Morgunblaðið - 09.11.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
21
Veljum sérstakan lista
eftir Jón M.
Guðmundsson
Salome Þorkelsdóttir alþingis-
maður gefur nú kost á sér til þátt-
töku í prófkjöri sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi með það
markmið að starfa áfram að þing-
mennsku. Þar hafa ráðið sjónar-
mið stuðningsmanna á lokastigi
ákvörðun hennar.
Mér er vel kunnugt um hinn
pólitíska feril Salome. Hann hefur
einkennst af dugnaði hennar og
samviskusemi. Hún hefur aflað sér
verðugs trausts á sviði sveitar-
stjórnmála og þá ekki síður lands-
mála.
Prófkjör fór fram í Reykjanes-
kjördæmi hjá sjálfstæðismönnum
1970 og tók hún áskorun um að
vera með í því. Það var fyrsta
skrefið á farsælum ferli og ekki
flanað að neinu frekar en endra-
nær heldur unnið markvisst að ná
árangri. Næstu árin var unnið að
því að treysta stöðuna og ná víð-
tæku samstarfi við fólkið í kjör-
dæminu, sem tókst með ágætum.
Þingsætið vannst svo í kosning-
um 1979 og var það árangur af
samstarfi og samskiptum við fólk-
ið og sveitarstjórnir á svæðinu um
framgang góðra mála. Á Alþingi
hefir Salome unnið gott starf og
þar hefir hún öðlast traust sam-
þingsmanna sinna og verið trúað
fyrir mikilsverðum ábyrgðarstöð-
um sem hún hefir leyst af hendi
með reisn og virðingu.
Við stuðningsmenn þingmanna
Sjálfstæðisflokksins stöndum þétt
að baki þeirra og kjölfestan er að
kjósa Ólaf G. Einarsson í 1. sætið
Arna Ragnar á þing
- besti stuðning-
urinn við Ólaf G.
Einarsson
eftir Andrés B.
Sigurðsson
Þegar velja skal á milli fram-
bjóðenda í prófkjöri, þarf að meta
og bera saman reynslu og hæfni.
Bæklingar frambjóðenda segja oft-
ast frá störfum og viðfangsefnum.
Fáir frambjóðendur eru svo þekkt-
ir að hinn almenni kjósandi geti
metið frambjóðendur út frá sviðs-
ljósi fjölmiðlanna. Einn reyndasti
og hæfasti frambjóðandinn í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykj-
anesi er Árni Ragnar Árnason frá
Keflavík.
Árni Ragnar er harðduglegur
maður, sem gjarnan velst til for-
ystu fyrir verkefnum og félögum.
Atorka, ósérhlífni og vinnusemi
einkenna Árna í öllum hans störf-
um. Hann var kjörinn í bæjarstjórn
í Keflavík 28 ára gamall og sat í
bæjarstjórn í 12 ár. Árni hefur
starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
fjölda ára og íjölda embætta. Hann
rak eigin bókhaldsstofu með þjón-
ustu við sjávarútveg og atvinnulíf,
en starfar nú sem deildarstjóri hjá
varnarliðinu. Ofantalið er ekki af-
gerandi, þegar reynsla og hæfni
eru metin. Til þess að meta feril
manns, þarf að þekkja dugnaðinn
og það vinnuframlag, sem að baki
liggur. Þar fær Árni Ragnar hæstu
einkunn hjá öllum, sem hafa starf-
að með honum.
Framboðslista _ Sjálfstæðis-
manna og Alþingi íslendinga væri
Andrés B. Sigurðsson
fengur að þátttöku Árna Ragnars
í hinum ijölbreyttu störfum alþing-
ismanna. Af fimrntán hæfum fram-
bjóðendum, er Árni Ragnar meðal
þeirra reyndustu, en er þó enn
ungur og atorkusamur. Hann er
verðugur fulltrúi Reykjaneskjör-
dæmis frá Suðurnesjum, sem ekki
hafa átt þingmann úr röðum sjálf-
stæðismanna sl. 27 ár. Árni Ragn-
ar yrði sterkur bakhjarl fyrir Olaf
G. Einarsson á Alþingi.
Undirrituðum er heiður að því
að mæla með Árna Ragnari Árna-
syni til kjörs á Alþingi íslendinga.
Setjum Árna Ragnar í þriðja sætið
í prófkjörinu.
Höfundur er fnimk væm dus tjóri
Alpan hf. á Eyrarbakka, og
bæjarfulltrúi í Garðabæ.
Séra Sigurjón Þ. Árnason við skírnarathöfn.
Þrátt fyrir það þykir mér með
ólíkindum að fyrrverandi biskup
skuli á þennan hátt ganga fram
hjá minningu um föður minn og
störf hans í þágu Hallgrímskirkju-
sóknar og kristilegs starfs í
landinu.
Undiuritaður hefði óskað eftir
að þurfa ekki að gera athugasemd-
ir við málflutning fyrrverandi bisk-
ups Sigurbjörns Einarssonar, en
framkoma hans við látinn föður
minn nú síðast í hátíðarguðsþjón-
ustu í Hallgrímskirkju var dropinn
sem fyllti mælinn svo að hjá því
varð ekki komist.
Höfundur er löggiltur
endurskoðandi.
Jón M. Guðmundsson
og Salome í 2. Auk þess höfum
við á að skipa öðru úrvalsfólki svo
það ætti að vera auðvelt að fá
mjög sterkan lista að loknu próf-
kjöri.
Sjálfstæðismenn í Reykjanesi
sýna ótvíræðan styrk sinn með
þessu prófkjöri og um D-listann
mun fólkið flykkja sér í komandi
kosningum.
Styðjum Salome i 2. sætið.
Höfundur er fyrrverandi oddviti
Mosfellssveitar.
Wterkurog
k-P hagkvæmur
auglýsingamiðill!
KULDASKÓR
Ath. úr mjúku leðri með grófum sóla
Litir: Svartir, dökkbrúnir
Stærðir: 25-41
Verð frá kr. 2.995,-
5% stgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
TOPpJJ
—''skDRINN
^(jj^ VELTUSUNDI 1
21212
Kringlunni, sími 689212
Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519
Kjósum
Arna M. Mathiesen
í 3. sæti
Kjósum ungan mann á þing
Finnbogi Björnsson, framkvæmdastjóri, Garði
Guðjón Árnason, nemi, Hafnarfirði
Magnús Jónasson, bóndi, Stardal, Kjalarnesi
Olína Ragnarsdóttir, húsfrú, Grindavík
Sæmundur Þórðarson, skipstjóri, Stóru-Vatnsleysu
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi á morgun,
laugardag, milli klukkan 9 og 20.
Kosningaskrifstofan er að Bæjarhrauni 12, Hafnarfirði.
Opið frá kl. 16-22. Símar 51727 - 52088 - 650211.