Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
Eðal-
málmar
— skart
List og hönnun
BragiÁsgeirsson
Það eru með sanni menningarleg-
ar sýningar, sem verzlunin Epal í
Faxafeni 7 heldur í* húsakynnum
sínum af og til.
Eins og kunnugt er þá sérhæfir
verzlunin sig í úrvals hönnun og
þá ekki síst íslenzkri, og er það
heilmikið fyrir augað að líta þar inn.
Fram til 9. nóvember kynnir
verzlunin sérstaklega skartgripi
eftir listhönnuðinn Pétur Tryggva,
sem listrýnirinn þekkir næsta lítið
til.
Það vekur strax athygli, er inn
er komið, hve vel er að gripunum
búið, en um þann þátt hefur arki-
tektinn Pálmar Kristmundsson séð.
Hefur verið komið fyrir löngum og
sverum blikkrörum og þau opnuð
neðan til, þar sem skartgripunum
er komið fyrir. Um þann þátt, er
lýtur að smíðinni hefur blikksmiðjan
OJ & K séð, en Halldór Ólafsson
rafvirkjameistari er ábyrgur fyrir
lýsingunni og er þessi samvinna hin
lofsverðasta.
Skartgripimir sjálfir eru mjög
einfaldir og margir hveijir mikið
augnayndi og bíða þess að verða
prýði og stolt væntanlegra eigenda.
Pétur Tryggvi vinnur senn í eðal-
málmum sem dýrum steinum, en
um leið blandar hann inn í heildina
jafn almennu efni og steinsteypu,
og fer það í sumum tilvikum afskap-
lega vel, eins og t.d.í Nælu nr. 7,
sem er úr 18 karata gulli, stein-
steypu og demanti (!) — á fagmáli
I.63ct Yellow WSI. Þetta er um
leið dýrasti skartgripurinn og mun
kosta eina milljón króna ...
A sýningunni getur að líta allt í
senn, hringa armbönd, hálsspangir,
nælur, bindisnælu, ermahnappa og
eymalokka.
- Satt að segja hafði ég mjög gam-
an af að skoða þessa sýningu og
hún reyndist mun merkilegri en ég
bjóst við, enda er auðséð að hér er
á ferð skartgripahönnuður, sem
vinnur gripi sína af mikilli alúð og
leggur sig allan fram í skýrri, ein-
faldri, fínlegri og stílhreinni út-
færslu. Gerandinn leitast ekki við
að vera frumlegur, því að hann
hefur fundið og skynjar samræmi
í þeim efnum, sem hann vinnur í
og kannski einmitt þess vegna nær
hann svo ágætum árangri í sínum
formfegurstu gripum.
Vil ég hér auk fyrrnefndrar nælu
sérstaklega vísa til gripa nr. 14-22
svo og hálsspangarinnar nr. 33.
Maður þakkar svo fyrir upplífg-
andi og ánægjulegar stundir fyrir
framan gripina.
LEYNDARMAL
STROMPSINS
________Leiklist____________
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Leikfélag Verslunarskóla Is-
lands sýnir Strompleik.
Höfundur: Halldór Laxness.
Leikstjóri: Ingunn Asdísardóttir.
Sviðs- og búningagerðarmenn:
Nemendur á myndlistarnám-
skeiði og leikhópurinn.
' Lýsing: Egill Arnason.
Það er svolítið kostulegt hvað
leikrit Halldórs Laxness hafa gert
menn ruglaða í ríminu þannig að
þeir eiga oft í hinu mesta basli
með að taka afstöðu til þeirra.
Kannski truflar það ægivald sem
Halldór hefur í bókmenntaheimin-
um og ekki að ósekju, margar
skáldsögur hans eru listasmíð.
Leikrit hans rísa ekki eins hátt og
ein ástæðan er að í þau vantar oft
leikræna (dramatíska) samþjöpp-
un, einhvern neista sem ber þau
uppi. Þau ganga oft þvert á siði
og venjur leikhúsins, í þeim ægir
öllu saman, þau eru. full af háði,
ekkert er heilagt þó alvaran sé
kannski ekki langt undan. En hinu
er heldur ekki að leyna að Halldór
er einn af nýjungamönnunum í
íslensku leikhúsi og víst er að leik-
ritun var ekki framsækin á þeim
tíma sem Halldór skrifaði sín verk
(fiest á árunum ’54-’66).
