Morgunblaðið - 09.11.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
51
KNATTSPYRNSA
Pálltil
i Bremen
<
i
i
<
<
Páll Guðlaugsson, landsliðsþjálf-
ari Færeyinga, er á förum til
v-þýska félagsins Werder Bremen,
þar sem hann mun dveljast í viku
til að fylgjast með æfingum félags-
ins. Páll mun fara til Bremen eftir
að hafa séð Dani og Júgóslava leika
í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn
kemur.
ÍpfómR
FOLX
■ VUJOVIC, landsliðsmaður
Júgóslava í handknattleik, hefur
framlengt samning sinn við Barcel-
ona á Spáni um tvö ár, eða fram
FráAtla
Hilmarssyni
á Spáni
til 1992.
■ LUIS Suarez ,
landsliðsþjálfari
Spánverja í knatt-
spyrnu, hefur valið
16 leikmenn fyrir leikinn gegn
Tékkum í næstu viku. Hann hefur
gert fjórar breytingar á hópnum frá
því í leiknum við íslendinga í Se-
villa. Þeir Bakero (Barcelona),
Hierro (Real Madrid), Quique og
Roberto (Valencia) koma inn í
hópinn fyrir Amor, Beguiristain,
(Barcelona) og Valverde og Al-
korta (Bilbao). Leikurinn fer fram
í Tékkóslóvakíú 14. nóvember.
B TURKYLMOZ, svissneski
landsliðsmaðurinn sem leikið hefur
með Servette hefur verið seldur til
Bologna á Ítalíu fyrir 160 milljónir
íslenskra króna og er það metupp-
hæð fyrir svissneskan knattspyrnu-
mann.
■ JAN Boklov, heimsmeistarinn
sænski í skíðastökki, ökklabrotnaði
á fyrstu æfingunni fyrir komandi
keppnistímabil í Gallivare í
Svíþjóð í vikunni. Ekki er vitað
hvað Bokolv verður lengi frá
keppni.
ÚRSLIT
Grótta-FH 15:16(12:8)
íþróttahús Seltjarnamess, íslandsmótið I
handknattleik , 1. deild kvenna, fimmtudag-
ur 8. nóvember 1990.
Mörk Gróttu: Sara Haraldsdóttir 5, Gunn-
hildur Ólafsdóttir 4, Brynhildur Þorgeirs-
dóttir 2, Laufey Sigvaldardóttir 2, Helga
Sigmundsdóttir 1, Elísabet Þorgeirsdóttir 1.
( Mörk FH: Rut Baldursdóttir 6, Kristín
Pétursdóttir 3, María Sigurðardóttir 3,
Arndís Aradóttir 2, Hildur Harðardóttir 2.
< Naumt hjá FH
Gróttuliðið byijaði vel og komst í
7:1 iim miðjan fyrri hálfleik, en
þá vöknuðu FH-stúlkur og náðu að
klóra í bakkan fyrir leikhléi, 12:8.
Dæmið snérist við í sl. hálfleik, en þá
léku Gróttustólkur ómarkvissan sókn-
arleik og FH náði að vinna nauman
sigur á lokamín. leiksins.
NBA-deildin Miðvikudagur: Cleveland — Charlotte Homets... 100:89
Dallas Mavericks — Philadelphia 104:101
San Antonio Spure — Denver Nuggets 161:153
Phoenix Suns — Golden State 126:119
letroit Pistons — LAXlippers.... 110:83
í kvöld
Handknattleikur
( 1. deild karla: Vestm. ÍBV - Vfkingur
Akureyri KA-ÍR kl. 20:30
( 2. deild karla: Húsavík Völs. - ÍH
( Keflavík ÍBK-UMFA 1. deild kvenna:
Garðabær Stjarnan - ÍBV Körfubolti 20:00
[ 1. deild karla: Akranes ÍA-Reynir
Digranes UBK - Skallagr Blak 20:00
1. deild kvenna: Húsavík Völsungur-ÍS 21:30
=s
KORFUKNATTLEIKUR
Leikmenn Snæfells hafa ferðast hátt í 5000 km með langferðabifreið.
Morgunblaðið/Bjarni
Snæfellingar hafa verið á ferð og flugi:
„Loksins komnir heim“
- segir Þorvaldur Pálsson, formaður körfuknattleiksdeildar Snæfells
ÞAÐ er mikil stemmning fyrir
fyrsta heimaleik okkar í nýja
íþróttahúsinu hér í Stykkis-
hólmi - löng bið er á enda,“
sagði Þorvaldur Pálsson,
formaður körfuknattleiks-
deildar Snæfells, en Snæfell-
ingar leika sinn fyrsta heima-
leik gegn Valsmönnum í
Stykkishólmi kl. 17 á morgun,
en nýja íþróttahúsið verður
vígt kl 13.
