Morgunblaðið - 09.11.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
Opið bréf til Reyknesinga
HELSTU SÖLUSTAÐIR:
Amaro, Akureyrl • Embla, Hafnarfiröi •
Fell, Mosfellsbæ • H. búbin, Garöabæ •
Kaupstabur I Mjódd • KF.Þ. Húsavík •
KF.VH. Hvammstanga • KF.H. Egilsstöðum
• Mfkligarbur v. Sund •
Perla, Akranesi • Rut, Glæsibæ/Kópavogi
• Vöruhús KÁ, Selfossi
Schiesserí{5
ALLT
GLUGGANN
úrval, gæöi, þjónusta
^tníiujöuit
Bómullarglugga-
tjaldaefni.
Vatteruð efni.
Dúkaefni
fyrir hótel og
veitingastaði.
<£2 Einkaumboð á ísiandi
Síðumúla 32 - Reykjavík ■
Sími: 31870 - 688770.
Tjarnargötu 12 - Keflavik -
Sími: 92-12061.
fignn
eftír Jón Kristín
Snæhólm
Góðir Reyknesingar!
Það hefur eflaust ekki farið fram-
hjá ykkur að Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjaneskjördæmi efnir til próf-
kjörs nú um helgina, þ.e. á laugar-
daginn.
Prófkjör er umdeild leið til þess
að velja fólk á framboðslista flokk-
anna en varla er hægt að deila um
það að opið prófkjör er lýðræðisleg-
asti valkosturinn. Ólíkt öðrum
stjórnmálaflokkum fer Sjálfstæðis-
flokkurinn þessa leið og gefur öllum
Reyknesingum tækifæri á að velja
framboðslistann fyrir næstu alþing-
iskosningar.
Að þessu sinni hafa fimmtán ein-
staklingar gefið kost á sér og er
ánægjulegt að sjá hvað margar
konur og ungt fólk sækja fram fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæminu.
Einn er sá maður sem ég hef
ákveðið að styðja til forystusveitar
Sjálfstæðisflokksins, sá maður er
Sveinn Hjörtur Hjartarson.
Ég hef þekkt Svein Hjört í nokk-
ur ár og starfað með honum í for-
ystusveit Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi, einkum þegar við vorum
formenn tveggja öflugustu sjálf-
stæðisfélaganna í Kópavogi, ég Týs
f.u.s. en Sveinn sjálfstæðisfélags-
ins;
I kosningabaráttunni í vor, þar
sem vinstri menn jusu öllum þeim
óhróðri yfir sjálfstæðismenn sem
þeir hugsað gátu, reyndist Sveinn
Hjörtur réttsýnn, yfirvegaður og
síðast en ekki síst málefnalegur
stjórnmálamaður sem hægt var að
leita til þegar hitna tók í kolunum:
Sem ungum manni í stjórnmálum
var samneyti við Svein Hjört í vor
mér ómetanleg reynsla og veit ég
að ég tala fyrir munn margra þeirra
sem nú reyna að koma Kópavogi á
réttan kjöl eftir tólf ára vinstri
stjórn.
Það er ljóst að í vor verður kosið
um framtíð íslands sem að mínu
mati lítur ekkert alltof vel út í dag.
Síðastliðin misseri höfum við orðið
vitni að því hvernig vinstri menn
vilja stjórna landinu, þ.e. með sjóða-
sukki þar sem stjórnmálamennirnir
hafa lífsafkomu fólksins í landinu
í hendi sér, með skattpíningu og
með svikum við launafólk í lándinu.
Sveinn Hjörtur hefur bæði þá
menntun og þekkingu sem nýtast
mun til eflingar atvinnumála í
landinu þá sérstaklega sjávarút-
vegsmálum. Ég er þess fullviss að
hann muni skipa þá forystusveit
sem leiða mun ísland til aukinnar
velmegunar og inn í næstu öld þar
sem lýðfijálsar þjóðir nota frelsi til
bættrar lífsafkomu.
Ég skora á ykkur, Reyknesingar,
að veita Sveini Hirti stuðning til
forystu í landsmálum með því að
kjósa hann í þriðja sæti listans á
laugardaginn.
Þannig munum við, Reyknesing-
Jón Kristinn Snæhólm
ar, eignast öflugan málsvara á Al-
þingi íslendinga.
Höfundur er nemi í
stjórnmálafræði og sagnfræði við
Háskóla íslands, formaður
utanríkisnefndar SUS og
varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Þröst Lýðsson í 6. sætið
eftir Ingimar
Sigurðsson
í prófkjöri sjálfstæðismanna á
Reykjanesi nú um helgina óskar
Þröstur Lýðsson eftir stuðningi sjálf-
stæðisfólks í kjördæminu í 6. sætið.
Þröstur er dugmikill ungur maður
sem gengur til hvers verks af áhuga
og festu. Þresti kynntist ég fyrst í
Verslunarskóla íslands fyrir 19
árum. Hann var strax atkvæðamik-
ill í félagslífi skólans og var síðar
formaður Málfundafélags Verslun-
arskólans. í því starfi sýndi hann
og sannaði að þar fór kröftugur
maður.
Þröstur Lýðsson gekk til liðs við
JC-hreyfinguna í Mosfellsbæ 1981
og tók mjög virkan þátt í uppbygg-
ingu og starfi félagsins þar. Hann
sat í ótal nefndum, tók þátt í ræðu-
keppnum og starfaði ötullega að
ýmsum verkefnum á sviði byggðar-
lagsins, sem enn nýtast íbúum Mos-
fellsbæjar ti! góðs.