Laglaus söngkona og lík í
strompi
Leikfélag Verslunarskóla ís-
lands sýnir nú í hátíðarsal skólans
Strompleik sem var fyrst sýndur
árið 1961 í íjóðleikhúsinu. Stromp-
leikur beinir spjótum sínum fyrst
og fremst að gervimennsku hvers
konar. Sýndarmennsku hinnar
íslensku þjóðarsálar eins og skáld-
inu kom hún fyrir sjónir á árunum
eftir stríð. Ádeilan er háðsk en
stundum nokkuð einföld. Söguhetj-
umar eru mæðgur að norðan, frú
Ólfer og Ljóna, sem búa í bragga
en eru þó að sögn betur ættaðar
en nokkur annar í bænum. Þær
hafa úti allar klær til þess að ná
í nógu ríkt mannsefni handa Ljónu.
Aðal vonbiðlamir era innflytjandi
og útflytjandi og sá síðamefndi
stendur kostnað af áralöngu söng-
námi Ljónu. Hún er vita laglaus
en móðir hennar sannfærir hvern
þann er heyra vill að stóra ópera-
húsin úti í heimi bíði með opnar
dyr fyrir þessa mikilhæfu söng-
konu. Mamman er einbeitt í þess-
ari blekkingu sinni og hana munar
því lítið um það að geyma eitt
stykki lík í strompnum hjá sér.
Allt er í lagi meðan enginn fer að
kveikja upp.
Yktur skopleikur
Leikstjórinn hefur valið skoplegu
leiðina við uppsetningu verksins,
stílfærðar persónur og ýktan leik-
máta. Það er vafalaust rétta leiðin
í þessu tilviki og hentar hópnum
ágætlega. En það er alltaf spurning
hvort ekki eigi að leika hið fárán-
lega með eðlilegum leikmáta, verð-
ur ádeilan ekki beinskeyttari með
því? í þessari sýningu er hið fárán-
lega stækkað upp og búningar og
gervi ýta undir stílfæringuna. Leik-
ararnir eru allir í n.k. dúkkulísu-
búningum, einungis um framhlið
að ræða. Búningarnir eru því í takt
við efni leiksins þar sem tilveran
Innflytjandinu og útflyljand-
inn.
gengur út á að sýnast, blekkingin
er aðalatriðið.
Jóna Valborg Ámadóttir leikur
fiðrildið hana Ljónu sem hagar
seglum eftir vindi án þess að spá
svo mikið í hlutina. Jóna hefur
skemmtilegan leikstíl og hreyfing-
ar en það er svolítið þreytandi hvað
hún er látin tala mikið yfir sitt
raddsvið þó vissulega sé hvell rödd-
in í takt við persónugerð Ljónu.
Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir lék
mömmuna og tókst prýðilega upp.
Hún náði vel að sýna taugaspennt
fas hennar (útaf líkinu í strompn-
um) og lék af miklu öryggi. í heild
komust krakkarnir vel frá hlut-
verkum sínum og sýndu mörg hver
ágætan gamanleik, taktarnir
minntu oft á gamanmyndir s.s.
Chaplin. Má þar t.d. nefna Ragnar
Víði Reynisson í gei-vi innflytjan-
dans.
Það besta við sýninguna er skop-
ið og oft er hláturtaugunum dillað
en stundum er gleðin svo mikil í
leik að textinn fer forgörðum.
Einkum stela baksviðsleikararnir
oft senunni frá þeim sem era í for-
grunni og flytja textann.
Gagnlegar vörur á góðu verði hjá Eltíngsen
Norskir koparpottar fyrlr arin-
vlð, handavinnu, blöð og fleira.
Handunnlð arinsett úr messing Handunnir kertalampar
frá Englandi. Þrjár gerðir. frá Englandi
Skrúflárnasettln frá USAG.
Dæmi um verð: 7 stk.
Verkfærakassar frá USAG, 6
stærðir. Verð frá
Verð frá
Verð frá
Verð frá
Danskir olíulampar:
Borðlampi
Hengilampl
Kr. 6.900,-
Creusen smergel, margar
stærðir. Verð með tveimur
110X16X15 mm steinum
Kr. 5.654,-
Eldvarnarbúnaður í úrvali.
Dæmi um verð á slökkvitæki-
um: 6 kg dufttæki
Kr. 9.335,-
Skúffuskápar, margar gerðir,
þrjár stærðir. Verð frá
Kr. 1.673,
Sérstakt tilboð á arinkubbum.
Ultra Flame kubbar 3ja tíma, pr. stk. kr. 199,-
Norskir handmálaðir físibelgir
Kr. 5.189,-
Enskir ffsibelgir, verð frá
Kr. 980,-
Kr. 1.961,-
Kr. 1.220,-
Kr. 4.900,-
Kr. 5.323,-
Kr. 1.755,-
Opið laugardaga frá kl. 9 til 12 H~í
SENDUM UM ALLT LAND Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855