Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 13
Athugasemd
við grein
Hreggviðs
Jónssonar
frá útgef-
endum Voga
Útgefendur Voga neita fram-
komnum ásökunum Hreggviðs
Jónssonar alþingismanns í þá veru,
að Vogar hafi mismunað Hregg-
viði og öðrum greinahöfundum.
Hér er um misskilning að ræða sem
skýra má af eftirtöldum atriðum
sem varða útgáfutækni Voga.
1. Mikil þrengsli eru jafnan í
blaðinu. Verður blaðið oft að grípa
til smáleturs til þess að koma efni
fyrir.
2. Greinum er ekki raðað í blað-
ið eftir efnisinnihaldi. Aðeins' léið-
ari og grein formanns Sjálfstæðis-
flokksins eru á föstum stöðum.
3. Vogar hafa engar aðrar tekj-
ur en auglýsingatekjur. Blaðið get-
ur ekki komið út án auglýsinga.
Oðru efni blaðsins er því raðað inn
á milli auglýsinga eins smekklega
og kostur er.
4. Vogar biðja sjálfstæðismenn
um að skrifa í blaðið. Hreggviður
Jónsson hefur orðið ljúflega við
slíkum beiðnum eins og aðrir góðir
sjálfstæðismenn. Grein’ar hans
hafa birst á venjulegan hátt í blað-
inu.
5. Fyrir kemur að sleppa verður
greinum frá einu blaði til annars
vegna þrengsla. Fyrir kemur að
sleppa verður mynd af greinarhöf-
undi vegna þrengsla.
6. Vogar eru unnir af örfáum
starfsmönnum. Það verða óneitan-
lega mistök í hveiju blaði, brengl,
niðurföll, prentvillur o.s.frv. Les-
endur virðast flestir fyrirgefa okk-
ur og taka viljann fyrir verkið.
7. Það er trú okkar að það sé
betra fyrir Hreggvið Jónsson al-
þingismann Sjálfstæðisflokksins
að koma umkvörtunum sínum, ef
einhveijar eru, beint á framfæri
við útgefendur blaðsins, sem eru
flokksbræður hans og engir óvild-
armenn.
8. Vogar föluðust eftir auglýs-
ingu frá Hreggviði Jónssyni, fram-
bjóðanda í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins, í síðasta tölublaði Voga.
Þegar hún barst ekki hafði blaðið
frumkvæði að því að setja auglýs-
inguna inn að eigin frumkvæði til
þess að allir væru með.
9. Útgefendum blaðsins er ekki
kunnugt um tilvist flokkseigenda-
félags Sjálfstæðisflokksins í Kopa-
vogi. Þeir telja að þar séu allir
flokksmenn jafnir, Hreggviður
Jónsson ekki síður en aðrir.
F.h. útgefenda Voga,
Halldór Jónsson
ábyrgðarmaður,
Ingimundur Magnússon
ritstjóri,
Jón Kr. Snæhólm
aðstoðarritstj.,
Jóhanna Birgisdóttir
umsjónarm.
ooer HasMavöH .<> áuoÁairreö’í aiQAjawuoaoM • Sí
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990------------------------------------------------13
0
s
4-i
Sj
$
í\
vC
>Sl
íý
V;
sd
o
IYMNG
ÓVENJULEG HÚSGAGNASÝNING
9.-11. NÓVEMBER
HIN FULLKOMN
IAUSN
FALLEG OG FORVITNILEG
Sérkennilega falleg húsgögn hönnuð af
Úórdísi Zoéga húsgagnaarkítekt FHI. Stói-
arnir eru úr stáli og klæddir steinbítsroði.
Nýstárieg og þægileg húsgögn sem óneitan-
lega vekja athygli.
KINNARPS
- GÆÐI OG GLÆSILEIKI
Kinnarps er hin fullkomna lausn fyrir allar
stærðir og gerðir af skrifstofum. Hér er
hugsað íyrir öllum smáatriðum. Gullfalleg
hönnun og toppgæði á góðu verði. Nær
óendanlegir uppsetningarmöguleikar.
Þar að auki gefur að líta úrval vandaðra
húsgagna frá ýmsum löndum. Líttu inn á
sýninguna okkar í Faxafeni 9, - 9.-11. nóv-
ember og sjáðu hvað hægt er að gera fyrir
skrifstofuna þína eða heimilið.
Opið laugardag kl. 10-17
13-18.
FAXAFENI 9 0679399
f
^ d yá§||A - w mBhK
Prófkjör sjálfstæðismanna Reykjanesi Kjósum Árna Ragnar Árnason í 3ja sæti - Hann á erindi á Alþinei íslands Helstu baráttumál Árna: ★ Aukin atvinnutækifæri ★ Nýtum íslenskar auðlindir og íslenskt vinnuafl ★ Aðstöðugjald í burtu ★ Minni ríkisumsvif ★ Aukin umhverfisvernd ★ Öflug neytendavitund og frjáls samkeppni ★ Jafn atkvæðisréttur allra landsmanna