Snæfellingar, sem hafa æft í
Grundarfírði og leikið átta
útileiki í röð, hafa svo sannarlega
verið á ferð og flugi að undan-
förnu. „Leikmenn voru orðnir
langþreyttir á ferðalögum á æf-
ingar og leiki í langferðabifreið.
Við höfum ferðast hátt í fimm
þúsund kílómetra með langferða-
bifreið sem af er keppnistímabil-
inu,“ sagði Þorvaldur.
Ferðakostnaður Snæfellinga
hefur verið mikill, enda hafa þeir
nú þegar leikið átta af þrettán
útileikjum sínum. „Kostnaðurinn
hefur verið mikill, en tekjurnar
engar. Við höfum fengið styrk frá
skilningsríku fólki og það hefur
hjálpað mikið. Við sáum fyrir
stuttu að það var ekki endalaust
hægt að bjóða leikmönnum okkar
upp á að ferðast með langferðabif-
reið. Því höfum við farið flugleið-
ina í síðustu þrjá útileiki okkar -
til Sauðárkróks, Akureyrar og
Keflavíkur,“ sagði Þorvaidur.
Mikil stemmning er fyrir fyrsta
heimaieik Snæfells og er reiknað
með að um 500 áhorfendur mæti
í hið nýja glæsilega íþróttahús á
Stykkilshólmi á morgun þegar
Valsmenn koma þangað í heim-
sókn.
Þór-ÍR 120 : 90
Iþróttahöllin á Akureyri, úrvalsdeildin í körfuknattleik, fimmtudag-
ur 8. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 11:2, 16:8, 29:14, 35:14, 48:35, 52:43. 65:45,
80:59, 95:64, 109:70, 115:85, 120:90.
Stig Þórs: Jón Öm Guðmundsson 27, Cedric Evans 19, Sturia
Örlygsson 19, Guðmundur Bjömsson 16, Konráð Óskarsson 15,
Bjöm Sveinsson 13, Högni Friðriksson 5, Davíð Hreiðarsson 4,
Ágúst Guðmundsson 2.
Stig ÍR: Douglas Shouse 44, Jóhannes Sveinsson 22, Gunnar
Þorsteinsson 8, Bjöm Boliason 6, Bjöm Leósson 4, Pétur Hólm-
steinsson 4, Hilmar Gunnarsson 2, Brynjar Sigurðsson 1.
Dómarar: Kristján Möller og Kristinn Óskarsson.
Áhorfendur: 150.
Öraggur sigur Þórs
IR-ingar voru auðveld bráð fyrir Þórsara, sem réðu
öllu á vellinum þegar þeir settu á fulla ferð. Mest-
ur var munurinn 40 stig í seinni hálfleik. Jón Örn
Guðmundsson var mjög sprækur í jöfnu liði Þórsara
og Evans var öflugur í vörninni. Sho-
Anton use, sem skoraði 44 stig og Jóhannes
Banjaminsson Sveinsson voru allt í öllu i liði ÍR, en
skrifar það háir liðinu að hafa ekki meiri
breidd.
Haukar-UMFG 80 : 83
íþróttahúsið við Strandgötu, úrvalsdeildin í körfuknattleik, fimmtu-
dagur 8. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 4:8, 10:8, 14:10, 20:17, 25:23, 33:26, 36:39,
42:39, 46:43. 48:51, 58:61, 66:69, 70:75, 79:80, 80:83.
Stig Hauka: Mike Noblet 23, Jón Amar Ingvarsson 18, ívar
Ásgrímsson 14, Pálmar Sigurðsson 10, Henning Henningsson 6,
Reynir Kristjánsson 4, Pétur Ingvarsson 4, Sveinn Steinsson 1.
Stig UMFG: Daníel Krebbs 22, Guðmundur Bragason 19, Jóhann-
es Kristbjörnsson 14, Marel Gunnlaugsson 11, Rúnar Árnason
8, Steinþór Helgason 7, Ellert Magnússon 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Helgi Bragason, sem voru ekki
í sama gæðaflokki og leikurinn. Sérstaklega í fyrri hálfleik.
Áhorfendur: Um 300.
Spenna í Firdinum
Grindvíkingar báru sigur í æsispennandi viður-
eign. Leikur liðanna var hraður, góður og geysi-
lega jafn, en Haukar oftast með forustu framan af.
Um miðjan fyrri hálfleik fóru Grindvíkingar að leika
svæðisvörn, sem er árangurrík en ger-
ir leiki leiðinlegan á að horfa. Þessi
vamarleikur sló Hauka út af laginu
og þeir fundu aldrei svar við honum.
