Morgunblaðið - 09.11.1990, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
9
-skór
NÝKOMNIR
Teg.1014
Litur: Svart leður
Stærðir: 40-47
Verð kr. 5.820,-
Laugavegi 41, sími 13570
Skóverslun Þórðar
Kirkjustræti 8,
sími 14181.
Prófkjör í Reykjaneskjördæmi
HREGGVIÐUR JONSSON
alþingismaður
Hugmyndaríkur hugsjónamaður
sem þorir!
Stuöningsmenn.
Loksins f rjáls
Steinar Harðarson skrifar
Steinar naroarsun w v—
verði fylgt þeini meginstefnu «ö
lcBRia i eftir efnum °g istiðum einíog li f Uf'. („ðarhðfn ttefnuskri fortlðannnir. Ef við
Hin gamaldags, þröngsýna stefnuskrá
fortiðarinnar
er skorin utnafflokknum einsog slakkur
utanaf hálfdrukknuðum sjomanm
o.ml. oliubonu rtialn- iiBðu þá vi» |»
sitoiennum um
Miðjumoð og biturt háð
Gömlu kommarnir í Alþýðubandalaginu eru
þrumu lostnir, .og vita ekki sitt rjúkandi
ráð, eftir að miðstjórnarfundur flokksins á
Akureyri á dögunum afnam í heilu lagi
stefnuskrána. Þar með fór síðasta hal-
dreipið, því eftir hrun kommúnismans í
Austur-Evrópu var fátt til að glæða hug-
sjónaeldinn. Nú er ekkert eftir annað en
miðjumoð.
Nýja andlitið
Stefnuskráin brott-
fellda var sett af lands-
fundi Alþýðubandalags-
ins árið 1974 eftir
víðtækar umræður í
flokksfélögunum, sellum
og leshringjum. Stefnu-
skráin nýja átti að færa
flokkinn til nútíðar og
framtiðar — breytt og
endurbætt eftir ókyrrð
’68-kynslóðarinnar og
miðuð við umrót þjóð-
frelsishreyfinga þriðja
heimins. Það var orðið
nauðsynlegt að hverfa
frá svæsnasta stalínism-
anum til að laða breið-
fylkingu ungs, róttæks
fólks að flokknum.
Þannig var hið nýja
andlit Alþýðubandalags-
ins til komið. Með nýju
stefnuskrámii var
flokknum forðað frá
mestu niðurlægingu sér-
hvers sanns sósíalista —
miðjumoðinu, eins og
flokkslínuvörðurinn og
„gúrúinn" Kristinn E.
Andrésson kallaði sér-
hvert frávik frá marx-
ismanum.
Þótt á stöku sellufund-
um heyrðist muldrað um
miðju-eitthvað, og fáeinir
ungir byltingarsimiar
yfirgæfu flokkiim, þá
hefur stcfnuskráin frá
1974 verið sá segull, sem
haldið hefur gömlu
kommunum innan Al-
þýðubandalagsins í sext-
án ár. Þeir hafa meira
að segja látið ráðherrasó-
sialismann yfir sig
ganga, ítrekað.
Samsuða
Og nú hefur gamla
konnnaklíkan líka verið
svipt stefnuskráimi sinni.
Hún varð ráðherrasósíal-
ismanum að bráð, því
félagarliir Svavar og
Steingrímur J. geta með
engu móti hugsað sér að
yfirgefa ráðherrastólana
frekar en fyrri félagar
sem í þá hafa komizt. En
þeir hafa þó gengið
lengra en nokkrir aðrir.
Þeir hafa ekki látið
nægja að hunza grund-
vallarstefnu flokksins
heldur samþykkt að fella
stefnuskrána niður í
heilu lagi — og það fyrir
aðeins örfán-a mánaða
viðbótarsetu í ráðherra-
stólnum. Og það sem
gömlu kommunum finnst
verst af öllu er, að sjálfur
niiðjumoðs-meistarinn,
Ólafur Ragnar, stendur
með pálmann í höndun-
um eftir miðstjómar-
fundinn. Stefnuskráin
fokin út í veður og vind
og kratísk samsuða kom-
in í staðinn.
Það skritnasta við
þetta er, að enginn skuli
gera athugasemd við, að
venjulegum miðstjómar-
fundi, jafnvel á Akur-
eyri, skuli haldast uppi
að fella úr gildi stefnu-
skrána, sem samþykkt
var af landsfundi eftir
umfjöllun í öllu
flokksapparatinu.
Kannski nægir kaffi-
húsafmidur hvítflibba-
komma til að ómerkja
miðstj ómarsamþykktir?