I starfí mínu sem landsforseti-JC
1984—1985 kynntist ég aftur þeirri
miklu orku, sem í manninum býr,
en hann var þá forseti JC Mosfells-
bæjar. Það er einmitt þessi kraftur,
sem við þurfum á að halda, hvort
heldur er í einkalífinu, í vinnunni eða
á Alþingi íslendinga.
Guðrún Stella í 6. sæti
eftír Ingibjörgu
Hilmarsdóttur
Ágætu Reyknesingar.
Nú nálgast prófkjör okkar sjálf-
stæðismanna í Reykjaneskjördæmi
og flestir eflaust farnir að íhuga
val sitt, því vanda þarf valið. Mig
langar í örfáum orðum að minna á
unga og efnilega konu sem gefur
kost á sér í 6. sæti prófkjörsins,
Guðrúnu Stellu Gissurardóttur.
Hún hefur sýnt og sannað með
störfum sínum innan Sambands
ungra sjálfstæðismanna, Landsam-
bandi sjálfstæðiskvenna og sem
fórmaður Heilbrigðisnefndar Kópa-
vogs og virkur þátttakandi í bæjar-
málum Kópavogs að þar er á ferð-
inni ung kona full atorku með nýjar
og ferskar hugmyndir og á því fullt
erindi að mínu mati inn í stjórnmál
framtíðarinnar.
Guðrún Stella leggur áherslu á
mörg mikilvæg málefni. Má þar
helst nefna að draga úr ríkisforsjá,
Þröstur Lýðsson leggur áherslu á
eflingu samkeppnisaðstöðu íslensks
iðnaðar, ekki síst með tilliti til sam-
eiginlegs markaðar Evrópu í framt-
íðinni.
Þá vill hann einnig taka fjármál
ríkisins fastari tökum, sem ekki veit-
ir af á þessum ógnar kæruleysistím-
um í fjármálaóstjórn hins opinbera.
Að lokum vill Þröstur leggja
áherslu á endurskoðun og niður-
skurð á hinu opinbera sjóðakerfi,
sem er í raun ekkert annað en hafta-
og skömmtunarkerfi Framsóknar-
flokksins, en sá flokkur þrífst ekki
í íslenskri pólitík, njóti slíkra kerfa
ekki við.
Við sem þekkjum Þröst Lýðsson
vitum að þar er á ferð heiðarlegur
maður, sem þú getur treyst til þess
að vinna fyrir þig af heilindum á
Alþingi íslendinga.
Ingimar Sigurðsson
Það er því sterkur leikur að kjósa
Þröst Lýðsson í 6. sætið á laugardag-
inn.
Höfundur er fyrrverandi
landsforseti JC á íslandi.
KRINGLAN 4 -103 REYKJAVÍK ■ SlMI 680920
Jólafatnaður á börnin
Kjólar í úrvali - Verð frá kr. 4.500 - 11.800
Bómullarkjólar,
flauelskjólar,
silkikjólar,
matrósakjólar,
matrósaföt,
skyrtur,
buxur
Einnig úrval sængurgjafa
Opið laugardaga frá kl. 10.00-16.00
Ingibjörg Hilmarsdóttir
hlúa að fjölskyldunni, lækka skatta
og síðast en ekki síst umhverfis-
mál. Eins og sést á þessari upptaln-
ingu hefur hún ýmislegt til málanna
að leggja.
Veitum því Guðrúnu Stellu braut-
argengi í 6. sæti. Ágætu Reyknes-
ingar, konu í öruggt varaþing-
mannssæti.
Höfundur er húsmóðir og nemi í
Fósturskóla Islands.
Til sjálfstæðisfólks
á Suðurnesjum
eftir Magnús H.
Guðjónsson
Senn líður að prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í Reykjaneskjördæmi. Tveir
frambjóðendur af Suðurnesjum gefa
kost á sér í prófkjörið, þeir Árni
Ragnar Árnason og Viktor Kjartans-
son. Ekki er hér þörf á að fara
mörgum orðum um kosti þessara
ágætu frambjóðenda, enda eru þeir
sjálfstæðisfólki á Suðurnesjum vel
kunnir. Stuðningur við frámboð
þeirra er auðvitað sjálfsagður.
En það þarf að merkja við fleiri
frambjóðendur á kjörseðlinum. í því
sambandi vil ég vekja athygli á fram-
boði Árna Mathiesen. Ég átti þess
kost að kynnast Árna þegar við
störfuðum saman á Dýraspítala
Watsons og seinna er við sátum
báðir í stjórn Dýralæknafélags Is-
lands. Árni er búinn þeim kostum
sem ég tel að við eigum að leggja M úg H. Guðjónsson
aherslu a hja þeim er við kjosum á J
löggjafarþing okkar Islendinga, en
það er heiðarleiki og hreinskilm.
Þessir kostir eru þeim mun mikil-
vægari nú á tímum þegar stjórnmál-
in einkennast æ meir af hrossakaup-
um og undirferli. Árni er athafna-
maður með þekkingu á atvinnulífinu
og verður án efa góður málsvari
okkar kjördæmis á Alþingi. Ég hvet
þátttakendur í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins til að tryggja Árna Mathi-
esen öruggt sæti á framboðslista
fiokksins í næstu Alþingiskosning-
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hannes Eiríksson,
þingmaður Borgaraflokksins og
fulltrúi Reykvíkinga í fjórveitinga-
nefnd Alþingis, verður á Kaffi-
Hress í Austurstræti í dag, föstu-
daginn 9. nóv., kl. 1 2.00-1 4.00.
Komið og spjallið við þingmann
Reykvíkinga.
Höfundur er dýralæknir í
Keflavík og formaður
Dýralæknnfélags íslands.