Grindvíkingar nýttu sér það. Á loka-
sek. fékk Pálmar Sigurðsson tækifæri til að koma
Haukum yfir, en var of bráðlátur og ótímabært skot
Ágúst
Ásgeirsson
skrifar
hans rataði ekki ofan í körfuna. Grindvíkingar skor-
aði síðasta stig leiksins, 80:83, úr vítaskoti. Haukar
lentu í miklum villuvandræðum snemma í leiknum og
misstu þeir fjóra leikmenn af leikvelli — þar af þijá
bytjunarleikmenn. Margar villur sem þeir fengu voru
vegna rangra dóma.
ÍBK-UMFN 92 : 91
íþróttahúsið í Keflavik, Úrvalsdeildin í körfuknattleik, fimmtudag-
inn 8. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 4:0, 4:2, 9:2, 12:11, 26:14, 35:25, 44:33, 53:36,
60:46, 67:60, 71:67, 73:73, 82:81, 84:85, 86:86, 92:86, 92:91.
Stig IBK: Falur Harðurson 29, Jón Kr. Gíslason 21, Tom Lytle
19, Sigurður Ingimundarson 10, Albert Qskai’sson 4, Egill Viðars-
son 4, Hjörtur Harðarson 2.
Stig UMFN: Rondey Robinson 43, Teitur Örlygsson 16, ísak
Tómasson 13, Kristinn Einarsson 10, Friðrik Ragnai'sson 9.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn Albertsson.
Áhorfendur: Um 400.
Keflvíkingar höfðu befur
Keflvíkingar höfðu betur í nágrannaslagnum gegn
Njarðvíkingum í æsispennandi leik í Keflavík í
gærkvöldi og skildi aðeins eitt stig liðin af í lokin.
Keflvíkingar Iéku geysivel framan af og höfðu náð
17 stiga mun í hálfleik. Njarðvíkingar
gáfust ekki upp og með miklu harð-
fylgi tókst þeim að jafna metin og
komast yfír 85:84 þegar innan við 3
mínútur voru til leiksloka. En Keflvík-
Bjöm
Blöndal
skrifarfrá
Keflavik
ingar svöruðu með góðum endaspretti og það voru
þeir sem áttu síðasta orðið í þessari spennandi viður-
eign. „Við notuðum svæðisvörn til að byija með -
virtist setja út af laginu og ég var alveg hissa hversu
lengi Njarðvíkingar voru að finna rétta svarið. Foreko-
tið sem við náðum upp í fyrri hálfleik réði úrslitum
og það að við náðum að halda haus á lokamínútun-
um,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður
ÍBK, eftir leikinn. „Þetta var sama sagan hjá okkur
og gegn Haukum um daginn.'liðið var alltof Iengi í
gang. Við lékum vel í síðari hálfleik og vantaði að-
eins herslu muninn á að tryggja okkur sigurinn í leikn-
um. Ég er ákaflega óskáttur við dómarana þeir leyfðu
Keflvíkingum alltof mikið - séretaklega í fyrri hálfleik
og dæmdu þá auk þess öll vafaatriði til þeirra," sagði
Friðrik' Rúnarsson, þjálfari UMFN. Hjá IBK voru þeir
Jón Kr. Gíslason, Falur Harðarson og Tom Lytle best-
ir en hjá UMFN var Rondey Robinson yfírburðarmað-
ur skoraði næstum helming stiga liðsins. Teitur Örl-
ygsson og ísak Tómasson sýndu góð tilþrif en duttu
niður þess á milli.
Conrad Cawley.
Cawley þjálf-
ar í Englandi
Conrad Cawley, fyrrum lands-—
liðsþjálfari íslands í sundi, hef-
ur verið ráðinn þjálfari hjá enska
sundfélaginu Guildford frá Surrey,
sem er smábær rétt utan við Lon-
don.
Cawley hefur þjálfað Ármann í
Reykjavík um nokkurt skeið en
hefur sagt starfi sínu lausu og held-
ur utan til Englands í næstu viku.
„Ég fékk það gott tilboð að ég gat
ekki hafnað því. Eins er mjög góða
sundaðstaða hjá félaginu miðað við
það sem gerist hér á íslandi. Þar
er ný og glæsileg 25 metra innilaugs®^
með átta brautum," sagði Cawley.
Sundfélag Guildford var fyrir
nokkrum árum eitt besta sundfélag
Englands, en gengi liðsins hefur
ekki verið gott að undanförnu. í
félaginu eru tveir núverandi lands-
liðsmenn Englands. „Ég fæ það
verkefni að byggja upp sterkt sund-
lið næstu tvö til þijú árin og þuó*'"’
er spennandi verkefni,“ sagði Caw-
ley.