Biturt háð
En háðið hefur löngum
verið beittasta vopn góðs
sósíalista. Nú er bitm
háði beitt á Þjóðviljanum.
Það má sjá í grein Stein-
ars Harðarsonar, auglýs-
ingastjóra, er hann skrif-
aði um miðstjómarfund
Alþýðubandalagsins.
Grein sína nefnir hann
„Loksins ftjáls“ og fer
hún hér á eftir:
Það hlaut að koma að
því. það gat ekki verið
að við Allaballar yrðum
skildir eftir í jámviðjum
steinruimins sósíalisma.
Æðsta stofnun flokksins
(milli landsfunda) hefur
tekið af skarið. Aðal-
fundur miðstjórnar á
Akureyri liafði hið
pólitíska þor sem til
þurfti. Hhi gamaldags,
þröngsýna stefnuskrá
fortíðarinnar er skorin
utanaf flokknum einsog
stakkur utanaf hálf-
drukknuðum sjómanni.
Formaðurinn hefur enn
einusinni sannað að hans
pólitíski sextant leiðir oss
ætíð á rétta braut jafnvel
þótt hvorki sjáist til sólar
né stjama.
Hvernig á nútimalegur
flokkur jafnaðarmanna
að geta starfað í hinu
flókna pólitíska samfé-
lagi ef dragast þarf með
stefnuskrá sem hefur að
geyma setningar sem:
„frelsishugsjón sósíal-
ismans er því ósamrý-
manlcg frelsi auðmagns-
ms sem helgar yfu-ráð
fámennrar stéttar yfir
lífsskilyrðum almenn-
ings“ eða „í skat tamálum
verði fylgt þeirri megin-
stefnu að leggja á eftir
efnum og ástæðum" og
áfram — það versta: „Að
kappkostað sé að efla
sem mest samheldni
verkalýðsstéttarinnar og
allrar alþýðu, bæði í
kjarabaráttmmi og á öðr-
um sviðum!" Það sér
hver sæmilega vitiborinn
maður að flokkur með
slíka stefnuskrá eignast
aldrei starfhæfa miðju.
Það kom líka á daginn:
Óðar en flokkurinn eftir
langvarandi vosbúð og
hrakninga, með ljóta
fortíð einsog lík i lest-
inni, hefur lagt fleyi sínu
við festar í friðarhöfn
erlendrar stóriðju, laus
við hinn gamla oliuboma
stakk róttækninnar, þá
hafði myndast hin lang-
þráða, stai-fliæfa miðja
hins nútímalega jafnað-
arflokks.
Það er ógerlegt að ná
árangri í nútima stjórn-
málum ef ekki ríkir frelsi
til ákvarðana og aðgerða
sem taka mið af aðstæð-
um á hveijum tíma. Slíkt
frelsi ríkir ekki, ef við
lýði er afdönkuð stefnu-
skrá fortiðarinnar. Ef við
Allaballar t.d. erum í
stjómarandstöðu þá for-
mælum við þeim dusil-
mennum sem voga sér
að skerða lífskjör eða
sjálfsögð mannréttindi,
svo sem réttinn til kjara-
samninga. Ef við Alla-
ballar aftur á móti emm
í ríkisstjóm þá em „aðr-
ar pólitískar aðstæður"
og við bregðumst við
samkvæmt aðferðum
hins nútímalega lýðræð-
issinnaða jafnaðarflokks
og tökum nauðsynlegar
ákvarðanir. Okkur var
líka bent á það um helg-
hui af formanni vomm
að sumar kjarabætur
samrýmast ekki stefnu-
skrá flokksins. (Ég er
ekki alveg viss hvort það
er sú gamla eða nýja.)
Það er og hveijum manni
Ijóst að eftir að við lögð-
um af þá gömlu sérvisku
að basla við að vinna
kjósendur til fylgis við
hugsjónir okkar en tók-
um upp nýja stefnu og
starfsliætti, að aðlagast
rikjandi skoðunum, þá
þarf svigrúm sem hæfir
„nútíma jafnaðarflokki",
frelsi til pólitískra at-
hafna.
Ég sný ásjónu miimi
til norðurs og horfi með
djúpri Iotningu nútíma
jafnaðarmanns í átt til
Akureyrar: Free at last,
I loksins fijáls.“
jrcn fröSTUDAGUR TIL FJÁR^I il 00 þ Mj
1PIPARKOKUMOT1 ft 1 DAG 1
| Á KOSTNAÐARVERÐI
SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ f BYGGTÖBÖltí R| f KRINGLUNNI
KRINGLUNNI