Þoka = Þokumóða ’, 5 Súld OO Mistur —Skafrenningur [~^ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hlti 5 6 veður léttskýjað alskýjað Bergen S léttskýjað Helsinki 3 léttskýjað Kaupmannahöfn 9 léttskýjað Narssarssuaq 11 skýjað Nuuk 0 skýjað Ósló S léttskýjað Stokkhólmur 8 léttskýjað Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 21 þokumóða Amsterdam 8 alskýjað Barcelona 18 alskýjað Berlfn 10 léttskýjað Chicago 5 léttskýjað Feneyjar 11 heiðskírt Frankfurt 8 skýjað Glasgow 8 skýjað Hamborg 11 léttskýjað Las Palmas 25 léttskýjað London 8 skýjað LosAngeles 12 heiðskírt Lúxemborg 6 heiðskírt Madrfd 15 súld Malaga 18 skúr Mallorca 19 skýjað Montreal +4 skýjað NewYork 6 léttskýjað Orlando 18 léttskýjað París 6 hálfskýjað Róm 14 heiðskirt Vín 8 skýjað Washington 5 léttskýjað Winnipeg +1 skýjað Morgunblaðið/Árni Sæberg Sumaraukinn nýttur Eins og fleiri hefur þessi húseigandi getað fært sér í nyt hin óvenjulegu hlýindi síðustu daga og lokið af verki sem alla jafnan hefði þurft að bíða vorsins. Gámavirar selja sfld í Skotlandi GÁMAVINIR sf. í Vestmannaeyj- um selja síld, ýsu og lýsu I Aberde- en í Skotlandi næstkomandi mánudag en sildin er úr Guðrúnu . VE. Fiskurinn verður sendur með Sambandsskipi til Peterhead í Skotlandi og fluttur þaðan með bíl til Aberdeen, að sögn Snorra Jónssonar hjá Gámavinum. Snorri Jónsson segir að Gámavin- ir hafi ekki selt síld í Skotlandi áð- ur. „Dagstjarnan frá Bolungarvik lá inni á firði í Skotlandi í nokkrar vik- ur árið 1966 og keypti síld af síldar- bátum en síldin var brædd í Bolung- arvík,“ segir Snorri. „Fyrir ári síðan seldum við fisk á Aberdeen-mark- aðnum en það dæmi gekk ekki upp, meðal annars vegna mikils flutn- ingskostnaðar," segir Snorri. Hann segir að*fiskurinn hafi verið fluttur með flutningaskipi niður á Humber- svæðið í Englandi og þaðan með bíl til Aberdeen. Gámavinir seldu 15 tonn af heilli síld úr gámum í Hull í Englandi á þriðjudag fyrir 38,87 króna meðal- verð en aflinn var úr Guðrúnu VE. Þá fengust 36 krónur fyrir kílóið af hausskorinni og slógdreginni síld úr hálfum gámi, sem Gámavinir seldu í Bremerhaven í Þýskalandi í vik- unni en aflinn var úr Valdimari Sveinssyni VE. Snorri Jónsson segir að nú séu greiddar 11 krónur fyrir kílóið af síld til frystingar í Vest- mannaeyjum. -----*-*-*--- Orkuverð til álvers; Samninga- fundi lýk- ur í dag FUNDI samninganefnda Lands- virkjunar og Atlantsálshópsins um orkuverð til nýs álvers, lýkur í dag í London. Islenskir samning- anefndarmenn vörðust í gær allra frétta um gang viðræðnanna. Samningafundur stóð yfir í allan gærdag og í gærkvöldi var haldinn óformlegur fundur samningsaðila. Hvorki Jóhannes Nordal formaður álviðræðunefndar iðnaðarráðherra né Davíð Oddsson, sem er í samnign- anefhd Landsvirkjunar, vildu segja neitt um stöðu viðræðnanna í gær, að öðru leyti en að þar hefði verið farið yfir öll atriði málsins. Forval Alþýðubandalagsins í Neskaupstað: Einar Már fékk flestar tilnefningar EINAR Már Sigurðarson, skólasljóri, fékk flestar tilnefningar í forv- ali Alþýðubandalagsins í Neskaupstað, sem fram fór í fyrrakvöld. Næst honum kom Elma Guðmundsdóttir, en Hjörleifur Guttormsson, alþingismaður, varð alþingismaður í þriðja sæti. Einar Már sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri ánægður með þessi úrslit, en tók fram að þau réðu engu um endanlega niðurstöðu forvalsins. „Það gerðist ekkert nýtt þarna sem ég þóttist ekki vita fyrir, og þetta breytir engu í mínum áætl- unum“, sagði hann. Forval Alþýðubandalagsins á Austurlandi fer fram í tveimur um- ferðum. í fyrri umferðinnni tilnefna Alþýðubandalagsfélögin í kjördæm- inu fólk til þáttöku í síðari umferð forvalsins, sem fram fer 1. desemb- er. Það er opið fyrir alla flokksfélaga og stuðningsmenn, og verður bind- andi hvað varðar fyrsta sætið. Kirkjuþingi lokið: Tæplega 30 mál voru tekin fyrir á þinginu Kirkjuþingi var slitið í Bústaðarkirkju í gær. Að sögn herra Ólafs Skúlasonar biskups var þingið annasamt en alls 29 mál voru tekin þar fyrir. „Þingið var mjög annasamt, en þar ríkti góð eining og nýir þingfull- trúar fundu sig fljótt,“ sagði biskup í samtali, við Morgunblaðið. Málin á þinginu lutu bæði að inn- viðum kirkjunnar og stöðu hennar í þjóðfélaginu. „Mjög veigamikilli þáttur á þinginu snerti Skálholt, en það er búið að vera á dagskrá kirkj- unnar lengi. í vetur var gengið frá aðalskipulagi Skálholts og á þessu þingi var rætt um deiliskipulag sem kirkjuþing samþykkti fyrir sitt leyti,“ sagði herra Ólafur Skúlason. Á þinginu var kosið nýtt kirkjuráð og er þetta í fyrsta skipti sem sókn- arprestur í Reykjavík er kosinn í ráðið, en það er Hreinn Hjartarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.